Morgunblaðið - 13.05.2000, Qupperneq 66
66 LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Frumvarp til laga um
fæðingarorlof
RÉTTINDI til fæð-
ingarorlofs hljóta að
byggjast á þeirri
grundvallarstaðreynd
að nýr einstaklingur
er að koma í heiminn
og þarfnast umönnun-
ar og aðhlynningar,
þeirrar bestu sem völ
er á svo að hægt sé að
-figgja grunn að far-
sælli framtíð. Því brá
undirritaðri heldur í
brún þegar félags-
málaráðherra Páll
Pétursson lýsti því yf-
ir í morgunfréttum
ríkisútvarpsins að
fæðingarorlof væri
ekki réttindamál hins nýfædda
barns, heldur réttindi foreldra.
„Barnið nýtur góðs af,“ svaraði
ráðherrann þegar fréttamaðurinn
spurði „en hvað með réttindi
barnsins?“. Þetta var daginn eftir
að nýtt frumvarp til fæðingarorlofs
var tilkynnt með nokkrum tilþrif-
um, sem ein mesta réttarbót sem
#'-lfrgreidd yrði frá alþingi og tæki
Island þar öðrum löndum fram um
réttindi til fæðingarorlofs. Það þarf
ekki mikla útreikninga til að sjá að
þessi mesta réttarbót sögunnar
hefur einnig í för með sér eina
mestu réttarmismunun sögunnar.
Nægir þar að taka dæmi um fjöl-
skyldu þar sem hvort hjónanna um
sig hefur um 400.000 kr. í heildar-
laun að meðaltali á mánuði. Þessi
fjölskylda fær tæpar þrjár miijónir
í fæðingarorlofsgreiðslur á sama
tíma og fjölskylda einstæðrar móð-
'•ur með meðalheildartekjur upp á
120.000 fær innan við 600.000 kr. í
fæðingarorlofsgreiðslur, fimmfalt
lægri upphæð. Séu tekin dæmi af
námsfólki og heimavinnandi móður
verður þessi munur enn meiri.
Einnig hefur verið bent á þá stað-
reynd að lenging fæðingarorlofs í
níu mánuði (hjá sumum fjölskyld-
um, aðrar búa við óbreytt fæðing-
arorlof, þ.e. sex mánuði) er styttra
en gerist í nágrannalöndum okkar,
þar sem val er á fæðingarorlofi í
tíu til tólf mánuði. Hvemig geta
ráðherra félagsmála og alþingis-
menn, samþykki þeir frumvarpið
óbreytt, horft fram hjá þeirri stað-
reynd að í frumvarpinu er gert ráð
'afyrir því að sumum börnum, sem
fæðast hér á landi, frá og með
næstu áramótum, séu búnar þær
aðstæður að þau geti haft annað
foreldrið heima hjá
sér í níu mánuði en
önnur böm ekki? Eða
þeirri staðreynd að
þær fjölskyldur sem
hafa einungis rétt til
sex mánaða fæðingar-
orlofs eru í mörgum
tilfellum fjölskyldur
sem hafa minni fjár-
ráð, líkt og margar
einstæðar mæður búa
við, enda em þær einu
fyrirvinnur heimilis-
ins.
Og hver era rökin?
Jú, félagsmálaráð-
herra lýsti því yfir í
ofangreindu viðtali, að
rökin fyrir sex mánaða fæðingar-
orlofi einstæðra foreldra væru þau
að til væri fólk sem gæti misnotað
aðstöðu sína ef fæðingarorlof ein-
stæðra foreldra væri níu mánuðir
með því að rjúfa sambúð sína um
tíma og þannig fengi móðirin níu
mánaða orlof. Dæmi nú hver fyrir
sig réttmæti slíkrar röksemda-
færslu, að heiðarlegt fólk skuli
Fædingarorlof
✓
I frumvarpinu, segir
Eldey Huld Jónsdóttir,
er stórlega vegið að
rétti einstæðra mæðra.
þurfa að líða fyrir að hugsanlega sé
til óheiðarlegt fólk sem misnoti að-
stöðu sína. Fæstar einstæðar mæð-
ur hafa nokkurt val þegar fram-
færsla heimilisins er annars vegar.
