Morgunblaðið - 19.05.2000, Síða 10

Morgunblaðið - 19.05.2000, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Skoðanakönnun meðal grunnskólakennara Telja að meðalgrunnlaun þurfí að hækka um 80% Morgunblaðið/Ásdís Ása Ragnarsdóttir, formaður kynningamefndar Félags grunnskóla- kennara, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, formaður félagsins, Helgi E. Helga- son, forstöðumaður uppiýsingasviðs Kennarasambands íslands og Finn- bogi Sigurðsson, varaformaður Félags grunnskólakennara. Lokað á Hótel Búð- um í sumar ENGINN hótelrekstur verður á Hótel Búðum í sumar vegna fram- kvæmda við endurbyggingu hótels- ins. Reiknað er með að þær standi yf- ir í um eitt ár og að Hótel Búðir verði aftur opnað vorið 2001. Á Búðum á Snæfellsnesi hefur verið starfrækt hótel í meira en 50 ár. Að sögn Viktors Sveinssonar, hótelstjóra á Búðum, er verið að ráð- ast í skemmtilega hluti, en varðist að öðru leyti frétta af breytingunum, sem hann segir að verði kynntar nán- ar innan skamms. í sumar verður því hvorki boðið upp á matar- né gisti- þjónustu á Búðum, en Viktor sagði að hægt væri að leita til annarra ferðaþjónustaaðila í nágrenni Búða. Setja saman niður kartöflur Fa^radal. NU er sá tími sem menn eru að setja niður kartöflur vfða um land. Katrín Brynjólfsdóttir og Guðgeir Guðmundsson voru að setja niður kartöflur í kartöflugörðum Víkur- búa austan við Vík, þegar frétta- ritari Morgunblaðsins átti leið hjá. Katrín segir að þau setji niður í þetta sinn 25 kg af kartöfluútsæði, og að þetta sé nokkurs konar tómstundagaman hjáþeim hjónum og fara þau reglulega allt sumarið til að fylgjast með vexti kartafln- anna. GRUNNSKÓLAKENNARAR telja að byrjendalaun kennara þurfí að hækka úr 107 í 181 þúsund krónur á mánuði og að meðalgrunnlaun þurfi að hækka í um 235 þúsund krónur, úr um 130 þúsundum. Kemur þetta fram í niðurstöðum skoðanakönnunar sem Félag grunnskólakennara hefur látið gera. Félag grunnskólakennara er fjöl- mennasta félagið í nýju Kennara- sambandi Islands, með tæplega fjög- ur þúsund félagsmenn. Á stofnfundi félagsins í haust var samþykkt að efna til víðtækrar skoðanakönnunar meðal félagsmanna um afstöðu þeirra til ýmissa mála sem tengjast Íauna- og starfskjörum og ímynd þeirra í samfélaginu. Þátttaka var góð því svör bárust frá 74% félagsmanna. Konur gera meiri kröfur en karlar í könnuninni kom fram að grunn- skólakennarar telja að semja þurfi um verulega hækkun launa í næstu kjarasamningum. Að meðaltali telja þátttakendur að byrjunarlaun þurfi að hækka í 181 þúsund á mánuði en þau eru 107 þúsund nú. Samsvarar það tæplega 70% hækkun. Ef tekið er meðaltal af óskum þátttakenda kem- ur í ljós að kennarar telja að meðal- grunnlaun þurfi að hækka í 235 þús- und krónur á mánuði en meðaltalið er nú um 130 þúsund, samkvæmt upp- lýsingum Félags grunnskólakennara. I þessu felst ósk um liðlega 80% hækkun meðalgrunnlauna. Þá kemur fram að stór hópur grunnskólakenn- ara telur að launin þurfi að hækka enn meira, þannig nefna rösklega 4% þátttakenda að meðalgrunnlaun þurfi að vera 350 tO 500 þúsund kr. á mán- uði. Athygli vekur þegar niðurstöðum- ar eru skoðaðar að konur nefna held- ur hærri tölur um laun en karlar. Munar 5 þúsund krónum að meðaltali á milli kynjanna þegar spurt er um hve há byrjunarlaun ættu að vera og 10 þúsund krónum á grunnlaununum. Fram kom á blaðamannafundi í gær, þar sem könnunin var kynnt, að hún hefði meðal annars verið gerð til undirbúnings kröfugerð kennara vegna komandi kjarasamninga. Nú- verandi samningur rennur út um næstu áramót. Guðrún Ebba Ólafs- dóttir, formaður Félags grunnskóla- kennara, segir að niðurstöðui' könn- unarinnar sýni hvað félagsmennimir telji að launin þurfi að vera há og þær hljóti því að gefa sterkar vísbending- ar um kröfugerð félagsins í komandi samningum. Hún tekur fram að vinna við kröfugerð standi yfir og niður- staða hennar sé ekki ljós. Leggjast