Morgunblaðið - 14.04.2000, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
-
;
!
1
1
I
«
-i
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 59
Náði sambandi
við Austur-Tímor
ÍSLENSKUR radíóamatör, Þor-
valdur Stefánsson, náði nýverið
fjarskiptasambandi við Austur-Tím-
or ásamt félaga sínum Ross Ballan-
tyne frá Ástralíu.
„Eftir margra mánaða skrif-
finnsku og kynningarstarf tókst
þeim að leysa öll formsatriði og fá
leyfi til að starfrækja áhugamanna-
stöðvar í landinu. Alþjóða fjarskipta-
stofnunin úthlutaði Sameinuðu þjóð-
unum forskeytinu 4W6 til að nota á
Austur-Tímor, en það samsvarar TF
fyrir ísland, OZ fyrir Danmörku
o.s.frv.
Radíóamatörar safna löndum líkt
og frímerkjasafnarar, nema hvað
þeir þurfa sjálfir að ná radíósam-
bandi við landið. Það er svo staðfest
með sérstöku póstkorti, svokölluðu
QSL-korti, stöðvarinnar sem þeir
hafa samband við. Á heimsvísu er
mikil samkeppni milli amatöra um að
ná sem flestum löndum, og núna
kemst Austur-Tímor á blað sem nýtt
land. Eftirspumin er því gífurleg,
strax em tugir þúsunda amatöra um
allan heim að berjast um að ná sam-
bandi við Þorvald.
Tengdadóttir-
in sýnd^
í bíósal MÍR
KVIKMYNDIN Tengdadóttirin
(Névétska) verður sýnd í bíósal
MIR, Vatnsstíg 10, sunnudaginn 16.
aprílkl. 15.
Mynd þessi var gerð í Túrkmen-
istan árið 1972. Leikstjóri er Khodj-
akili Narlíév en með aðalhlutverkið
fer Maia Aimedova. Þetta er ljóðræn
mynd og gerist í Karakúm-eyði-
mörkinni. Sagt er frá daglegu lífi
gamals hjarðbónda og tengdadóttur
hans en eiginmaður hennar hefur
verið kallaður til herþjónustu og
ekki komið aftur. Konan veit að hún
á aldrei eftir að sjá mann sinn aftur,
en heldur þó enn í vonina um að eitt-
hvað óvenjulegt og óskýranlegt hafi
komið fyrir manninn og að hann birt-
ist óvænt heima einn daginn.
Kvikmynd þessi hlaut sérstaka
viðurkenningu á alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Locamo á ítaliu á sín-
um tíma. Skýringar á ensku. Að-
gangur að kvikmyndasýningunni er
ókeypis og öllum heimill, segir í
fréttatilkynningu frá MÍR.
Fagna skrefí
tiljafnréttis
FÉLAG einstæðra foreldra hefur
sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu
til félagsmálaráðuneytisins:
„Stjórn félags einstæðra foreldra
fagnar því gæfu- og framfaraspori til
jafnréttis sem hið nýja lagafrumvarp
um foreldra- og fæðingaorlof er, fyr-
ir hjón og sambýlisfólk.
Stjómin mótmælir harðlega því
misrétti að börn einstæðra foreldra
njóti ekki samvistar foreldris síns í 9
mánuði, eins og böm hjóna.
Stjómin telur þessa mismunun óá-
sættanlega með hliðsjón af sömu
þörfum og rétti allra barna til for-
eldra sinna óháð þjóðfélagsstöðu
þeirra."
Reikisvæði
Símans GSM í
Bandaríkjun-
um stækkar
NÚ fjölgar enn þeim borgum og
bæjum í Bandaríkjunum, þar sem
viðskiptavinir Símans GSM geta ver-
ið í sambandi. Miðvikudaginn 12.
apríl, tók gildi reikisamningur Sím-
ans við BellSouth, sem býður GSM
1900-þjónustu í Suður- og Miðaust-
urríkjum Bandaríkjanna.
BellSouth þjónar stærri þéttbýlis-
Þorvaldur fékk kallmerkið
4W6MM og félagi hans 4W6UN. Það
hefur íyrst og fremst komið í hlut
Þorvaldar að svara eftirspuminni á
stuttbylgjunni enda er hann óvenju
fær í morsi. Mors nær betur í gegn
en tal og er mjög skilvirkt við svona
kringumstæður, Þorvaldur getur af-
greitt nokkrar stöðvar á hverri mín-
útu.
Þorvaldur er starfsmaður Samein-
uðu þjóðanna og grípur í amatörtæk-
in í frítíma sínum. Ekki er ljóst hve
lengi hann verður á Austur-Tímor,
hann hefur verið sendur til alvarleg-
ustu átakasvæðanna mörg undanfar-
in ár eftir því sem þörfin á fjarskipt-
um krefst.
Radíóamatörar em fólk sem hefur
þráðlaus fjarskipti og tæknina sem
að þeim lýtur að tómstundagamni,
og hefur auk þess lokið prófum hjá
yfirvöldum sem veita sendileyfi og
kallmerki. Nánari upplýsingar xná
nálgast á heimasíðu félagsins ís-
lenskir radíóamatörar, http://
www.nett.is/~tf5bw/ira/ira.html.,“
segir í fréttatilkynningu frá Islensk-
um radíóamatömm.
kjömum í 11 ríkjum, Texas, Louisi-
ana, Mississippi, Indiana, Kentucky,
Alabama, Georgíu, Tennessee,
Norður og Suður-Karólínu og Flór-
ída, þ.á m. áfangastað Flugleiða, Orl-
ando, og fleiri vinsælum ferða-
mannasvæðum.
