Morgunblaðið - 13.05.2000, Side 60

Morgunblaðið - 13.05.2000, Side 60
>0 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ • LESIÐ f MÁLVERK FRÁ ÞINGVÖLLUM (SKJALDBREIÐUR) JOHANNES KJARVAL (1885-1972) VI ■ HLUTUR Jóhannesar Kjarvals í öllum þeim ótal Þingvallamynd- um sem málaðar hafa verið er stór, listamaðurinn leitaði þang- að sí og æ á löngu æviskeiði. Staðurinn er tengdur nafni hans frekar en nokkurs annars í ís- Ienzkri listasögu, um leið hluti af mótunarsögu hans sjálfs. Fara ýmsar sögur af málverkafjöldan- um sem hann á stundum sneri með til baka, svo og einstökum tilþrifamiklum dagsverkum. Sum málverkanna með þeim nafn- kenndustu sem yfirhöfuð voru máluð á tuttugustu öld á landi hér, og ber þar hæst olíumál- verkið, Fjallamjólk, frá 1941, sem núlistasafnið í New York, MoMA, vildi festa sér til stöðugr- ar viðurveru í sölum sínum, og er skipað til öndvegis í sal. Var mjög freistandi að taka það magnaða og margslungna verk fyrir hér, en bíður annars tæki- færis því fleiri vöktu óskipta at- hygli, einkum nokkur sem minna hafa verið / sviðsljósinu en eiga þó rétt á meiri eftirtekt. Líkt og myndin, Frá Þingvöllum, Skjald- breiður, sem Kjarval mun hafa málað 1930, en er ekki með árit- un Iistamannsins. Er likast til með fyrstu málverkum sem hann málaði á staðnum, en hann hóf að venja komur sinar þangað ár- ið áður. Það er eitthvað svo hreint, bjart og fínt í þessu mál- verki sem greip mig föstum tök- um á þessari sérsýningu Lista- safns íslands, í senn einn nátt- úruiegur kraftbirtingur sem eðlilegasta mál undir sólinni, og þó merkilega sértækur hlutur frá hendi listamannsins. En hann átti þetta. til, að fara ofur var- lega og fínt að dúkunum fyrir framan sig, líkt og hann væri í hátíðarskapi, lægi að auk aldeilis ekkert á, og þá spruttu fram ýmsar sérstæðar formanir sem við málarar kunnum einkum vel að meta, því þær bera í sér svo mikið af skynfærum gerandans. Myndsviðið er einhvern veginn svo rétt og slétt, tranar sér í engu fram, er barasta þarna eins og sjálfsagður hlutur, getur ekk- ert að því gert, frekar en manns- barn nýkomið úr móðurkviði og sem ekki réð foreldri sínu né bað sérstaklega um að fá að koma í heiminn. En við könn- umst svo sem öll við þetta undur, að þegar barn er nú einu sinni fætt, er líkt og það hafi alltaf verið til, þó ein sér og einstök birtingarmynd sem aldrei nokk- urn tíma hafði verið tii undir sól- inni áður. Var sem Kjarval hefði haft þau sígildu sannindi innbyggð í sér, að eilíf fegurð náttúruskapa gengi um veröld alla, fyndist jafnt í hinu smáa sem háa og að ást dagsins í dag væri önnur en ást morgundagsins, að sú ást sem maður gæfi hvorki né þægi í dag væri horfin og fyndist aldrei framar. Gerði málarann að alætu á hvers konar lifanir úti í náttúr- unni sem hann meðtók jafnharð- an með sínu lagi líkast óþreyju- fullum elskhuga. Mótaði fjöl- listamann, artista og óútreikn- anlegan trúbadúr jafnt á mynd- fleti sem í dagsins önn, fæddi af sér úrval listaverka hvar spilað var á fágæta og fjölþætta strengi litrófs og forma. Landið var ástkona Kjarvals, sá munúð- arfulli sefasjúki