Morgunblaðið - 13.05.2000, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„ „ Morgunblaðið/Golli
Ur verkinu „Auðun og ísbjöminn" sem er framlag Islenska dansflokks-
ins til Leiklistarhátíðar barnanna sem hefst 20. maí næstkomandi.
Þrjú ný verk á Leik-
listarhátíð barnanna
Listamenn frá Siglufírði og Ungverjalandi í Neskirkju
Allt frá íslenskum söng-
lögum upp í óperuaríur
Antonía Pál B. Hlöðver
Hevesi Szabó Sigurðsson
Á DAGSKRÁ Leiklistarhátíðar
barnanna, sem hefst 20. maí, verða
frumsýnd þrjú ný íslensk verk fyrir
yngstu kynslóðina. Framlag ís-
lenska dansflokksins er frumflutn-
ingur á nýjum dansi eftir Nönnu Ól-
afsdóttur sem nefnist >vAuðun og
ísbjörninn". Dansinn er byggður á
Auðunar þætti ísfirska sem er ein af
perlum Islendingasagna. Sýningin
verður á litla sviði Borgarleikhússins
laugardaginn 20. og sunnudaginn 21.
maí kl. 17 báða dagana.
Leikbrúðuland frumsýnir leikritið
„Prinsessan í hörpunni" eftir Böðvar
Guðmundsson, sem verður sýnt í
Tjamarbíói miðvikudaginn 24. og
fimmtudaginn 25. maí, kl. 18. Efnið
er sótt í foman sagnasjóð, nánar til-
tekið Völsungasögu þar sem segir
frá Áslaugu í hörpunni.
Sýningin er einnig á dagskrá
Reykjavíkur - menningarborgar
Evrópu árið 2000.
Möguleikhúsið frumsýnir „Völu-
spá“ eftir Þórarin Eldjárn. Kvæðið
Völuspá er gmnnur verksins en
Völuspá er talið eitt merkasta kvæði
íslenskra fombókmennta.
Sýningin er einnig á dagskrá
Reykjavíkur - menningarborgar
Evrópu árið 2000 og verður sýnd
laugardaginn 27., sunnudaginn 28.
kl. 17 og fimmtudaginn 1. júní kl. 18.
KVEÐJA frá Siglufirði er yfirskrift
tónleika sem haldnir verða í Nesk-
irkju við Hagatorg í dag kl. 16 en þar
syngur Hlöðver Sigurðsson tenór,
Ántonía Hevesi leikur á orgel og pía-
nó og Pál B. Szabó á fagott og píanó.
Efnisski-áin er fjölbreytt, „allt frá
íslenskum sönglögum upp í óperuar-
íur og kirkjuleg verk,“ segir Hlöðver
og bætir við að einnig fljóti með nýtt
verk eftir fagott- og píanóleikarann
Pál B. Szabó, prelúdía í barokkstíl,
þar sem áhrif frá barokki og rokki
blandast saman á nýstárlegan hátt.
„Við fluttum þessa efnisskrá á tón-
leikum á Siglufirði um páskana við
geysigóða aðsókn,“ segir Hlöðver og
bætir við að nú vilji þau leyfa höfuð-
borgarbúum að heyra.
Meðal þess sem þau munu flytja á
tónleikunum í Neskirkju má nefna
sígild íslensk sönglög á borð við
Hamraborgina og I fjarlægð og óp-
eruaríur úr Rigoletto, Ástardrykkn-
um og La bohéme.
Úr rokkinu í söngnám
Hlöðver er fæddur á Siglufirði ár-
ið 1973. Á unglingsárunum stundaði
hann nám í trompetleik við Tónlist-
arskóla Siglufjarðar og söng síðan í
rokkhljómsveit. Árið 1995 sneri
hann við blaðinu og hóf söngnám hjá
Antoníu Hevesi við Tónlistarskóla
Siglufjarðar og lauk þaðan
áttunda stigs prófi í apríl síðast-
liðnum. Hann hefur tekið þátt í tón-
leikum á vegum skólans og haldið
nokkra tónleika í félagi við aðra.
Hann hefur tekið þátt í masterklass-
námskeiði á vegum Rósu Kristínar
Baldursdóttur og hyggur á frekara
nám erlendis á næstunni. Hann
kveðst vera að athuga með nokkra
skóla núna, m.a. í Bretlandi, Ítalíu og
Austurríki og á von á að mál skýrist
þegar líður á sumarið en þá fer hann
ásamt kennara sínum og meðleikara,
Antoníu Hevesi, á masterklassnám-
skeið í Frakklandi.
Antonía Hevesi er fædd í Ung-
verjalandi, þar sem hún stundaði
píanónám um margra ára skeið og
lauk prófi 1988 frá Liszt Ferenc tónl-
istarakademíunni í Búdapest sem
kórstjóri, hljómfræðingur og fram-
haldsskólakennari í söng.
