Morgunblaðið - 19.05.2000, Síða 70
70 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLKí FRÉTTUM
Rómanskt
hauskúpurapp!
CYPRESS HILL halda velli aðra vikuna í röð á toppi
Tónlistans og selja enn mun meira en aðrir. Þessir
rómönsku rappkóngar hafa átt hug og hjarta ís-
lenskra rappunnenda allt síðan fyrsta breiðskífa
þeirra, sem bar nafn sveitarinnar, kom út árið ■
1991. Þeir félagar Sen Dog, Mellow Man Ace, DJ
Muggs og B-Real stofnuðu fyrst saman hljómsveit
árið 1986 sem þeir kölluðu DVX en árið 1988
skiptu þeir um nafn og fóru að kalla sig Cypress
Hill. ÞaöerDJ Muggssem aðallega erábyrgurfyrir
tónlist sveitarinnar á meðan B-Real sér henni fýrir
flestum textum. Cypress Hill eru taldir hafa haft
ríkuleg áhrif á tónlistarþróunina og hefur bæði ver-
ið nefnt þvítil stuónings lágstemmt G-Fönk Dr. Dre
og hið eöalsvala trip-hopfrá Bristol í Bretlandi.
Núna er tíminn!
DÚETTINN Moloko náði alheimseyrum í fyrrasum-
ar með endurhijóðbiöndun af lagi sínu „Sing It
Back" sem var að finna á afbragðs-
skífu þeirra „I Am Not A Doctor". ''Sfcf •
Fyrsta plata þeirra „Do You Like My r4wr
Tight Sweater?”. sem kom út árið •^jaá
95 hét eftir fyrstu setningunni sem ■
söngkona sveitarinnar, Roselyn
Murphy. sagði við samstarfsmann tBK
sinn þegar þau kynntust í gleðskap. 'jgn
Á þeirri plötu vart.d. að finna hiðfrá- OK
bæra lag „Fun For Me". '
Núna mæta þau aftur til leiks og
koma sér fyrir í 26. sæti listans meö þriðju breið-
skífu sína. „Things To Make And Do". Nýjasta
smáskífulag þeirra „The Time Is Now" er greini-
lega að grípa athygli landsmanna.
Nr. ;var;vikur; ' i Diskur i Flytjandi Útgefandi i Nr.
_ i » » *1.; 1; 3 ; i Skull & Bones : Cypress Hill Sony i 1.
2. ; 5 1 5 1 ÍPIay :Moby Mute 1 2.
3.; 2! 9 ; i Pottþétt 19 jfmsir Pottþétt j 3.
4. ; 13 ; 9 ; : Hoorey For Boobies ; Bloodhound Gang Universol j 4.
5. | ís ; u : : Best Of jCesoria Evoro BMG ; 5.
6. ; 11 ; 9 ; ; Englor Alheimsins i Hilmar Örn/Sigur Rós Krúnk j 6.
7. ; 8 i 31 ; ; Distonce To Here ÍLive Universol j 7.
8. ; 3 ; 25 ; i Supernotural iSontana BMG i 8.
9. i 4 i 21 i i On How Life Is :Macy Gray Sony : 9.
10. i 9 i 3 i ; Toni Braxton :The Heat BMG :10.
íl.i 14; 3 : : Silver & Gold : Neil Young Warner ! 11.
12.: 6: 50 : Ö: Ágætis byrjun | Sigurrós Smekkleysoj 12.
13.; 18 ; 3 ; : Pottþétt Rokk 2 ; Ýmsir Pottþétt j 13.
14.; 29; 3 ; [ Jeff Buckley i Mystery White Sony j14.»
15.; 10 i 26 i ; S&M ÍMetollica Universol i 15.
16. i 7 i 32 ; i 12. ógúst 1999 ;Sólin Hans Jóns Míns Spor i 16.
17. i 27 i 3 i i No Strings Attoched ÍNSync EMI : 17.
18. i 23 i 19 i ; Slipknot : Slipknot Roadrunner: 18.
19.: 192: 1 ;H:Trilenium jSosh Edel :19.»
20.: 26; 30 : : Reload jTom Jones V2 j 20.
21.: 92 : 2i : 1 Söknuður: Minning um Vilhjólm Vifhjólmss.; Ýmsit Skífan ■ 21.
22.; i6: 28: • Human Clay ;Creed Sony j 22.
23.; 35; 1 ; ; System Of A Down ; System Of ADown Sony i 23.
24.i 36; 1 ; i Return Of Saturn ÍNo Doubf Universal ; 24.
25.i 37; 1 i i Next Friday : Úr kvikmynd EMI 125.
«26.: : 1 ÍNÍ Things To Make & Do : Moloko Roodrunner: 26.
27.: 17:39: : Significant Other jlimp Bizkit Universal j 27.
28. 25! 13 i : Writings On The Wall j Destinys Child Sony j 28.
