Morgunblaðið - 19.05.2000, Síða 72
72 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Kvikmyndahátíðin í Cannes
Rödd Bjarkar
Dancer in the Dark fékk almennt lofsam-
lega dóma eftir frumsýninguna í fyrrakvöld
og Björk þykir vinna leiksigur. Pétur
Blöndal, sem staddur er í hringiðunni í
Cannes, skoðar gagnrýni á myndina.
„STJARNA er fædd“ er umsögnin
um Björk í frönsku dagblaði og
grunntónninn í flestum dómum um
myndina Dancer in the Dark, sem
frumsýnd var í fyrrakvöld á kvik-
myndahátíðinni í Cannes. Gagnrýn-
endur skiptast þó í tvö horn um gæði
myndarinnar og það virðist veggur á
milli þeirra, því ýmist rífa þeir hana
niður eða hefja upp til skýjanna.
Það er athyglisvert að renna yfír
dóma í frönskum fjölmiðlum. Þegar
dómar frá fímmtán gagnrýnendum
eru skoðaðir hafa þeir gefið þeim
fimmtán keppnismyndum, sem
sýndar hafa verið fram til þessa, alls
sextán sinnum fulit hús stiga. Oftast
Jiefur það komið í hlut myndarinnar
„Yi Yi“ eða fjórum sinnum. Það segir
meira en mörg orð að Dancer in the
Dark fékk fullt hús stiga hjá ellefu af
þessum fimmtán gagnrýnendum.
Spenna í aðalkeppninni
Dómarnir eru misjafnari þegar lit-
ið er til annarra fjölmiðla. Danir
halda vart vatni yfir myndinni og fær
hún fullt hús stiga hjá Politiken, Bo
Green Jensen hjá Weekend Avisen
og flestum öðrum fjölmiðlum. It-
alska blaðið La Republica og Diario
,ABC frá Spáni gefa henni einnig
fullt hús stiga. Gagnrýnandinn Der-
ek Malcolm hjá Guardian fer varleg-
ar í sakirnar og gefur henni mið-
lungsdóma.
í kvikmyndatímaritinu Screen er
þessi söngvamynd Triers sögð fyrst
til að skapa spennu og eftirvæntingu
í aðalkeppninni og sagt er frá því í
Moving Pictures að lögreglan hafi
verið kölluð að hátíðarhöllinni til
þess að halda aftur af markaðsfólki,
sem ekki fékk aðgang að myndinni
þrátt fyrir að vera með miða. Var sú
ákvörðun tekin að blaðamenn hefðu
forgang, þar sem ljóst væri að fullt
yrði á sýninguna, og var baulað á þá
þegar þeir gengu upp dregilinn í
höllina.
Þegar Ijóst varð að ekkert af fólk-
inu sem beið eftir aðgangi kæmist
inn reyndu öryggisverðir að ýta því
frá aðaldyrunum og upphófst mikill
troðningur, enda þrjú hundruð
manns sem biðu í röðinni og voru
ekkert á því að láta vísa sér frá. Mov-
ing Pictures hefur eftir „sjóuðum"
hátíðargesti um myndina: „Þetta er
ekki meistaraverkið sem við biðum
eftir, en hún vinnur líklega gullpálm-
ann.“
Við altari söngleikja
í Hollywood
Dómurinn um myndina í blaðinu
Screen er lofsverður og er henni sagt
svipa til Brimbrots Triers.
„í stað raddar Guðs krýpur Selma
[sem leikin er af Björk] við altari
söngleikja í Hollywood og leitar at-
hvarfs í gildum þeiiTa,“ segir í dómn-
um. Því til stuðnings segir Selma á
einum stað í myndinni: „Það gerist
aldrei neitt hræðilegt í söngleikjum."
En gagnrýnandinn Allan Hunter
heldur áfram: „Opinberun myndar-
innar er án efa frumraun söngfugls-
ins Bjarkar, sem virðist vaxa ásmeg-
in í tignarleika og dýpt, eftir því sem
líður á myndina." Ennfremur segir:
„Þótt hún sé stundum dálítið vand-
ræðaleg á það vel við persónuna. Síð-
ar sýnir hún fram á að hún er fullfær
um að standa undir hinum miklu
kröfum sem gerðar eru til hennar.