Þær geta ekki valið að vera lengur
heima hjá bami sínu þegar fæðing-
arorlofsgreiðslum lýkur og barnið
einungis á sjötta mánuði. Það er þó
í flestum tilfellum valkostur þegar
beggja foreldra nýtur við og geta
því þeir foreldrar hæglega lengt
sitt níu mánaða orlof enn meira ef
svo ber undir. Þannig gefst þeirri
móður og barni hennar margfalt
meira svigrúm og tækifæri t.d. til
að sinna brjóstagjöf lengur en níu
mánaða fæðingarorlof þeirra segir
til um. Að ekki sé minnst á þá rétt-
arbót sem framvarpið svo sannar-
lega inniheldur,að gefa feðram færi
á þriggja mánaða fæðingarorlofi.
En svo ég snúi mér aftur að ein-
stæðu móðurinni, því í framvarpinu
er stórlega vegið að rétti þeirra, þá
þarf hún ekki síst á því að halda,
og barn hennar, að vera níu mán-
uði hið minnsta heima hjá nýfæddu
barni sínu. Áiagið við að fara út á
vinnumarkaðinn aftur og afla tekna
sem eina fyrirvinnan er nóg og
ætti því að vera nægileg rök fyrir
lengingu fæðingarorlofs í níu mán-
uði fyrir allar fjölskyldur. Það þarf
ekki mikið hugmyndaflug til að
setja sig í spor einstæðu móðurinn-
ar sem stendur frammi fyrir þeirri
erfiðu ákvörðun að setja barnið sitt
í gæslu daglangt sex mánaða gam-
alt og þarf þar með að ljúka bjósta-
gjöf fyrr en efni standa til. Þar er
hvorki svigrúm eða val, því ekki
dugir að vinna minna en 100%
vinnu þegar fyrirvinnan er ein.
Ekki era forvamirnar og mikilvægi
brjóstagjafarinnar varðandi heil-
brigði barnsins hafðar í huga hér.
Að mismuna börnum og fjöl-
skyldum einstæðra foreldra er
skömm á nýju frumvarpi til fæð-
ingarorlofs, nái það óbreytt fram
að ganga, og gefur ekki tilefni til
að félagsmála- og fjármálaráð-
herra, sem og alþingismenn, slái
sig til riddara líkt og ráðherrar fé-
lags- og fjármála hafa gefið í skyn
að þeir geri með þessu framvarpi.
Það er alþekkt staðreynd að alltof
margar einstæðar mæður verða
stöðugt að treysta á aðstoð stór-
fjölskyldunnar, vina og annarra
vandamanna vegna þess að hið op-
inbera sinnir ekki þeirri fram-
skyldu að tryggja baraafjölskyld-
um sómasamleg lífsskilyrði. Alltof
margar einstæðar mæður búa við
erfið kjör, ekki síst ungu mæðurn-
ar sem hafa lítil sem engin réttindi
áunnið sér til fæðingarorlofs á
vinnumarkaðnum. Það sést m.a. á
aukningu umsókna einstæðra
mæðra hjá Ráðgjafastofu um fjár-
mál heimilanna, en þær vora 38%
þeirra sem leituðu aðstoðar á árinu
1999 og bar þar hæst hlutur ungra
mæðra á aldrinum 20 til 30 ára.
Niðurstöður kannana, þar á meðal
Rauða krossins, sýna að þar era
ungar einstæðar mæður sá hópur
sem einna verst er staddur fjár-
hagslega og félagslega. Hvaða rétt-
læti er í því að skammta einstæð-
um foreldram og böraum þeirra
sex mánuði í fæðingarorlof en öðr-
um níu?
Höfundur er félagsráðgjafi, kennari
og einhleyp móðir með tvö börn.
EldeyHuld
Jónsdóttir
Bandarískir bílar
Eigum ýmsar gerðir Chrysler, Dodge og Jeep bifreiða,
nýjar og notaðar.
Chrysler CIRRUS 2,4L LX árg. 2000 kr. 1.890.000,
^Netsalan ehf
Garðatorgi 3, 210 Garðabæ.
Sími: 565-6241, 863 0820, 893 7333 (Lúðvik).
