Morgunblaðið - 14.04.2000, Síða 56
56 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Er þetta heilbrieft?
NÚ Á dögum þykir
ekki tíðindum sæta þótt
börn, unglingar og full-
orðið fólk hreyfi sig
ekki svo dögum skipti.
Þennan fylgifisk nútím-
ans, hreyfingarleysið,
má tengja við mörg þau
mein er hrjá okkar í dag
og okkar björtu fram-
tíð. Nægir þar að nefna
niðurstöður úr heil-
brigðiskönnunum síð-
ustu misseri um offitu
Islendinga.
Flestir þeir þættir er
við bjóðum bömunum
okkar upp á eru tengdir
hreyfingarleysi. Má þar
nefna tölvur, myndbönd, bíósýning-
ar, leiktækjasali og tíðar bílferðir
tengdar daglegum viðburðum. Ekk-
ert af þessum þáttum getur þó flokk-
ast undir óheilbrigði ef hófs er gætt
og aðrir heilbrigðari þættir fylgja.
Það er aftur spurning hveijir eru þeir
þessir heilbrigðu þættir, hver á að
skipuleggja þá og hvemig?
Heilbrigður lifstíll
Heilbrigður lífsstíll er bundinn af
viðhorfum og lífsmynstri einstak-
ggr lingsins sem inniheldur m.a. samspil
hreyfingar, næringar, líkamsbeiting-
ar, svefns og félagslegra þarfa.
Hver er sinnar gæfu smiður og ber
ábyrgð á sinni heilsu þegar líður að
fullorðinsárum. Bamæskan og ung-
lingsárin era mótunarár hvað varðar
lífsstfl og viðhorf til heilbrigðis.
Fræðsla um heilbrigðan lífsstfl er
hverjum einstaklingi lífsnauðsyn til
að geta hirt um líkama sinn og haft
stjóm á heilbrigði sínu eins og hægt
er. Þessi fræðsla hefur ekki verið
markviss í skólakerfi okkar og er nú,
JW á tímum nýrra viðhorfa og hnignandi
heilsu með tilheyrandi velferðarsjúk-
dómum, sjálfsögð þörf á úrbótum þar
á.
íþróttakennarinn
hefur í flestum tilfellum
besta innsýn í líkam-
lega heilsu einstakl-
ingsins og er því vel fall-
inn til að veita fræðslu
um heilbrigðan lífsstíl.
Til þess að slíkt sé
framkvæmanlegt þurfa
fræðsluyfirvöld að vera
tilbúin í eftirfarandi
framkvæmdir: a) Fjölg-
un kennslustunda í
skólaíþróttum
þ.m.t.sundi og/eða ann-
arri hreyfiþjálfun og
fræðslu um heilbrigðan
lífstfl. b) Gefa út
fræðsluefni í formi
bæklinga um ýmsar hliðar heilbrigðis
bama og unglinga bæði í formi nem-
endahefta og kennarahandbóka.
Lítum aðeins á þá þætti er böm og
reyndar allir þurfa til að viðhalda
heilbrigði.
Hreyfíng
Hreyfiþörf bama er mikil þótt hún
sé misjöfn. Hlutverk hreyfingar er
mikilvægt og margþætt. Hreyfing
veitir bömum m.a. útrás og upplifun,
styrkingu beina og liðamóta og al-
mennt stoðkerfis líkamans, sterk
samskipti og samvinnu úr hópleikj-
um, aukið áræði og viljastyrk og betri
líðan og ánægju. Hreyfing ætti að
vera daglega í um 30-40 mínútur í
senn. Regluleg hreyfing stuðlar að
réttri líkamsbyggingu og eðlilegu
vaxtariagi.
Mataræði og næring
Mikilvægur þáttur næringar er
staðgóður, fjölbreyttur morgunmat-
ur sem veitir bömum góðan byr í erli
dagsins. Nesti og næring sem fylgir
bömum í skóla verður að vera fjöl-
breytt og helst innihalda fæði úr sem
flestum fæðuflokkum. Varast ber
sykurríka og sýramikla drykkjar-
Hreyfingarleysi
Skapa verður börnum
okkar og imglingum
svigrúm og umhverfí í
þeirra daglega lífl, segir
Arngrímur Viðar Ás-
geirsson, og hvetja þau
til að ástunda heilbrigða
lífshætti.
safa. Oft má finna orsakir óþols eða
slappleika í fæðuvenjum bamsins, því
þarf að taka saman hvað bömin okk-
ar borða yfir vikuna til þess að gera
sér grein fyrir orkumagni og næring-
arinnihaldi fæðunnar í samanburði
við ráðleggingar Manneldisráðs.