ekki gegn lengingu skólaársins Grannskólakennarar leggjast ekki gegn því að skólaárið verði lengt og hugsanlegum breytingum á skóla- starfi. Þannig er liðlega 61% þátttak- enda samþykkt þvi að árlegur starfs- tími skóla verði lengdur en til komi vetrarfrí á móti en tæplega 39% and- víg. Mikill meirihluti kennara, 82,5%, telur að yrði skóladögum fækkað ættu grannlaun að hækka á móti. Hinir telja æskilegra að dregið yrði úr kennsluskyldu við fjölgun nem- endadaga. í skoðanakönnuninni kom fram eindreginn stuðningur við þá stefnu Félags grannskólakennara að við næstu kjarasamningagerð verði lögð áhersla á að skilgreina sérstaklega starfssvið umsjónarkennara og að þeir fái laun í samræmi við umfang og ábyrgð starfsins. Fram kom á blaða- mannafundinum að skyldui' umsjón- ai'kennara hefðu aukist mikið á und- anförnum áram. Þá telja yfir 93% þátttakenda að í næstu kjarasamningum eigi að semja um hámarksfjölda nemenda í beklg- ardeildum. I könnuninni var spurt um afstöðu félagsmanna til þess að settar verði sérstakar siðareglur fyrir kennara. Var það gert í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa á kennarastarfinu á undanfömum áram. Það kom for- ráðamönnum Félags grunnskóla- kennara á óvart hvað mikill meirihluti kennara, eða 86% svarenda, lýsti sig mjög eða frekar hlynntan því að kennarar settu sér slíkar reglur. Fram kom hjá Guðrúnu Ebbu að inn- an Kennarasambandsins hefði í nokk- ur ár verið unnið að undirbúningi siðareglna. Slík vinna færi nú einnig fram á hinum Norðurlöndunum. Islandsbanki-FBA og Landsbankinn hætta viðskiptavakt með rfkisbréf eftir mánuð Óviðunandi ástand á skulda- bréfamarkaði ÍSLANDSBANKI-FBA hf. og Landsbanki ís- lands hf. munu hætta viðskiptavakt með ríkis- skuldabréf frá og með 19. júní 2000. Yfirlýsing- ar þess efnis bárast frá bönkunum í gær og ná til viðskiptavaktar með húsbréf, húsnæðisbréf, spariskírteini og ríkisbréf. Samkvæmt fyrri yf- irlýsingum sínum vora bankamir skuldbundnir til að segja viðskiptavaktinni upp með mánaðar íyrirvara. í yfirlýsingu Íslandsbanka-FBA segir að bankinn telji að grandvöllur fyrir gagnsærri og tryggri verðmyndun skuldabréfa sé ekki til staðar. í yfirlýsingu Landsbankans kemur fram að þessi möguleiki hafi verið íhugaður um skeið og ákvörðunin tekin með hliðsjón af ákvörðun Íslandsbanka-FBA. Eftirspurn beinist fremur að hlutabréfum Tómas Ottó Hansson, forstöðumaður rann- sókna hjá Íslandsbanka-FBA, segir í samtali við Morgunblaðið að uppsögnin sé í samræmi við undangengið ferli á skuldabréfamarkaði þar sem seljanleiki ríkisskuldabréfa sé óviðunandi. Að sögn Tómasar er það þó þverstæða þar sem skuldabréf með ríkisábyrgð era yfirieitt mjög seljanleg. Eftirspum fjárfesta sé hins vegar ekki mikil, og beinist fremur að hlutabréfum. Lykilatriði á skuldabréfamarkaði era að sögn Tómasar, skýrar reglur, mjög mikið gegnsæi og virkir þátttakendur á márkaði. Þetta sé ekki fyrir hendi nú og ástandið því óviðunandi. „íslandsbanki og FBA lýstu yfir einhliða við- skiptavakt með þessi bréf á sínum tíma. Það þýðfr að bankamir hafa alltaf verið tilbúnir að gera kaup- eða sölutilboð í bréfin. Þetta var ekki samningur, heldur einhliða yfirlýsing. Nú vilj- um við fá að stýra því frá degi til dags hvort við kaupum eða seljum skuldabréf af þessu tagi. Við treystum okkur ekki til að standa við þetta loforð miðað við óbreytt ástand,“ segir Tómas. í yfirlýsingu Íslandsbanka-FBA hf. segir: „Margir samverkandi þættir skýra þessa þróun og markaðsaðilar hafa um nokkurt skeið bent á nokkur atriði sem bætt gætu markað fyrir skuldabréf. Þar má t.d. nefna bætta upplýsinga- gjöf stærstu útgefenda og upptöku viðskipta- vakakerfis eins og tíðkast annars staðar. ís- landsbanki-FBA hefur ákveðið að hætta viðskiptavakt með ríkistryggð verðbréf þar til traustari grannur hefur verið lagður fyrir skuldabréfamarkaði.