Morgunblaðið - 06.05.2000, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 06.05.2000, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Landafundum Leifs heppna fagnað í viku í kvikmyndaborginni Los Angeles Reuters Ólafur Ragnar Grímsson forseti snæddi á fimmtudag á veitingastaðnum North Woods Inn í San Gabreil í Suður- Kaliforníu þar sem borinn er fram íslenskur fískur. Forseta á hægri hönd situr Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra íslands í Washington, og honum á vinstri hönd er Conley Clearmon, framkvæmdastjóri staðarins. Ólafur Ragnar gaf Clearmon eintak af Islendingasögunum þegar hann heimsótti veitingastaðinn. Umfjöllun í stórblöðum o g sjonvarpi Morgunblaðið/Torfi Ólafur Ragnar Grímsson forseti heimsótti á fimmtudag kvikmyndaver Wamer Brothers og fær hér ásamt Ólafí Jóhanni Ólafssyni rithöfundi leiðsögn um sviðsmynd skrifstofu forseta Bandaríkjanna, sem notuð er í sjónvarpsþættinum Vesturálman. Viðamikil íslandskynning stendur nú yfír í Los Angeles í tengslum við þúsund ára af- mæli landafunda Leifs heppna. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, er af þessu tilefni í kvikmyndaborginni og ræddi við ráðamenn kvikmyndafyrirtækisins Warner Brothers um Islendingasögurnar sem efnivið í kvikmyndir. ÍSLENDINGAR í Los Angeles fagna þúsund ára afmæli landafunda Leifs heppna með því að kynna ís- lenskar kvikmjmdir og tónlist fyrir heimamönnum. Guðjón Amgríms- son, framkvæmdastjóri landafunda- nefndar, segir hátíðahöldin breytileg eftir borgum og í kvikmynda- borginni hafi þótt eðlilegt að leggja áherslu á helstu áhugamál heima- manna. Ýmislegt annað er þó í boði, til dæmis matreiðir Siggi Hall ís- lenskan mat á Hollywood Roosevelt- hótelinu, íslensk fyrirtæki af ýmsum toga kynna starfsemi sína fyrir bandarískum, Hallveig Thorlacius sýnir brúðuleikrit í Bamasafninu í Los Angeles og tvær sýningar verða á leikritinu Ferðir Guðríðar, svo dæmi séu tekin. Kvikmyndin Englar alheimsins var frumsýnd í hinu sögufræga Egyptian-kvikmyndahúsi við Holly- wood Boulevard á fimmtudagskvöld. Um 500 manns vom viðstaddir fmmsýninguna og fögnuðu bæði leikstjóranum Friðriki Þór Friðriks- syni og aðalleikumnum Ingvari Sig- urðssyni og Baltasi Kormáki með lófataki. Framsýning Engla alheims- ins var liður í íslenskri kvikmynda- hátíð í Egyptian-kvikmyndahúsinu. Hátíðin er styrkt af Kvikmyndasjóði íslands og kvikmyndafyrirtældnu Palomar Pictures, sem er í eigu Sig- urjóns Sighvatssonar, heiðurskons- úls í slands í Los Angeles. Á hátíðinni em kvikmyndir af ýmsum toga, Dansinn, Perlur og svín, Ungfrúin góða og húsið, Böm náttúrannar, 101 Reykjavík, Fíaskó, Rokk í Reykjavík og Popp í Reykjavík. Leitað til heimamanna Guðjón Amgrímsson sagði að við skipulagningu landafundahátíða hefði landafundanefndin nýtt sér þekkingu íslendinga sem búsettir væm í Bandaríkjunum. Það hefði ekki síst átt við í Los Angeles. Markmiðið væri að kynna ísland fyr- ir almenningi, styrkja samfélög ís- lendinga á hverjum stað og ná sam; bandi við stjórnvöld og fyrirtæki. „í Los Angeles leituðum við til Sigur- jóns Sighvatssonar og settum upp dagskrá sem tekur mið af skemmt- anaiðnaðinum. Það gerðist hins veg- ar hér, líkt og raunin hefur verið annars staðar, að dagskráin hlóð fljótt utan á sig, þótt kvikmyndahá- tíðin sé enn kjarninn." Guðjón sagði að það hefði gengið framar vonum að fá umfjöllun fjöl- miðla í Los Angeles og þar hefðu góð sambönd Sigurjóns Sighvatssonai- komið sér vel, auk þess sem landa- fundanefnd hefði ráðið starfsmann til að sjá um kynningarstörf. „Stór- blaðið Los Angeles Times hefur fjór- um sinnum fjallað um hátíðahöldin hér og útvarps- og sjónvarpsstöðvar hafa tekið viðtöl, m.a. við Jón Baldv- in Hannibalsson sendiherra og Olaf Ragnar Grímsson forseta. Þessi um- fjöllun hefur vakið töluverða athygli. Við eram líka mjög ánægð með hve mikla og vandaða umfjöllun landa- fundaafmælið hefur fengið hjá stærstu fjölmiðlum Bandaríkjanna, til dæmis Time-tímaritinu, sem var með umfjöllun um víkinga á forsíðu blaðsins í vikunni." ísland í