Hún er að öllu leyti jafn góð og [Em-
ily] Watson var í framúrskarandi
frumraun sinni í Brimbroti.“ Watson
var sem kunnugt er tilnefnd til Osk-
arsverðlauna fyrir frammistöðu sína
í þeirri áhrifaríku mynd Triers.
Gagnrýnendur
skiptast í tvö horn
En gagnrýnendur skiptast eins og
áður segir í tvö horn, og það er Der-
ek Elley frá Variety, sem tekur sér
sæti í skammakróknum. Hann rakk-
ar niður flesta þætti myndarinnar og
spáir því að hún að muni valda von-
brigðum hvað aðsókn varðar, þótt
„[myndin] virðist til þess fallin að
eignast einhverja aðdáendur, og
gæti aflað tekna með snjallri mark-
aðssetningu, sem snýst um aðalleik-
konuna, íslensku söngkonuna
Björk...“ Það sem helst er gagnrýnt
er myndatakan, en Trier notast við
handheldar upptökuvélar, eins og í
Laugavegi 54 - sími 552 5201
Kvartbuxur
3.990
Bolir
990
Jakkar
4.990
Anorakkar
3.990
Litir: Svart, dökkblát
Stærðir: S,M,L,XL
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Kjóll Bjarkar vakti mikla athylgi og fór kliður um áhorfendur er hún
mætti til frumsýniningar Dancer in the Dark í fyrradag. Sá sem á heið-
urinn af kjólnum heitir Marjan Plejoski og er frá Makedóníu.
undanförnum myndum sínum. Auk
þess þykir Catherine Deneuve ekki
trúverðug í hlutverki verkakonu.
„Frammistaða Bjarkar er á stund-
um hrífandi, en oftast vandræðaleg,“
segir í dómnum og ennfremur að dá-
lítið vanti hjá henni upp á leiklistar-
gáfuna, sem Emily Watson notaði
sér í Brimbroti. Þessi dómur er þó
undantekning, svo mjög að það er
umtalað, og þegar allt kemur til alls
er ljóst að Trier hefur farið með sig-
ur af hólmi í Cannes, hvort sem
gullpálminn fellur honum í skaut eð-
ur ei. Hver reynist sannspár að lok-
um verður tíminn að leiða í Ijós.
Framlag Islendinga
til kvikmyndagerð-
ar í sviðsljósinu
FRÍÐRIK1HÖR
FRiÐRÍKSSÖN
"WUeH IWAS 6R0WING UP
fHfHfc WflS *ö UiHHÍA HER£,
THLRE WAS N5THIH6 70
speak about. sir mi ik
HFE WflS Tð CREflTE
SOMEiHtNGWHICH C0UL0 8E
cjoiEo iDEiflNBic cimémt
BpoKS-ta nk | n
Fjallað er um Friðrik Þór í nýjasta tölublaði
Dazed and Confused.
ÍSLENDINGAR eru
áberandi í nýjasta tölu-
blaði breska tímarits-
ins Dazed and Confus-
ed. Söng- og leikkonan
Björk er þar í aðahlut-
verki; prýðir forsíðu
blaðsins sem einnig
inniheldur langt viðtal
við hana. Þar segir hún
m.a. frá vinnunni við
kvikmyndina Dancer in
the Dark sem frum-
sýnd var á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes í vik-
unni.
Á öðrum stað í blað-
inu er viðtal við tónlist-
armanninn Damon Al-
barn þar sem hann
fjallar um kvikmyndina
101 Reykjavík en hann
semur tónlistina í
myndinni.
