Morgunblaðið - 19.05.2000, Page 18

Morgunblaðið - 19.05.2000, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI LANDIÐ Börnin í Glerárkirkju þar til nýtt hús rís HAFIST verður handa við að rífa gamla leikskólann Iðavöll á Oddeyri innan skamms en á svæðinu verður byggður nýr og stærri leikskóli. Börnin, sem verið hafa á Iðavelli hafa fengið.húsnæði til bráðabirgða í kjallara Glerárkirkju en þar er fyrir leikskólinn Krógaból. Félag- amir Jens Sigmundur, Hákon Freyr og Hrólfur létu sér fátt um flutningana fínnast, léku sér bara í sandkassanum rétt eins og vana- lega, en að baki þeim má sjá Iðavöll sem brátt heyrir sögunni til. Bókaútsala í Laugalandsskola A FYRRI árum voru rekin fjöl- mörg lestrarfélög í sveitum lands- ins. Með bættum samgöngum hef- ur lestrarfélögunum fækkað til muna með því að þau hafa verið sameinuð í almenningsbókasöfn fyrir stærri svæði. í Eyjafjarðar- sveit voru áður þrjú sveitarfélög og í hverju þeirra var starfandi lestrarfélag og fleira en eitt sums staðar. Þegar sveitarfélögin voru sameinuð höfðu lestrarfélögin eða bókasöfnin um alllangt skeið verið þijú eða eitt í hverjum hreppi. Nú er í Eyjafjarðarsveit rekið eitt al- menningsbókasafn sem jafnframt er skólabókasafn fyrir Hrafnagils- skóla. Eins og gefur að skilja voru þessi gömlu bókasöfn að stórum hluta samstæð og þess vegna hef- ur safnast upp verulegt magn af bókum sem ekki er lengur þörf fyrir í sameinuðu safni. Því hefur verið ákveðið að efna til útsölu á bókum, sem áður voru til útlána hjá gömlu lestrarfélögunum og bókasöfnunum í Eyjafjarðarsveit. Útsalan fer fram í Laugalands- skóla (fyrram húsmæðraskólanum) kl. 14.00-16.00 dagana 20., 21. og 28. maí nk. Fyrirferðarmestar eru skáldsögur, bæði íslenskar og þýddar, en einnig má fínna ýmsa bókaflokka aðra, s.s. ritsöfn, ferða- bækur, ljóðabækur, ævisögur, þjóðsögur og þjóðlegan fróðleik af ýmsum toga og tímarit. Eitthvað er um bækur útgefnar í lok 19. aldar og á fyrstu árum þeirrar tut- tugustu. Flestar bækurnar verða seldar á 100 kr. stk. Tvisvar sinnu Bókaðu ísíma 570 3030 og 4701250 Morgunblaðið/Kristj án Vöru- og þjónustusýningin Daglegt líf Um 7.000 gestir UM 7000 gestir sóttu sýninguna Daglegt líf sem haldin var í Iþróttahöllinni á Akureyri um liðna helgi en þar sýndu um 80 fyrirtæki og stofnanir vöru og þjónustu sem þau hafa á boðstól- um. Að auki var boðið upp á margvísleg skemmtiatriði sem gestir kunnu vel að meta. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarð- ar og knattspyrnudeild Þórs stóðu að sýningunni en Þórsarar og Fremri kynningardeild sáu um framkvæmdina. Morgunblaðið/Kristján Leikskólinn Iðavöllur verður rifínn Samorka í Eyjum Vestmannaeyjar - Arlegur fundur Samorku, Samtaka orkufyrirtækja í landinu, var haldinn í Vestmannaeyj- um 12. maí síðastliðinn. Þátttakendur voru alls 90 víða af landinu. Fundur Samorku, sem er fundur tækni- manna, vatnsveitna og hitaveitna í landinu, fór fram í sal Betelsafnaðar- ins og í Akogeshúsinu. Samkvæmt upplýsingum Friðriks Friðrikssonar, rafveitustjóra í Vest- mannaeyjum, tókst fundurinn í alla staði mjög vel og stóð hann yfir hluta af föstudegi og laugardegi en glimr- andi stemmning var meðal fundar- manna og gesta að fundi loknum - í sannkölluðum Eyjastíl, sagði Friðrik. Formaður Samorku er Júlíus Jónsson, framkvæmdastjóri Hita- veitu Suðurnesja, og framkvæmda- stjóri er Eiríkur Bogason. Héraðsdómur Norðurlands eystra Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Hluti ráðstefnugesta. veftffá 9.730 kr.