Today Show Tímaritið Newsweek hefur einnig fjallað um ferðir norrænna manna til Ámeríku til forna og fyrir skömmu var ítarleg umfjöllun í tímaritinu National Geographic. í gærmorgun bættist enn við umfjöllunina, þegar ísland var kynnt fyrir áhorfendum Today Show, morgunþætti NBC sjónvarpsstöðvarinnar. Þátturinn, sem er tveggja tíma langur, er sýnd- ur um gjörvöll Bandaríkin. Frétta- maður NJ5C, Matt Lauer, hefur ferð- ast víða um heim þessa vikuna, en áhorfendur stöðvarinnar völdu áfangastaðina í sérstakri atkvæða- greiðslu, þar sem ísland fékk 18% at- kvæða. Förin hófst í Víetnam, þá lá leiðin til Hawaii, Spánar, Suður-Afr- íku og Italíu, en fór hans lauk í Bláa lóninu á íslandi í gær. Þátturinn var á mjög jákvæðum nótum, fréttamað- urinn lýsti fegurð landsins fjálglega, staðfesti sumar goðsagnir um landið og eyddi öðram. Meðal þeirra sem hann ræddi við vora Svanhildur Konráðsdóttir, sem fræddi hann um ýmislegt sem snýr að menningarlífi landans, og Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur sem útskýrði und- ur jarðhitans. Einar Bollason skrapp með honum í útreiðartúr og að sjálf- sögðu fékk Keiko hluta athyglinnar. NBC býður áhorfendum sínum að kaupa myndband með ferðalagi fréttamannsins þessa vikuna, svo ís- landsfróðleikurinn lifir áfram. íslendingasögur til Warner Brothers Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, kom til Los Angeles á miðvikudag í tengslum við Islands- kynninguna. Á miðvikudag hitti hann borgarstjóra Los Angeles, Richard J. Riordan, en á fimmtudag heimsótti hann ritstjómarskrifstof- ur Los Angeles Times og fundaði með yfirmönnun Warner Brothers, þar á meðal Ólafi Jóhanni Ólafssynií kvikmyndaveri fyrirtækisins. Ólafur Ragnar sagði að sér þætti landafundanefndin hafa samið góða dagskrá fyrir Los Angeles. „Mér finnst mjög vel til fallið að kynna ís- lenskar kvikmyndir í þessari borg og ég fann í viðræðum mínum við yfir- menn Wamer Brothers að þeir eru mun opnari en áður fyrir að leita að efnivið og samstarfsaðilum erlendis. Áður var bandaríski kvikmyndaiðn- aðurinn tiltölulega einangraður en núna leita þeir að rithöfundum, efni- viði, skáldsögum fornum og nýjum og kvikmyndagerðarmönnum um allan heim. Ég átti ágætis viðræður við þá um Islendingasögumar sem hugsanlegan efnivið til kvikmynda- gerðar og niðurstaðan varð sú að ég mun senda þeim heildarútgáfuna af Islendingasögunum á ensku og þeir munu skoða þann efnivið mjög ræki- lega.“ Forsetinn sagði að sér hefði þótt mjög ánægjulegt að sjá með eigin augum hvað þekktustu fulltrúar Is- lands í kvikmyndaborginni, Ólafur Jóhann og Sigurjón Sighvatsson, nytu mikils trausts og hve öflugir þeir væra innan bandarískrar kvik- myndagerðar. Hann sagði að í viðræðum sínum við borgarstjórann og yfirmenn á Los Angeles Times hefði komið skýrt fram að þeim þætti ísland for- vitnilegt fyrir þá hátækni sem þar hefði sprottið fram á síðustu áram, hvort sem það væri á sviði erfða- tækni, rannsókna á notkun vetnis eða beitingu upplýsingatækni. „Menn velta því mjög fyrir sér hvernig þetta sé hægt í svona litlu samfélagi. Ég benti þeim á að sköp- unargáfan hefði fylgt okkur alla tíð og sá kraftur, sem áður birtist í sög- um okkar, birtist nú í dirfsku til að gera eitthvað nýtt. Þar að auki er ris- ið nýtt hagkerfi upplýsingatækni, þar sem engu máli skiptir hvar fyrir- tæki era staðsett" Samningar og tónlist í gærmorgun, föstudag, buðu ís- lensk fyrirtæki til móttöku á Holly- wood Roosevelt-hótelinu, þar sem þau kynntu starfsemi sína. Stór- samningur X-18 um skósölu til B'ffidáríkjanna var undirritaður þar um hádegið og þar var einnig haldin tískusýning þar sem skórnir voru sýndir. í gærkvöldi vora tónleikar með ís- lensku hljómsveitunum Maus, Slowblow, Quarashi og DJ Herb Legowitz í E1 Rey-leikhúsinu. BM-VALLÁ Söludeild í Fornalundi Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050 Steinsteypa Fagmennska BM*VaIIá í steypuframleiðslu tryggir þér betra hús. Allt um góða steinsteypu á www.bmvalla.is www.bmvalla.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.