29.: 12: ii : > Vonda Shepard jAlly McBeal II Sony j 29.
30.: 2i; n : ; Aguarius ; Aqua jUniversall j 30.
í Tónlistonum eru
Tóníisfinn ei unninn
eru
Bókvoi Akureyri, Bónus, Hogkoup, Jopís Brautorholli,
— og Myndir Austurstræti, Músik og Myndir Mjódd.Somfónlis! Kringlunni, Skífon Kringlunni,
isonwinnu
t,Músík
ú 26.
Þýskt
skautahallarpartí!
ÞÝSKA stuðteknósveitin Sash!
samanstendur af þremur stuö-
boltum; Sascha Lappessen,
Thomas Alison og Ralf Kapp-
meier, en einhverra hluta
vegna er hinn fyrstnefndi eina
andlit sveitarinnar. Síðan
1993 hefur Sash! átt fjöldan
allan af partísmellum sem
lokkað hafa heimsbyggóina
út á dansgólfió og nægir þar
aö nefna hiö eitilhressa
„Ecuador". Sash! verður í
öndvegi heljarinnargieði í
Skautahöllinni 11. júní sem er liður í Tónlistar-
hátíöinni í Reykjavík. Nýjasta breiðskífa sveitar-
innar „Trilenium", sem inniheldurm.a. smellinn
„Adelante" er hástökkvari vikunnar og dans-
þyrstir landsmenn greinilega farnir að koma sér
í réttu stellingarnar.
Lifandi englarödd!
MYSTERY WHITE BOY
sem innheldur safn
tónleikaupptakna með
Jeff heitnum Buckley
þeysist upp listann
þessa vikuna. Buckley
virðist ætla að falla í
flokk þeirra listamanna
sem náð hafa meiri hylli
fólks liðnir en lífs því allt
of fáir höfðu uppgötvað
einstaka hæfileika hans
þegar hann féll sviplega
frá árið 1997 liðlega þrít-
ugur að árum. Þaö var
móðir Buckleys Mary Gui-
bert sem safnaöi hljóöritununum, sem gerðar
voru á árunum 1994-96, saman með dyggri að-
stoð hljómsveitar hans, einkum þó gítarleikar-
ans Michael Tighe. Haföi Guibert að leiöarljósi
að leiða saman öll bestu augnablik sonar síns á
sviöinu og mynda úr þeim verðugan minnisvaröa
um ógleymanlegan listamann.
ERLENDAR
oooooo
Vilhelm Anton Jónsson,
liðsmaður hljómsveitarinnar
200.000 naglbíta, skrifar um
Enema of the State, breiðskífu
Blink 182.
Drykkur með
blárri froðu og
regnhlífum
SÓL, SANDUR, nærbuxur, tattú og
grænn drykkur með blárri froðu og
regnhlífum og fín veisla. Hér er í
raun allt komið fram af minni hálfu
‘og það sem á eftir kemur skylduupp-
fylling.
Hljómsveitin Blink 182 var án efa
stofnuð í Bandaríkjum Norður-Am-
eríku á ofanverðri 20. öld. Meðlimir
eru þrír, sem hefur oft gefist vel (sjá
t.d. Cream) og spila á þessi venjulegu
hljóðfæri, bassa, gítar og trommur.
Mark Hoppus leikur á bassa og syng-
ur, Tom DeLonge leikar á gítar og
syngur og á trommur leikur Travis
nokkur Barker og er það vel. Ailar
nánari upplýsingar um þá félaga er
hægt að nálgast á heimasíðu Blink,
^ wmv.blinkl82.com.
"" I fyrsta lagi; Flott að diskurinn er
líka CD-ROM, boðið er uppá stutt
myndband og fullt af einhverju dóti
sem menn geta dundað sér við að
skoða í tölvunni sinni.
Forsíðuna prýðir hin barmmikla
Janine sem hefur, eftir heimildum
undirritaðs, getið sér gott orð fyrir
^^[eik í erótískum kvikmyndum og
þykir af sumum vera fremst meðal
jafningja.
Við fyrstu hlustun rann diskurinn
átakalaust í gegn að mig minnir. Það
eru nokkur flott Kalíforníunörda-
rokklög sem eru alveg tilvalin í bílinn
(búi menn svo vel að vera með tæki
og tól til tónlistameyslu þar) eða út á
svalir í stuttermaskyrtu og þannig
dóti.
Við seinni hlustanir kemur hann
skemmtilega á óvart. Tónlistin er gít-
arsúpa þar sem hausarnir á söngvur-
unum fljóta ofan á eins og ólífur. Það
er mikið af röddunum sem gera súp-
una rjómalagaða og gefa henni aukna
vídd, ef svo má að orði komast. Þegar
ég er að skrifa þetta get ég ekki hætt
að hugsa um sand og seglbretti, nú
eða steypu og hjólabretti. Grænn
drykkur með blárri glimmerfroðu er
enn að trufla mig svínslega.
