Morgunblaðið - 19.05.2000, Page 24

Morgunblaðið - 19.05.2000, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Kanadíski prófessorinn Gordon R. Munro hefur rannsakað fiskveiðistj órnun víða um heim GORDON R. Munro er prófessor við hagfræðideild Háskólans í Bresku Kólumbíu í Yancouver í Kanada. Hann er heimsþekktur fræðimaður á sviði auðlindahag- fræði, hefur skrifað um hana fjölda greina í hagfræðitímarit og er eftir- sóttur fyrirlesari. Hann hefur und- anfarin ár rannsakað árangur fisk- veiðistjórnunar víða um heim og hefur jafnframt sérfræðiþekkingu á styrkjakerfum sem tengjast sjávar- útvegi. Hann hefur m.a. fengist við kenningasmíði og stefnumörkun fyrir FAO og OECD sem og sjávar- útvegsráðuneyti Kanada. Hann seg- ist hafa fengið áhuga á rannsóknum á fiskveiðistjórnun snemma á átt- unda áratugnum en síðustu misseri hafi áhugi hans einkum beinst að alþjóða hafréttarlögum sem íslend- ingar hafi átt stóran þátt í að móta eftir þorskastríðin við Breta. Erfitt að skilgreina eignarréttinn Munro segist ekki hafa kynnt sér fiskveiðistjómun íslendinga ofan í kjölinn til að geta rætt ítarlega kosti hennar og galla. Sér sýnist þó að Islendingar eigi eftir að sníða einhverja vankanta af kerfinu. „Ég get hinsvegar sagt að litið er á ís- lenska fiskveiðistjómunarkerfið, ásamt því sem er við lýði á Nýja Sjálandi, sem fyrirmyndir í fisk- veiðistjórnun í heiminum. Þessi kerfi taka flestum öðrum fiskveiði- stjórnunarkerfum í heiminum fram. Ég get þannig fullyrt að íslenska kerfið hefur reynst mun betur en það sem við höfum stuðst við í Kan- ada.“ Hann segir að menn séu almennt sammála um hver vandinn er þegar kemur að stjórnun á nýtingu auð- linda. Það sé að skilgreina eignar- réttinn þegar kemur að úthlutun úr auðlindinni. „í flestum tilfellum hef- ur aðgangur að fiskistofnunum ver- ið frjáls um langt skeið. Það hefur leitt til þess að þeir hafa verið of- veiddir sem vitanlega er andstætt almannahagsmunum. Þess vegna hafa menn reynt að takmarka sókn í auðlindirnar af augljósum efna- hagslegum ástæðum. AJgengast er að takmarka heildarafla og reyna síðan að takmarka þann fjölda fiski- manna eða skipa sem heimilt er að nýta auðlindina. Þessi aðferð hefur hinsvegar mistekist víðast hvar, að minnsta kosti í Norður- ___________ Ameríku. Menn hafa því reynt að stjórna fisk- veiðum með því að breyta hvatanum í kerf- inu, til dæmis með fram- seljanlegum kvótum, í stað þess að banna fiski- mönnunum að sækja í auðlindina." Munro hefur kynnt sér vel stjórnun fiskveiða á Nýja Sjálandi og segir að þar hafi eignarréttindi þróast með öðrum hætti en annars- staðar. „Þar er hlutdeild í heildar- kvótanum úthlutað varanlega, það er eignarrétturinn er til eilífðar. Þar hefur eignarrétturinn í auð- lindinni þróast í nokkurskonar sam- eignarrétt, ekki ólíkt því að eiga hlutabréf í fyrirtæki þar sem aðeins er hægt að gera tilkall til arðsins sem myndast við nýtingu auðlindar- innar. Þannig spila fiskimennimir sjálfir sífellt stærra hlutverk í fisk- veiðistjórnuninni.11 Kvótakerfið til bóta í Bresku Kólumbíu er veiðum úr nokkrum fiskistofnum nú þegar stjómað með framseljanlegum kvótum. Tveir helstu eru kyrrahafs- lúða og svartþorskur. „í báðum til- fellum var reynt að stjórna veiðun- um með kvótakerfi án framsals en fljótlega kom í ljós að sú aðferð gekk engan veginn. Kyrrahafslúðu- stofninn er nýttur sameiginlega af Bandaríkjamönnum og Kanada- mönnum. Allt frá 1920 var sókn í þennan stofn algerlega frjáls sem leiddi til mikillar ofveiði. Það varð til þess að hagsmunaaðilar í sjávar- útvegi fóra þess á leit við stjórnvöld beggja þjóðanna að þau gripu til einhverra aðgerða. I kjölfar þess var stofnuð sérstök nefnd sem