Morgunblaðið - 19.05.2000, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 45
SIGRIÐUR DROFN
FRIÐFINNSDÓTTIR
+ Sigríður Dröfn
Friðfinnsdóttir
fæddist í Reykjavík
21. mars 1946. Hún
lést á heimili sínu 11.
maí síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Sigríður Kristín El-
íasardóttir, f. 13.10.
1926, d. 26.9. 1981,
og Friðfinnur S.
Árnason, f. 5.9. 1915,
d. 30.8. 1999. Systur
Drafnar eru: l)Jón-
fna Gunnhildur, f.
8.12. 1940, gift Hall-
grími Þorsteinssyni,
búsett í Kópavogi og þau eiga þrjú
börn. 2)Jóhanna Kristjana, f. 3.9.
1947, búsett á Akureyri og hún á
tvo syni.
Dröfn bjó fyrstu ár sín í Reykja-
vík en flutti síðar til Akureyrar
með stuttri viðdvöl á Þórshöfn.
Hún giftist árið 1966 eftirlifandi
eiginmanni sínum, Guðmundi
Óskari Guðmundssyni, f. 14.4.
1946. Þau áttu þrjár dætur: 1)
Kristín Petra, f. 11.6. 1967, henn-
ar maður er Birgir Snorrason og
þau eiga tvær dætur. 2) Iris, f. 9.6.
1968, hennar eiginmaður er Sig-
þór Gunnarsson og þau eiga tvö
„Vinui- þinn er þér allt. Hann er
akur sálarinnar þar sem samúð
þinni er sáð og gleði þín uppskor-
in.“ (Spámaðurinn).
Vinátta sem varir er sprottin upp
úr tvenns konar jarðvegi. Annars
vegar er það æskuvináttan sem
bindur einstaklinga böndum sem
aldrei bresta og þó oft togni á og
vík verði milli vina er vináttan alltaf
til staðai- traust og óbreytanleg
hvenær sem þráðurinn er tekinn
upp að nýju. Hins vegar er það vin-
áttan sem verður til á milli ein-
staklinga seinna á æviskeiðinu. Vin-
átta sem byggist á gagnkvæmum
samskiptum, er til þess að gefa og
þiggja og verður í tímans rás traust
og heil. Þannig var vinátta okkar
Drafnar en hún hefur verið óslitin
síðan við kynntumst fyrir tæpum
tuttugu árum.
Nú þegar náttúran er að klæðast
sínu fegursta skarti og blámi fjall-
anna í fjarlægðinni verður tærari
og dulmagnaðri með hverri líðandi
stund þá hverfur þessi vinkona mín
til annarra tilverustiga. Hún sem
svo unni lit- og veðrabrigðum nátt-
úrunnar og landinu sínu. Listakon-
an sem ekki þurfti til fjarlægra
landa til þess að finna myndefni en
skapaði listaverk í vinnustofu sem
hún tengdi heimili og fjölskyldu,
sótti niyndefni í nánasta umhverfi
og drifkraftinn í tilfinningar sínar
sem hún hiklaust og einlæglega
túlkaði. Hin síðari ár hafa myndir
hennai' einnig borið sterk trúarleg
og dulræn einkenni. Hún var afar
næm og fékk oft hugboð eða eins
og eins og hún sagði sjálf „var veik
fyrir spádómum og dularfullum íyr-
irbærum". Hugmyndirnar voru
óþrjótandi en ekki gafst tími til
þess hér að koma nema broti af
þeim í framkvæmd.
Það var alltaf gefandi og
skemmtilegt að vera í návist Drafn-
ar hvort sem tekist var á við krefj-
andi verkefni eða setið og spjallað á
góðri stundu í gamni eða alvöru.
Hún var einstaklega úrræðagóð og
tókst að búa hvert einstakt verkefni
í þannig búning að það vakti áhuga
og löngun til að takast á við. I gleði
og sorg brást ekki að eftir göngu-
ferð eða samtal við Dröfn tóku mál-
in nýja og betri stefnu. Það var eins
og henni tækist fyrirhafnarlaust að
auka á gleðina eða leysa erfiðleik-
ana upp í ekki neitt.
Ég hef fylgst með Dröfn á annað
ár kljást við sjúkdóminn sem yfir-
bugaði hana að lokum og ég trúði
því í einlæglega að hún ynni þá
baráttu. Ég hef dáðst að styrk
hennar og æðruleysi. Ég hef líka
dáðst að því hvernig Óskar eigin-
maður hennar annaðist hana af var-
færni og elsku fram á síðustu stund
og hvernig dætur hennar umvöfðu
börn. 3) Sigríður, f.
