Morgunblaðið - 19.05.2000, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 69
MYNDBONP
Einmana
húsmóðir
Borð fyrir einn
(A Table for One)
Spennudrama
★%
Leikstjórn og handrit: Ron Senk-
owski. Aðalhlutverk: Rebecca De
Mornay og Michael Rooker. (90
mín.) Bandaríkin, 1999. Bergvík.
Bönnuð innan 16 ára.
BORÐ fyrir einn er sjónvarps-
mynd sem lýsir ástum og afbrýði-
semi, tvöfeldni og geðveiki í lífí Ruth,
einmana en kyn-
þokkafullrar hús-
móður. Ruth grun-
ar að eiginmaður-
inn sé ekki allur
þar sem hann er
séður og hefur því
fyllt húsið af
dauðagildrum ef
ske kynni að hann
reyndi að myrða
hana. Hún veit hins vegar ekki að
eiginmaðurinn á aðra konu og tvö
börn sem hann heimsækir þegar
hann segist vera á viðskiptaferðalög-
um. Það líður að sjálfsögðu ekki á
löngu áður en allt fer í handaskolum
og því langa og leiðinlega ferli fær
áhorfandinn að fylgjast grannt með.
Þó eru nokkrir Ijósir punktar í öllum
lélegheitunum sem varða persónu-
sköpun aðalsöguhetjunnar. Ymsar
ástæður eru gefnar fyrir yfírvofandi
sturlun hennar og spilar einmanaleg
tilvera heimavinnandi húsmóðurinn-
ar þar stórt hlutverk. Þessi viðleitni
nægir að minnsta kosti til að gefa
áhorfandanum örlitla samúð með
umræddri persónu.
Heiða Jóhannsdóttir
Afram er
haldið
Börnin á kornakrinum 666: ísak
snýr aftur
(Children of the Corn 666: Isaac’s
Return)
Hrollvekja
★vfe
Leikstjóri: Kari Skogland. Handrit:
John Franklin og Tim Sulka. Aðal-
hlutverk: Stacy Keach, Nancy Allen
og Natalie Ramsey. (92 mín.)
Bandaríkin, 1999. Skífan. Bönnuð
innan 16 ára.
LIÐIN eru rúm fimmtán ár frá
því að kvikmynd var gerð eftir sögu
Stephens King um Börnin á korn-
akrinum. Það er
hreint ótrúlegt
hvað reynt er að
moða úr þessari
einu smásögu, en
hér er komin sjötta
myndin í röðinni.
Það er svo sem fátt
um myndina að
segja, hún er
greinilega ekki sú
síðasta í röðinni, þar sem endirinn er
mjög opinn fyrir framhaldi. Leik-
stjórinn virðist þó metnaðarfullur og
hær að skapa nokkuð skuggalegt
andrúmsloft með listrænum tilburð-
um. Gert er út á óhugnaðinn úr upp-
i'unalegu sögunni, það glittir í ljái og
börn innan um kornstöngla og spá-
maðurinn ísak rís úr dái. Annars
virðist ætlast til að menn hafi séð alla
súpuna því söguþráður myndarinnar
er losaralegur og almennt mjög
óskiljanlegur. Satt að segja er þetta
hin undarlegasta kvikmynd.
Heiða Jóhannsdóttir
Úr verinu
Með Skítamóral
í nýjum fötum
Nú fer að koma að því að sumarsmellunum
fer að rígna yfir þjóðina. Hljómsveitin
Skítamórall er þessa dagana í hljóðveri að
hljóðrita framlag sitt fyrir sumarið. Birgir
Örn Steinarsson, sem veit hvað „allir þessir
takkar á skrítna borðinu“ gera, heimsótti
piltana í verið.
ÞAÐ er hægt að líkja íslensku tón-
listarári við fótboltaleik. I fyrri hálf-
leik, sem er sumarvertíðin er fólk
mun afslappaðra og orkumeira. Þá
kemur út aragi’úi af tónlist sem til
þess eins er gerður að framkalla
bros á drukknum vörum ballgesta. í
seinni hálfleik, jólavertíðinni, verða
allir snælduvitlausir af stressi og að-
eins sú dýrslega frumhvöt að ryðja
keppinautum sínum úr vegi til þess
að skora mark áður en dómarinn
flautar til leiksloka ræður ríkjum.
