Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 49 MINNINGAR BALDVINA MAGNÚSDÓTTIR + Baldvina Magn- úsdóttir fæddist á Siglunesi við Siglu- íjörð 21. aprfl 1925. Hún lést á Landspíta- lanum í Fossvogi hinn 8. aprfl síðastlið- inn. Baldvina var elst barna hjónanna Magnúsar Baldvins- sonar bónda á Siglu- nesi og konu hans Antoníu Erlendsdótt- ur. Systkini Baldvinu eru: Erla Guðlaug, f. 16. maí 1926, búsett á Akureyri; Haraldur, f. 26. nóvember 1927, búsettur á Akureyri; Guðmundur, f. 24. febr- úar 1929, búsettur á Akureyri; Erlendur, f. 21. október 1930, bús- ettur á Egilsstöðum; og Hreinn, f. 20. maí 1932, búsettur í Reykja- vík; Árið 1957 giftist Baldvina eftir- lifandi eiginmanni sínum Snæbirni Pálssyni slökkviliðs- manni, f. 12. ágúst 1924. Þau eignuðust tvo syni. Þeir eru: 1) Magnús, f. 31. mars 1958, maki Ingibjörg Sigurðardóttir, f. 12. júní 1958. Dóttir þeirra er Sigrún Birna, f. 22. maí 1979, sambýlismað- ur Hörður J. Hall- dórsson, f. 29. sept- ember 1974. 2) Páll, f. 25. mars 1962, maki Guðrún Dóra Gísladóttir, f. 9. september 1963. Börn þeirra eru a) Daði Snær, f. 3. febrúar 1988. b) Arna, f. 19. nóvember 1989. Útför Baldvinu fer fram frá Ar- bæjarkirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 15. Ég hitti Baldvinu fyrst fyrir rétt- um 16 árum. Þá áttaði ég mig ekki á hversu mikils virði þessi ágæta kona ætti eftir að verða mér. Ég man, að ég horfði stíft á háralitinn og mig grunaði að einhver hjálparefni hefðu verið notuð til að styrkja þennan hrafnsvarta lit. Auðvitað var það vit- leysa í mér. Baldvina kom til dyr- anna eins og hún var klædd, hún þurfti enga hjálp við það. Hún var alltaf hrein og bein. Seinna, þegar við fluttum í hverfið með bömin okkar tvö, kom það betur í ljós hversu dýrmætt það var að eiga hana að og hafa hana í nágrenninu. Daði Snær og Arna rötuðu ung heim til ömmu og afa í Árbænum. Það var líka allt í lagi að taka nokkra vini eða vinkonur með. „Verið þið velkomin,“ var ævinlega kveðjan á dyrapallin- um. Þar var alltaf tími til að hlusta þegar létta þurfti á hjartanu og ein- hver til að þurrka tár af hvörmum þegar útaf bar. Þar var alltaf eitt- hvað gott í svanginn, pönnukökur, partar og fleira nútímalegra góðgæti á boðstólum sem kætti. Hún sagði mér oft fréttir af stór- fjölskyldunni. Oft um konumar, þær em svo duglegar. Ég skynjaði þá hversu mikla virðingu hún bar fyrir þeim sem nýttu sér tækifærin sem bjóðast í lífinu. Hún hafði ekki sömu tækifæri og við en horfði yfir öxlina á okkur sem yngri eram og samgladd- ist þegar vel gekk. Barnabömin þrjú vom henni hjartfólgin, í þeim sá hún framtíðina og lagði mikið á sig til að fylgjast með þeim. Skyndilega, eins og hendi sé veif- að, er hún farin á vit æðri máttar- valda. Eftir sitjum við hnípin en þakklát fyrir það sem var. Þakka þér fyrir samfylgdina og hvíl þú í friði, Baldvina mín. Guðrún Dóra Gísladóttir. Það ríkir sorg í hugum okkar syst- kinanna þegar við setjumst við að skrifa minningarorð um Böldu foð- ursystur okkar. Við höfðum öll gert ráð fyrir því að fá að njóta samvista við hana miklu lengur og veikindi hennar komu okkur mjög á óvart. Hún greindist með alvarlegan sjúk- dóm í lok mars og tveimur vikum síð- ar var hún öll. Missir okkar allra er mikill en mestur er þó missir Snæ- bjamar, lífsfömnautar hennar og fé- laga í yfir fjörutíu ár. Fyrstu minn- ingar okkar systkinanna um Böldu tengjast summm bemskunnar. Aldrei brást það að þau Snæbjörn kæmu norður í sumarfríinu, fyrst til að heimsækja ömmu sem þá bjó á Akureyri en síðar til að heimsækja systkini sín og stækkandi fjölskyldur þeirra eftir því sem árin