Morgunblaðið - 13.05.2000, Qupperneq 75
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 75
FRETTIR
Athugasemd frá Austurbæjarskóla
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Guð-
mundi Sighvatssyni, skólastjóra
Austurbæjarskóla:
„Vegna fréttar í Morgunblaðinu
föstudaginn 12. maí um aldur Aust-
urbæjarskóla sem stofnaður var
1930 og Klébergsskóla sem stofnað-
ur var 1929, er rétt að hafa eftir-
farandi í huga.
Vilborg Dagbjartsdóttir kennari
fæddist á því herrans ári 1930. Hún
mun láta af störfum á þessu ári þar
sem hún verður sjötug.
Hallgrímskirkjusókn ætlar að
halda upp á 60 ára afmæli safnaðar-
ins á þessu ári vegna þess að hann
var stofnaður 1940.
Kristnitökuhátíð verður haldin á
Þingvöllum nú í sumar vegna ...
Alþingishátíð var haldin á Þing-
völlum 1930 vegna...
0+70=70 og 2000-1930=70.
Opið hús og
afmæli í
Tjarnarskóla
TJARNARSKÓLI verður opinn
sunnudaginn 14. maí kl. 14-17 fyrir
áhugasama gesti, fyrrverandi og nú-
verandi nemendur, foreldra, velunn-
ara og alla þá sem vilja kynna sér
skólastarfið.
Tjarnarskóli er einkaskóli á
grunnskólastigi, stofnaður árið 1985.
Nú sem fyrr eru þrjár bekkjardeild-
ir í skólanum, ein í áttunda, níunda
og tíunda bekk. Fimmtánda starfsári
skólans fer brátt að ljúka og af því
tilefni verður heitt á könnunni,
drykkir og kökur fyrir þá sem líta
inn.
Rannsóknarverkefni vetrarins,
sem nemendur hafa unnið af mikilli
sköpunargleði og þekkingu, koma til
með að gleðja augu og vekja áhuga
enda nemendum til sóma.
Nýjasta tölublað Tjamarskóla-
blaðsins (fréttablaðs skólans) er
komið út og verður dreift á staðnum.
Tekið er á móti umsóknum um
skólavist í 8. bekk, næsta skólaár, til
9. júní n.k.
Tjarnarskóli er í gamla Búnaðar-
félagshúsinu við Tjarnarbakkann,
við hliðina á Iðnó.
Kaffísala Skóg-
armanna KFUM
ÁRLEG kaffisala Skógarmanna
KFUM verður haldin á morgun,
sunnudaginn 14. maí, kl. 14 til 18 í að-
alstöðvum KFUM og K við Holtaveg.
Venjan hefur verið sú að fagna
sumarkomu'með kaffisölu á sumar-
daginn fyrsta en þar sem sumardag-
inn fyrsta bar í ár upp á sama tíma og
skírdag var ákveðið að fresta kaffi-
sölunni til 14. maí.
Um kvöldið kl. 20 verður síðan al-
menn samkoma í aðalstöðvum
KFUM og K við Holtaveg með skóg-
armannaívafi. Sýndai- verða myndir
úr starfinu í Vatnaskógi. Ólafur
Sverrisson, formaður Skógarmanna
KFUM, flytur ávarp og bæn, Salvar
Geir Guðgeirsson, guðfræðinemi og
foringi í Vatnaskógi, rifjar upp atvik
úr skóginum og sr. Sigurður Grétar
Sigurðsson, sóknarprestur á
Hvammstanga og forstöðumaður í
Vatnaskógi, flytur hugvekju kvölds-
ins. Stjórnandi verður Sigurbjöm
Þorkelsson, framkvæmdastjóri
KFUM ogKFUK.
Fyrirlestur um
sköpun og vel-
gengni
FYRIRLESTUR um sköpun og
velgengni verður haldinn í Gerðu-
bergi mánudaginn 15. maí kl. 20.
Aðgangseyrir er 1000 kr.
Fyrirlesari verður Jóhann Breið-
fjörð en hann hefur starfað sem
hönnuður og tæknilegur ráðgjafi
hjá LEGO í fimm ár. Hann vann á
síðasta ári til verðlauna í hug-
myndasamkeppninni Snjallræði
sem haldin var af Iðntæknistofnun.
Til frekari skýringa fyrir þá sem
ekki skilja það sem að framan er
greint skal bent á eftirfarandi:
1930-1931 Austurbæjarskóli hefur
starfað í eitt ár, 1931-1932 Austur-
bæjarskóli hefur starfað í tvö ár,
1932-1933 Austurbæjarskóli hefur
starfað í þrjú ár, 1933-1934 Austur-
bæjarskóli hefur starfað í fjögur ár,
1934-1935 Austurbæjarskóli hefur
starfað í fimm ár, 1935-1936 Austur-
bæjarskóli hefur starfað í sex ár,
1936-1937 Austurbæjarskóli hefur
starfað í sjö ár, 1937-1938 Austur-
bæjarskóli hefur starfað í átta ár,
1938-1939 Austurbæjarskóli hefur
starfað í níu ár, 1939-1940 Austur-
bæjarskóli hefur starfað í tíu ár.
Nú ætti öllum að vera ljós að
Austurbæjarskóli er að halda upp á
70 ára afmæli skólans í lok 70. starfs-
árs skólans en ekki í lok 69. starfsárs
eins og fram kemur í téðri grein
Morgunblaðsins. Starfsfólk Austur-
bæjarskóla óskai- Klébergsskóla til
hamingju með afmæli skólans.“
-hannaður utan um þig
mí0
DOEWOO
Daewoo Matíz S
Máttu sjá af 450 kr.* á dag?
ef svo er, þá getur þú eignast nýjan Matiz S!
Oryggisbúnaður
Búnaður
Loftpúði fyrir farþega og ökumann
Bílbelti sem strekkjast við högg
Styrktarbitar í hurðum
Bremsuljós í afturglugga
Barnalæsingar á hurðum
Útsláttarkerfi fyrir rafmagn
Margspegluð Ijós
Hæðarstilling fyrir ökuljós
Hreyfitengd þjófavörn
íslensk ryðvörn
Hallanleg framsæti
Glasahaldari
Farangurshlíf
Mottur
Aurhlífar að framan og aftan
Hljómkerfi
Útvarp og segulband 120W
Þakloftnet
* Verð bifreiðar
Útborgun við afhendingu
Eftirstöðvar til 72 mánaða
Miðað er við útreikning fjármögnunarfyrirtækja
á bflasamning og verðbólguspá
kr. 829.000,-
kr. 165.800,-
kr. 663.200,-
www.benni.is
Vagnhöfða 23 • 112 Reykjavík • Simi 587-0-587 • Opið laugardaga 10-16
Kringlunni • 0p.ið laugardaga 10-18
Akureyri: Bilasalan Ós • Hjalteyrargötu 10 • sími 462 1430