Hljómsveitin Skítamórall hefur
verið ein af vinsælustu hljómsveitum
sumarvertíðarinnar síðastliðin þrjú
ár og verður að teljast með þeim
duglegustu. Söngmelódíur þeirra
hafa fest sig það fast inn í þjóðarsál-
ina að jafnvel hörðustu flösuþeytar-
ar hafa staðið sig að því að raula lög-
in þeirra á rölti sínu um bæinn, þótt
þeir myndu líklegast aldrei viður-
kenna það.
Tvö ný lög í sumar
Piltamir eru þessa dagana staddir
í Grjótnámunni að hljóðrita næstu
tvo slagara sem munu eflaust berg-
mála af vörum þjóðarinnar í sumar.
„Við erum að vinna í nýju um-
hverfi, með nýjum mönnum," segir
Addi Fannar, gítarleikari Skítamór-
als. „Lögin sem við erum að taka
núna upp enda á safnplötunni
„Svona er sumarið 2000“,“ sem er
þriðja platan í sumarsafnplöturöð
Skífunnar, þar sem óhagganlegir
listamenn hrista fram grípandi dæg-
urflögur úr ermavösum sínum jafnt
því sem nýjar stjörnur fæðast.
„Þetta er sumarsafnplata, og er
óvenjulega sterk þetta árið,“ segir
Addi Fannar.
Skítamóralsmenn hafa gefið út
plötu síðastliðin fjögur sumur en
hafa ákveðið þetta árið að lögin tvö,
sem enda á safnplötunni, verði þau
einu sem hljómsveitin gefur frá sér
þetta sumarið. Þeir fullyrða þó að
þeir eigi nægt efni á lager nú þegar í
tvær breiðskífur. Þeir segja að svona
geti hljómsveitin endurhlaðið batt-
eríin og komið ferskari að sumrinu
en áður. „I fyrra vorum við allt of
lengi í hljóðverinu," útskýrir Addi
Fannar. „Við vorum tæpa fjóra mán-
uði að gutla.“
„Svo vorum við líka í fullri spila-
mennsku og í vinnu líka,“ bætir Ein-
ar Ágúst við og virðist enn hálfvank-
aður eftir ævintýri sitt í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
„Þegar hlutir eru farnir að taka
Leyndardómar
brotna taktsins
Hann heitir James Allsop, hefur listamanns-
nafnið „Perfect Combination" en vinir hans
kalla hann bara Jimbo.
ÞAÐ ER nánast hægt að
tala um Breakbeat-
áhangendur sem með-
limi sértrúarsafnaðar.
Tryggðin er slík að það
gerist alltaf reglulega að
tónlistaráhugamenn fá
kalda gusu í andlitið frá
undiröldu neðanjarðar-
geirans. Það er líklegast
þessi tryggð við raftón-
list sem heldur vínyl-
plötuútgáfunni lifandi í
heiminum í dag.
í kvöld ætlar plötu-
snúðurinn James Allsop
(sem einnig er þekktur
undir listamannanafninu
Perfect Coinbination) að
sýna plötuspilarakúnstir
sínar á Thomsen. Hann
kemur frá Manchester í
Bretlandi og er einn
þeirra sem stendur að
baki „M/CR“-hreyfíng-
uimi, en hún saman-
stendur af Breakbeat og
Drum & Bass-tónlistar-
mönnum frá heimabæ
hans. Þar vinna þeir allir
undir sama hatti í þeim tilgangi að
allir geti lært hver af öðrum innstu
leyndardóma brotna taktsins.
Hann rekur einnig sitt eigið út-
gáfufyrirtæki, Freeform records,
og hefur nú þegar gefið út fjórar
smáskífur og eitt samansafn á
geislaplötu sem ber nafnið „Free-
formin: The Manchester Movement
Album vol 1“.
