Morgunblaðið - 14.04.2000, Page 68

Morgunblaðið - 14.04.2000, Page 68
68 FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Konungar „ rokksinsídag ERLENDAR ooooo Smári Jósepsson, blaðamað- ur, dagskrárgerðarmaður og tónlistarmaður, skrifai' um nýjustu plötu Pant- era, Reinventing The Steel. HLJÓMSVEITIN Pantera hefur verið starfandi í 17 ár og um þessar mundir eru þeii' að senda frá sér sína níundu breiðskífu, Reinventing The Steel. Tæplega fjögur ár eru liðin frá því að þeirra síðasta breiðskífa, The Great Southem Trendkill, kom út og æsingurinn og eftirvæntingin því mikil. Pantera vakti á sínum tíma gríðar- lega athygli með plötunni Cowboys From Hell sem kom út árið 1990 og þá sérstaklega fyrir þær sakir hversu vel þeir sameinuðu kraft og melódíu. Ailar götur síðan hafa þeir komið með . hveija snilldafplötuna á fætur ann- arri og hvergi slegið slöku við. Á Reinventing The Steel halda Suðutríkjahundarnir ógurlegu svo í átt að rótum sínum (eins og þeir voru búnir að lofa aðdáendum sínum) og þá sérstaklega Phil Anselmo söngvari sem sýnir allar sínar bestu hliðar. Hljóðfæraleikur er að venju mass- ífur í gegn og hvergi bilbug að fínna á þeim bænum. Samt sem áður eru engar óþarfa flugeldasýningar heldur einbeita Abbott bræðurnir sérfdyggi- lega studdir af Rex Brown) að því að láta tónlistina ráða ferðinni. Platan opnar á laginu Hellbound þar sem við höldum ásamt Pantera á vit ævintýra gamla skólans og Herra Anselmo sér um leiðsögnina. Við tekur Goddamn Electric sem er svalur rokkari í alla staði og til að setja punktið i-ið er Kerry King, gítarleikari úr Slayer, fenginn til að enda lagið með gítar- sólói. I Yesterday Don’t Mean Shit heyrum við Pantera eins og þeir ger- ast bestir: markviss keyrsla með skemmtilegu gítarspili. Dimebag Darrel gítarleikari fer svo á kostum í laginu You’ve Go To Belong To It og þar heyrum við hann nota „whammy“-pedal (hækkar tóninn um 1-2 áttundir) gítamum til stuðnings á mjög skemmtilegan hátt. Einnig má heyra Rex leika sér með „wah-wah“ á bassanum og kemur það alveg sér- staklega vel út. Þrátt fyrir að platan í heild sé algjör snilld þá eru tvö lög sem standa hinum ofar. Það er fyrst og fremst Revolution Is My Name sem er mjög vel útfært ævintýri troð- fullt af áhugaverðum hljóðfæraleik; fjölbreyttum köflum og góðum söng. I keyrslufantinum Death Rattle sjá svo Pantera um að leiða mann í gegnum þyngd og kraft og manni líður hrein- lega eins og lambi á leið til slátrunar. Pantera-félagar sanna með þessari plötu að metal-tónlistin er langt frá því að vera dauð eins og margur njól- inn hefur haldið fram og undirstrika ennfremur að þeir eru konungar rokksins í dag. Það verður erfitt fyrir aðrar hljómsveitir að toppa Reinvent- ingTheSteel. Skákrokk- sveitin Grand SKÁKSKEMMTISTAÐURINN Grand rokk hefur tekið upp á því að ráða húshljómsveit sem kemur til með að halda uppi lif- andi stemmningu um helgar. Hljómsveitin, sem heitir því geðþekka nafni Grand, flakkar á milli Reykjavíkur og Akra- ness tvær til þrjár helgar í mánuði og leikur fyrir gesti. Meðlimir hennar voru ráðnir í starfið vegna sérlegra hæfi- leika sinna við að gleðja gesti með skemmtilegri stemmningu. „Við erum æðislega skemmtilegir og höfum mjög litríka sviðsframkomu,“ segir Matthías