Samhliða stundaði hún píanónám
og hóf orgelnám við Tónlistarháskól-
ann í Graz í Austurríki hjá Otto
Bruckner. Antonía fluttist hingað til
lands árið 1992 og býr nú á Siglu-
firði, þar sem hún er organisti og
kórstjóri við Siglufjarðarkirkju og
kennir söng, píanóleik og hljómfræð-
igreinar við Tónlistarskóla Siglu-
fjarðar.
Pál B. Szabó er fæddur í Ung-
verjalandi og er bróðir Antoníu. Árið
1996 flutti hann til íslands og býr nú
á Sauðárkróki, þar sem hann starfar
sem blásara- og píanókennari og
píanóundirleikari.
Skammrif án bögguls
Pétur Pétursson þulur segir barnabarni sínu, Eyþóri Eyþórssyni, sögu.
Bernskuminningar
Péturs Péturssonar
TOIVLIST
IV o r r æ n a h ú s i ð
KAMMERTÓNLEIKAR
Forsamin og spunnin verk fyrir
pianó og slagverk, auk sjónrænna
gjörninga, eftir Tomlinson,
Griswold og Úlfar Inga Haraldsson.
Erik Griswold, píanó/slagverk;
Vanessa Tomlinson, slagverk/rödd.
Fimmtudaginn 11. maikl. 20:30.
ÁSTRALSK-bandarísku hjónin
Vanessa Tomlinson og Erik
Griswold komu fram í Norræna hús-
inu á fimmtudaginn var; að líkindum
í fyrsta skipti á Islandi. Árstímavalið
var ekki hið heppilegasta eftir við-
burðaríkan vetur og hrinu vortón-
leika undanfarið, en þó tókst að vekja
forvitni nærri þrjátíu hlustenda, sem
teljast verður gott fyrir framsækna
uppákomu enn lítt þekktra hljómlist-
armanna. Hjónin koma hér við á tón-
leikaferðalagi um Bandaríkin og
Evrópu fyrir milligöngu Úlfars I.
Haraldssonar, sem kynntist þeim á
námsdvöl í Kalífomíu, en þaðan
munu þau Tomlinson og Griswold
hafa lokið doktorsprófi í tónlist.
Samblöndun listgreina er ekki ný.
Nefna má rætur óperunnar á 16. öld
og nýþýzka skóla Liszts og Wagners
ásamt hugmyndum um „sam-lista-
verkið“ á þeirri 19. Á móti mætti
halda því fram, að samblöndun list-
greina lýsi ákveðnu vantrausti til
tjáningarmáttar hverrar um sig. Á
hinn bóginn verður maður æ varari
við auknar kröfur til sjónrænnar til-
höfðunar í tónlistarflutningi nú á „öld
augans", og hver veit nema sumt af
því sem gat að heyra - og sjá - á tón-
leikunum á fimmtudaginn sé það sem
koma skal, ef lifandi tónflutningur á
að lifa af niðursoðna fjöldaafþrey-
ingu nútímans.
Sjónræni þátturinn var einmitt í
brennidepli í fyrsta atriði, „Strings
Attached (prelude)" eftir Tomlinson/
Griswold, sem auk yfirfærðrar merk-
ingar (böggull skammrifi) má auðvit-
að líka skilja beint. Það gerðu flytj-
endur með því að sveifla milli sín
sippustreng sinni hvorri hönd sem
ljóskastara var beint að. Rið-
straumslýsingin sá um að gleikka
bylgjuhreyfingarnar, og á okkar
evrópsku 50 riðum hefur það sjálf-
sagt komið enn betur fram en á 60
vestan hafs. Strengjaatriðið var
hljóðalaus augnamúsík, e.k. lifandi
öldusjá (,,oscilloscope“), en þó mátti
greina formræna þróun úr risum og
stigum öldumynztranna, og jafnvel
antífoník/andsvör (nema ef frekar
skyldi kalla „antískópík“/andbendur
í „Flicker“ (E. Griswold) settist
höfundur við píanóið og hélt áfram
bylgjugangi við dumbrauða fram-
köllunarherbergisundirlýsingu í sí-
skarandi mínimalisma, með viðkomu
í djassmars-kenndum millikafla.
Næst var „Lanke Trr Gll“ úr „Frum-
sónötu“ dadaistans Kurt Schwitters
frá um 1922 í útsetningu Tomlinsons.
Sónatan er „hljóðaljóð“, samansett
úr ýmsum ósldljanlegum afurðum
mannsbarkans, en hér útvíkkuð með
slagverki. Að viðbættu söngli og
mjálmi hófst sá þáttur með því að
skafa guiro á ýmsa vegu í svipuðu
hrynmynztri og upphafsmótífinu al-
kunna í Rasumowsky-kvartett Beet-
hovens nr. 1, II. (3/4:|..—|...| - ),
áður en leikurinn færðist yfir á fleiri
slagfæri.