unn- ið hefur gott starf til vemdar stofn- inum. Kanadamenn ákváðu til „Islenska kerfíð til fyrirmyndar“ ✓ Þrátt fyrir að Islendingar hafí komið á fót fyrirmyndar físk- veiðistjórnunarkerfí verða þeir að láta sig fískveiðistjórnun annarsstaðar í heiminum varða. Þetta er skoðun kanadíska prófessorsins Gordons R. Munro sem um árabil hefur sérhæft sig á sviði auðlindahagfræði. Hann spáir því að í framtíðinni verði fískveiðum víðast hvar í heiminum stjórnað með kvóta- kerfí í einhverri mynd. Helgi Már Árnason ræddi við Munro. Morgunblaðið/Kristinn Gordon R. Munro, prófessor við hagfræðideild Háskólans í Bresku Kólumbíu í Kanada. Allsstaðar tak- ast menn á við grundvallar- hugtök á borð við jafnrétti. dæmis ákveðinn heildarafla og að takmarka þann fjölda skipa sem nýta mátti stofninn. Þessi aðgerð _________ mistókst hrapallega þrátt íyrir að stofninn væri á uppleið. Offjár- festingar urðu gríðarleg- ar sem sást best á því hvað veiðitímabilið stytt- ist. Kyrrahafslúðu má veiða allt að 240 daga á ári en skipin kláraðu nú leyfilegan heildarafla á aðeins örfáum dögum. Það skapaði öngþveiti á miðunum og leiddi til slæmrar meðferðar á aflanum. Öllum aflanum var skóflað í land á sama tíma og því þurfti að frysta hann og vinna á lengri tíma. Það hafði síðan veraleg áhrif á markaðsvirði afurðanna, enda er mikill verðmunur á ferskri og fros- inni lúðu. Sjávarútvegurinn og stjómvöld sáu fljótlega að ástandið var óviðun- andi. Þó að ástand stofnsins væri í sjálfu sér ágætt vora efnahagslegar afleiðingar stjómunarinnar skelfi- legar. Stjómvöld ákváðu því, í sam- ráði við iðnaðinn, að koma á kvóta- kerfi þar sem kvóta var úthlutað á einstök skip. Við það batnaði ástandið til muna, veiðitímabilið lengdist á ný og stærri hluti aflans var seldur ferskur. í fyrstu vora stjómvöld mjög treg til að heimila framsal á kvótanum en í seinni tíð hefur verið slakað mjög á hömlum í þeim efnum. Þetta kerfi hefur ekki aðeins leitt til betri afkomu fiski- mannanna sjálfra, held- _________ ur einnig breytt viðhorfi þeirra til auðlindarinnar. Þó þeim hafi ekki verið afhentir fiskistofnarnir til eignar gera þeir sér grein fyrir því að kvót- anum verður úthlutað á meðan þeir ganga vel um fiskistofn- anna. Þeir líta nú á auðlindina sem efnahagslega heild þar sem þeir hafa langtímahagsmuna að gæta.“ Allsstaðar sömu álitaefnin Fiskafli hefur fyrir löngu náð náttúrulegu hámarki á ýms- um hafsvæðum hafi reynst árangurrík í þessu til- felli sé ekki þar með sagt að svo sé allsstaðar. Aðstæður séu mismun- andi frá einu landi til annars. „Ég er engu að síður sannfærður um að kerfí í líkingu við þessi verða tekin upp við stjómun fiskveiða í heimin- um á komandi árum. Ég bendi til dæmis á þá stjórnun sem nýverið hefur verið tekin upp við veiðar á alaskaufsa þar sem keppinautar vinna saman að nýtingu stofnsins. En það er sama hvaða kerfi menn vilja taka upp, allsstaðar þurfa menn að takast á við grandvallar- hugtök á borð við jafnrétti, skyn- semi, sanngirni og hagkvæmni." Bætt fiskveiðistjórnun nauðsynleg Munro segii' mikilvægt að bæta fiskveiðistjórnun í heiminum, því varla sé hægt að auka fiskaflann mikið frá því sem nú er. Hann bendir á að samkvæmt útreikning- um FAO sé heimsaflinn nú að nálg- ast náttúralegt hámark. „Reyndar hefur afli fyrir löngu náð náttúra- legu hámarki á ýmsum hafsvæðum, svo sem Norður-Atlantshafi, Norð- ur-Kyrrahafi og líklega í Suður-Atl- antshafi einnig. Reyndar heldur FAO því fram að Indlandshaf sé eina hafsvæðið þar sem hægt er að auka fiskveiðar í nánustu framtíð. Saga fiskveiðanna sýnir að fiski- stofnar hafa verið nýttir uns þeir þrjóta en þá hafa menn bara snúið sér að öðram hafsvæðum. Slíkt er ekki