Morgunblaðið - 13.05.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.05.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Umræður fram á nótt UMRÆÐA um umdeilt frumvarp sem gerir ráð fyrir lögleiðingu ólympískra hnefaleika tók drjúgan hluta af fundartíma Alþingis í gær. Umræðan hófst klukkan hálfsex og stóð til að verða ellefu í gærkvöld. Þá fór fram önnur umræða um frumvarp til laga um breytingar á samkeppnislögum. Á miðnætti stóð yfir umræða um frumvarp um starfsréttindi tannsmiða og stóð til að atkvæði yrðu greidd um frum- varpið að umræðunni lokinni. Umræðu um frumvarp um skatt- frelsi forsetans og siðari umræðu um vegaáætlun og jarðgangaáætl- un fyrir árin 2000 til 2004 sem fyr- irhuguð hafði verið í gær var frest- að til dagsins í dag. í gærkvöld var enn stefnt að þingslitum í dag. Þingmenn úr röðum Samfylking- ar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs gera athugasemd- ir við breytingartillögu meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar við frumvarp til breytinga á sam- keppnislögum á grein frumvarps- ins um heimild samkeppnisráðs til að ógilda samruna ef það telur að hann hindri eðlilega samkeppni. í breytingartillögunni er lagt til að tekin verði upp svokölluð minni- háttarregla sem takmarkar þau til- vik sem falla undir ákvæðið. Er meðal annars lagt til að það taki að- eins til samruna þar sem sameigin- leg heildarvelta viðkomandi fyrir- tækja er milljarður eða meira. I svari Valgerðar Sverrisdóttur viðskiptaráðherra við fyrirspum Lúðvíks Bergvinssonar, Samfylk- ingu, kom fram að upphæðin sem miðað er við í greininni tekur til móður- og dótturfyrirtækja og ann- arra fyrirtækja tengdum þeim sem þátt eiga í samruna. Lúðvík spurði ráðherra einnig hvort réði ef á rækjust annars vegar ákvæði um bann við misnotkun á markaðsráð- andi stöðu og hins vegar minnihátt- arreglan og mátti ráða af svari ráð- herra að bannákvæðið réði. Lúðvík og Jóhanna Sigurðardótt- ir, Samfylkingu og Ögmundur Jónas- son, VG vom sammála um að frum- varpið um breytingu á samkeppnis- lögum væri til bóta en þótti óþarf- lega komið til móts við kröfur SA við þrengingu samrunaákvæðisins. Morgunblaðið/Kristinn Þingmennimir Guðjón A. Kristjánsson, Katrfn Fjeldsted og Þuríður Backman í þingsal í gærkvöldi. Eins og sjá má em skjalastaflar á borðum þingmanna. ísafjörður Tveir yfir- heyrðir vegna fíkniefna LÖGREGLAN á ísafirði handtók á fimmtudag þrjá karlmenn vegna fíkniefnamisferlis. Einum var sleppt þá um kvöldið, en tveir gistu fanga- geymslur lögreglu og voru yfir- heyrðir í gær. Að sögn lögreglu eru tvær 15 ára stúlkur yngstar í hópnum, sem við- riðinn er málið, en þær voru ekki handteknar. Málið er í rannsókn. ----------------- Varð fyrir bíl á Akureyri NIU ára drengur á hjóli varð fyrir bíl á Stapasíðu á Akureyri í fyrrakvöld. Hann var fluttur á slysadeild en fékk að fara heim að skoðun lokinni. Að sögn sjónarvotts var drengur- inn að leik á bílastæði en hjólaði af stæðinu á nokkurri ferð og fyrir bíl sem kom akandi á litlum hraða. Drengurinn lenti framan á bílnum vinstra megin. Þá valt bíll á Krossanesbraut um miðnættið þegar ökumaður, sem reyndi að taka fram úr öðrum bfl, missti stjóm á bflnum. Nýtt launakerfi í samningi rafiðnaðarmanna við ríkið í KJARASAMNINGI Rafiðnaðarsambandsins og ríkisins, sem undirritaður var í fyrrakvöld, var samið um algerlega nýtt launakerfi. Ekki er því ljóst hvað samningurinn skilar rafiðnaðarmönnum sem vinna hjá ríkinu miklum hækkunum, en taxta- hækkanir eru þær sömu og samið hefur verið um á almenna markaðinum, þ.e.a.s. um 3% hækkun á ári. Samningurinn