Heilbrigð hreyfing
handa öllum
Skapa verður bömum okkar og
unglingum svigrúm og umhverfi í
þeirra daglega lífi og hvetja þau til að
ástunda heilbrigða lífshætti. Það er
hluti mannréttinda og einnig hluti
okkar skólalöggjafar. Alls ber skólum
landsins samkvæmt viðmiðunar-
stundaskrá að hafa að lágmarki 3
stundir á viku til íþrótta, líkams- og
heilsuræktai- á viku hverri. Fær
bamið þitt það sem því ber í sínu um-
hverfi?
Iþróttakennarafélag Islands hefur
meðal markmiða að vinna að auknu
heflbrigði landsmanna. Við skulum
gera okkar en það þarf meira til. Því
ekki að byrja öll að gera það sem í
okkar valdi stendur, fyrir æsku
landsins og okkur sjálf í leiðinni. Hefl-
brigð hreyfing handa öllum.
Höfundur er formaður fþróttakenn-
arafélags íslands.
Menningarmál
í Kópavogi
ÍSLENSK menning
hefur löngum liðið fyrir
aðstöðuleysi og hús-
^ næðisskort. Fá hús
hafa verið reist ein-
göngu yfir listir og
menningu í landinu.
Þegar loksins hefur
verið búið að koma
þessum húsum upp
hefur oft skort vilja og
fé til að reka þau með
metnaðarfullum hætti.
Hér í Kópavogi höf-
í um við staðið nokkuð
vel að uppbyggingu
þessara mannvirkja.
Listasafn Gerðar
Helgadóttur hefur haslað sér völl í
menningarlífinu og hefur rekið mjög
metnaðarfulla stefnu þar sem marg-
— ar frábærar sýningar hafa verið sett-
^ ar upp. Nægir þar að nefna sýningu
á verkum úr safni Þorvaldar og Ingi-
bjargar sem var ein glæsflegasta
' sýning á seinni áram. Safnið hefur
einnig verið notað nokkuð undir tón-
leika þar til Salurinn kom í notkun
og í kaffistofu þess hittist ritlistar-
hópur Kópavogs reglulega.
Með því að fella inn í nýbyggingu
Tónlistarskóla Kópavogs glæsflegan
tónleikasal af góðri stærð höfum við
hér í Kópavogi búið glæsflega að
tónlistarlífi hér í bænum og á höfuð-
borgarsvæðinu. Þörfin fyrir sér-
'-ff hannaðan sal af þessari stærð var
orðinmjög brýn.
Öllu því unga fólki sem stundar
tónlistarnám er skapaður skemmti-
legur vettvangur til þess að koma
fram og spila. Auk þess hafa haldið í
Salnum tónleika fjölmargir lista-
menn og fyllt húsið hvað eftir annað.
Aðsókn að Salnum sýnir þá þörf sem
0 var fyrir sal af þessari stærð og hve
blómlegt íslenskt tónl-
istarlíf er. Auk þess
hefur Salurinn nýst
fyrir ráðstefnur og
samkomur af ýmsum
gerðum. Skemmst er
að minnast heimsmóts í
hraðskák þar á dögun-
um.
Það er ekki nóg að
byggja
Hættan er hins veg-
ar sú að þegar búið er
að koma upp svo glæsi-
legum húsum telji bæj-
arfulltrúar að allt sé
búið. Það er ekki nóg
að byggja, menn þurfa líka að sýna
reisn og stórhug við að reka þessi
hús. Ef ekki er í þeim þróttmikið
starf er til lítils að byggja.