Sannkölluð vindhögg voru uppi-
staða „Hommage a Percy Grainger"
(T/G), þar sem flytjendur sameinuðu
hljóð og hreyfíngar með því að sneiða
niður loftið með löngum hvítum prik-
um kruss og þvers á ýmsa rytmíska
vegu svo undir þaut. Ekki er ég nógu
fróður um ástralska tónskáldið að
vita til hvers hvin-kviða þessi átti að
vísa, en hljóðin komust óneitanlega
ekki hjá því að minna á spanskreyr
og líkamshirtingar.
„Groupings", austurlenzkulegt
slagverkssoló eftir Úlfar Inga Har-
aldsson með tom-tom grúppu sem
meginhljóðfæri, var skipulega samið
og snöfurlega útfært aJf Tomlinson,
þótt manni fyndist teygja ögn lopann
í síðasta hluta. Fjölbreyttasta verkið
kom síðast fyrir hlé, „Every night
the same dream“; að virtist í rondóf-
ormi, þar sem skiptust á mínima-
lismi, djass-áhrif, akademísk framúr-
skólaspeki o.fl., en víða skemmtilegt
og jafnvel fyndið áheyrnar, og sumir
effektar anzi áhrifamiklir, eins og
bogastroldð vibra-slapp.
„Hypnotic Strains" (G) var eitt
bezt heppnaða verk kvöldsins,
atgangsmikið en litríkt og hnitmiðað.
Djass-samleikur Griswolds á píanó
og tilmöndlaðrar undirleiksupptöku
á tónbandi af lagi Screamin’ Jay
Hawkins, „I put a spell on you“, kitl-
aði brostaugarnar - sérstaklega und-
ir lokin, þegar vél og maður kölluðust
á í sígleikkandi úrgrisjun.
Frumsónata Schwitters kom aftur
til skjalanna með „Grimm Glimm“,
þar sem Vanessa Tomlinson fór á
kostum með krefjandi slagverks-
síætti og samtímis beitingu radd-
bandanna. Dadaískt ískur, söngl, ýlf-
ur og orðalaust hvítvoðungsmas
hennar gátu á köflum minnt á
raddsnillinginn Cathy Berberian í
fullu fjöri - nema hvað Cathy þurfti
ekki að hendast á milli slaghljóðfæra
á sama tíma! Fremur stutt „Improv-
isation“ hjónanna og Úlfars Inga á
kontrabassa þar á eftir var að sögn
gjörsamlega óundirbúin og komst
varla á skrið fyrr en rétt áður en
Griswold skildi á milli, enda „spont-
ann“ spuni af því tagi oftast happi
háð.
Sem síðasta atriði dagskrár fengu
tónleikagestir - loksins! - að heyra
„Strings Attached", því þá voru
slegnar bumbur um leið og kjuða-
festar línurnar flögruðu um loft; eitt
bassa-tom (trommusetts-páka) öðr-
um megin en smærri útgáfa hinum.
Hljóðlaus forkynningin í tónleika-
byrjun reyndist nú gera svipað gagn
og forkynning kontrapunkt-raddar í
Sláðu hjartans hörpustrengi á undan
hinu kunnara sálmalagi, nefnilega
með því að skapa þannig jafnvægi
milli beggja þátta. Átriðið kom skín-
andi vel út, eins og raunar flest und-
angengið á þessum óvænt skemmti-
legu tónleikum, enda samið og flutt
af lipurð og hugviti og hæfilega laust
við að taka sig allt of hátíðlega.
En það er kannski líka eins gott
fyrir framsækna tilraunamúsík á
þessum síðustu og verstu tímum, ef
hún vill á annað borð fá áheyrn - og
áhorf.
Ríkarður Ö. Pálsson
PÉTUR Pétursson þulur rifjar upp
bernsku- og æskuminningar sínar á
gamansaman hátt á morgun, sunnu-
dag, kl. 15. Minningamar eru frá 3.
og 4. áratug 20. aldar á sýningu
Borgarskjalasafns Reykjavíkur
„Mundu mig, ég man þig“ á 6. hæð
Grófarhússins, Tryggvagötu 15.
Fyrirlesturinn sinn nefnir Pétur Frá
HÖNNUNAR- og smíðaval Kenn-
araháskóla Islands stendur fyrir
sýningu á verkum nemenda í dag
laugardag og á morgun, sunnudag,
frá kl. 13-17 báða dagana. Sýningin
Ufsakletti í Amarhvol, með viðkomu
á Reykjavíkurrúntinum og mun
hann segja frá skólafélögum og öðr-
um samferðamönnum sínum og frá
fólki sem var áberandi í Reykjavík á
þessum árum.
Sýningin verður opin um helgina
kl. 13-17 og er aðgangur ókeypis
bæði að sýningunni og erindi Péturs.
er f Skipholti 37,2. og 3. hæð.
Um er að ræða hönnunarvið-
fangsefni er taka til trésmíði, silf-
ursmíði, leðursmíði; tækniverkefni,
horna- og beinavinna og fleira.
Morgunblaðið/Golli
Hildur Eggertsdóttir og Lilja Unnarsdóttir Ieggja lokahönd á verk sín.
Hönnunarviðfangsefni í Skipholti