kveður á um að settir verði þrenns konar rammar um launin. í fyrsta ramma verða almenn rafiðnaðarstörf og er launaramminn á bilinu 95-156 þúsund krónur. í öðrum ramma verður þorri allra rafiðnaðarmanna, en laun þeirra verða á bilinu 114-189 þúsund krónur. í þriðja launaramma verða deildarstjórar og rafiðnaðar- menn með faglega ábyrgð og er launasviðið á bil- inu 130-240 þúsund krónur. Búið er að raða rafiðn- aðarmönnum 1 þessa ramma en eftir er að raða einstaklingum inn á réttan taxta. Það kemur í hlut trúnaðarmanna og starfsmannastjóra á hverjum vinnustað að gera það og því liggur ekki fyrir hve laun rafiðnaðarmanna hækka mikið á samnings- tímanum. Þá felur samningurinn í sér vissar breytingar á veikindarétti og ákvæði um atvinnuleysistrygg- ingar eru gerð skýrari. Samið var um sams konar breytingar á lífeyrismálum og samið var um á al- mennum markaði, þ.e. 2% greiðslu vinnuveitenda ef launamaður greiðir 2% í séreignarsjóð. Sams konar opnunarákvæði eru í samningnum og hja öðrum. Samningurinn gildir til 31. mars árið 2004. Samningurinn nær til 116 rafiðnaðarmanna sem starfa hjá rfldnu. Samiðn og ríkið í viðræðum Viðræður Samiðnar og rfldsins eru einnig langt komnar. Sama á við um samninga Samiðnar við Reykjavíkurborg. Samiðn hefur líkt og Rafiðnað- arsambandið krafist þess að ríkið og borgin taki upp nýtt launakerfi með þeim rökum að iðnaðar- menn sem vinna hjá hinu opinbera hafi dregist aft- ur úr í launum. Viðræður við VR og LÍV á lokastigi Stefnt að undirskrift samninga um helgina VIÐRÆÐUR Verzlunarmannafé- lags Reykjavíkur, Landssambands íslenskra verzlunarmanna og Sam- taka atvinnulífsins eru á lokastigi og liggja drög að samningi á borðinu þar sem stigið er skref í átt að mark- aðslaunasamningi. Fundað fram eftir nóttu Ekki er þó gengið eins langt og í samningi VR við Samtök verslunar- innar sem gerður var snemma á þessu ári, en hann byggist nær alfar- ið á markaðslaunum. Viðræðumar stóðu yfir fram eftir nóttu í fyrrinótt og einnig voru við- ræður í gær. Að sögn Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, hefur við- ræðum miðað allvel áfram. Þetta væri hins vegar viðamikið verkefni sem tæki lengri tíma en menn hefðu kannski vonast eftir. Hann sagði að viðræðum yrði haldið áfram í dag. Hann útilokaði ekki að skrifað yrði undir samninga um helgina, en sagði eins líklegt að það drægist fram yfir helgi. Meðal þess sem rætt hefur verið siðustu daga er upphaf samnings og eins hafa VR og LÍV krafist ein- greiðslu vegna þess að viðræður hafa dregist. Þá hefur verið ágreiningur um laun starfsfólks í gestamóttöku. Aðalmeðferð stóra fíkniefnamáls- ins hefst 11. september Saksóknari kærir til Hæstaréttar AÐALMEÐFERÐ stóra fíkni- efnamálsins svonefnda, þar sem ákært er fyrir innflutning og sölu á þriðja hundrað kg af fíkni- efnum frá Danmörku, Hollandi og Bandaríkjunum á árunum 1997-1999, hefst 11. september næstkomandi. Guðjón St. Mart- einsson héraðsdómari tók þessa ákvörðun þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, en settur saksóknari, Kol- brún Sævarsdóttir, hefur kært ákvörðunina til Hæstaréttar. Kolbrún sagði að með því að hefja aðalmeðferð ekki fyrr en eftir 4 mánuði væri verið að draga málið óþarflega og að með hliðsjón af því að 9 manns sætu í gæsluvarðhaldi krefðist ákæru- valdið þess að málið yrði tekið fyrir fyrr. Sérblöð í dag 4 3j Thierry Henry er sollinn af sjálfsf rausti / B2 Stefán kominn aftur tii Skagamanna / B1 Með Morgunblað- inu i dag er dreift blaði frá Heklu hf „Frumsýning í Heklu 13. og 14. maí“. Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.