Kópavogsbær borgar á þessu ári
um það bil 25 milljónir króna til
reksturs þessara tveggja húsa, 20
milljónir til Listasafnsins og 5 mil-
Ijónir tfl Salarins. í árbók sveitarfé-
laga fyrir 1998 kemur fram heildar-
framlag til menningarmála í krónum
á hvern íbúa. Þar sést vel munurinn
á framlögum Kópavogs í samanburði
við sveitarfélög af svipaðri stærð.
kr. á íbúa
Kópavogur 3.200
Reykjavík 6.413
Hafnarfjörður 4.628
Akureyri 8.673
Ljóst er að Kópavogsbær hefur
staðið sig nokkuð vel í að byggja en
vantar viljann til þess að styðja
menningarlífið á sama hátt og önnur
sambærileg sveitarfélög.
tírelt skipulag
Með stýringu á þessum málaflokki
fer lista- og menningarráð sem einn-
Flosi Eiríksson
ig stýrir málefnum bókasafnsins,
náttúrafræðistofu og fleira. Þetta
skipulag er úrelt og þarfnast endur-
skoðunar við. Réttast væri að Lista-
safnið fái sér stjórn og hlutverk lista-
og menningarráðs verði endurskoð-
að. Málefni bókasafnis era óleyst og
Ijóst að löngu er orðið tímabært að
huga að útibúi í nýju hverfum bæjar-
ins í Kópavogsdalnum.
Gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir
náttúrafræðistofu í menningarmið-
stöðinni í miðbænum. Eðlilegra er að
reyna að koma henni fyrir í nánd við
fjörur bæjarins, til að mynda við
enda Urðarbrautar við Kópavoginn.
Náttúrafræðistofan á að sinna rann-
sóknum og vera fræðslu- og upplýs-
ingasafn fremur en að en vera nátt-
Uppbygging
Allir bæjarfulltrúar
verða að átta sig á því,
segir Flosi Eiríksson, að
það er ekki nóg að
byggja húsin. Við verð-
um að hafa metnað til
þess að hafa í þeim
þróttmikla starfsemi.
úragripasafn í gamla stflnum.
Hér hefur verið drepið á nokkur
atriði í menningarlífi í Kópavogi,
hvemig staðan er, hvað má betur
fara og hvað verður að laga. Allir
bæjarfulltrúar verða að átta sig á því
að það er ekki nóg að byggja húsin.
Við verðum að hafa metnað til þess
að hafa í þeim þróttmikla starfsemi.
Það er nauðsynlegt fyrir okkur að
hugsa fram á veginn og taka höndum
saman um að skapa frjótt og kraft-
mikið menningarsamfélag fyrir alla
Kópavogsbúa.
Höfundur er bæjarfulltrúi i Kópa-
vogi.
Góður grunn-
ur að fram-
haldsnámi
Arndís Hulda Björk
Vilhjálmsdóttir Halldórsdóttir
SÍÐASTLIÐIN tvö
ár hefur aðsókn að
Menntaskólanum í
Reykjavík minnkað.
Grannskólanemar virð-
ast hafa fengið þá flugu
í höfuðið að Mennta-
skólinn sé of þungur og
frekar gamaldags.
Sannleikurinn er sá að
skólinn heldur fast í
sínar hefðir og byggir
reyndar orðspor sitt á
þeim. Einnig leggur
hann metnað sinn í að
gefa ungu fólki traust-
an grann til framhalds-
náms og að veita því
gott veganesti á leið
sinni út í lífið. Ein af þeim náms-
greinum sem undirrituðum hefur
þótt hvað gagnlegust er félagsfræðin
sem m.a. er kennd á nýmáladeild 1.
Þetta tveggja ára félagsfræðinám
hefur kennt okkur að líta heiminn
öðram augum. Mikil áhersla hefur
verið lögð á að nemendur skynji
virkni þjóðfélagsins og hafa ýmis
verkefni verið lögð fyrir okkur þar að
lútandi. Snemma í haust hleyptum
við af stokkunum okkar stærsta
verkefni til þessa. Okkur var gefið
tækifæri tfl þess að kynna okkur til-
högun og framkvæmd skoðanakann-
ana. Vegna umræðu um dræma að-
sókn að Menntaskólanum fannst
okkur áhugavert að kynna okkur við-
horf útskrifaðra nemenda tfl skólans.
