Morgunblaðið - 19.05.2000, Page 28

Morgunblaðið - 19.05.2000, Page 28
28 PÖSTDDAGTO 19. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐID ERLENT Tveir gamlir félagar í Ku Klux Klan-samtökunum fyrir rétt í Birmingham í Bandaríkjuniim Sakaðir um sprengjutil- ræðið í Ala- bama 1963 Yfírvöld í Bandaríkjunum hafa á undanförnum árum haft hendur í hári nokkurra manna sem myrtu liðsmenn mannréttindahreyfíngar blökkumanna á sjöunda áratugnum. Tveir sæta nú ákæru fyrir morð á fjórum stúlkum í kirkju í Alabama fyrir 37 árum. Binmngham og Montgomery 1 Alabama. AP, AFP. ÁKÆRA hefur verið lögð fram á hendur tveim mönnum í Birming- ham í Alabama og eru þeir sagðir hafa átt aðild að sprengjutilræði sem varð fjórum blökkustúlkum að bana í kirkju í borginni árið 1963. Mennirnir voru báðir félagar í samtökum kynþáttaofstækis- manna, Ku Klux Klan, í Suðurríkj- unum. Atburðurinn olli mikilli skelfingu á sínum tíma og þótti sýna hve botnlaust hatrið væri sem ríkti meðal öfgahópa hvítra. Óhug sló á almenning og varð til- ræðið til að ýta undir baráttu þeirra sem kröfðust þess að blökkumenn fengju að njóta sömu lýðréttinda í reynd og hvítir í Bandaríkjunum og tryggt yrði að fulltrúar beggja kynþátta yrðu í sömu skólum til að brjóta niður ósýnilega múra fordóma vegna lit- arháttar. Tilræðið í Birmingham hefur oft verið nefnt þáttaskil í sögu barátt- unnar fyrir jafnrétti kynþátta í Bandaríkjunum. Hófsamt fólk úr röðum hvítra fór að beita sér í auknum mæli gegn aðskilnaði kyn- þáttanna á opinberum stöðum eins og í skólum og á veitingastöðum og í almenningsfarartækjum. Nokkrum mánuðum fyrr hafði lögregla beitt hundum og háþrýst- islöngum til að stöðva mótmæla- göngu mannréttindafrömuðarins Martins Luthers Kings er síðar var myrtur. Bjuggu sig undir unglingadagskrá Hryðjuverkið var framið að morgni sunnudagsins 15. septem- ber 1963, dýnamít-sprengju var komið fyrir við útvegg baptista- kirkju sextánda strætis í Birming- ham. Fjöldi fólks, aðallega blökku- manna, var saman kominn í kirkjunni en stúlkurnar fjórar voru staddar í kjallara hússins og voru að búa sig undir sérstaka dagskrá fyrir unglinga. Yngst var Denise MeNair, ellefu ára en hin- ar, þær Cynthia Wesley, Carole Robertson og Addie Mae Collins, voru allar fjórtán ára. Sprengingin tætti í sundur vegginn og glugga á kirkjunni, tuttugu slösuðust en ekki fórust fleiri í sprengingunni en stúlkurn- Bronze Magic frá Biotherm gefur húðinni fallegan gullinbrúnan lit á einni klukkustund eins og þú hafir flogið á sólarströnd. Ráðgjafi verður í versluninni í dag og á morgun. Líttu við og fáðu ráðgjöf og sýnishorn af Biotherm snyrtivörunum. H Y G E A <myrtiv#rui'trjlun Kringlunni, s. 533 4533 BIOThERM Viltu vera allan ársins hring? B R 0 N Z E ^M A G I C SPRAY FYRIR LÍKAMANN AP Sprengjugígur myndaðist við baptistakirkjuna í Birmingham í Ala- bama árið 1963. Fjórar ungar blökkustúlkur, sem voru 1 kjallara húss- ins, fórust og um tuttugu manns að auki slösuðust. AP Stúlkumar fjórar sem fómst. F.v. Denise McNair, Carole Robertson, Addie Mae Collins og Cynthia Wesley. ar þótt skemmd- ir yrðu miklar á húsinu. Til átaka kom í Birming- ham næstu daga og féllu tveir svartir ungling- ar í þeim. Kvikmynda- leikstjórinn Spike Lee gerði heimildarmynd- ina „Fjórar litl- ar stúlkur" um atburðinn og var hún tilnefnd til Óskarsverðlauna árið 1997. „Þetta var svo dæmalaus fólska að fólk var þrumulostið," sagði Taylor Branch sem ritað hefur sögu mannréttindabaráttu blökku- manna sem margir hvítir tóku reyndar þátt í. „Að koma fyrir sprengju þar sem stúlkur eru að búa sig undir sunnudagaskóla er ólýsanleg illmennska." Kirkjan umrædda hefur síðan verið einn af helgum stöðum þeirra sem tóku þátt í aðgerðum gegn kynþátta- hatri og börðust fyrir réttindum blökkufólks. Einn hlaut lífstíðarfangelsi Dómsmálaráðherra Alabama, Bill Pryor, sagði að Doug Jones, sem er alríkisdómari og sá um að taka málið gegn mönnunum upp að nýju, muni annast það að hálfu ákæru- valdsins. Mennirnir tvéir sem komu fyrir rétt á mið- vikudag eru Thomas J. Blan- ton, sem er 61 árs og Bobby Frank Cherry, hann er 69 ára. Cherry býr nú í Mabank í Texas en Blanton enn í Birmingham. Tveir aðrir menn, sem voru grun- aðir um aðild að ódæðinu, eru látn- ir. Annar þeirra, Robert Edward Chambliss, var dæmdur sekur, fékk lífstíðardóm 1977 og lést í fangelsi 