14.8. 1972, hennar
maður er Fjölnir Þór
Árnason og þau eiga
einn son.
Dröfn stundaði
myndlistarnám við
Handíða- og mynd-
listarskólann í
Reykjavík árið 1963
og síðar við Mynd-
listarskólann á Ak-
ureyri árin 1982-86.
Auk þess dvaldi hún
eitt ár í Finnlandi við
nám og listsköpun.
Að námi loknu vann
Dröfn að listsköpun í eigin vinnu-
stofu. Hún var meðlimur í Félagi
íslenskra myndlistarmanna og Fé-
lagi grafíklistamanna. Dröfn hélt
fjölda einkasýninga auk þátttöku í
samsýningum á ferlinum. Árið
1998 var Dröfn valin Listamaður
Akureyrar.
Samhliða listsköpun gegndi
Dröfn ýmsum nefndarstörfum hjá
Akureyrarbæ og starfaði einnig
sem leiðbeinandi hjá fþrótta- og
tómstundaráði.
Utför Drafnar fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
hana. Dröfn lést á heimili sínu í
faðmi fjölskyldunnar fimmtudaginn
11. maí sl. Éinstök kona er gengin
- ég sakna hennar sárt.
Við hjónin og börn okkar vottum
Óskari, dætrunum og fjölskyldum
þeirra okkar dýpstu samúð.
Elsku vinkona, far þú í friði.
Elín Antonsdóttir.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins
blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherjar dóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu gengin á guðanna fund,
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson.)
Það er alltaf erfitt að sætta sig
við það þegar fólk á besta aldri
verður undii’ í baráttunni við illvíg-
an sjúkdóm. Það er hnípinn hópur
sem nú kveður kæra vinkonu,
Dröfn Friðfinnsdóttur og minning-
arnar streyma fram.
Við kynntumst sem unglingar, 10
stelpur, og höfum haldið hópinn síð-
an eða í nærri 40 ár.
Þá var yndislegt að lifa og engar
áhyggjur. Sigga El„ mamma
Drafnar, sagði stundum „Stelpur
mínar þið skuluð nú fara að átta
ykkur á því að lífið er ekki bara
súkkulaði og bíltúrar." Við hlustuð-
um auðvitað ekki á það frekar en
unglingar hvers tíma, enda óþarfi,
við vorum að njóta lífsins á þeim
árum sem flestum þykja þau
skemmtilegustu á lífsleiðinni.
Dröfn var mjög bráðþroska og
sjálfstæð og á vissan hátt alltaf
skrefinu á undan okkur hinum.
Hún fór í Héraðsskólann að Núpi
einn vetur, var annan vetur í Hand-
íða- og myndlistaskólanum í
Reykjavík og fór til Kaupmanna-
hafnar í nám og vinnu.
í þá daga voru ekki tískuverslan-
ir á hverju horni en heimasaumur
eftir erlendum tískublöðum algeng-
ur. Þá voru listrænir hæfileikar
Drafnar komnir í Ijós því hún teikn-
aði sjálf fötin og lét sauma á sig eða
saumaði þau sjálf.
Eftir að við vorum allar komnar
með börn og bú hittist hópurinn
reglulega í saumaklúbbi.
Dröfn hafði alveg sérstaklega
skemmtilega frásagnargáfu og fór á
kostum þegar hún sagði léttar
hrakfallasögur af sjálfri sér. I
gegnum tíðina hafa þær verið rifj-
aðar upp reglulega með viðeigandi
hlátrasköllum.
En í klúbbnum var ekki bara
grín og glens, þar var allt á dag-
skrá. I allri umræðu hafði Dröfn
sterka réttlætiskennd og var femín-
isti fram í fingurgóma. Hún var
fíngerð og nett en líka bæði sterk
og traust. Það var gott að leita til
hennar með hvað sem var, hún átti
alltaf skynsamlegustu svörin við
öllu.
A tímabili rak hún ásamt einni
okkar keramik- og leirvinnustofu
því alltaf var áhuginn við að skapa
til staðar.
Engin okkar komst hjá því að
prófa þar listræna hæfileika sína
undir hvatningarorðum Drafnar,
árangurinn reyndist þó misgóður.
Þarna kynntumst við því hvað hún
hafði mikið til brunns að bera í list-
rænu tilliti.