James kemur hingað í boði
Virkni félagsskaparins sem saman-
stendur af innsta kjarna brotna
taktsins á íslandi, þar á meðal má
finna Eldar Ástþórsson, einn helsta
trúboða safnaðarins, en hann er
einmitt annar umsjónarmaður út-
varpsþáttanna „Skýjum ofar“ sem
er á dagskrá Rásar 2 á fímmtudags-
kvöldum.
Fyrir áhugasama er vert að
benda á heimasíðu íslenskra aðdá-
enda brotna taktsins, www.break-
beat.is þar sem trúarbrögðum
þessa samheldna hóps eru gerð góð
skil.
Morgunblaðið/Kristinn
Smellsmiðirnir í Skítamóral tóku sér nokkurra mínútna pásu frá smíð-
um fyrir Ijósmyndarann.
svona mildð af manni er geðheilsan
oft í húfi,“ bætir hann við á merki-
lega sannfærandi hátt.
gífurlegur kostur að hafa tvo söngv-
ara í hljómsveitinni, t.d. ef annar
skyldi næla sér í kvef fyrir ball.
Söngvaraskipti?
Tímamót
Sú óvenjulega þróun hefur orðið í
hljómsveitinni á síðustu tveimur ár-
um að Gunnar, sem áður var einn
söngvari hljómsveitarinnar, deilir nú
sviðsljósinu með Einari Ágústi, sem
hefur verið styst í hljómsveitinni. Er
hugsanlegt að Gunnar sé að reyna
draga sig úr kastljósinu til að nýlið-
inn geti fengið meira pláss? „Við
skiptum þessu alveg jafnt á milli
okkar,“ útskýrir Einar Ágúst. „Þetta
hefði aldrei getað gerst nema með
lokasamþykki Gunna. Þetta ein-
hvemveginn æxlaðist svona. Ég hef
oft sagt og segi það enn að mér fínnst
Gunnar vera einn óeigingjarnasti
tónlistarmaður á íslandi fyrir að láta
þetta gerast.“
„Það eru tveir aðalsöngvarar í
hljómsveitinni," bætir Addi Fannar
við. „Þeir skipta t.d. þessum tveimur
nýju lögum á milli sín.“
Síðan benda þeir piltar á að það sé
Eiga aðdáendur von á einhverjum
tónlistarbeygjum með nýju lögun-
um?
„Þetta eru náttúrulega rosaleg
tímamót á ferli okkar að vinna með
Þorvaldi Bjarna,“ segir Einar Ágúst.
„Hann kemur líklega með ferskar
hugmyndir fyrir okkur þannig að við
getum núna tekið skref lengra í tón-
listinni." En skyldi vera einhver for-
múla fyrir smellsmíðum? „Það sem
kemur út úr hljómsveitinni er bara
það sem dettur út úr okkur hverju
sinni og það sem hentar okkur,“ út-
skýrir Einar Ágúst. „Við erum bara
mjög heppnir með það að ná mjög
vel saman á þessum forsendum. Við
megum ekki skipta um flokk, það
held ég að gerist alls ekki.“
„Við færum aldrei að svíkja
neinn,“ bætir Addi Fannar við. „Fólk
gengur bara að okkur eins og við er-
um.“
Nœturqatinn simi 587 6080
í kvöld leikur hljómsveitin Hafrót.
Frítt inn til miðnættis.
k,
¥
Dansleikur
Gömlo og nýju dansarnir
í Glæsibæ í kvöld, föstudaginn 19. maí, kl. 22—2.
Guðmundur Haukur og Krístbjörg Löve sjá um fjörið.
Allir velkomnir.
Danssporíð — klúbbur dansáhugafólks.
wr
SkemmtistQðurinn Bohem
Opið alla daga vikunnar frú kl. 20.
BOHE1N
Cmnsósveg 7 • Símor: 553 3311 / 896 3662
Erótískur skemmtistaður
Nú einnig opið á mánudagskvöldum.
Enginn aðgangseyrir.
msm
Grandrokk
spilar föstudags- og
laugardagskvöld. Eikin er ein frumlegasta og
kröftugasta rokksveit aldarinnar. Síðustu
tónleikar þeirra í óákveðinn tíma.
Grandrokk - þar sem hjartað slær