og dyntótti fyr- irburður sem honum hugnaðist helst að samasamast. Undur sem aldrei er alveg eins, ber alltaf eitthvað nýtt með sér í næsta sjónmáli svo fremi sem hlutað- eigandi á annað borð er gæddur þeirri innri ratsjá er lýkur upp huliðsheimum hvunndagsins. Þingvallamálverkið framber einn réttan og sléttan hvunndag á sögu og helgistað þjóðarinnar, slíkir hafa þeir verið í þúsund ár, oft lítið frábrugðnir hver öðrum og þó aldrei eins, því ekk- ert getur orðið alveg eins á morgun og það er í dag í þessu landi hverfullra brigða, frekar en ástin. Því skiptir öllu að höndla núið, kveikja h'f í núinu, rækta núið í öllum sínu marg- breytileika, láta það koma sér mikið við. Þetta er ekki ein af þessum glæsilega vel máluðu myndum Kjarvals, engu bætt inn í mynd- ina úr hugarheimi listamannsins, ófreskir hlutir langt fjarri á þessum degi, álfum og huldufólki gefið frí. Einungis nakin sviðs- myndin blasir við og þrengir sér fram á vit áhorfandans og þó af- hjúpar hún ekki svo lítið af reynsluheimi þjóðarinnar í þús- und ár jafnt í kaþólsku sem lúthersku. Litla látlausa kirkjan sem markast af frumformunum einum, eitthvað svo agnarlítil og umkomulaus í víðáttumiklu landslaginu og samt óbifanleg og sterk, tákn þess að hið smáa er jafn lít.ið smátt og hið stóra er stórt. Ekki gott að segja á hvaða tíma árs Kjarval hefur mundað pentskúfin á staðnum, en giska má að það hafi verið á út- mánuðum einkum snemma vors, en gæti allt eins verið á hausti eða í vetrarbyrjun, en af því ber ekki að hafa áhyggjur. Skjald- breiður er snævi þakin og afar fínt mótuð í myndheildinni, ber hana satt að segja uppi, gnæfir yfir þar sem málarinn skiptir myndfletinum í tvo jafna lárétta helminga, annars vegar sér í Mjóafell og tungu Ármannsfells en hins vegar Tindaskaga. Það er helst að sjónhimnan og tauga- kerfið skynji formanirnar í landslaginu, Oxará, hólmana, hraunið og gjárnar, en að þær séu skýrt markaðar, allt vinnur í einum samhljómi og dreifist við- kvæmnislega um myndflötinn. Þó er allt formað á þann veg á fletinum að það haldist í hendur við lögmál myndbyggingarinnar, hinn lárétta hrynjandi sem ber hana uppi, ein lína tekur við af annarri og bindur í samræmda heild. Og dragi maður tvo fall- bauga niður flötinn og lætur þá annars vegar skera tind Skjald- breiðar en hins vegar kirkju- "V ATVINNU- AUGLÝSINGAR „Au pair" óskast til Luxemborgar „Írsk/lúxemborgísk fjölskylda óskar eftir vina- 'legri og ábyrgöarfullri „au pair" til að gæta 2ja barna (6 og 2 ára). Sérherbergi með sjón- varpi og bíll fylgir. Hafið samband við: camilla.tsan@ltam.lu eða hringið í síma (+352) 57 29 93. Sölumaður fasteigna Fasteignasala óskar eftir dugmiklum sölu- manni/konu sem á auðvelt með að starfa sjálf- stætt og með öðrum. Þarf að hafa bifreið til umráða. Laun árangurstengd. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. ^/insamlegast skilið inn umsókn með uppl. um aldur, fyrri störf o.s.frv. til Mbl. merkt: Fasteign eða sendið á netfang fasteign@xnet.is. Tannlæknastofa Aðstoð óskast á tannlæknastofu í miðborginni frá 1. júní nk. Ekki sumarstarf. Æskilegur aldur eldri en 35 ára. Umsóknir með venjulegum upplýsingum sendist til auglýsingadeildar Mbl., merktar: „Aðstoð — 9634", fyrir 18. maí. FUIMOIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Félagsfræðingafélags íslands verður haldinn föstudaginn 19. maí kl. 18.00 'Jf Odda, stofu 202. KENNSLA Vatnsnotkun í fiskeldi Hólaskóli heldur námskeið um vatnsnotkun í fiskeldi 26.-27. maí nk. Á námskeiðinu verður fjallað um þætti, sem ráða vatnsþörf í fiskeldi, vatnsgæði, súrefnisbætingu aukáhrifa kolsýru og annarra efna, sem geta takmarkað vöxt fiska. Kynntar verða niðurstöður nýrra rann- sókna, sem tengjast notkun vatns í fiskeldi. Fyrirlesarar eru sérfræðingar á þessu sviði auk starfandi fiskeldismanna. Námskeiðið hefst föstudaginn 26. maí kl. 13:00 og lýkur laugar- daginn 27. maí kl. 17.00. Námskeiðsgjald er kr. 15.000, innifalið erfæði og gisting á Hólum. Athugið að Framleiðnisjóður landbúnaðarins styrkir sérstaklega þátttöku bænda á lögbýlum og starfsmanna í fiskeldisstöðvum. Skráning og frekari upplýsingar má fá í síma Hólaskóla 453 6300. TILBOÐ / UTBOÐ TIL S 0 L U «< Notuð skrifborð, stólar, skápar, hillur ásamt öðrum skrifstofubúnaði verðurtil sölu laugardaginn 13. maí nk. frá kl. 13.30 til 16.00 í húsnæði Ríkislögreglustjóra, Auðbrekku 6, Kópavogi. ® RÍKISKAUP Ú tb o ð skila á r a n g r t! Borgartúni 7 .105 Reykjavik • Sími: 530 1400 • Fax: 530 1414 Veffáng: www.rikiskaup.is • Netfang: rikiskaup@rikiskaup.is HÚSNÆÐI ÓSKAST Einbýlishús eða stór íbúð óskast. Þarf að hafa lágmarktvö stór svefnher- bergi og góða skrifstofuaðstöðu vegna rekst- urs. Öruggar greiðslur með tryggingu og fyrir- framgreiðslu ef óskað er. Leigutími lágmark 1 ár. Upplýsingar í síma 863 0016. NAUÐUNGARSALA Nauðungarsölur Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, fimmtudaginn 18. maí 2000 kl. 14.00 á eftir- töldum eignum: Borgarflöt 5,1/4 hl., Sauðárkróki, þingl. eign Kópra-röra hf. Gerðar- beiðandi er Byggðastofnun. Klausturbrekka, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Steins Leós Sigurðssonar. Gerðarbeiðandi er Ríkisútvarpið. Miðsitja, Akrahreppi, þingl. eign Jóhanns Þorsteinssonar og Sólveig- ar Stefánsdóttur. Gerðarbeiðandi er Lánasjóður landbúnaðarins. Skálá, 25% hl„ Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Árna Benedikts- sonar og Lilju Gissurardóttur. Gerðarbeiðandi er sýslumaðurinn á Sauðárkróki. Suðurgata 18, Sauðárkróki, þingl. eign Gunnars Þórs Árnasonar og Gunnlaugar Kristjánsdóttur. Gerðarbeiðendur eru fbúðalánasjóður og Búnaðarsamband Austurlands. Sævarstígur 2, kjallari, Sauðárkróki, þingl. eign Einars Stefánssonar. Gerðarbeiðandi er Landsbanki (slands hf. Víðigrund 6, Sauðárkróki, þingl. eign Valgerðar Sigtryggsdóttur. Gerðarbeiðandi er íbúðalánasjóður. Öldustígur 14, Sauðárkróki, þingl. eign Kristjáns Þ. Hansen. Gerðar- beiðendur eru Vátryggingafélag Islands hf„ íbúðalánasjóður og Byggðastofnun. Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, 11. mai 2000. ATVINWJ- QO RttÐflUOLÝSIWOAR upptýalngar er afi flnna i mbl.la/upplýalngar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.