Til að nota þjónustuna þarf síma
sem gerður er fyrir 1900-tíðnisviðið.
Nokkrir slíkir em á markaðnum í
dag, sem jafnframt era gerðir fyrir
900- og 1800-tíðni, sem notuð er í
kerfi Símans GSM. Einnig er hægt
að leigja síma fyrir 1900-tíðni í þjón-
ustumiðstöð Símans í Armúla.
Virkir reikisamningar Símans
GSM era orðnir 137 talsins í 65 lönd-
um. í síðasta mánuði urðu Liechten-
stein og Kazakstan 64. og 65. landið,
þar sem viðskiptavinir Símans geta
notað GSM-símann sinn hindrunar-
laust. Yfirlit um reikisamninga má
sjá á vef Símans, www.gsm.is/utlond/
reiki.htm.
Strandaganga
í Hvalfírði
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir á
sunnudaginn kemur 16. apríl til um 4
klst. strandgöngu í Hvalfirði og er
brottfór kl.10.30 frá BSÍ.
Gengið er á milli Hvammsvíkur og
Brynjudalsvogar og verður byijað
með göngu að Steðja eða Staupa-
steini og minnt á vegagerð fyrri tíma.
Skoðaðar verða minjar frá hemáms-
áranum m.a. í Hvítanesi, skógrækt
við Fossá, ljárrétt og brýr þannig að
margt forvitnilegt ber fyrir augu í
þessari ferð.
Allir era velkomnir í ferðir Útivist-
ar, en félagar greiða lægra fargjald
og frítt er í dagsferðir fyrir 15 ára og
yngri með foreldram sínum. Farar-
stjóri verður Steinar Frímannsson.
Mótmæla
lokun fæðing-
ardeildar
SAMEIGINLEGUR fundur kvenfé-
lagsins Nönnu og kvennadeildar
SVFÍ Norðfirði sem haldinn var 3.
apríl sl. mótmælir fyrirhugaðri lokun
fæðingardeildar Heilbrigðisstofnun-
ar Austurland í Neskaupstað í sum-
ar.
í áskoraninni segir ennfremur:
„Með þessu er verið að skerða ör-
yggi bamshafandi kvenna á Austur-
landi þar sem ekki er sambærileg
þjónusta í fjórðungnum þ.e.a.s. full-
komin skurðstofa með sérfræðing-
um á vakt allan sólarhringinn.
Fundurinn beinir þeim tilmælum
til stjórnar Heilbrigðisstofnunar
Austurlands að hún endurskoði af-
stöðu sína í þessu máli og með öryggi
barnshafandi kvenna í huga.“
Tryggvi Jakobsson, útgáfustjóri Námsgagnastofnunar, Ingibjörg Ásgeirsdóttir, forsljóri Námsgagnastofnun-
ar, Ólafur Loftsson, forstjóri Æskunnar og Helgi Grímsson, höfundur væntanlegs námsefnis.
Námsefni í nátt-
úrufræði boðið út
NÁMSGAGNASTOFNUN hefur
tekið tilboði Bókaútgáfunnar Æsk-
unnar í gerð námsefnis í eðlis-,
efna- og jarðvísindum fyrir miðstig
grunnskóla.
Um er að ræða þrjár margnota
nemendabækur og kennsluleið-
beiningar með þeim. Höfundur
efnisins verður Helgi Grímsson.
Reiknað er með að efnið komi út í
áföngum en verði allt tilbúið til
notkunar skólaárið 2001-2002.
Handverks-
markaður á
Garðatorgi
HANDVERKSMARKAÐUR verð-
ur haldinn á Garðatorgi, Garðabæ,
laugardaginn 15. apríl.
Til sölu eru íslensk handverk en
milli 40-50 aðilar sýna vörar sínar.
Kl. 14 heldur Karlakórinn Þröstur
opna æfingu á Garðatorginu.
Losaðu þig við leifarnar og náttúran launar þér ríkulega!
n
Jarðfrerðartankur
** O • a.» J 1 • • >e >c
— etnjold heimajardgerd
Green Line Master er nýr jarðgerðartankur þar sem þú getur búið til verðmætan
áburð úr matarleifum heimilisins og þeim garðaúrgangi sem fellur til.
Þannig sparast verðmæti um leið og náttúrunni er hlíft.
Tankurinn rúmar 375 lítra, ákaflega einfaldur í upp-
setningu og er búinn til úr endurunnu plasti.
Lífrænn rotnunarhvati, niðurbrjótanlegir
bréfpokar og ílát fyrir matarleifar tryggja
hratt og hreinlegt ferli. Tankurinn er
einangraður og þú færð tilbúna
moltu á innan við 12 mánuðum.
Ráðgjöf, kynning og sala verður
hjá Vistmönnum, Dugguvogi 19
á morgun laugardag frá kl.10
til 16. Allir velkomnir!