Morgunblaðið - 19.05.2000, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 23
VIÐSKIPTI
AGORA, alþjóðleg fagsýning þekkingariðnaðarins, haldin í haust
Ahersla á Island sem
þekkingarþj óðfélag’
Morgunblaðið/Þorkell
Björn Bjarnason menntamálaráðherra er verndari ritgerðarsamkeppni
sem AGORA gengst fyrir meðal 11 ára barna síðar á árinu.
AGORA, alþjóðleg fagsýning þekk-
ingariðnaðarins, verður haldin í
Reykjavík 11. til 13. október næst-
komandi í samstarfi við FBA, Is-
lenska erfðagreiningu, OZ.COM og
Samtök iðnaðarins. í tengslum við
sýninguna verður efnt til málþings
undir yfirskriftinni „Þekkingarþjóð-
félagið ísland“. Leitað hefur verið til
þekktra erlendra fyrirlesara úr röð-
um alþjóðafyrirtækja, ráðgjafa og
frá virtum háskólum til að taka þátt í
þinginu. Þá verður einnig efnt til rit-
gerðarsamkeppni meðal 11 ára
barna um framtíðarsýn þeirra, t.d.
daglegt líf árið 2030 eða menntun í
framtíðinni. Menntamálaráðherra
verður vemdari ritgerðarsamkeppn-
innar, sem verður kynnt nánai- með
bréfi til forráðamanna barnanna í
ágústlok.
Sæmundur Norðfjörð, formaður
AGORA, sagði á blaðamannafundi í
gær, þar sem sýningin og það sem er
í tengslum við hana var kynnt, að
mikið væri lagt upp úr þátttöku er-
lendra aðila. Erlend stórfyrirtæki
sem ættu mikilla viðskiptalegra
hagsmuna að gæta hér á landi, svo
sem Ericsson, Nokia, IBM, Hewlett
Packard og Microsoft væru öll líkleg
til þátttöku. Þá hafí ýmis erlend fag-
tímarit boðað komu sína. Sæmundur
sagði þó, að ekkert þeirra erlendu
stórfyrirtækja, sem sýningin hefur
verið kynnt fyrir, og enginn þeirra
erlendu fyrirlesarara, sem leitað hef-
ur verið til, hafi enn staðfest þátt-
töku. Megináherslan með AGORA er
að hvetja íslendinga, jafnt stjórn-
völd, fyrirtæki og einstaklinga, til
virkrar þátttöku í þekkingarþjóðfé-
laginu. Þá er sýningunni ætlað að
veita innsýn í rekstur fyrirtækja, auk
þess sem þeim gefst tækifæri til að
koma upplýsingum á framfæri til
væntanlegra innlendra og erlendra
gesta.
AGORA er markaðssett jafnt með-
al innlendra og erlendra fyrirtækja
sem hafa haslað sér völl á Netinu, í
fjarskiptum, hátækni og hugbúnaði.
Einstaklingar, sem eru með hug-
myndir um þekkingarþróun, geta
einnig sótt um að kynna hugmyndir
sínar á sérstöku svæði sem verður á
sýningunni. Þeir sem fá þar aðgang
munu njóta sérstakrar aðstoðar við
kynningu sinna hugmynda.
í tengslum við AGORA verður
efnt til svonefnds framtakstorgs í
samvinnu við framtaksfjárfestana
Arctic Ventures og Talentu hf.
verslun
nýjar þarfir
nýjar
markmið
nýjar
www.siminn.is
8oo 4000 er gjaldfrjálst númer
fyrirtækjaþjónustu Símans.
Þar er opið virka daga milli kl. 8 og 17.
SIMINN