Morgunblaðið - 06.05.2000, Blaðsíða 28
MÖÍtGÚNéLAÐIÐ’
LÁUGÁrdÁGÚR 6.' ÍvtÁí 20001
ÚRVERINU
Nýtt pökkunarkerfi
frá Marel kynnt
MAREL hefur nú sett á markað
nýjan hugbúnað, MPS OptiPack,
sem heldur utanum afurðir frá
framleiðslu til sölu og stýrir fram-
leiðsluvörum á rétta staði á lager
eða fyrir útkeyrslu. Kerfið er hann-
að frá grunni af Marel og tengist
ýmsum framleiðslubúnaði frá fyrir-
tækinu eins og flokkurum eða vog-
um. Einnig er hægt að tengja það
við einkatölvur og flesta prentara.
Kynnt í Brussel
um seinna hættum við að nota fyrri
aðferðir við brigðaskráningu og hóf-
um að nota nýja kerfið eingöngu,"
segir Ásbjörn.
Dregnr úr afföllum
Baldvin Ingibergsson fram-
leiðslustjóri segir að engum vand-
kvæðum hafi verið bundið að læra
að nota kerfið. Það sé að grunni eins
og hvert annað Windows forrit. „Að-
ur en við fórum að nota nýja kerfið,
þurfti ég að hafa alls konar tölur og
staðreyndir bak við eyrað, en nú
þarf ég ekki annað en að kíkja á tölv-
una til að sjá nákvæmlega hvernig
allt gengur fyrir sig. MSP OptiPack
sparar ekki aðeins tíma og fyrir-
höfn, það dregur einnig úr afföllum.
Aður kom það fyrir að kassar, sem
ekki voru rétt merktir, týndust í
kerfinu, en nú getum við fylgzt með
hverjum kassa,“ segir Baldvin Ingi-
bergsson um nýja kerfið.
Brettið hefur verið merkt og á miðanum koma fram allar upplýsingar
sem þurfa þykir og eru þær lesnar með sérstökum handskanna.
Búnaðurinn hefur verið í notkun
hjá Fiskkaupum í Reykjavík um
tíma, en það hefur auk þess verið
sett upp hjá 25 fyrirtækjum viða um
heim, allt frá Færeyjum til Nýja
Sjálands og í vinnslu eins og á laxi,
kjöti, kjúklingum og ferskum, fryst-
um og söltuðum fiski. Búnaðurinn er
nú fyrst kynntur opinberlega á
Evrópsku sjávarafurðasýningunni í
Brussel í næstu viku.
Það var í upphafi síðasta árs, sem
ákveðið var að hanna nýjan hugbún-
að til að halda utanum þessa þætti
tengda ýmsum framleiðslulínum frá
Marel. Upphafið má rekja til til sölu
á fyrsta Marel-kerfinu fyrir flokkun
og pökkun á heilum laxi til Noregs á
síðasta ári.
Skráir allar nauðsynlegar
upplýsingar
Björn Þorvaldsson, verkefnis-
stjóri, segir að það hafi verið orðið
Ijóst að Marel yrði að þróa sína eigin
lausn á pökkunarkerfi af þessu tagi
til að bjóða viðskiptavinum um allan
heim. Vinna við það hafi hafizt í jan-
úar fyrir rúmu ári og prufukeyrsla í
nóvember. í raun þarf einungis
einkatölvu og sérstakan hand-
skanna til að geta byrjað að nota
það, en það er einnig hannað til að
tengjast framleiðslukerfum frá
Marel. Kerfið skráir allar nauðsyn-
legar upplýsingar um viðkomandi
framleiðsluvöru á sérstakan merki-
miða með strikamerkjum og öðrum
upplýsingum. Það skráir einnig upp-
lýsingar um væntanlegan kaupanda
sé hann Ijós, hvert varan eigi að fara
og með hvaða flutningafélagi. Það
heldur jafnframt utan um allt lager-
hald og tengda þætti og stýrir vör-
unni á þá staði, sem henni er ætlað
að fara, til dæmis á lager. Þá er
hægt að rekja allan feril vörunnar í
kerfinu, en lesið er af strikamerkj-
um með sérstökum handskanna.
Kerfið er einnig hannað til að auð-
velda samskipti við önnur hugbún-
aðarkerfi við stjóm og rekstur.
„Gott kerfi“
Fiskkaup hf. í Reykjavík hafa ver-
ið með kerfið í notkun frá því síðasta
haust: Asbjörn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segist
ánægður með kerfið. Nú sé bæði
framleiðsla og birgðahald tölvustýrt
og því hafi fyrirtækið miklu betri
mynd af því, sem er að gerast. Fisk-
kaup gera út bátana Kristrúnu og
Ásrúnu, vinna saltfisk og flytja um
2.000 tonn út árlega.
„Við byrjuðum að nota MPS
OptiPack í nóvember á síðasta ári og
það gekk svo vel að tveimur mánuð-
Hlutverk AstraZeneca er að stuöla að bættri heilsu og líðan landsmanna og auka þannig lífsgæði í samfélaginu. Til að
þetta ætlunarverk gangi eftir þurfa margir að koma að málum. Árangurinn fer eftir samstarfi heildarinnar.
AstraZeneca starfar náið með íslenskum heilbrigðisstéttum. Þær hafa reynst dugandi samherjar sem í krafti kunnáttu
Nýja pökkunarkerfið frá Marel
nýtist vel við lagerhaldið.
sinnar mynda víðtæka þjónustukeöju í landinu. Líkt og keðjan verður aldrei sterkari en einstakir hlekkir hennar, stendur
heilbrigðisþjónusta á íslandi með þeim sem að málum koma. Reynslan sýnir að þessi keðja er sterk. Með samruna Astra
og Zeneca á síðasta ári, varð til eitt af öflugustu lyfjafyrirtækjum heims, AstraZeneca. Styrkur sameiningarinnar er táknrænt