Morgunblaðið - 14.04.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 53
UMRÆÐAN
Hjarta- og
æðasjúkdómar
og sýkingar
HJARTA- og æða-
sjúkdómar eru algeng-
ir sjúkdómar en það
hafa þeir ekki alltaf
verið. Fyrir miðja 20.
öldina jókst nýgengi
þessara sjúkdóma á
Vesturlöndum en síð-
ustu áratugi hefur hins
vegar dregið úr ný-
gengi þeirra á ný.
Ymsar skýringar hafa
verið gefnar á þessu
svo sem bætt læknis-
meðferð, aukin hreyf-
ing, bætt mataræði og
minni reykingar.
Á það hefur hins
vegar verið bent að útbreiðsla
hjarta- og æðasjúkdóma líkist einna
helst langdregnum faraldri smit-
sjúkdóms. Jafnframt hefur verið
bent á að farið hafi að draga úr
Sjúkdómar
Margt bendir til þess,
segir Haraldur Briem,
að skýringar á hjarta-
og æðasjúkdómum, sem
meðal annars geta leitt
til kransæðastíflu
og heilablóðfalla,
séu fjölþættar.
þessum faraldri um það leyti sem
neysla sýklalyfja varð almenn. Á
undanförnum árum hafa margar
rannsóknir rennt stoðum undir
þessa skoðun. Ymsar viðvarandi
sýkingar tengjast hjarta- og æða-
sjúkdómum með marktækum hætti.
Sá sýkingavaldur sem
helst tengist þessum
sjúkdómum er Chlam-
ydia pneumoniae en
það er algeng baktería
sem veldur sýkingum í
öndunarvegi og upp-
götvaðist fyrst árið
1986. Pað er vitað að
bakterían getur tekið
sér bólfestu í æða-
veggjum og valdið þar
bólgusvörun sem síðan
leiðir til útfellingar
kólesteróls og annarra
efna í veggnum. Þá
getur viðvarandi bólga
í líkamanum leitt til
þess að ýmsir þekktir áhættuþættir
hjarta- og æðasjúkdóma komi fram
eins og hækkun á blóðfitu.
Talið er hugsanlegt að sýking
geti magnað bólgu í kalkútfellingu í
æðavegg sem var þar fyrir af öðr-
um ástæðum. Ýmsir aðrir sýkinga-
valdar sem tengjast hjarta- og æða-
sjúkdómum með svipuðum hætti og
Chlamydia pneumoniae eru cytom-
egalóveira og Helicobacter pylori,
baktería sem þekkt er af því að
valda magabólgu og magasári.
Þannig bendir margt til þess að
skýringar á hjarta- og æðasjúk-
dómum sem meðal annars geta leitt
til kransæðastíflu og heilablóðfalla
séu fjölþættar.
Mikilvægt er að allir hugsanlegir
áhættuþættir séu rannsakaðir með
opnum huga.
Þeim sem áhuga hafa á að afla
sér frekari þekkingar á tenglsum
sýkinga við hjarta- og æðasjúk-
dóma skal bent á eftirfarandi grein:
Muhlestein, J.B.: „Chronic in-
fection and coronary artery dis-
ease“. Medical Clinics ofNorth Am-
eríca 2000; 84: 123^8.
Höfundur er sóttvarnarlæknir.
Haraldur Briem
ÞITT FE
Maestro hvarsem
ÞÚ ERT
1
1 Iri i iv\ Kimi
m
Rl U U lUH 'U
l'l k! \\l>1 l 1 11 K 1 IVMOk I \|>|\t,
I u m I I \l I K|>
Helena Rubinstein kynnir:
Varaiit þar sem styrkieiki litarefna og perlugljáa
er þéttari og meiri en í heföbundnum varalit.
Lauflétt áferð - 24 frábærir litir.
Glæsilegur kaupauki.
Kynning í dag og á morgun, laugardag.
H
Y
t>rti
G E A
iirn rt r,< (itn
Laugavegi 23, sími 511 4533.