~> FLUGFÉLAG ÍSLANDS Sj ó vá-Almennar sýknað af kröfum um skaðabætur vegna vinnuslyss SJÓVÁ-Almennar tryggingar hefur verið sýknað af kröfum konu um bætur vegna vinnuslyss. Hún fór fram á að félagið greidd sér um 10,8 milljónir króna auk di'áttarvaxta í skaðabætur vegna vinnuslyss sem hún varð fyrir í lok mars árið 1989 þar sem hún var við vinnu sína hjá K. Jónssyni og Co hf. Konan var metin 20% öryrki í kjölfar slyssins. Fyrirtækið var með ábyrgðar- og slysatryggingu hjá Sjóvá-Áimennum á þeim tíma sem slysið varð. Ágrein- ingur varð um bótaskyldu hlutafé- lagsins og var mál rekið fyrir bæjar- þingi Akureyrar en dómur féll í febrúar 1991. í þeim dómi var öll sök á slysinu lögð á fyrirtækið og kon- unni dæmdar bætur sem trygginga- félagið greiddi. Dómnum var ekki Tal kom- ið til Húsa- víkur GSM-þjónusta Tals nær nú til Húsavíkur og nágrennis. Sendir Tals var tekinn í notkun á Húsa- víkurfjalli í vikunni. Vegna stað- setningar GSM-sendisins nær þjónustusvæðið mjög víða. Auk Húsavíkur nær það langt inn í Að- aldal, yfir í Köldukinn, Reykja- hverfi og langleiðis með Kísilveg- inum. Umboðsmaður Tals á Húsavík er Öryggi hf. Stækkun þjónustusvæðis Tals á landsbyggðinni gengur samkvæmt áætlun. Innan tíðar verða GSM- sendar fyrirtækisins teknir í notk- un á Héraði og í Hornafirði. Að því loknu nær þjónustusvæði Tals til 90% landsmanna, segir í fréttatil- kynningu. áfrýjað og bætur voru greiddar. K. Jónsson og Co varð gjaldþrota fyrir allmörgum árum, skiptum er lokið í búinu og engir möguleikar á að gera frekari kröfur á hendur þvi. Þegar fram liðu stundir kom í ljós að afleiðingar slyssins voru mun al- vai'legri en séð hafði verið fyrir þeg- ar örörkumat fór fram. Konan réð því lögmann til að reka máhð að nýju fyrir dómstólum, en í ljós kom að hann aðhafðist lítið sem ekkert í mál- inu, en konan hélt allan tímann að málið væri í eðlilegum farvegi eins og lögmaður hennar hélt fram. Fór svo að lokum að konan fékk annan lögmann til að annast málið fyrir sig. Tryggingafélagið taldi að í málinu væri um að ræða aðildarskort sem leiddi til sýknu. Það væri vátrygg- ingafélag sem K. Jónsson og Co. hefði keypt af ábyi'gðartryggingu en í því fælist að tryggingin væri ein- göngu keypt í þágu þess fyrirtækis og tjónþolar ættu enga beina kröfu á hendur félaginu. Sýknukrafan bygg- ist einnig á því að konan hafi fengið fullnaðarbætur vegna tjóns síns með dómi frá árinu 1991. I áliti dómsins kemur fram að samkvæmt lögum um trygginga- samninga, sem taki til ábyrgðar- trygginga öðlist sá sem bíður tjón rétt vátryggðs á hendur vátrygg- ingafélagi, þegar staðreynt hefur verið að vátryggður sé skaðabóta- skyldur gagnvart þeim sem tjónið beið og upphæð bótanna hafi verið ákveðin. Félagið hafi mótmælt nýju örorkumati efnislega. Upphæð bót- anna vegna slyssins hafi ekki verið ákveðin að öðru leyti en gert var með dómnum frá 1991, en það skilyrði þurfi að vera uppfyllt svo tjónþoli öðlist rétt vátryggðs á hendur trygg- ingafélaginu. Dominn kvað upp Ásgeir Pétur Ásgeirsson héraðsdómari. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA, og Jón Einar Marteinsson, formaður stjórnar FNA, undirrituðu samninginn. Samning- ur um nám á há- skólastigi Egilsstöðum - Háskólinn á Ak- ureyri og Fræðslunet Austur- lands hafa gert með sér sam- komulag um fjarkennslu í námi á háskólastigi. Markmið sam- komulagsins er að efla há- skólamenntun í þágu fólksins í landinu og til að ná þessu markmiði verður nýtt full- komnasta upplýsingatækni við nám og kennslu. Samningurinn nær yfir fyrsta árs nám í hjúkrunarfræðum sem kennt verður á Egilsstöðum og nám í leikskólafræðum sem kennt verður í Neskaupstað og Hornafirði. Það voru Þorsteinn Gunn- arsson, rektor Háskólans á Ak- ureyri, og Jón Einar Marteins- son, formaður stjórnar FNA, sem undirrituðu samninginn. Þorsteinn fagnaði samning- num og sagði hann vera af- rakstur samstarfs margra að- ila, m.a. heilbrigðisstofnana og sveitarfélaga. Hann sagði um- svif í fjarkennslu HA aukast til muna næsta haust með þessum samningi og að fjarkennsla hafi áhrif sameiningar á lánds- hlutana. Markmiðið sé að koma upp landsháskóla með kennslustöðvum víða um land.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.