Morgunblaðið - 14.04.2000, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ
. 64 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000
Tilbodsverd
Fallegir borðdúkar
og servíettur
i gjafakössum
íppso I ii I ii(/ff b ti AI it
APPELSÍNUHÚÐ
Frábær árangur gegn appelsínu-
húð. Sársaukalaus meðferð.
Pantanasími 698 3600. j
mCDGC3F=fSLJDin
Stafrófsbolur
Stærð: S, M, L, XL
aðeins 700 kr.
Hmbl.is
—ALL7AT eiTTHVAO NÝTT~
4
'v
ÁRSFUNDUR
Topptilboð
af eldri gerðum
Lloyd og Camel
Verð 8.995,-
oppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212
• Starf Vinnueftirlits ríkisins 1999 og stefnumótun til framtíðar
Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlits ríkisins
• Átaks er þörf í rannsóknum og vinnuvernd
Kristinn Tómasson, yfirlæknir atvinnusjúkdómadeildar Vinnueftirlits ríkisins
• Afhending viðurkenningar til fyrirtækis fyrir vinnuverndarstarf
Páll Pétursson, félagsmálaráðherra
• Veitingar
Jakkatilbod
frá krJ 3.990
; Litir: Rauðir,
svartir, lillabiáir,
bleikir og bláir.
Sími 561 3377 - Laugavegij55.
• Ávarp Páll Pétursson, félagsmálaráðherra
Vinnueftirlit
ríkisins
Vinnueftirlits ríkisins verður haldinn í dag, föstudaginn 14. apríl 2000, í
funda- og ráðstefnusölum ríkisins í Borgartúni 6, Reykjavík, og hefst kl. 14
Dagskrá:
• Fundarsetning
Hilmar Kristjánsson, formaður stjórnar Vinnueftirlits ríkisins
ÍDAG
VELVAPNDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fyrirfínnst
einelti á
vinnustöðum?
MIKIÐ hefur verið rætt
um einelti í skólum en er
ekki líka til einelti hjá hin-
um fullorðnu? Svo er og
hefur verið lengi og það
þarf sem allra fyrst að
fara ofan í saumana á
þeim málum, rannsaka
hvort það sé áberandi
meira á vinnustöðum þar
sem kvenfólk er eingöngu
starfandi eða þar sem
karlmenn eru eða í blönd-
uðum vinnuhópum. Eng-
um getur duÚst að því
fylgja mikil sárindi að
verða fyrir aðkasti starfs-
félaga sinna og vera stöð-
ugt ýmist hrakinn út í
hom eða hreinlega
flæmdur úr strafi. Við vit-
um ekki hvers vegna sumt
fólk verður fyrir þessu en
annað ekki. Bakgrunnur
okkar og uppeldi er mis-
munandi. Sum okkar
koma kannski úr dreifbýli
þar sem lítt þurfti að bíta
frá sér og flytja í samfélag
þar sem áreiti er meira.
Við erum ekki öll jafndug-
leg að bíta frá okkur. Eitt
er góðlátlegt grín á vinnu-
stað og annað illkvittni og
kerskni. Þegar leikurinn
er orðinn of grár þá heitir
það einelti. Sá sem beitir
einelti er oft miklu verr á
sig kominn andlega og í
raun mun veikari en sá
sem verður íyrir eineltinu.
Það ber vott um ákveðið
hömluleysi að ofsækja
annað fólk. Þessu hömlu-
leysi verðum við að reyna
að setja skorður. Stund-
um eru það yfirmenn á
vinnustöðum sem eru
haldnir þessari áráttu og
þá þorir enginn hvorki að
æmta né skræmta. Það er
alkunna að til eru þeir
vinnustaðir sem eru
hreinlega sýktir. Nýtt og
nýtt fólk er hrakið úr
starfi áður en það veit
hvaðan á sig stendur veðr-
ið. Enginn veit nákvæm-
lega hvenær þessi sýking
byijaði. Þetta verður að
eins konar andlegri húsa-
sótt. Stundum er hægt að
laga þetta með því að kalla
til faglært fólk. Við þurf-
um öll aðhald og þegar við
erum komin á villigötur
verðum við að láta leið-
rétta okkur.
Ég ætla ekki að hafa
þetta lengra að sinni enda
eingöngu ætlunin að gefa
upp boltann í von um að
lífleg umræða geti skap-
ast um þetta vandamál.