Það voru gæfuspor þegar Dröfn
fór í nám við Myndlistaskólann á
Akureyri 1982 til 1986 og síðar til
Finnlands í framhaldsnám.
Klúbburinn var aldrei sérlega
gagnrýninn á verk hennar, hún var
einfaldlega listakonan okkar og allt
sem hún gerði fannst okkur frá-
bært.
Við vitum að hún er einn virtasti
grafíklistamaður þjóðarinnar og
hún fékk þá jákvæðu gagnrýni á
verk sín að framtíðin væri hennar.
Á sýningu Drafnar í Listasafninu
á Akureyri í október 1996 þar sem
verkin fjölluðu að nokkru leyti um
gátu lífs og dauða skrifar hún m.a. í
sýningarskrá:
„I uppeldinu mótast sú vissa að
dauðinn sé alls ekki endalok lífsins
heldur áfangi á leyndardómsfullri
leið þar sem farangurinn er aðeins
minningar og reynsla sem við tök-
um með okkur til upphafs nýs lífs.“
Við erum sannfærðar um að það
vantar ekkert í farangurinn hennar
Drafnar.
Vér hverfum og höldum víðar
en hittumst þó aftur - síðar.
Elsku Óskar, við sendum þér og
fjölskyldunni okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Saumaklúbburinn.
Ég er nýkomin inn úr góðum
göngutúr, var að heilsa upp á
kríuna, og bjóða hana velkomna.
Hvað sé ég, er ekki margæsin líka
komin, hún er greinilega þreytt og
svöng þar sem hún kroppar ofan í
gi’ænt túnið, gott að hún skuli
koma hingað og hvfla sig áður en
hún heldur áfram til varpstöðv-
anna. Svanaparið er búið að koma
sér fyrir úti í hólmanum, það verð-
ur gaman að fylgjast með þeim í
sumar, og sjá hvað ungarnir verða
margir þetta árið. Sjórinn, himinn-
inn og fjöllin skarta sínum undur-
fagra bláa lit, mikið er þetta fallegt
kvöld, þetta er kvöldið er þú kveður
og sofnar. Ég verð sorgmædd og
græt, þú Dröfn vinkona mín ert
ekki lengur hér. Daginn eftii’ er ég
full af söknuði en er ég kem út í
morgunblíðuna og heyri í stelknum,
lóunni og hrossagauknum doka ég
aðeins við og hlusta, mér verður að-
eins léttara, þetta hljómar svo fal-
lega, eins og vináttan þín var mér.
Falleg og umvefjandi, án skilyrða,
allt frá fyrstu kynnum óx hún og
varð þroskaðri eftir því sem við elt-
umst, svona eins og eftir vorið kem-
ur sumar og nóttin verður jafnlöng
deginum, fullkomið jafnvægi. Þann-
ig vinkona varst þú mér. Það er
ekkert betra til í lífinu en að eiga
góða vinkonu.
Steinunn.
Vanmáttug stöndum við þegar
dauðinn knýr dyi’a og ástvinur er
tekinn úr faðmi fjölskyldu og vina.
Á hugi okkar leita áleitnar spurn-
ingar um lífið og réttlætið, tilgang-
inn og trúna.
Við skiljum eðlilega brottför á
ævikvöldi, en að kveðja vin sem enn
átti svo mikið að lifa fyrir er öllu
torskildara.
Dröfn hefur nú kvatt þetta jarðlíf
eftir erfiða sjúkdómsbai’áttu liðinna
missera, vegna sjúkdóms sem ekki
fannst lækning við.
Við sem höfum verið henni sam-
ferða i gegnum lífið, höfum fylgst
með lífshlaupi hennar og séð hana
rísa og vaxa í hlutverki sínu í
stækkandi fjölskyldu og sem lista-
mann og við litum til hennar með
virðingu og aðdáun.
Áhugi hennar á listsköpun fylgdi
henni alla tíð. Hún hóf nám í Hand-
íða- og myndlistaskólanum í
Reykjavík 1963 og hélt síðar áfram
námi við Myndlistaskólann á Akur-
eyri og síðar við Lahti Art Institu-
te. __
Á áratug, frá árinu 1987, hélt
hún tíu einkasýningar og tók þátt í
á fjórða tug samsýninga.
Hún hlaut fjölmarga styrki og
viðurkenningar fyrir störf sín á
sviði myndlistar og fjölmörg verka
hennar eru í opinberri eigu, bæði
innlendra og erlendra aðila.
