Morgunblaðið - 13.05.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 13.05.2000, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Samningar Sam- iðnar samþykktir Iðnaðar- menn á Fáskrúðs- fírði felldu SAMNINGAR Samiðnar við Sam- tök atvinnulífsins voru samþykktir í öllum félögum nema í Verkalýðsfé- lagi Fáskrúðsfjarðar þar sem samn- ingur félagsins var felldur. Ellefu fé- lagsmenn greiddu atkvæði og sögðu allir nei. Félagsmenn í Félagi jámiðnaðar- manna samþykktu kjarasamninginn með 339 atkvæðum (65%) gegn 178 (34%). Auðir seðlar voru 4, en á kjör- skrá voru 1.533. Þátttakan í póst- atkvæðagreiðslunni var 34%. Samningurinn var einnig sam- þykktur í næststærsta aðildarfélagi Samiðnar, Trésmiðafélagi Reykja- víkur. A kjörskrá voru 1.083 og greiddi 91 atkvæði eða 8,4%. At- kvæði féllu þannig að já sögu 55 eða 60,4%, nei sögðu 34 eða 37,4%. Tveir seðlar voru auðir. Niðurstaða at- kvæðagreiðslunnar skipti raunar ekki máli því samningurinn skoðast samþykktur vegna ónógrar þátt- töku. Ungar mæður ÞÆR hittust á fömum vegi í vikunni og bára saman haft um nóg að tala þennan fallega vordag, einn þann bækur sínar þessar ungu mæður. Væntanlega hafa þær fyrsta, en vonandi fylgja fleiri góðir dagar í kjölfarið. Islandsflug flýgur til Siglu- fjarðar SIGLUFJARÐARKAUPSTAÐUR og íslandsflug hf. hafa gert sam- starfssamning sín á milli um til- raunaverkefni í áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Siglufjarðar. Guðmundur Guðlaugsson, bæj- arstjóri á Siglufirði, undirritaði samninginn fyrir hönd Siglufjarð- arkaupstaðar, og Ómar Benedikts- son, framkvæmdastjóri íslands- flugs, fyrir hönd flugfélagsins. Með tilraunaverkefninu ætla samstarfs- aðilarnir að kanna rekstrargrund- völl breytts forms áætlunarflugs frá því sem verið hefur með beinu flugi tvo daga í viku þar sem horft er til mögulegrar aukningar far- þegafjölda með tengingu við helg- arferðir. Jafnframt þessu verða flognar tvær flugferðir í viku með tengingu við kvöldflug til Sauðár- króks og því samtals flognar fjórar ferðir í viku. Samningstíminn er til loka júní en möguleiki gefinn á framleng- ingu verkefnisins að þeim tíma f liðnum. Fyrsta flug samkvæmt samningnum verður flogið fimmtu- daginn 18. maí nk. Engar hurðar- bremsur í elstu vögnum S VR ALDRAÐA konan, sem dróst tugi metra með strætisvagni í fyrradag, gekkst undir aðgerð í gær og er líðan hennar eftir at- vikum. Hún er mikið slösuð. Bíl- stjórinn þurfti á áfallahjálp að halda eftir slysið. Lilja Ólafsdóttir, forstjóri Strætisvagna Reykjavíkur, segir að slysið hafi orðið í vagni sem er í hópi 30 elstu vagnanna í flota SVR. Vagninn er af Volvo- gerð og voru upphaflega keyptir 30 bílar af þessari gerð sem nú eru elstu vagnar SVR. Byrjað er að afskrifa þessa vagna. Allar aðrar gerðir vagna í eigu SVR eru með svokölluðum hurðar- bremsum sem gera það að verk- um að falli hurðir ekki að stöfum er ekki hægt að aka vagninum af stað. Lilja segir að slíkur búnaður hefði að öllum líkindum komið í veg fyrir slysið. Hún segir að hurðarbremsur séu þó ekki lög- bundinn búnaður og vagninn sem um ræðir hafi forsvaranleg- an búnað. Þarna hafi orðið mannleg mistök. Útboð í undir- búningi hjá SVR Hún kveðst ekki geta sagt til um hvort slysið verði til þess að flýta fyrir því að elstu vagnarnir verði teknir út úr rekstrinum. „Við erum að gera tillögur um áframhaldandi endurnýjun á vögnum og því hraðari endur- nýjun sem við fáum því fyrr get- um við tekið þessa vagna úr um- ferð. Það er í gangi undir- búningur að útboði en ekki hefur verið ákveðið hve margir vagnar verða í því,“ segir Lilja. Hún kveðst ekki vita hvort þessar gerðir af vögnum séu í notkun í nágrannalöndunum en líklega séu strætisvagnar hér á landi eldri en gerist og gengur annars staðar. Yerkáætlun um upp- byggingu heilbrigðisnets TEKIN hefur verið saman verk- áætlun um uppbyggingu heilbrigðis- nets á íslandi, þar sem lýst er um- fangi þess, hverjir eigi aðild að því, notkunarsviðum netsins, fjarskipt- um og fjarlækningum, svo og sam- skiptum