“ Allir sammála um að grípa verði til aðgerða Tómas segir að í slandsbanki hafi m.a. átt í við- ræðum við Lánasýslu ríkisins og Seðlabankann. Allir séu sammála um að grípa verði til aðgerða. „Þetta er langvarandi ferli, ástandið hefur versn- að dag frá degi og er orðið óviðunandi.“ Tómas segir mikilvægt að allir aðilai' fjármálamarkað- arins taki höndum saman um að bæta ástandið. Þar vísar hann til bankanna, verðbréfafyrirtækj- anna og Seðlabankans. Einnig útgefenda sem era stærstir ríkið og íbúðalánasjóður. Hinum megin standa fjárfestar þar sem lífeyrissjóðirnir leika stærsta hlutverkið, að sögn Tómasar. „Eg tel þetta tímabundið ástand og hef trú á því að aðilar fjármálamarkaðarins reyni að fram- kvæma breytingar á markaðnum til að tryggja viðgang hans.Til lengri tíma litið era þessfr pappírar sem um ræðir mjög áhugaverðir." í yfirlýsingunni kemur fram að bankinn telur að bæta verði upplýsingagjöf til markaðarins. Nauðsynlegt sé að áætlanir um útgáfu og upp- kaup ríkistryggðra skuldabréfa séu birtar. Þá telur bankinn að koma þurfi á aðalmiðlarakerfi (e.primary dealer system) eða öðra sambæri- legu hvatakerfi til viðskiptavaktar. „Þá era valdir nokkrir aðilar til að vera aðal- miðlarar með ákveðna tegund verðbréfa. Þeir geta fengið einhvers konar aðgang að t.d. út- boðum eða lánsfé sem veitir þeim hvatningu til að stunda þessa viðskiptavakt, eða jafnvel þóknun. Þetta teljum við nauðsynlegt." í öðru lagi þui-fi útgefendur að koma til móts við markaðinn og tryggja það að verðbréf sem þeir setja út á markaðinn séu seljanleg, sérstak- lega með bættri upplýsingagjöf, t.d. með því að gefa út upplýsingar á ensku. „Það gerir mark- aðinn viðkvæmari en ella að engir erlendir íjár- festar era inni á þessum markaði. Við viljum einnig fá betri upplýsingar um hvað stjórnvöld hugsa sér með lánsfjárafganginn, það teljum við að geti bætt markaðinn. Markaðurinn er veikur fyrir af ýmsum ástæðum, eftirspurnin hefur dottið niður þar sem stærstu aðilarnir era fyrst og fremst að kaupa hlutabréf á kostnað skuldabréfamarkaðarins." í yfirlýsingu Íslandsbanka-FBA kemur einn- ig fram að bankinn telur að virkur skuldabréfa- markaðui- sé forsenda virks fjármálamarkaðar. ,Almennt er talið að trygg verðmyndun á ríkis- skuldabréfum sé grannurinn að virkni annarra markaða eins og fasteignamarkaða, hlutabréfa- markaða og afleiðumarkaða. Þá má einnig færa rök fyrir því að virkur skuldabréfamarkaður sé ein af grannforsendum fyrir eigin gjaldmiðli. Tómas segir að forsenda fyrir virkum fjár- magnsmarkaði í íslenskum krónum sé brostin þegar innlendir fjárfestar leita út en erlendir fjárfestar ekki tilbúnir til að koma inn á íslenska markaðinn. „Útlánaaukning banka og sparisjóða að und- anförnu á m.a. rætur að rekja til þess að virkur skuldabréfamarkaður er ekki til staðar, en fyr- irtæki og sveitarfélög sem ekki geta leitað á skuldabréfamarkað með fjármögnun leita óhjá- kvæmilega til fjámiálastofnana eftir lánum,“ segir einnig í yfirlýsingunni. Islandsbanki-FBA mun halda áfram samn- ingsbundinni viðskiptavakt með húsbréf og húsnæðisbréf samkvæmt gildandi samningi við íbúðalánasjóð. Virkur og gegnsær skuldabréfamarkaður mikilvægur I tilkynningu, sem Landsbankinn hefur sent frá sér, segir: „Landsbankinn hefur um langt skeið íhugaðþennan möguleika og með hliðsjón af ákvörðun Islandsbanka-FBA sama efnis hef- ur Landsbankinn ákveðið að láta af þessu verða. Landsbankinn tekur undir þau atriði sem fram koma í yfirlýsingu íslandsbanka- FBA Verðmyndun á skuldabréfamarkaði hefur lengi verið mjög óvirk og hefur Landsbankinn, sem og aðrir markaðsaðilar, ítrekað bent á mik- ilvægi þess að hér á landi sé virkur og gagnsær skuldabréfamarkaður og talið það eina af mikil- vægari undirstöðum fjármálamarkaðarins í heild. Að mati Landsbankans getur það haft al- varlegar afleiðingar ef það ástand sem nú ríkir á skuldabréfamarkaði verður viðvarandi."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.