1985. Hinn, Herman Cash, var aldrei ákærður og er einnig látinn. Grunsemdir hafa verið um sekt Cherrys og Blantons árum saman þótt þær hafí ekki þótt nógu sterk- ar til að sakfella þá. Málið var tek- ið upp á ný tvisvar eftir rannsókn- ina 1963, fyrst 1980 og aftur 1988 en án þess að niðurstaða fengist þótt ljóst væri að þrímenningarnir lægju undir grun um þátttöku. Enn var það tekið upp 1997. „Við höfum fengið nýjar upplýs- ingar og ætlum að kanna þær til þrautar," sagði Janet Reno dóms- málaráðherra þá. Hún sagði á fréttamannafundi í gær að morðin hefðu verið hörmulegur þáttur í mannréttindabaráttunni og mark- mið yfirvalda væri að réttlætinu yi’ði fullnægt. Leiðtogar bandarískra svert- ingja hafa lengi gagnrýnt mjög að ekki skuli hafa tekist að finna þá seku og draga þá til ábyrgðar en Alabama var á sínum tíma eitt af hreiðrum andstæðinga réttinda- baráttu blökkumanna. Ymis óupplýst morðmál frá þessum tíma hafa verið tekin upp á ný. Má nefna að sama ár, 1963, var Medgar Evers, einn af þekkt- ustu fulltrúum samtaka blökku- manna, NAACP, myrtur í Jackson í Mississippi. Fyrir tæpum áratug var hafin ný rannsókn og 1994 var Byron de la Beckwith dæmdur sekur um morðið á Evers. Annar baráttumaður, Vernon Dahmer, var myrtur með eldsprengju í Mississippi 1966 og var fyrrver- andi Ku Klux Klan-leiðtogi, Samu- el H. Bowers, sem þá var 73 ára, dæmdur sekur um morð og ík- veikju 1998 þótt langt væri um lið- ið. Sakargiftir morð og „almenn mannvonska“ Sakborningarnir tveir hafa áv- allt sagst vera saklausir. Mickey Johnson, verjandi Cherrys, segir skjólstæðing sinn við slæma heilsu. „Hann vill að fólk heyri hvað hann hefur að segja og telur að þá muni menn taka undir með sér,“ sagði Johnson. Sonur Cherr- ys á fimmtugsaldri, Thomas Frank Cherry, bar vitni fyrir luktum dyr- um í vikunni og vildi ekki skýra fjölmiðlum frá því sem hann hefði sagt. Hann sagðist ekki hafa talað við föður sinn í mörg ár. „Því minna sem ég veit þeim mun betra fyrir mig,“ sagði Cherry yngri við fréttamenn. Á umliðnum árum hafa sumir ættingjar Bobby Cherrys haft eft- ir honum að hann hafi tekið þátt í að koma dýnamítinu fyrir við kirkjuna en ekki hefur verið skýrt frá því hvaða nýja vitneskju yfir- völd hafa nú undir höndum. Að sögn Johnsons er Cherry sakaður um morð að yfirlögðu ráði á öllum stúlkunum fjórum en auk þess um „almenna mannvonsku" sem er nefnt í ákæruskjalinu vegna þess að sprengjunni var komið fyrir á stað þar sem hún gat orðið ótil- teknum fjölda fólks að bana. Blan- ton er einnig sakaður um morð en ekki var sagt nánar frá orðalagi ákærunnar. íbúar í Birmingham voru spurð- ir álits á því að málið væri tekið upp á ný. Stanley Wilson, 39 ára gamall blökkumaður, sagði ósann- gjarnt að þeir sem hefðu staðið að tilræðinu, hverjir sem þeir væru, skyldu hafa gengið lausir áratug- um saman. „Það hefði átt að upp- lýsa málið fyrir löngu,“ sagði hann. En hvítur maður, Stan Leo, sem var sextán ára þegar stúlkurnar voru myrtar, sagðist efast um rétt- mæti þess að fylgja málinu eftir. „Ég harma að þetta skyldi ger- ast en við verðum að gleyma því og láta lífið í borginni ganga sinn gang. Af hverju að vera að rifja upp fortíðina?" sagði hann. Christ- opher Hamlin, sem er prestur, sagði fólk hafa sterkt á tilfinning- unni að málalok væru í vændum en bætti við að samskipti kynþátt- anna í borginni hefðu „tekið mikl- um framförum" frá 1963. Læknum kennt að skrifa Washington. The Daily Telegraph. LÆKNAR á virtu sjúkrahúsi í Bandaríkjunum hafa verið sendir aftur í skóla til að læra að skrifa skýrar. Læknar Cedars-Sinai sjúkrahússins í Los Angeles eiga að sækja kvöldnámskeið til að læra aftur að draga til stafs þannig að þeir geti skrifað læsilega lyfseðla. Menn hafa oft hent gaman að hrafnasparki lækna en í Bandaríkjunum er það tekið alvarlega eftir að bandarískir visindamenn komust að þeirri niðurstöðu í fyrra að hugsanlega mætti rekja hartnær 100.000 dauðsföll á ári til mistaka lækna, svo sem hroð- virknislegra lyfseðla sem leiða til rangrar lyfjagjafai'. 42 ára maður lést til að mynda af hjartaáfalli vegna þess að lyfsali misskildi ólæsilegan lyfseðil frá lækni og lét sjúklinginn hafa átta sinnum stærri lyfjaskammt en hann átti að fá. Læknirinn var dæmdur til að greiða fjölskyldu mannsins háar skaðabætur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.