Morgunblaðið - 06.05.2000, Side 43
1 MORGUNBLAÐIÐ
dkingarinnar með 76,4% atkvæða
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000 43
amtak og
gi samleið
Morgunblaðið/Ami Sæberg
i, formanni flokksins, Iof í lófa og var
u lágu fyrir í gær.
allsstaðar í samfélaginu en við hins
vegar styðjum markaðshagkerfið, við
styðjum einstaklingsframtak og við
viljum heilbrigða samkeppni í at-
vinnulífinu. Gleymum því ekki að sam-
keppni í atvinnulífinu er hagsmuna-
mál fyrir neytendur og við erum
hreyfing neytenda. Ríkisvaldið á að
taka afstöðu með neytendum í stað
þess að leggja áherslu á einkavæðingu
og verndaraðgerðir sem leiða til fá-
keppni og jafnvel nýrrar einokunar,"
sagði Össur.
Hann sagðjst ekki vera hræddur við
að samkeppnisvæða ríkisfyrirtæki
eins og Landsbanka og Búnaðar-
banka en sagðist hafna einkavæðingu
grunnþátta í mennta- og heilbrigðis-
kerfinu.
„í þessu máli er skýr víglína á milli
okkar og ríkisstjórnarflokkanna og
við eigum, góðir félagar, að beita okk-
ar kröftum þar sem munar um þá, og
þarna er þeirra þörf,“ sagði hann.
Netið notað við þjóðar-
atkvæðagreiðslur
í ræðu sinni lagði Össur áherslu á
að Samfylkingin beitti sér fyrir því að
með aðstoð Netsins yrði hægt að taka
upp þjóðaratkvæðagreiðslur um mik-
ilvæg mál og sveitarstjórnum yrði
gert kleift að skjóta þýðingarmiklum
ákvörðunum til almennrar atkvæða-
greiðslu. Sagðist hann hafa í hyggju
að nota Netið til að ráðfæra sig reglu-
lega við flokksmenn.
Óssur lagði mikla áherslu á eflingu
menntunar og sagði að tilfærsla á fé
til menntamála yrði fyrsta úrslausn-
arefni ríkisstjórnar sem Samfylkingin
stæði að.
Skýr víglína í fískveiði-
stjórnarmálinu
Hann fjallaði einnig um auðlinda-
mál og sagði: „Auðlindir í sjó og landi
eru eign þjóðarinnar og fyrir nýtingu
á þeim ber að greiða sanngjarna leigu
tO þjóðarinnar. Gjald fyrir auðlinda-
nýtingu á að mínu mati meðal annars
að nýta til þess að lækka tekjuskatt
launafólks. Þjóðin öll á að fá sann-
I j
gjarnan hlut af afrakstri sameigin-
legra auðlinda sjávar með því að veiði-
heimildir verði leigðar út til langs
tíma eins og við höfum lagt til. Að því
gefnu er það mín skoðun að það eigi
að stýra fískveiðum með aflamai’ks-
kerfi en ég er hins vegar algerlega
andvígur núverandj gjafakvótakerfi
stjórnarflokkanna. Ég er í hópi þeirra
sem eru ekki gramir yfir nýföllnum
dómi Hæstaréttar. Ég tel að með
þessum dómi hafi Hæstiréttur í reynd
vísað veginn til breytinga á fiskveiðik-
erfinu og ég heiti ykkur því að við
munum ekki láta stjórnarflokkana
komast upp með að svæfa málið áfram
í kyiTsetunefndum mörg misseri í við-
bót. í þessu máli er algjör og skýr víg-
lína í íslenskum stjórnmálum,“ sagði
Össur og tóku fundarmenn undir
þessi orð hans með lófataki.
Umsókn um aðild að ESB
óráðleg’ án samstöðu
Össur fjallaði einnig um Evrópu-
málin og sagði m.a. að Evrópusam-
bandið væri að breytast og stækka og
atburðarásin gæti leitt til þess að
þjóðin stæði frammi fyrir því að gera
upp hug sinn um aðild.