mögulegt lengur; náttúran set- ur okkur takmörk. Það er reyndar hægt að auka afla á sumum fiski- stofnum en það verður ekki gert nema með bættri fiskveiðistjómun. Þessir stofnar hafa ekki verið nýttir nægilega vel vegna rangrar fisk- veiðistjórnunar. FAO hefur auk þess varað við því að fiskafli muni jafnt og þétt dragast saman innan tíðar verði ekki gerð bragarbót á stjórn fiskveiða í heiminum." íslendingar verða að láta sig málið varða Munro nefnir auk þess að al- menningur verði sífellt meðvitaðri um misbresti í fiskveiðistjómun. „Vegna þessa hefur verið settur þrýstingur, gjarnan viðskiptalegs eðlis, á þau lönd þar sem fiskveiði- stjórnun þykir ábótavant. Sum lönd hafa einnig beitt þessum rökum til setja upp við- skiptahindranir L þeim tilgangi að vernda eigin sjávarútveg og auðlindir sínar. Slíkar viðskipta- hindranir geta hinsvegar “’ einnig bitnað á þeim löndum sem ganga vel um fiski- stofna sína, svo sem Island. Fisk- veiðar era Islendingum gríðarlega mikilvægar og þess vegna verða þeir að láta sig fiskveiðistjórnun annarsstaðar í heiminum varða,“ Munro bendir á að þó kvótakerfi segir Gordon R. Munro. Aðalfundur Alþjóðasambands laxeldisframleiðenda Yigfús Jóhannsson kjörinn formaður DR. VIGFÚS Jóhannsson, formaður Landssambands fiskeldis- og haf- beitarstöðva á íslandi (LFH), var kosinn formaður Alþjóðasambands laxeldisframleiðenda til tveggja ára á aðalfundi sambandsins fyrir skömmu. Aðalfundur Alþjóðasambands Laxeldisframleiðenda (Intemational Salmon Farmers Association) var haldinn samhliða sjávarútvegssýn- ingunni í Brússel. Aðildarlönd sam- bandsins era nú alls níu, Ástralía, Kanada, Chile, Færeyjar, Island, Ir- land, Nýja Sjáland, Noregur og Stóra-Bretland. Samtals framleiddu aðildarfélög sambandsins um 940 þús. tonn af laxi á árinu 1999 og vora verðmæti framleiðslunnar í fyrra um 340 milljarðar kr. Stærstu framleið- endumir era Noregur með um 462 þúsund tonn og Chile um 223 þúsund tonn. A aðalfundinum var fjallað um stöðu laxeldisins í dag og líklega þró- un þess á næstu áram. Fram kom að árið 1999 hafi almennt verið mjög hagstætt í laxeldi víðast hvar og greinin væri að skila miklum hagn- aði. Útlit er gott á þessu ári. Laxa- verð er almennt hátt og útlit fyrir að það haldist hátt út þetta ár. Ástæður þessa góða árangurs má almennt rekja til þess að tekist hefur að koma í veg fyrir að sjúkdómar hefðu alvar- leg áhrif í eldinu auk þess sem mjög lítið af fiski hefur tapast úr kvíum á undanfömum árum. Þessi árangur byggist m.a. á starfi Alþjóðasam- bandsins sem hefur beitt sér fyrir því að öll löndin við N-Atlantshaf vinni eftir mjög ströngum reglum sem miða að því að laxeldi verði áfram rekið í góðri sátt við náttúrana. Þess- ar reglur verða unnar í samstarfi við NASCO (Laxaverndunarsamtök þjóða við N-Atlantshaf) og er reiknað með að reglurnar verði samþykktar á fundi samtakanna í byrjun júní n.k. Á fundinum í Brússel vora kynntar fyrstu niðurstöður markaðsrann- sókna sem Alþjóðasambandið hefur staðið fyrir í samvinnu við Roche Vitamins Europe Ltd. Þessari rann- sókn var beint að mörkuðum fyrir lax í Þýskalandi, Englandi og Frakk- landi. Markmiðið var að leita leiða til Dr. Vigfús Jóhannsson var kjör- inn formaður Alþjóðasambands laxeldisframleiðenda til tveggja ára. vinna nýja markaði auk þess að þróa frekar núverandi laxamarkaði í Evr- ópu. Næsta stóra verkefni Alþjóða- sambandsins á þessu sviði er sam- bærileg rannsókn á laxamörkuðum í N-Ameríku. Framkvæmdastjóri Alþjóðasam- bandsins er Peter Shelley. Alþjóða- sambandið mun á næstu tveimur áram hafa aðsetur á tveimur stöðum, á íslandi (skrifstofa LFH) og í Ástralíu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.