Hún var valin bæjarlistamaður
Akureyrar árið 1998.
Henni tókst að grípa litbrigði
lífsins og túlka þau í verkum sínum.
Við kveðjum góðan listamann,
sem hefur með verkum sínum skilið
eftir meðal okkar, á sinn hljóðláta
hátt, metnaðarfull verk, sem varð-
veita minningu hennar um ókomna
tíð. En fyrst og fremst kveðjum við
góðan vin og samferðamann hinstu
kveðju og þökkum henni ljúfa sam-
fyigd.
Blessuð sé minning hennar.
Eiginmanni og öðrum ástvinum
votta ég mína dýpstu samúð.
Sigurður J. Sigurðsson.
Þjáningum Drafnar er lokið í
baráttunni við illvígan sjúkdóm.
Með sorg í hjarta skrifa ég þessi
örfáu kveðjuorð.
Fyrstu kynni mín af Dröfn voru
á myndlistarsýningu hennar í FIM-
salnum í Garðastræti í Reykjavík.
Þar blöstu við mér risastór grafík-
verk, dökk og djúp og iðandi af lífi,
töfrandi listaverk er líða mér seint
úr minni.
Nokkrum árum síðar kynntist ég
Dröfn þegar við fórum saman í æv-
intýralega vinnuferð til Litháen
ásamt hópi fimm annarra
evrópskra myndlistarmanna.
Vegna eljusemi og dugnaðar
Drafnar tókst henni ári síðar að
skipuleggja ógleymanlega ferð
sama hóps til Islands og Akureyrar
af mikilli gestrisni og stórhug. Það
varð til þess að kær vinátta tókst
með okkur öllum í hópnum.
Það var gaman að vera í návist
Drafnar, andleg næring. Hún var
yndisleg manneskja. Dröfn hafði
mikla sköpunai’gáfu: Hún var
áræðin, atorkusöm og hugmynda-
rík. Það er mikill missir og stórt
skarð höggvið í flóru íslenskrar
myndlistar við fráfall hennar, langt
um aldur fram. Fyrir hönd lista-
hópsins sendi ég Óskai’i, dætrum
og fjölskyldum þeirra innilegar
samúðarkveðjur. Blessuð sé minn-
ing hennar.
Kristín Geirsdóttir.
Föstudagsmorguninn 12. maí
kom hringingin sem ég vissi að
kæmi fljótlega en kveið svo mikið
fyrir. Dröfn er dáin.
Við kynntumst fyrir sex árum er
hún hóf störf á Punktinum sem
leiðbeinandi í leir- og myndlist.
Ekkert var vinsælla en leirnám-
skeiðin hjá Dröfn. Hún skildi svo
vel hvað það var sem fólk óskaði
eftir bæði í sköpun og samskiptum.
Hún tók mikinn þátt í uppbyggingu
Punktsins, kom endalaust með nýj-
ar hugmyndir og ekkert starf var
það lítilfjörlegt að hún gæti ekki
gripið þar inn í.
Það var ráðist í mikið, þegar
okkur datt í hug að það væri gaman
að geta boðið upp á rakúbrennslu á
leirnámskeiðum og voru fengnar
tvær listakonur til að kenna okkur.
Þær hlóðu ofn úti og brenndu
fyrstu brennslurnar. Við vorum svo
spenntar og ákafar yfir þessu nýja
verkefni að við gleymdum stund og
stað. Vildum að allir fengju fallega
hluti og var því magnið af leirmun-
um meira en rúmaðist innan okkar
vinnutíma og stóðum við oft lengi
við ofninn og huguðum að brennsl-
unni. Þá var gleðin yfír sköpuninni
svo mikil að allh’ bakverkir gleymd-
ust.
Mikil var gleði okkar og stolt
þegar Dröfn var kjörin bæjarlista-
maður sumarið ’98. Þó að við viss-
um að hún færi í ársleyfi hlökkuð-
um við mikið til að sjá verkin
hennar eftir þetta ár, við vissum
líka að hún kæmi alltaf í heimsókn
og þá gæfist tími til að spjalla og fá
góðar ráðleggingar.