„Við getum ekki gert upp hug okk-
ar um aðild nema ljóst sé um hvað við
vildum semja. Ég tel því að næsta
skref í þessum málum sé að hefja
skipulega vinnu við að skilgreina
samningsmarkmið íslendinga í hugs-
anlegum aðildarviðræðum við
Evrópusambandið. En um þau
markmið verður að ríkja meirihluta-
samstaða meðal þjóðarinnar. Það er
ekki ráðlegt að sækja um aðild nema
slík samstaða sé fyrir hendi og nægir
þar að minna á dæmi Norðmanna. Við
sækjum ekki um nema við vitum ná-
kvæmlega hvað við viljum og nema
víðtæk samstaða ríki um samnings-
markmiðin meðal þjóðarinnar," sagði
Össur.
Hann sagði ennfremur að kostirnir
við aðild gætu reynst þyngri á metum
en gallarnir, að því tilskildu að íslend-
ingar einir nýttu fiskimiðin. Sagði
hann eðlilegt að íslendingar færu
gætilega við alþjóðlegar skuldbind-
ingar. „Slík varkárni má þó ekki leiða
til einangrunarhyggju," sagði hann.
Viðbúnaður skv. varnarsamningi
leiði ekki til skeytingarleysis
Össur fjallaði einnig um önnur ut-
anríkismál og sagði að á tímum nýrrar
heimsskipunar og örra tæknibreyt-
inga yrðu Islendingar að gæta þess að
viðbúnaður hérlendis samkvæmt
varnarsamningnum við Bandaríkin
leiddi ekki til skeytingarleysis hjá
okkur sjálfum um öryggismál. „Is-
lendingar eiga að íhuga þátttöku og
sjálfstætt starf í ýmsum nýjum og
brýnum öryggisverkefnum, ekki síst
þeim sem beinast gegn hryðjuverkum
hverskonar og skemmdarverkum á
hugbúnaði, við almannavarnir og
bj örgunarstörf, “ sagði hann.
Réttindi haldist í
hendur við skyldur
Undir lok ræðu sinnar lagði Össur
áherslu á helstu baráttumál Samfylk-
ingarinnar og sagði m.a.: „Við berj-
umst íyrir sanngjörnu samfélagi
jafnra tækifæra. Við viljum að ein-
staklingurinn blómstri í samfélagi
sem sinnir um hann. Við viljum að
réttindi haldist í hendur við skyldur.
Við viljum að öflugt efnahagslíf og
sanngjarnt samfélag fari saman. Við
teljum að einstaklingsframtak og fé-
lagshyggja eigi samleið. Við viljum
gagnsæja og lýðræðislega stjórnsýslu
með dreifðu valdi. Við einsetjum okk-
ur að breyta íslenskum stjórnmálum
með nýjum hugmyndum á grunni
samhjálpar og atorku.“
I lok ræðunnar risu fundarmenn úr
sætum og hylltu hinn nýkjörna for-
mann með langvinnu lófataki.
Margrét Frímannsdóttir sjálfkjörin varaformaður
Stefnir í átök við kosn-
ingu ritara á fundinum
MARGRÉT Frímannsdóttir var sjálf-
kjörin varaformaður Samfylkingar-
innar á stofnfundinum í gær, Ágúst
Einarsson prófessor var sjálfkjörinn
formaður framkvæmdastjórnar og
Eyjólfur Sæmundsson gjaldkeri. I
dag stefnir hins vegar í átök við kosn-
irígu í starf ritara en uppstillingar-
nefnd leggur til að Steinunn V. Osk-
arsdóttir borgarfulltrúi verði kjörin í
það starf en Katrín Júlíusdóttir, vara-
formaður Ungra jafnaðarmanna, býð-
ur sig fram gegn henni og nýtur m.a.
stuðnings Ungra jafnaðarmanna.