Andrúmsloft á vinnustöð-
um er vandamál okkar
allra og það er fleira
mengun en gasleki eða
hættuleg efni. Einelti er
andleg mengun og á ekki
að líðast.
Guðrún Jónsdóttir,
hjúkrunarfræðingur.
Varúð eldhætta
ÉG fór niður í Mjódd um
daginn og sá þar tjald-
auglýsingar og fór að
skoða eitt tjaldið og i því
var gaseldunartæki og
fannst óforsvaranlegt að
hafa ekki tækið utandyra.
Ég vil brýna það fyrir
ungu fólki að hafa eldun-
artækin utan dyra í ferða-
lagi.
Erla Hauksddttir.
Tapad/fundið
Lyklar fundust
FIMM lyklar á kippu
fundust í Álfheimum fyrir
stuttu. Upplýsingar í síma
553-7680.
Gulleyrnalokkur
týndist
GULLEYRNALOKK-
UR, hringur, týndist 11.
apríl sl. á milli kl. 15-16 í
Smáraverslun í Kópavogi.
Ef einhver finnur eyrna-
lokkinn, vinsamlegast
skiMð honum á kassann
hjá Rúmfatalagernum.
Dýrahald
Poodle-hundur
fæst gefins
FJÖGURRA ára gamall
svartur poodle-hundur
fæst gefins á gott heimili.
Geltir aldrei og er mjög
gæfur og góður. Upplýs-
ingar í síma 698-2151.
Kolur
er týndur
KOLUR er svartur köttur
með hvítan blett á hægra
fæti. Hann týndist frá
heimili sínu í vesturbæn-
um í Hafnarfirði laugar-
daginn 8. apríl sl. Hann er
með brúna ól með rauðu
merki. Þeir sem hafa orðið
hans varir eða vita hvar
hann er, vinsamlegast
hafið samband í síma 555-
4566 eða 892-5248.
SKÁK
llmsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik
ÞESSI staða kom upp á
mihi spænska alþjóðlega
meistarans Francisco Alon-
so Sanz, hvítt, (2410) og
portúgalska kollega hans
Antonio Femandes (2448) á
móti í Elgoibar á Spáni und-
ir lok síðasta árs. 28. Hxe6!
Bxg5 28. ... fxe6 29. Bxg6
Hxf3 30. Dxh5 Bxg5 31.
Dh7+ Kf8 32. Dh8+ Ke7 33.
Dg7+ Kd6 34. Bxd4 og hvít-
ur hefur óstöðvandi sókn.
29. Rxg5 fxe6 30. Bxg6 Re5
31. Dxh5? Hið einfalda 31.
Bxh5 var mun betra þar sem
31. ... Hf5 gekk ekki upp
sökum 32. f4 31. ... Dxg5+!
32. Dxg5 Rf3+ 33. Kg2
Rxg5 34. Hxd4 Kg7 35. Bc2
Kh6?? 35 ... e5 hefði veitt
svörtum einhverja von um
að halda jöfnu. 36. Hh4 mát!
Ást er...
að gera snjókarl sem
líkist HONUM.
TM Reo U.8. PaL Ofl. — •! righli rtunKl
(c) 1999 Los Angeim Tmes Syndicale
Víkverji skrifar...
AUGLÝSINGAR frá Lands-
sambandi lögreglumanna, sem
birst hafa í fjölmiðlum að undan-
fömu, hafa vakið Víkverja til um-
hugsunar. í Morgunblaðinu birtist
nýverið heilsíðuauglýsing, sem
vissulega er sláandi. Yfirskriftin
var: „Lögreglumenn eru illa launað-
ir!“ Þar kom fram að lögreglumað-
ur, sem hefur störf eftir próf frá
Lögregluskólanum, er með 100 þús:
und króna grunnlaun á mánuði. í
auglýsingunni segir ennfremur að í
könnun, sem Gallup gerði fyrir
Landssamband lögreglumanna í
febrúar, komi fram að 80% lands-
manna telji þessi laun of lág. Sem
von er. Þessi laun eru alltof lág og í
rauninni okkur íslendingum til
skammar að mati Víkverja.
