Morgunblaðið - 13.05.2000, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
MORGUNB LAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Framkvæmdastjóri Cargolux sækir ísland heim
Vaxandi tækifæri á
flugfraktmarkaðinum
Skúli Skúlason framkvæmdastjóri, Þórarinn Kjartansson, stjórnarformað-
ur Fagflutninga, Tony McNickels og Pierre Wesner frá Cargolux.
„CARGOLUX hefur þjónað ís-
lenska flugfraktmarkaðinum í tæp
sex ár og þegar við lítum fram til
næstu ára sjáum við vaxandi sókn-
arfæri á Islandi. íslenski flug-
fraktmarkaðurinn hefur vaxið
hratt undanfarin ár, ekki hvað síst
vegna aukinnar samkeppni og vax-
andi starfsemi íslenskra flutnings-
miðlana og við ætlum okkur að
taka virkan þátt í frekari vexti á
þessum markaði," segir Pierre
Wesner, framkvæmdastjóri sölu-
og markaðsmála fyrir Cargolux í
Lúxemborg, en hann var staddur á
íslandi nýlega.
Að mati Wesner eru flutnings-
möguleikar Cargolux með B747-
400 fraktflugvélum fyrirtæksins
einkar góðir; ekkert annað fyrir-
tæki hér á íslandi geti flutt vörur
að sama umfangi og þyngd og
Cargolux. Þá nefnir Wesner að
hagkvæmni stórra rekstrareininga
skili sér einnig í lægra verði til
flutningsmiðla útflytjenda og inn-
flytjenda. Fullkomin loftræstikerfi
vélanna geri alla flutninga á lifandi
dýrum og á kælivarningi ýmiss
konar öruggari og einfaldari en
með nokkrum öðrum flugvélum.
„Við erum mjög ánægðir með
það samstarf, sem við höfum átt
við félaga okkar og samstarfsmenn
hjá Flugflutningum ehf. hér á ís-
landi, og við lítum björtum augum
á frekara samstarf við þá í framtíð-
inni,“ segir Pierre Wesner. Flug-
vélar Cargolux hafa viðkomu á Is-
landi þrisvar í viku, tvisvar á leið
frá Lúxemborg til New York og
einu sinni á leið frá New York til
Lúxemborgar. Þá rekur Cargolux
umfangsmikið net fraktflugs um
heim allan og notar til þess tíu nýj-
ar fraktflugvélar af gerðinni B747-
400F. í tengslum við fraktflug fé-
lagsins frá Lúxemborg rekur fé-
lagið einnig viðamikið net flutn-
ingabíla í landflutningum um alla
Evrópu.
Cargolux hefur verið í örum
vexti undanfarin ár og skilaði 2,3
milljarða króna hagnaði í fyrra.
Margir íslendingar starfa hjá
Cargolux í Lúxemborg, þar á með-
al Eyjólfur Hauksson, en hann er
framkvæmdastjóri flugrekstrar-
sviðs félagsins.
Fyrirtækið Flugflutningar ehf.
var stofnað árið 1994 og hefur ver-
ið umboðsaðili Cargolux á íslandi
frá þeim tíma. Fyrirtækið er einn-
ig með söluumboð fyrir vöruflutn-
inga Air Atlanta, LTU, Luxair og
fleiri flugfélaga. Starfsemi Flug-
flutninga er til húsa við Héðins-
götu 1-3 í Reykjavík, bæði skrif-
stofur og vöruafgreiðsla. Fram-
kvæmdastjóri félagsins er Skúli
Skúlason.
Eitt númeT\fyrir ^lla
(j^j Ábendingar
(jQj Þjónustuupplýsingar
fýndir farsímar
31(131 Sérþjónusta
o Allari sólarhringinn
í 8oo 7000, færðu allar upplýsingar um
þá þjónustu sem Síminn veitír.
Þjónustuveríð eropið allan sólarhringínn
www.siTmnnns
Föt í Nikita-lín-
unni vinsæl í Japan
AÐ SÖGN Rúnars Ómarssonar,
eins af aðstandendum Nikita ehf.,
hafa borist pantanir frá Japan fyrir
a.m.k. 3.000 flíkur úr haustlínu Nik-
ita og hann á von á að pöntunum
fjölgi fyrir haustið. Aðalheiður
Birgisdóttir er hönnuður Nikita.
Nikita er sportleg tfskulma ætluð
stelpum á aldrinum 15-30 ára og
samanstendur m.a. af aðsniðnum
flíspeysum, anorökkum, vestum,
frekar víðum buxum, toppum og
kjólum 1 ýmsum litum. Haustlínan
2000 er í söiu núna en hönnun sum-
arlfnunnar 2001 stendur yfir um
þessar mundir.
Fjöldi fyrirspurna
í kjölfar vörusýningar
Nikita hefúr gert samning við
tvær af fremstu snjóbrettastelpum
heims, Minnu Hesso og Natöszu
Zurek, og Rúnar segir það hafa
mjög mikið að segja fyrir markaðs-
setninguna. Natasza varð sigurveg-
ari í einu stærsta snjóbrettamóti
heims nýlega og fylgdi því mikil
kynning á Nikita og fjöldi fyrir-
spurna í kjölfarið. Stelpurnar eru
einnig í auglýsingum, bæklingum
og á vef Nikita, nikitadothing.com.