Samkomulag um að efna
ekki til mótframboðs
Um tíma leit út fyrir að fleiri
flokksmenn myndu bjóða sig fram í
embætti formanns framkvæmda-
stjórnar og varaformanns Samfylk-
ingarinnar áður en framboðsfrestur
vegna stjórnarkjörs rann út kl. 13 í
gær. Fljótlega lá þó fyrir að víðtækt
samkomulag væri um að uppstilling-
arnefnd myndi gera tillögu um Mar-
gréti í embætti varaformanns og
Ágúst í formennsku framkvæmda-
stjórnar án mótframboða og voru þau
því sjálfkjörin í þessi embætti á fund-
inum þegar nefndin kynnti tillögu
sína síðdegis. Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir þingmaður hugleiddi um
tíma framboð til varaformennsku en
ákvað svo að falla frá því eftir að
fundurinn hófst.
Kosning í embætti ritai’a fer fram í
upphafi fundar í dag. Steinunn Valdís,
borgarfulltrúi R-listans, kemur úr
Kvennalistanum, en Katrín úr Al-
þýðubandalaginu og er aukinheldur
varaformaður Ungra jafnaðarmanna.
Báðar tóku þær virkan þátt í starfi
Röskvu - Samtaka félagshyggjufólks
í Háskólanum.
Uppstillingarnefnd gerir tillögu um
Steinunni í embætti ritara, en ekki er
einhugur um þá ákvörðun og síðustu
dagana fyrir stofnfundinn var skv.
heimildum Morgunblaðsins gert ráð
fyrh’ að Katrín yrði á lista nefndar-
innar. Innan Kvennalistans er hins
vegar lögð þung áhersla á að fá full-
trúa inn í forystu Samfylkingarinnar
og þar er það sjónarmið rikjandi að
það sé eðlilegt þar sem Kvennalistinn
sé einn þriggja flokka sem formlega
standi að hinum nýja flokki.
Ungir jafnaðarmenn styðja Katrínu
hins vegar ákaft og segja nauðsynlegt
að hafa fulltrúa yngri kynslóðarinnar
í stjórn hins nýja flokks. Hið sama er
að segja um marga fyrrverandi liðs-
menn Álþýðubandalagsins. Því er von
á spennandi kosningu í morgunsárið.
Til stóð að kosningar færu fram á
stofnfundinum í gær en vegna tækni-
legra örðugleika í tölvukerfi við
skráningu þingfulltrúa þurfti að
fresta kjörinu.
Miklar umræður um sjávarútvegsmál í fyrirspurnatíma
Ekki sátt um neitt smáræði.
Morgunblaðið/Golli
Glenda Jackson, þingmaður Verkamannaflokksins í Bretlandi, og Tryggvi
Harðarson, bæjarfulltrúi og frambjóðandi til formanns, í djúpum samræð-
um á stofnfundi Samfylkingarinnar í Borgarleikhúsinu í gær.
SJÁVARÚTVEGSMÁL voru fyrsta
málefnið sem kom til umræðu á stofn-
fundi Samfylkingarinnar eftir hádegi í
gær þegar þingmenn flokksins sátu
við pallborð og svöruðu spumingum
úr sal.
Hörður Bergmann spurði þing-
mennina hvort þeir teldu unnt að
hrinda þeirri stefnu í framkvæmd fyr-
ir næstu kosningar að horfið verði frá
ókeypis úthlutun aflaheimilda.
Fram kom í máli Sighvats Björgv-
inssonar, sem á sæti í nefnd um endur-
skoðun á stjórnkerfi fiskveiða, svo-
nefndri sáttanefnd, að þar væri
nákvæmlega ekkert að gerast. Svan-
fríður Jónasdóttir sagði að Samfylk-
ingin þyrfti að skýra betur út fyrir
þjóðinni hvernig hægt væri að leysa
þá stóru deilu sem uppi væri um eign-
arhald og úthlutun veiðiheimilda.