Stefánsson, gítarleik- ari sveitarinnar. „Og sérstak- lega myndarlegir." Meðlimir hljómsveitarinnar eru þaulvanir í spilamenn- skunni. Söngvari sveitarinnar er annar tveggja látúnsbarka, Arnar Freyr Gunnarsson, en svo voru sigurvegarar söngv- arakeppni Stuðmanna nefndir en sú keppni var aðeins haldin tvisvar sinnum. Bassaleikari sveitarinnar heitir Ólafur Kri- stjánsson og hefur mcðal ann- ars leikið með Sóldögg auk þess sem hann plokkaði bass- ann f Sonum Raspútins. Trommuleikari er Helgi Vfk- ingsson og loks er það Matthías sem spilar á gítar. „Við reynum að spila sem fjölbreyttastatónlist. Allt frá ís- lenskum lummum upp í eitt- hvert brjálæði," segir Matthías. Nánari skilgreining á bijálæð- inu er, „gamalt og gott rokk. Zeppelin og svoieiðis. Það fá allir eitthvað við sitt hæfi, en Matthías Stefánsson, gítar- leikari Grand, sem er hús- hljómsveit Grand rokk. kannski ekki alltaf við sitt hæfi.“ Nú er Grand rokk orðið helsta fylgsni skákáhugamanna þannig að spurningin hlýtur að vera hvort hljómsveitar- meðlimir séu lunknir í þeirri íþróttagrein? „Ég er mjög góður í skák,“ segir Matthías. „Ég held þó að félagar mínir í hljómsveitinni kunni ekki einu sinni mann- ganginn." -t ■MMHMINSM Nr. i var | vikuri Diskur i Flytjondi iútgefandi 1. i 1.; 4 i Pottþétt 19 : Ýmsir : Pottþétt 2. i 3. i 22 i Supernotural : Sontono ; BMG 3. 1 2.1 4 1 Englor Alheimsins : Hilmar Örn/Sigur Rós : Krúnk 4. i 4.i 16 iOnHowLifels i Macy Gray i Sony 1 5. 1 NÝ 1 2 I Is There Anybody Out There i Pink Floyd i EMI 6. i 8. i 27 i 12. Ágúst 1999 i Sólin Hans Jóns Míns i Spor 7. i 9. i 26 Distance To Here i Live i Universol 1 8. ; NV i 2 i Reinventing Steel i Pontera i Worner 9. i 5. i 45 i Ágætis byrjun : Sigurrós : Smekkleysa I 10.1 6.! 15 ; Glunni glæpur : Ýmsir : Lotibær ehf 1 11.: 16.1 6 : Vondo Shepord : Ally McBeal II : Sony 12.: 7.: 6 I MACHINA/the mochines of God \ Smoshing Pumpkins : EMI 13.: 18.: 21 : S&M i Metallica i Universal 14.; 11. i 25 iRelood i Tom Jones i V2 15. i 13.; 23 ; i Am i Selma iSpor I 16.; 14. 6 ; Aquorius i Aquo ; Universal j 17. i 15. i 6 i Air-Virgin Suicides OST í Air ÍEMI 18.: 17.: 18 isllpknot 1 Slipknot : Roadrunner 1 19. : 21.: 19 ilnvintible 1 Five : BMG 20.: 23.: 34 : Significant Other I Ump Bizkit i Universal I 21.: 33.: 14 : Writinqs On The Wall i Destinys Child i Sony j 22.; 10. 4 i The Million Dollar Hotel i Úr kvikmynd ; Universal ! | 23.12. 44 i Californication i Red Hot Chili Peppers i Warner 24.: 62. i 16 i Issues (Limited Editlon) i Kom i Sony J 25.i 50. i 19 : Pottþétt 18 ; Ýmsir i Pottþétt 26. i 29. i 14 : Songs From Ally McBeal í Vonda Shepord i Sony p : 27.: 28.: 23 ! Human Clay 1 Creed i Sony 28. i 30. i 4 ÍMoby-Ploy JMohy i Mute : 29.: 34.1 17 i Bræðralög i Álftogerðisbræður i Álftagerðisbr. 30.! 19.! 