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um það hversu mikilvæg
störf lögreglumanna eru í okkar
þjóðfélagi. Lögreglumenn þurfa að
vera vel á sig komnir og hraustir til
líkama og sálar. Það gengur ekki
hver sem er inn í þeirra störf. Vel
mannað lögreglulið er forsenda þess
að halda uppi lögum og reglum í
þjóðfélaginu. Ef við íslendingar tím-
um ekki að borga lögreglumönnum
mannsæmandi laun þá hljótum við
að súpa seyðið af því fyrr eða síðar.
xxx
KENNSLUSTÖRF hafa einnig
verið til umfjöllunar á síðum
Morgunblaðsins að undanförnu. í
leiðara blaðsins síðasthðinn mið-
vikudag var vakin athygh á því að
enn og aftur stæðu skólar landsins
frammi fyrir því að kennara með
réttindi vantar til starfa. Það er
meðal annars vitnað í orð Ólafs
Proppé, rektors KHÍ, að auka þyrfti
virðingu fyrir kennarastarfinu. Ekki
skorti menntaða kennara í landinu,
þeir færu bara til annarra starfa en
kennslu vegna þess að þeim byðust
betri kjör utan skólanna.
Að mati Víkverja þurfum við ís-
lendingar að staldra hér við og
hugsa okkar gang. Dæmin sanna að
það eru nægir fjármunir til í land-
inu. Spurningin er bara hvernig við
ákveðum að verja þeim, og það er
ekki eingöngu pólitísk ákvörðun.
Viðhorf almennings geta vegið þar
þungt. Það hlýtur að vera til leið til
að veita hluta af þessu fjármagni í að
bæta kjör og starfsaðstöðu kennara
og lögreglumanna. Varla geta verð-
bréfin skipt okkur meira máli en
framtíð barnanna okkar eða það að
tryggja lög og reglu í landinu.
xxx
ANDSTÆÐINGAR KR-inga
hafa verið glaðhlakkalegir
undanfarna daga, eða allt frá því að
nýi KR-búningurinn var kynntur.
Flestum þeirra finnst búningurinn
ljótur og af illkvittnislegu glotti
sumra þeirra mætti ráða, að þetta sé
eins konar sárabót fyrir það áfall
sem margir urðu fyrir þegar KR-
ingar hömpuðu báðum stóru titlun-
um, í kvenna- og karlaílokki í knatt-
spyrnu, síðastliðið haust.
Víkverji hefur líka orðið var við að
meðal stuðningsmanna KR-inga
bærast blendnar tilfinningar í
brjósti vegna nýja búningsins.
Margir spyrja hvort nauðsynlegt
hafi verið að ganga svona langt og
sumir eiga erfitt með að skilja til-
ganginn með þessari róttæku breyt-
ingu og spyrja sig hvort markaðs-
lögmálin vegi orðið þyngra en
tilfinningar því vissulega hefur
gamli röndótti KR-búningurinn
sterkt tilfinningalegt gildi í hjörtum
margra KR-inga. Fyrir utan það að
vera eitt þekktasta vörumerki á Is-
landi fyiT og síðar.
Víkverji vill hins vegar vera á já-
kvæðum nótum varðandi nýja bún-
inginn og láta á það reyna í sumar
hvernig hann kemur út á leikvelh.
Það má þá alltaf breyta aftur yfir í
gamla búninginn ef í harðbakkann
slær. Víkverji er hins vegar ekki
eins jákvæður gagnvart nýja vara-
búningi KR-inga. Grátt er eiginlega
enginn litur og ef einhver litur er
„litlaus", þá er það grái liturinn. I
grámyglulegu sumarveðrinu hér
sunnanlands, þar sem oftar en ekki
er leikið í rigningu, súld og jafnvel
þoku, er hætta á að leikmenn hrein-
lega „týnist" í gráa búningnum.
Eitt þekktasta atvik knattspymu-
sögunnar hin síðari ár tengist ein-
mitt gráum varabúningum. Það var
þegar leikmenn Manchester United
mættu gráklæddir til leiks gegn
Southampton fyrir nokkrum árum
og lentu strax þrjú núll undir í leikn-
um. í hálfleik skiptu þeir Manchest-
ermenn um búning, enda héldu þeir
því fram að þeir hefðu ekki séð hver
annan á leikvelli í fyrri hálfleik.
Þetta atvik er mörgum knatt-
spyrnuáhugamönnum enn í fersku
minni og hefði átt að vera forráða-
mönnum KR til viðvörunar um að
gráir búningar kunna ekki góðri
lukku að stýra. Að þessu þurfa þeir
að huga áður en næsta keppnistíma-
bil hefst því það er of seint í rassinn
gripið að fara að skipta um búninga í
miðjum leik og KR-ingar ef til vill
fimm núll undir og leikmenn jafnvel
týndir og tröllum gefnir í þokunni á
vellinum.