Morgunblaðið - 19.05.2000, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 19.05.2000, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 35 Harpa Árnadótt.ir Morgunblaðið/Kristinn Teikningar Hörpu Arnadóttur Hallgrímur Helgason sýnir hjá Sævari HALLGRIMUR Helgason opnar málverkasýningu í Galleríi Sævars Karls, Bankastræti, laugardaginn 20. mai, kl. 14. Hallgrímur hóf feril sinn sem myndlistarmaður árið 1983 eftir stuttan stans í listaskólum og hefur lialdið yfir 20 einkasýningar og tekið þátt í 30 sam- sýningum í ýmsum löndum. Undanfarin ár hefur hann helgað sig ritstörfum í auknum mæli en hefur nd, fyrir beiðni Sævars Karls, tekið fram pensilinn á ný eftir Iangt hlé. Hallgrímur sýndi teiknimyndir í Galleríi oneoone á Laugavegi í fyrra og sýndi siðast málverk í Galerie Philippe Rizzo í París haustið 1997. Morgunblaðið/Golli Hallgrímur Helgason HARPA Árnadóttir mynd- listarmaður opnar sýningu á teikn- ingum í sal félagsins Islensk grafík í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17 (gengið inn hafnarmegin), á morg- un, laugardag, kl. 16. Harpa býr og starfar sem mynd- Iistarmaður í Gautaborg þar sem hún nam við Valand Listaháskólann 1994-96 að afloknu námi við Mynd- lista- og handíðaskóla íslands, það- an sem hún lauk prófi frá málara- deild 1993. Harpa hefur haldið fjölmargar sýningar í Svíþjóð og einnig í Finn- landi. Síðustu sýningar hennar hér á landi voru málverk í Súm-sal Ný- listasafnsins 1998 og teikningar á Mokka 1995. Harpa hefur hlotið viðurkenning- ar fyrir teikningar sínar í Svíþjóð. Sýning Hörpu stendur til 11. júní og er opin fimmtudaga til sunnu- daga frá kl. 14-18. Aðgangur er ókeypis. Listahátíð sett á morgun LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík 2000 verður sett með formlegum hætti í Þjóðleikhúsinu á morgun kl. 13:30. Formaður fulltrúaráðs Listahátíð- ar, Björn Bjamason, menntamála- ráðherra, setur hátíðina, sem er nú haldin í 16. sinn. Fyrsta hátíðin var sett 1970 og er því hátíðin í ár jafn- framt 30 ára afmælishátíð. Dagskrá- in er fjölbreytt og stendur hátíðin til 8. júní og lýkur með hátíðartónleik- um í Laugardalshöll, þar sem Sin- fóníuhljómsveit Islands og ein- söngvaramir Sigrún Hjálmtýsdóttir, Rannveig Fríða Bragadóttir, Krist- ján Jóhannsson og Kristinn Sigmundsson flytja óperaaríur og dúetta undir stjóm Giorgio Croci. Á opnunarhátíðinni verða fyrstu tónleikar Tónskáldafélags Islands í annarri af þremur tónleikaröðum, sem félagið efnir til á þessu menning- arári með tilstyrk Menningarborgar- innar. Tónleikamir bera yfirskriftina „Hvert örstutt spor og þar verða rifj- uð upp sönglög sem framflutt hafa verið á íslensku leiksviði allt frá alda- mótum. Tónlistarstjóri er Jóhann G. Jóhannsson og umsjón með dag- skránni hefur Guðjón Pedersen. Flytjendur era Edda Heiðrún Backman, Marta Guðrún Halldórs- dóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdótt- ir, Jóhann Sigurðarson, Ólafur Kjart- an Sigurðarson og Öm Árnason. Við opnunina flytur formaður framkvæmdastjórnar, Sveinn Ein- arsson, ávarp og síðan verða veitt verðlaun í smásagnakeppni Listahá- tíðar árið 2000. Það er Ríkisútvarpið sem býður fram verðlaunin í tilefni af 70 ára afmæli sínu, en auk verðlauna- sagnanna þriggja koma m'u aðrar út á bók á vegum bókaforlagsins Vöku- Helgafells. Uppselt er á opnunartónleikana, en leikhústónleikarnir verða endur- teknir í Þjóðleikhúsinu þriðjudaginn 23. maí. Tónleikamir era einnig á dagski’á Reykjavíkur - menningarborgar Evrópu árið 2000. Einstakur fjölskyldu- og ferðabíll! Staðalbúnaðun ABS bremsu, útvarp og segulband, 6 hátalarar, 4 armstótar, 3 manna bekkur, viðarklaeðning, aðfellanlegir speglarfrafmagn), upphitaðirútispeglar.ralknúiöbástjórasaeti, hæðarstíllanlegöryggisbelti, ektsneytistankur opnanlegur innanfrá, tvöfallt hitakerfi, rafmagn irúðum að framan og aftan, rafdrifið bftnet, hiti íaftur- rúðu með tímarofa, fjarstýrðarsamlæsingar, toppgrindarbogarmeð þverfestingum, litað gler, höfuðpúðar á 6 sætum, rafstýrð sióllúga, 15"álfelgur. Útfærslun • 2500cc V6 vél, 165 hestöfl • 2500cc V6 vél, 165 hestöfl, 4 þrepa sjálfskipting • 2900cc, 4 cyl tubo/dieset vél, 127 hestöfl (330 nm), 4 þrepa sjálfskipting Sjálfskiptur - Bensín eða Dísil KIA UMBOÐIÐ FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI SÍMI 555 6025 KIA Carnival ersannkallaðurfjölnotabíll. Hann tekur allt að sjö manns ísæti. Að innan má sveigja hann að þörfum ffestra, hvortsem þeireru einirá ferð eða með stórfjölskylduna og allt hennarhafurtask. Sætunum ersnúið, rennt ograðað á hvem þann veg sem heppilegastur þykir hverju sinni. Það spillirsíðan ekki fyrir að rennihurðimar að aftan eru tvær. Stærð bilsins, krafturvélarínnarogöryggisbúnaðurinn gerírKIA Carnival að ákaflega heillandi ferðabil, um leið og lipurð hans og fjölbreytturstaðalbúnaðurinn búa hann kostum hins ríkulega fölksbils. - Kiktu við hjá okkur íKIA Umboðinu að Fjarðarhrauni 31, því sjón ersögu rikari og reynsluakstur óviðjafnanleg reynsla. Verð nú aðeins 2.290.000 Sveigjanlegt innanrými Sætunum ersnúið, repnt og raðað á hvem þann veg sem heppilegastur þykir hvetju sinni. Opið virka daga frá kl. 9 til 18 og 13 til 17 á laugardögum www.kia.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.