almennings við starfsmenn og stofnanir heilbrigðisþjónustunn- ar. Jafnframt er gerð grein íyrir þeim stöðlum sem notaðir verða, upplýsingakerfum og gagnagrunn- um, öryggismálum, stjómun og rekstri, helstu verkefnum og fjár- málum. í upplýsingum frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu kemur fram að heilbrigðisnetinu sé ætlað að vera farvegur rafrænna samskipta milli aðila innan heilbrigðisþjónustu. Tæknilega samanstandi heilbrigðis- netið af tölvum, fjarskipta- og hug- búnaði, auk samskipta- og öryggis- reglna. Heiibrigðisnetið verði lokað kerfi í þeim skilningi að flutnings- leiðir verði að vera öruggar þannig að upplýsingamiðlun og sendingar milli aðila fylgi ströngum öryggis- og starfsreglum. Til að tryggja ör- yggi og trúnað verði starfræktur miðlægur nafnamiðlari sem muni halda utan um rafrænar undirskrift- ir og sannreyna uppruna samskipta. Fram kemur að samskiptaleiðir heilbrigðisnetsins muni taka mið af þeim fjarskiptum og samskiptaþjón- ustu sem í boði sé í dag. Homsteinn samskiptanna verði nafnamiðlarinn sem skrái allar stofnanir sem fái leyfi heilbrigðisyfirvalda til þess að tengjast heilbrigðisnetinu, en nafna- miðlarinn verði starfræktur innan heilbrigðisþjónustunnar. Öryggið grundvallaratriði „Grundvallaratriði heilbrigðis- netsins er öryggisstefnan og örygg- isreglurnar. Þær skilgreina aðgang að netinu, öryggi og trúverðugleika gagna ásamt stöðlum og reglum sem heilbrigðisnetið fylgir. Allar stofn- anir sem tengjast heilbrigðisnetinu verða að hafa öryggisstefnu og fylgja þessum öryggisreglum. Meg- ininntak þessara reglna er dulkóðun og rafræn undirskrift og er það gert til þess að tryggja persónuvernd og trúnað við sjúklinga," segir síðan. Fram kemur að uppbygging heil- brigðisnetsins sé langtímaverkefni og að næstu þrjú árin verði lögð áhersla á að þróa meginþætti þess. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir að um 300 milljónum króna verði varið til verkefnisins á næstu þremur ár- um. I verkáætluninni kemur fram að meðal aðila að heilbrigðisnetinu er ráðuneytið, heilsugæslustöðvar, sjúkrahús, heimilislæknai-, sérfræð- ingar, tryggingastofnun, lyfjabúðir, Landlæknisembættið, auk fleiri að- ila. Fram kemur að notkunarsviðið sé mjög víðtækt, samskiptin margvís- leg og tengist margir sams konar gögnum vegna mismunandi tilvika. Meðal samskipta eru nefnd vottorð, innritanir og útskriftir, lyfseðlar og endurgreiðsla þeirra, reikningar, rannsóknarbeiðnir og svör, röntgen- beiðnir og svör, beiðnir um sér- fræðiálit, tilvísanir, ýmsar tegundir rannsókna, samræmd slysaskrán- ing, rannsóknaraðilar, birgjar, er- lendir samstarfsaðilar, myndir, úr- lestur og túlkun upplýsinga, fjarfundir, ráðgjöf og viðtöl, læknis- þjónusta og upplýsingar úr sjúkra- skrám. STÚPENTSG'AFIR / UJ Vönduð íslcnsk tj* önd vegi siit VAKA- HELGAFELL Sióumula ú • Simi SSO 1000 Mikill áhugi á íslenskunámi í Póllandi AÐ FRUMKVÆÐI Björns Bjarna- sonar menntamálaráðherra og Halldórs Ásgrímssonar utanríkis- ráðherra, voru Bogdan Gumk- owski, ræðismanni íslands í Var- sjá og formanni vináttufélags Islands og Póliands þar f landi, færðar að gjöf bækur og gögn til kennslu á íslenskri tungu, er fylgdariið Póllandsforseta sótti Þingvelli heim í gær. Mikill áhugi er á íslandi og ís- lenskunámi í Póilandi og á und- anförnum misserum hafa ræðis- manninum borist fjölmargar fyrirspumir um aðgengilegt kennsluefni. Það var í tengslum við íslandsheimsókn forseta Póllands að hugmyndin um bókagjöfina kviknaði og ákváðu ráðuneytin að hlúa að þessum tengslum og áhuganum á fslandi og styrkja kaup á tuttugu upplýsingapökkum sem innihalda kennsluefni í ís- lensku fyrir pólskumælandi fólk en fyrirtækið Fjölmennt ehf. gefur efnið út. Málið stóð Gumkowski nærri þar eð hann bjó hér á landi á yngri árum er faðir hans sinnti störfum viðskiptafulltrúa við pólska sendiráðið um þriggja ára skeið. Morgunblaðið/Ásdfe Bogdan Gumkowski, ræðismaður Islands í Varsjá, á Nesjavöllum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.