En það eru fleiri ís-
lendingar en Björk sem
vekja áhuga blaðsins og
er leikstjórinn Friðrik
Þór Friðriksson þar í
stóru hlutverki. Dazed
and Confused valdi, í
samstarfi við upplýsingvefinn Up-
rush, átta evrópska leikstjóra sem að
þeirra mati hafa helst gert evrópska
kvikmyndagerð að því sem hún er í
dag. í grein í blaðinu er Friðriki Þór
skipað í hóp goðsagna á borð við Ital-
ann Bernardo Bertolucci, Bretann
Mike Leigh, ÞjóðveijansWim Wend-
ers, Júgóslavann Emir Kusturica,
Peter Greenway, Pólverjann Roman
Polanski og Bretann Ken Loach. í
grein um Friðrik í blaðinu er honum
lýst sem guðföður íslenskrar kvik-
myndagerðar, sem fyrstum manna
tókst að festa á filmu „fegurð, menn-
ingu og önnur sérkenni íslands". Þá
er viðtal við Friðrik þar sem hann
m.a. lýsir áhrifum Islendingasagna á
kvikmyndagerð, bæði sína eigin og á
alheimsvísu.
MYNPBOND
Bragðlaus
tugga
Óvinur óvinar míns
(Enemy of My Enemy)
S p e n n ií in y n (I
Leikstjóri: Gustavo Graef-Marino.
Handrit: Mark Amin og Robert
Boris. Aðalhlutverk: Peter Weller,
Daryl Hannah og Tom Berenger.
(90 mín.) Bandaríkin, 1999. Sam-
myndbönd. Bönnuð innan 16 ára.
ÓVINUR óvinar míns er ein af
þessum spennumyndum sem gleym-
ast manni um leið og þær hafa lokið
sér af. Allt sem í
henni er hefur sést
ótal sinnum og
ekki vottar íyrir
ferskum fleti. Sem
sagt „pólitísk“
njósnamynd sem
gerir serbneska
hryðjuverkamenn
að vonda kallinum
og fléttar leifum úr kalda stríðinu
inn í söguþráðinn. Það er hins vegar
ekkert út á myndina að setja sem
slíka, ekkert er áberandi illa gert og
leikarar fara með sína rullu sam-
viskusamlega. Einhvern veginn hef-
ur leikkonan Daryl Hannah hafnað
þeÚTa á meðal. Nafn hennar og and-
lit utan á kápunni eiga eflaust eftir
að snapa myndinni nokkra áhorfend-
ur. Annars er þetta bragðlaus tugga
sem ekki er tímans virði.
Heiða Jóhannsdóttir
Reuters
Leikkonan Shirley MacLaine
hefur Ieyst frá skjóðunni.
MacLaine í
ástarsambandi
við Palme o g
Karl mikla
BANDARÍSKA leikkonan Shirley
MacLaine sagði í sjónvarpsviðtali að
hún hefði átt í ástarsambandi við 01-
of Palme, fyrrverandi forsætisráð-
herra Svía, og einnig við Karl mikla
Frankakonung.
Þetta kom fram í viðtali við
MacLaine í bandaríska fréttaþættin-
um 60 Minutes, en sagt er frá því í
netútgáfu sænska dagblaðsins Aft-
onbladet.
Frásögn hennar af sambandinu
við Olof Palme forsætisráðhen’a,
sem var myrtur í Stokkhólmi árið
1986, hefur ekki verið dregin í efa, en
skiptar skoðanir eru um hvort þau
Karl mikli hafi eytt mörgum stund-
um saman. Karl mikli var uppi á ár-
unum 742-814. MacLaine. segir að
hún hafi hitt Karl í fyrra lífi þegar
hún var í pílagrímsferð á Norður-
Spáni. Olof Palme segir hún að hafi
verið Karl mikli endurfæddur.
MacLaine vildi ekki segja hvenær
hún hefði átt í sambandi við Palme,
en sagði þó að það hefði verið í for-
sætisráðherratíð hans.
Leikkonan sagðist í viðtalinu gera
sér grein fyrir að mörgum þætti hún
skrýtin vegna trúar hennar á endur-
holdgun og þess að hún segðist vera í
sambandi við geimverur.