17 > Jabdabadú : Ýmsir i Spor 1 Tónlistinn er unninn of PricewoterhouseCoopers fyrir Sambondhljómplötufromleiðondo og Morgunblaðið í somvinnu við eftirtoldorverslonir: Bókvnl Akureyri, Bónus, Hagkoup, Jopis Broutorholti, Jopís Kringlunnijapís Lnugorvegi, Músik 09 Myndir Austurstræti, Músik og Myndir Mjódd.Somtónlist Kringlunni, Skífon Ktinglunni, Skifon Lougorvegi 26. Krakkar og krimmar Annar dagur í paradís (Another day in Paradise) Stöðugt ástand NÍTJÁNDA Pottþétt-safnplatan sit- ur sem fastast á toppi Tónlistans. Hún er ekki sú fyrsta í útgáfuröð- inni til að heimsækja efstu hæðina og verður liklegast ekki sú síðasta enda bjóða Pottþétt safnplöturnar upp á þau lög sem eru vinsælust í útvarpsspilun hveiju sinni. Vinsældir gítargaldramannsins Santana eru svo sannarlega yfir- náttúrulegar því að plata hans situr í öðru sæti listans en hún kom út á seinasta ári. Englapiltarnir í Sigur Rós eru ásamt Hilmari Erni í þriðja sæti list- ans með tónlistina úr kvikmyndinni Englar alheimsins. Það er greini- legt að þjóðin kann vel að meta ljúf- ar gítarstrokur og drengjakórs- raddir því plata Sigur Rósar, Ágætis Byrjun, er enn inni á topp 10 þar sem hún hefur verið frá útgáfu sinni í júní á síðasta ári. Það fer að verða jafn sjálfsagt að eiga plötu Sigur Rósar og að eiga sokkapar. Hljómsveitin Pink Floyd notast ef til vill við aðeins of sterk sviðsljós þar sem þeir eru ekki lengur vissir um að það séu einhverjir áhorfend- ur á tónleikum þeirra. Þeir eiga há- stökk vikunnar, fara beint í fimmta sætið með tónleikaplötuna „Is There Anybody Out There?“ Marge Simpson poppsins, söng- konan Macy Gray, er búin að smita þjóðina með lífsspeki sinni eftir að hún kristallaðist úr tómu lofti inn í tónlistarflóru jarðarbúa. Plata hennar „On How Life Is“ hefur ver- ið ofarlega á Tónlistanum í fjóra mánuði. Þjóðarsálin hans Jóns mins kann að hrista af sér poppslagara jafn auðveldlega og aðrir rista brauð og er órafmagnaða platan þeirra ein af fáum íslenskum plötum sem eru enn að seljast eftir jólaplötuflóðið. Á plötunni fá lögin að hljóma í nær- fatnaðinum einum saman eftir að Macy Gray hefur afar söluvænar lifsskoðanir. hljómsveitin afklæddi þau poppgöll- um sínum. Um þessar mundir er lag þeirra „Original", sem ijallar um þá athöfn að klóna menn, gífurlega vinsælt á útvarpsstöðvum landsins. Þungarokkið er búið að ná fót- festu á klakanum eins og sést vel á listanum. I áttunda sæti er splunku- ný breiðskífa frá Panthera auk þess sem harðkjarnasveitin Slipknot er inni á topp 20 ásamt klumpunum í Limp Bizkit. MYNDBÖND DRAMA ★★% Leikstjóri: Larry Clark. Handrit: Christopher B. Landon, Stephen Chin. Aðalhlutverk: James Woods, Melaine Griffith. (105 mín.) Banda- ríkin. Myndform, 1999. Myndin er bönnuð innan 16 ára. Ottó Geir Borg EFTIR að hafa hneykslað nánast alla með frumraun sinni, „Kids“, er Larry Clark kominn með nýja mynd sem er frekar ólík þeirri fyrstu. Þetta er vegamynd um tvö pör sem ferð- ast saman í leit að spennu og pening- um. Eldra parið kemur í föður- og móðurstað hins yngra. Það eru mörg gífurlega sterk at- riði í myndinni og nánast öll tengj- ast þau Woods. Það getur enginn leikið sálarlausan skúrk betur en hann og er persóna Mels fullkomið hlutverk fyrir hann. Griffíth stend- ur sig virkilega vel í hlutverki sem er mjög ólíkt þeim sem hún hefur áður fengist við. Hún er laus við allt glys og er ófeimin við að láta hrukk- urnar sjást á skjánum. Krakkarnir eru einnig góðir, þá sérstaklega Wagner sem hefur leiklistina greinilega í genunum, en hún er dóttir Roberts Wagner og Natalie Wood. Þótt myndin kýli áhorfendur ekki jafn mikið og „Kids“ er þetta samt vel unnin mynd, sem er vel þess virði að sjá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.