Fax: 588-2670 • Netfang: netsalan@itn.is
Sýningarbíll á Staðnum. Opið: Mánudaga - Föstudaga 10-18 • Laugardaga 10-16
Skapofsi
Kolbrúnar
til skammar
SUNNUDAGINN
30. april sl. átti sér
stað umræða um ætt-
leiðingar samkyn-
hneigðra í þættinum
„Silfur Egils“ á Skjá
Einum. Þar áttust við
Arni Johnsen þing-
maður Sjálfstæðis-
flokksins og Kolbrún
Halldórsdóttir þing-
maður vinstri grænna
og upp hófst opinská
umræða um þetta
framvarp sem hggur
fyrir Alþingi. Kolbrún
Halldórsdóttir var með
en Arni Johnsen á
móti og svo sem hef ég ekkert útá
það að setja en reiði og skapofsi
Kolbrúnar Halldórsdóttur var til
Umræðuþáttur
Reiði og skapofsi
Kolbrúnar Halldórs-
dóttur var til hábor-
innar skammar, segir
Ragnar Sigurðsson,
og ekki þingmanni
sæmandi.
háborinnar skammar og ekki þing-
manni sæmandi.
I þessum umrædda þætti sakaði
Kolbrún menn eins og Áma John-
sen um að bera ábyrgð á sjálfs-
morðum samkynhneigðra með því
að viðhalda fordómum, og persónu-
lega finnast mér þetta vera van-
hugsuð orð og ósann-
gjöm í garð Árna
Johnsen. En í mánu-
dagsblaði Dagblaðsins
reynir hún að bjarga
andliti sínu, með því að
segjast hafa sagt að
þau bæru ábyrgð á
umræðunni sem slíkri,
en ef ég man rétt
spurði Ámi Kolbrúnu
hvort hún hefði ekki
gengið of langt með því
að ráðast svona á sig
og hún sagði hreint út
„nei“, þannig að Kol-
brún fer hreinlega með
ósannindi í blaðinu.
Mér finnst þessi orð sem Kolbrún
fleytti af sér um Araa vera ósæm-
andi og ættu ekki að heyrast á með-
al alþingismanna.
Ég verð að benda á það, að í þess-
ari mikilvægu umræðu finnst mér
fólk vera hrætt við að segja skoðun
sína og tel ég það vera út af því
hversu orðið „fordómar" er orðið al-
gengt í íslenskri tungu, og finnst
mér fólk oft hlaupa of geyst í að
segja að menn séu fordómafullir,
bara þegar þeir tala um skoðun sína
á málinu, og var umræðan á sunnu-
daginn hjá Skjá Einum gott dæmi
um það.
Með fullri virðingu fyrir Kol-
brúnu, sem er hinn ágætasti alþing-
ismaður, finnst mér hún hafa misst
sig og ætti hún að virða skoðun
Áma með því að biðja hann og aðra
kjósendur sem horfðu upp á þetta
reiðikast háttsettrar þingkonu fyrir-
gefningar á orðum sínum.
Höfundur er í stjóm Stefnis,
félngs ungra sjálfstæðismanna (
Hafnarfirði.
Ragnar Sigurðsson
Vínlandsvilla
UNDIR fyrirsögn-
inni Villa í Vínlands-
gátu skrifar Guð-
brandur Jónsson
grein í Morgunblaðið
þ. 11. maí 2000. Þar er
hann að gagnrýna út-
reikninga mína á
vegalengdum í sigl-
ingum milli Noregs,
íslands, Grænlands og
Vínlands. Gagnrýnin
er byggð á svo mikl-
um misskilningi að
rökræður um hana
era mjög erfiðar. Sem
dæmi má þó nefna að
hann telur vera 1150
Siglingar
Gagnrýnin er
byggð
á svo miklum
misskilningi,
segir Páll
Páll Bergþórsson
sjómflur milli Islands og Noregs,
en stysta leiðin er að réttu lagi ná-
lægt 550 sjómílum. Annað er eftir
þessu. Það getur hver sannfært sig
Aðsendar greinar á Netinu
Bergþórsson,
að rökræður
um hana eru
mjög erfíðar.
\LLTAt= £ITTH\SA0 rJYTT~
um sem hefur hugleitt þessi mál.
Ég verð að benda lesendum Morg-
unblaðsins á þetta, þó að mér þyki
leitt að þurfa þess, en ósk mín og
von er sú að greinarhöfundur bíði
með að svara þessari athugasemd
minni þar til hann hefur kannað
betur bók mína og Vínlandssögur,
og í samráði við fróða menn, til
dæmis kennara í siglingafræði.
Höfundur er fyrrverandi veður-
stofusijóri.
Fréttagetraun á Netinu
^mbl.is
i'JrjvX ,f- j
L
ryðfrí rör-Fittings-lokar
> SINDRI
r
Borgartúni 31 • s. 575 0000 • www.sindri.is