liðu. Þessar heimsóknir vora mikil tilbreyting fyrir okkur krakkana og þeim fylgdu bæjarferðir, súkkulaðidrykkja og bíltúrar á þeim árum sem ekki áttu allir bíl og nýnæmi var að bíltúram. Það var heldur ekki slæmt að eiga frænku í Reykjavík þegar þar kom að við systkinin vorum orðin nógu gömul til að fara í heimsóknir suður. Það þótti ekki tiltökumál hjá þeim hjónum að hýsa krakka frá Akureyri í nokkra daga á Brávallagötunni, þó að ekki væra margir fermetrarnir á mann, þar sem þau hjónin bjuggu í tveggja herbergja íbúð með tvo stælta smágutta. Það var bara búið um gesti í stofunni og trúlega hafa gistinætur þar á ári slagað upp í meðalnýtingu á hótelherbergjum borgarinnar. Seinna fluttu þau svo í Hraunbæinn og amma með þeim og þó það þætti langt í burtu var stór- fjölskyldan ekki lengi að gera þann stað að miðpunkti Reykjavíkur. Þangað lágu leiðir okkar allra þegar suður var haldið og þangað var ætíð gott að koma. Þegar við systkinin fóram eitt af öðra að flytjast til Reykjavíkur til náms og starfa var gott að eiga frænku eins og Böldu. Hún var boðin og búin að hjálpa á alla lund og styðja okkur í lífsbaráttunni. Þannig ræktuðu þau hjónin áram saman sín- ar eigin kartöflur en því fór víðsfjarri að sú ræktun hafi eingöngu miðast við eigin þarfir heldur voru þau í sí- felldum ferðalögum um alla borg með kartöflupoka að rétta ungum námsmannafjölskyldum. Balda var alla tíð mikil hannyrða- kona og heimili hennar prýddu fal- legir útsaumaðir stólar, skemlar og skilirí. Hún lagði stund á postulíns- málun áram saman og rötuðu falleg- ir munir til okkar, vandamanna hennar, þegar tilefni gáfust. Prjón- arnir léku líka í höndunum á henni og yngri prjónakonum í fjölskyld- unni þótti gott að leita ráða hjá henni um pijónles sem leit einhvernveginn allt öðravísi út en á myndinni í blað- inu. Þannig munum við minnast Böldu, alltaf tilbúin að aðstoða og gefa ráð, alltaf í hlutverki veit- andans. Við systkinin og fjölskyldur okkar viljum senda Snæbirni og son- um þeirra, tengdadætram og bama- börnum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Jóna, Magna, Guðmundur Baldvin og Rannveig Antonía Guðmundsböm. KIRKJUSTARF Safnaóarstarf Helgihald í Langholts- kirkju í dymbilviku MARKMIÐIÐ er að gefa þeim sem vilja kost á að nálgast atburði kyrra- viku og páska með daglegri kirkju- göngu og sameiginlegri íhugun. Þátttakendur sækja helgihald í sinni sóknarkirkju á hefðbundnum tímum en koma auk þess saman til sameig- inlegrar bænagjörðar í Langholts- kirkju. Umsjón með helgihaldinu hefur sr. Kristján Valur Ingólfsson ásamt sóknarpresti, djákna og org- anista Langholtskirkju. Dagskráin í Langholtskirkju: Laugardagur 15. aprfl kl. 18. Komið er saman til messu laugar- daginn fyrir pálmasunnudag klukk- an 18 í Langholtskirkju. Grandvöllur messunnar og guð- spjall hennar er undirbúningur Jesú fyrir ferðina til Jerúsalem sam- kvæmt Jóhannesarguðspjalli: Smurningin í Betaníu. Eftir að hafa neytt kvöldmáltíðar- innar geta þau sem vilja gengið að Bústaðakirkju þar sem hlýtt verður á lestur píslarsögunnar samkvæmt Matteusi. Gönguferðin hefur margþættan tilgang. Hún færir þátttakendur enn nær þeirri ferð sem Jesús leggur upp til fyrst í stað gangandi til Jer- úsalem, hún minnir á orð Jesú: Fylg þú mér. Hún minnir á píslargöngu margra í fylgd hans og hún er sýni- legt tákn um að við erum á leið til að minnast atburðanna framundan um leið og þeir gerast. Pálmasunnudagur 16. aprfl kl. 20.30. Þátttaka í helgihaldi safna- ðanna. Messa í Langholtskirkju kl. 20.30, með vígslu pálmaviðargreina og heil- agri kvöldmáltíð - sérstaklega fyrir þau hvar fyrri hluti dagsins fer í fermingar. Mánudagur 17. aprfl kl. 18. Bænagjörð og ritningarlestrar í Langholtskirkju. UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar. Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sverrir Einarsson útfararstjóri. stmi 896 8242 Sverrir Olsen útfararstjóri. Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is Baldur Bóbó Frederikseti útfararstjóri. sími 895 9199 Langholtskirkja Þriðjudagur 18. aprfl kl. 20.30. Skriftaguðsþjónusta í Langholts- kirkju (guðsþjónusta með almennum skriftum). Áminning til iðranar og fyrirheitið um fyrirgefninguna. Álmennar skriftir. Eftir að hafa gert játningu sína í hljóði frammi fyrir augliti Guðs, og játað hina sameiginlegu játningu geta þau sem vilja gengið fram og tekið á móti fyrirgefningu Guðs í af- lausninni. Hallgrímskirlqa. Lestur Passíu- sálma kl. 12.15. Langholtskirkja. Langholtskirkja er opin til bænagjörðar í hádeginu. Kyrrðar- og fyrirbænastund er kl. 12-12.30, orgelleikur og sálmasöng- ur. Eftir kyrrðarstundina er létt máltíð í boði í safnaðarheimili kirkjunnar.Verð veitinga er 500 krónur. Opið hús er fyrir alla aldursflokka kl. 11-13. Kaffi er alltaf á könnunni, gott er að hittast og spjalla saman. Síðan er heilsupistill, létt hreyfing, kristin íhugun og slökun. Kl. 12 er gengið til kyrrðar- og fyrirbænar í kirkjunni. Eftir kyrrðarstundina sameinast starfsfólk kirkjunnar, sjálfboðaliðar og kirkjugestir yfir kærleiksmáltíð. Lestur Passíusálma er kl. 18. Laugarneskirkja. Morgunbænir 6.45-7.05. Mömmumorgunn kl. 10. Kaffispjall fyrir mæður, góð upplif- un fyrir böm. Hjónanámskeið kl. 20 í umsjá prestshjónanna er fullbókað, en annað er á döfinni bráðlega og fólki frjálst að skrá sig hjá sóknar- presti. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í Strandbergi laugardagsmorgna. Trú og mannlíf, biblíulestur og kyrrðar- stund. Ffladelfía. Unglingasamkoma kl. 20.30. Mikill og hress söngur. Allir hjartanlega velkomnir. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkomur alla laugardaga kl. 11. IBlomialb'iuom v/ FossvogsUirkjwga>A Sími. 554 0500 Allir velkomnir. Á morgun er Þórdís Malmquist með prédikun og Stein- þór Þórðarson með biblíufræðslu. Bama- og unglingadeildir á laugar- dögum. Súpa og brauð eftir sam- komuna. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl. 13 æfing hjá Litlum lærisveinum. Hofskirkja á Skaga. Kirkjuskóli kl. 14. Víkurprestakall í Mýrdal. Kirkju- a skólinn í Mýrdal er með samverur á " laugardagsmorgnum kl. 11.15 í Vík- urskóla. Frelsið, kristileg miðstöð. Bæn- astund kl. 20 og Gen X, frábær kvöld fyrir unga fólkið kl. 21. Sjöunda dags aðventistar á Is- landi: Aðventkirkjan, Ingúlfsstræti: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjón- usta kl. 11.15. Ræðumaður Jón Hjör- leifur Jónsson. Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Kefiavík: Söfnuðurinn heimsækir Reykjavfloirsöfnuð. Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíu- fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Alda Baldursdóttir. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Orville Woolford. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn- arfirði: Biblíufræðsla kl. 11. Ræðu- maður Jóhann Grétarsson. Ferming Ferming í Úlfljótsvatnskirkju 16. aprfl kl. 14. Prestur sr. Rúnar Þór Egilsson. Fermdir verða: Freyr Snæbjömsson, Úlfljótsvatni, Grafningi. Hendrik Tómasson, Brúarási, Grímsnesi. Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró-og greiðslukortaþjónusta Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan ’ A V sólarhringinn. i w) Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.