„Þó við séum tilbúin til samstarfs
um góða hluti, þá eru þarna mjög
skýrar línur og við ætlum ekki að fara
að má út þessar línur. Við ætlum ekki
að fara að gera sátt við stjórnarflokk-
ana um eitthvert smotterí," sagði Guð-
mundur Árni Stefánsson.
Morgunblaðið virðist hafa
slegið af sínum kröfum
Össur Skarphéðinsson, formaður
flokksins, sagði að nýfallinn dómur
Hæstaréttar benti beinlínis á að taka
ætti upp veiðileyfagjald. „Ég held að
menn ættu ekki að gleyma því sem
segir í stjómarsáttmála en þar var
skotið inn lítilli aukasetningu, þar sem
Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæð-
isflokkurinn urðu sammála um að það
kæmi til greina að láta sjávarútveginn
borga fyrir þann kostnað sem hlýst af
ýmissi þjónustu við hann. Hvað felst í
því? Við vitum það ekki. Líklega munu
þeir, áður en kemur til næstu kosn-
inga, leggja fram einhverskonar hug-
myndir um veiðileyfagjald. Það verða
öðruvísi hugmyndir en okkar, en eins
og Guðmundur Ámi sagði, þá seljum
við ekki sál okkar fyrir hvað sem er.
Gleymum því ekki heldur að þeir sem
hafa verið að slást hvað harðast í
þessu máli er Morgunblaðið. Þeir vii’ð-
ast nú hafa slegið aðeins af sínum
kröfum. Nú tala þeir bara um að
prinsippið þurfi að nást en þeim er í
reynd sama um hvað gjaldið verður
hátt. Það er okkur ekki,“ sagði Össur.
Gísli Einarsson sagði andstæðinga
flokksins á Alþingi smám saman vera
að viðurkenna að sanngirni fælist í til-
lögum Samfylkingarinnar. „Þetta
mun vinnast á tveimur þingum þannig
að það verður sjáanleg breyting í þá
átt sem við emm að fara. Éftir þessi
tvö þing koma kosningar og þá kom-
um við okkar málum í gegn,“ sagði
hann.
Eyjabakkamálið skaðaði
Samfylkinguna
Talsverðar umræður urðu einnig
um umhverfismál á fundinum en Jak-
ob Frímann Magnússon beindi þeirri
spumingu til þingmannanna hvernig
þeir teldu Samfylkinguna hafa komið
út úr umdeildu virkjanamáli á Austur-
landi þar sem þingmenn hennar væm
sakaðir um að hafa ekki verið nægi-
lega samstiga.
Þingmennmnir vora ekki á einu máli
í svöram sínum við þessari spurningu.
Einar Már Sigurðarson sagðist telja
að það hefði verið styrkur Samfylking-
arinnar í þessu máli að þingmenn
hennar vora ekki sömu skoðunar í
þessu máli.
„Það vora kannski fjárfestar sem
björguðu okkur frá þessu máli. Það er
einfaldlega komin upp ný staða í virkj-
ana- og álversmálum á Islandi," sagði
Þórann Sveinbjarnardóttir.
Rannveig Guðmundsdóttir þing-
flokksformaður var ekki sammála
Jakob um að Samfylkingin hefði verið
í vanda í virkjunarmálinu. „Samfylk-
ingin er ekki á móti virkjunum en
Samfylkingin vill vönduð vinnubrögð
og við stóðum saman um það sem
skiptir máli, nefnilega að vilja um-
hverfismat. Það stóðum við saman um.
Það var svo þegar kom að síðari af-
greiðslum sem þingflokkurinn skipt-
ist,“sagði hún.
„Ég held að þetta hafi skaðað okkur
en það varð miklu minni skaði heldur
en efni stóðu til,“ sagði Össur Skarp-
héðinsson.