Reglum samkvæmt settum við
fram vinnutilgátu. Hún skyldi vera:
„Nám til stúdentsprófs í MR er góð-
ur grunnur til frekara náms.“ Þýðið
var útskrifaðir nemendur úr
Menntaskólanum á áranum 1989-
1998 en úrtakið, slembiúrtak, 10%
þýðisins. Við framkvæmd könnunar-
innar kom í ljós að af þessum 10%
eða 272 einstaklingum vora 69 bú-
settir erlendis. Því miður gafst okkur
ekki kostur á að ná í þá svo að við
stóðum uppi með 203 manna úrtak.
Að lokinni nákvæmri undirbúnings-
vinnu við spumingalista sóttum við
skriflega um leyfi fyrir könnuninni
hjá Tölvunefnd. Ekki þurftum við að
bíða lengi eftir grænu ljósi frá þeim
enda ekki um eldfimt mál að ræða.
Þó var brýnt fyrir okkur að gæta
persónuleyndar og virða aðrar settar
reglur við gerð slíkra kannana.
Framkvæmd könnunarinnar átti
sér stað símleiðis í ágætu húsnæði
íslenskrar miðlunar við Krókháls í
febrúar síðastliðnum. Af þessum 203
Af úrtakinu, segja Arn-
dís Vilhjálmsdóttir og
Huida Björk Hall-
dórsdóttir, höfðu þá
96% stundað nám að
loknu stúdentsprófí.
einstaklingum svöraðu könnuninni
122 sem er 60% svarhlutfall. Strax þá
fengum við á tilfinninguna að vinnut-
ilgáta okkar reyndist rétt, í það
minnsta frá sjónarhomi þeirra sem
við áttum tal við. Það var hins vegar
ekki fyrr en mánuði seinna þegar við
fengum tölvuunnar niðurstöður sem
Að skjóta
sig í fótinn
FRÓÐLEGT var að
sjá loksins grein frá
Páli Magnússyni, frétt-
astjóra Stöðvar 2
vegna túlkunar undir-
ritaðs og Gallups á
áhorfskönnun sem
gerð var í janúar síð-
astliðnum. Það verður
að segjast eins og er að
túlkun Páls er bæði
rangsnúin og villandi
og hann lætur alveg hjá
líða að gera grein fyrir
mikilvægum stað-
reyndum sem þó liggja
fyrir. Þar vegur þyngst
að svokallaður „fyrri
fréttatími Stöðvar 2
kl.18.55 hafði aldrei verið kynntur
sem fréttatími, fyrr en í febrúar síð-
astliðnum, eða einmitt á þeim tíma
þegar ljóst var að fréttatími Sjón-
varpsins hefði vinninginn hvað áhorf
varðar. Það flokkast að sjálfsögðu
ekki undir heiðarleika að reyna að
breyta leikreglum að tapleik lokn-
um.
Það var og er greinilegt af við-
brögðum Páls að það kom illa við
hann að verða undir í þessari könn-
un, svo illa, að hann sá ástæðu til að
reyna að hafa áhrif á þær leikreglur
sem gilda og hafa lengi gilt um þess-
ar áhorfsmælingar.
Hann gekk jafnvel svo
langt að beita forsvars-
menn Gallups þrýstingi
til að fá sínu fram-
gengt. Síðastnefnda at-
riðið er alvarlegt og
ekki nokkram manni
sæmandi, allra síst
fréttastjóra. Því er
staðhæfingu Páls um
áhrif undirritaðs á Gall-
up vísað heim til föður-
húsanna.
Meginreglan í sam-
starfi SIA og helstu
fjölmiðla landsins er sú,
að mæla dagskrárliði
eins og þeir koma fyrir
á almennum vettvangi. Á meðan
fyrmefnd könnun var í gangi var
svokallaður „fyrri fréttatími" aldrei
kynntur öðruvísi en sem 19-20, bæði
á Stöð 2 og í dagskrárblöðum.
Undirritaður hefur lesið athuga-
semdir frá Bendikt Jóhannessyni og
Helga Tómassyni, sem Páll vitnar í.
Þar kemur hvergi fram sú athuga-
semd Gallups að svokallaður „fyrri
fréttatími hafi hvorki verið kynntur
né mældur sem slíkur og hafi þar af
leiðandi ekki verið samanburðarhæf-
ur við aðra fréttatíma. Þessari stað-
reynd var greinilega haldið frá
Þorsteinn
Þorsteinsson