Ái’ið var hálfnað þegar Dröfn
greindist með krabbamein og þurfti
að ganga í gegnum erfiða lyfjameð-
ferð. Þá fjölgaði ferðum hennar á
Punktinn. Hún stytti sér stundir
hjá okkur og átti þá fatasaumur oft
hug hennar allan. Oft kom hún bara
til að spjalla og kom þá með brauð
því að hún vissi að fátt gladdi okkur
meira en næringin. Síðasta ferð
hennar á Punktinn var fyrir mánuði
er hún kom með systrum sínum og
var haft að gamni að hún hefði
keypt íífiega af brauði í þetta sinn.
Mér eru mikils virði stundir okk-
ar saman þegar við sátum og spjöll-
uðum um börnin og barnabörnin og‘
hvað við gætum búið til, til að
gleðja þau.
Eða þegar henni fannst ég vera
búin að vinna allt of mikið, og ráð-
lagði mér að hugsa betur um heils-
una, fara í sund og slappa af.
Takk fyi-ir allt.
Samúðarkveðjur sendum við
Óskari, dætrum og fjölskyldum
þeirra.
Með kveðju frá starfsfólki
Punktsins.
Kristbjörg Magnadóttir.
Hvítt blað, hversu oft hafðir þú
það ekki fyrir framan þig, klárt og
áþreifanlegt. Bíðandi eftir hug-
myndum þínum, nei ekki hugmynd-
um. Grafíkin þín var ekki hug-
myndii’, hún var orka. Þú safnaðir
saman umhverfinu, hughrifunum,
töfrunum sem svo mörg okkar gef-
um okkur ekki tíma til að dvelja
við. Þú gafst þér tíma, tíma til að
fága, finna aðferðina sem hæfði.
Tréristan var þinn miðill, jafnerf-
ið og óþjál sem hún getur verið. Þú
gerðh’ hana mjúka. Mjúka Dröfn
sem alltaf hélt sínu striki. Mót-
sögn? Nei, ekki hjá þér. Þú varst
listamaður.
Og þú varst göldrótt, öðruvísi get
ég ekki skýi’t hversu eðlilega þér
komu alltaf réttu viðbrögðin, réttu
ályktanirnar, brandarar þegar allir
voru alvarlegh’. Það svellur reiði,
sársauki það var svo margt sem við
áttum eftir að spyrja þig, svo marg-
ar spurningar sem enn eiga eftir að
verða til.
Það er alltaf eitthvað eitt öðru
fremur sem laðar að, heillar í fari
manneskju, í mynd, ljóði texta eða
tónverki. Fyrh’ mér var það sam-
hljómurinn sem þú bjóst yfir gagn-
vart öllu í umhverfi þínu. Hvernig
gastu þetta? Alltaf verið með en
áttir samt svo margt fyrir þig og
svo mikið eftir.
Aldrei frek og aldrei að fórna.
Harmónía það eru margar vísanir í
þessu orði þótt það standi ekki i ís-
lenskum orðsifjabókum. í því
hljómar harmonikkan með sinni
glöðu, alþýðlegu hrynjandi, hlátur
þinn. Harmurinn núna, af því þú
ert ekki, hugsun, staðreynd sem við
eigum eftir að venjast af því að við
höldum áfram. Ónía, mónía, bull og
alvara. Þú varst mjög alvarleg
galdrakona. En svo alltaf þessi dill-
andi hlátur á næsta leiti. Og hann
er þarna því þú ert í huga okkar,
myndirnar þínar, flinkheitin, fágun-
in. Ekkert fúsk, fólk verður að vita
hvað það er að gera. Og þú vissir
það, hélst áfram að gefa, alltaf.
Óþrjótandi fjársjóður, uppspretta
svo margra spurninga án kröfu-
gerðar. Það heita líklega vangavelt-
ur. Og við spyrjum af hverju svona
snemma, svona hratt? Við stöndum
hnípnar þessa dagana, stöllur þín-
ar. Svo fjölmargar konur, á ólíkum
aldri, úr ólíku umhverfi með ólíka
afstöðu sem urðu vinur í kringum
þig. Og auðvitað fylgdi fjölskyldan
með, okkar fjölskyldur, eiginmenn,
ástmenn og börn sem þú fylgdist
ævinlega með og svo þín fjölskylda,
Óskar, dæturnar þrjár og bai-na-
börnin. Ekkert varð út undan,^
aldrei. Tími til alls og nú er allt í
einu ekki hægt að hitta þig eða
hringja í þig lengur. En myndirnar
þínar eru hér enn og þótt þær séu
ekki þú sjálf, þá er svo stór hluti af
þér í þeim ...
Jórunn, Margrét,
Helga Pálína.