Nýlega birtust myndir af annarri
þeirra í evrópsku tískublaði þar
sem fjallað var um Nikita sem eitt
af „heitustu merkjunum" í „götu-
tískufatnaði", að sögn Rúnars.
Rúnar og Heiða kynntu Nikita á
vörusýningu í London í febrúar og
hlutu góðar viðtökur. „Við kom-
umst þar í samband við dreifingar-
aðila m.a. frá Frakklandi, Austur-
ríki, Hollandi, Noregi, Belgíu og
Ítalíu, sem höfðu áhuga á Nikita
fyrir verslanir sínar, en við ætlum
að byija á að sinna Japan. Evrópa
og Bandarikin verða á dagskránni í
framhaldi af því,“ segir Heiða.
Nikita hefur þegar opnað sölu-
og dreifingarskrifstofu í Hamborg í
Þýskalandi, þar sem dreifing fyrir
Evrópumarkað mun fara fram.
Margar af helstu „götutísku“-
Mynd úr kynningarbækiingi Nikita.
Natasza Zurek, ein fremsta snjó-
brettastelpa heims, 1 Nikita-fatnaði.
verslunum í Japan munu selja Nik-
ita frá og með næsta hausti, og
Rúnar er bjartsýnn á framhaldið.
„ Við höfúm staðið í undirbúningi,
vöruþróun og markaðssetningu sl.
þijú ár og nú er það starf að skila
sér.“ Framleiðsla á fatnaðinum fer
fram í Kína en gerður var samning-
ur við fyrirtækið Lexus Enterprises
Ltd. í Kína, sem er í eigu íslend-
inga.
Rúnar segir að nú sé fyrst og
fremst lögð áhersla á viðskipti í
Japan. „Þar er gríðarlega stór
markaður fyrir fatnað af þessu
tagi.“ Nú standa yfir viðræður við
íjárfesta um aðild að fyrirtækinu,
en aukin umsvif eru nauðsynleg
miðað við eftirspurn eftir Nikita-
fatnaðinum, að sögn Rúnars.
Stjórnarflokkarnir tókust hart á um
breytingu á samkeppnislögum
Atök um heim-
ildir til að
ógilda samruna
STJORNARFLOKKARNIR tók-
ust hart á um ákvæði í frumvarpi
viðskiptaráðherra til laga um
breytingu á samkeppnislögum er
varðar heimildir samkeppnisráðs
til að ógilda samruna ef það telur
að hann hindri virka samkeppni.
Niðurstaðan var að meirihluti
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis lagði fram breytingartillögu
við frumvarp ráðherrans þar sem
dregið er úr heimildum samkeppn-
isráðs frá því sem ráðherrann lagði
til. Sett er inn svokölluð minnihátt-
arregla í viðkomandi grein frum-
varpsins, sem felur í sér að sam-
keppnisráð hafi einungis heimild til
að ógilda samruna fyrirtækja ef
heildarvelta viðkomandi fyrirtækja
er 1 milljarður króna eða þar yflr.
Þá skulu a.m.k. tvö af þeim fyrir-
tækjum sem aðild eiga að samrun-
anum hafa a.m.k. 50 milljóna króna
ársveltu hvert fyrir sig.
Skoðanir Framsóknarflokks og
stjórnarandstöðu fara saman
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
flokksformaður Framsóknar-
flokksins og varaformaður efna-
hags- og viðskiptanefndar, sagði í
viðtali við Morgunblaðið að komið
hefði í ljós, þegar efnahags- og við-
skiptanefnd fór að vinna í málinu,
að svokölluð minniháttarregla væri
í samræmi við ákvæði samkeppnis-
laga í flestum ríkjum Evrópu.
Fjárhæðir um heildarveltu og veltu
einstakra fyrirtækja, sem sam-
komulag stjórnarflokkanna varð
um, væru hins vegar í hærri kant-
inum.
Hann sagði að skoðanir fulltrúa
Framsóknarflokksins og fulltrúa
stjórnarandstöðunnar í efnahags-
og viðskiptanefnd hafi farið saman,
en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
nefndinni hafi hins vegar viljað að
viðmiðunarmörkin um veltu væru
enn hærri en niðurstaða varð um.
Ásættanleg málamiðlun að mati
Sjálfstæðisflokksins
Vilhjálmur Egilsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og formaður
efnahags- og viðskiptanefndar,
sagði að breytingartillaga nefndar-
innar væri einfaldlega málamiðlun
sem oft þyrfti að koma til í málum
sem þessu.
Hann sagði Sjálfstæðismenn
nægjanlega sátta og að frumvarpið
væri til bóta og að það væri betra
eftir þær breytingar sem sam-
komulag hafi orðið um en það hefði
verið í upphafi.