Hvernig reyndist diskurinn við
ákveðnar aðstæður?
Með morgunnmat: Mjög vel, sem
kom nett á óvart. Það er mjög gott að
vakna við hann með Cheerios og
kaffi. Sennilega er það krafturinn og
raddirnar sem gera þetta, annars
veit ég það sosum ekki. Gott með
mopgunnmat.
A leiðinni í skólann; Fínt. Enda
virkar flest á leiðinni í skólann og það
er svo kalt að manni er skítsama.
Með hádegismatnum: Nú verð ég
að viðurkenna að ég kann að hafa
hlaupið á mig og hef e.t.v. hlustað ful-
loft á hann með litlu sem engu milli-
bili. Þetta jaðrar við einhverja veiki
reikna ég með. Eg tek mér frí í há-
deginu.
Heima með sjónvarpinu: Furðuvel
til að byrja með en svo verður barátt-
an fljótlega vonlaus þegar Logi
Bergmann kemur á skjáinn. Logi
sogar mann einfaldlega að skjánum
og Blink bíður lægri hlut og ég slekk
á þeim til auka ekki á þjáningar
þeirra.
í bíl á leið í veislu: Svínslega við-
eigandi. Hér er diskurinn á heima-
velli. Fjórir strákar í bíl að drekka
gos og borða popp. Tónlistin er frá-
bær til að þegja og hlusta á, a.m.k.
flest lögin og svo er hún sannarlega
vel til þess fallin að fara með hlutverk
bakgrunns undir háværu tali um fót-
bolta og þannig...
Þéttur hljómur, kraft-
ur og keyrsla sem og
skemmtilegar radd-
aðar laglínur gera
einkar gott mót. Eiga
ótrúlega vel við ljós-
astaurana sem þjóta
hjá... „AU the small
things. True care,
truth brings, ITl stak-
el forthreift bester
sentre ... Na Na Na-
!“eða þannig. Sem
sagt gott.
I veislunni: Það er
ekki hægt að segja að
menn hafi sett hljóða
þegar Blink voru sett-
ir í spilarann. Það er
mjög gaman að öllum
virðist vera sama
hvaða tónlist er spiluð
í veislum og enginn
nennir að koma með
þá tónlist sem honum eða henni þyk-
ir vænst um. Um leið og eitthvað er
sett á sem er ekki algerlega smurt og
allir þekkja verður allt ömurlegt og
allir með stæla og einhverja vitleysu.
Spilaðu Red Hot, nei Metallica, nei
Dj Mutherfucker And The Clan. Nei
Napalm Death eða ég er farinn út.
Farðu þá út aumingi. Hvað kallarðu
mig? Viðbjóður. Drullist báðir út.
Strákar! Spilum Blink. Vilt þú líka
fara út? Nei nei Britney er fín, áttu
kók? Já ég er að meina það ég er ekki
að grínast í þér, ég færi aldrei að fífla
þig...
Blink virkar samt alveg í veislum.
Heima eftir veisluna: Uppí rúm og
Blink í geislaspilarann. Já, já gott,
skemmtileg flétta hér. Nú og hér fer
allt að snúast. Jú það er ekki um að
villast ég snýst bæði um x-ás og y-ás
þá er mál að slökkva á allri tónlist og
toga sængina upp fyrir haus og vona.
Góða nótt.
Diskurinn er mjög fínn, alveg til-
valinn. Mikill kraftur, flottar laglín-
ur, mikill gítar, flott stelpa framan á,
flott tattú. Ég myndi kaupa hann ef
ég hefði ekki fengið hann fyrir að
skrifa þennan plötudóm.
Purpura-
popp
TÓNLISTARMAÐURINN Prince
hefur meira verið í fréttum vegna
nafns síns heldur en tónlistar und-
anfarið. Á tímabili kallaði hann sig
„Táknið" en hefur nú aftur tekið
upp nafið Prince. En eitt sinn var
það tónlistin hans sem vakti mesta
athygli fólks og var þá platan
Purple Rain og samnefnd kvik-
mynd í hávegum höfð.
En frést hefur að uppi séu áform
um að gera skopstælingu á
metsölucmyndinni „Purple Rain“
sem kom tónlistarmanninum
Prince almennilega á kortið árið
1984. Nýja myndin mun bera nafnið
„Velvet Hail“ eða flauelshaglél og
segir frá miðaldra rokkstjörnu sem
lifir á forni frægð þó stjarna hans
hafi löngu dofnað. Myndin vcrður
líkt og Purpuraregnið söng- og
dansamynd. Leikstjóri Haglsins
hefur óskaleikara í huga fyrir aðal-
hlutverkið og er það hinn þraut-
reyndi gamanleikari Chris Rock
sem sást nú síðast í hlutverki þrett-
ánda postula Krists í mynd Kevin
Smith
„Dogma".
Popp-
arinn
Prince.
Reuters