Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jim Smart Sr. Karl Sigurbjörnsson, biskup Islands, predikaði við vígslumessuna. Grafarvogskirkja vígð á sunnudag Þjónar stærsta og1 yngsta söfnuði landsins GRAFARVOGSKIRKJA var vígð á sunnudag að viðstöddu fjölmenni, en kirkjan er næststærsta kirkja íslands og þjónar íjölmennustu sókninni. Sr. Karl Sigurbjömsson, biskup Islands, vígði kirkjuna og predikaði við vígslu- messu en sr. Vigfus Þór Amason, sóknarprestur við Grafarvogspresta- kall, þjónaði fyrir altari. I predikun sinni óskaði sr. Karl söfnuðinum til hamingju með þennan góða áfanga. „Það eru hin mörgu handtök hinna ótal mörgu, handtök stór og smá, það er örlæti og góðvild, fómfysi og sam- staða hinna mörgu, sem hér hefur unnið svo vel að verki. Guð gefi að það verði til blessunar Grafarvogssókn og borgarbúum öllum,“ sagði sr. Karl. Davíð Oddsson forsætisráðherra afhenti kirkjunni glerlistaverk eftir Leif Breiðfjörð, altarisglugga sem jafnframt er altaristafla og sýnir kristnitökuna á íslandi árið 1000. Listaverkið er gjöf ríkisstjómar Is- lands til Grafarvogskirkj u og er gjöf- in sérstaklega tileinkuð æskunni í landinu, en í Grafarvogi er fjölmenn- asta barnasókn landsins, þar sem rúmlega 7.000 sóknarbama eru yngri en 16 ára. Við athöfnina var fluttur vígslu- sálmur eftir sr. Sigurbjöm Einarsson biskup. Sr. Sigurbjöm orti sálminn sérstaklega af þessu tilefni og færði Grafarvogsbúum að gjöf. Sálmurinn var fluttur við lag Þorkels Sigur- bjömssonar tónskálds og sonar Sig- urbjöms. Siglingakeppnin milli Paimpol og Reykjavíkur Besta hafði for- ystu á öðr- um degi SIGLINGAKEPPNIN milli Paimpol og Reykjavíkur hófst klukk- an 11.00 um morguninn á sunnudag er Sigríður Snævarr, sendiherra ís- lands í Frakklandi, ræsti skúturnar 13, sem taka þátt í kappsiglingunni. Meira en 150 bátar fylgdu skútunum úr höfn og fjöldi fólks fylgdist með fyrsta sprettinn. Veðrið var með all- ra besta móti, heiður himinn, 27 stiga hita og 15 til 20 hnúta vindur af austri. Um er að ræða 1.330 mílna leið og er reiknað með 7-13 daga siglingar- tíma. Er leiðin sú sama og frönsku góletturnar fóru á ámnum 1852-1935 en þær vora síðan að veiðum á Islan- dsmiðum í sex mánuði eða frá því í febrúar og fram á haust. Skútan Besta með íslenskri áhöfn náði forystu á innan við hálftíma en hún var nr. 11 í röðinni út. í íslensku áhöfninni era okkar reyndustu sigl- ingakappar í þremur liðum, sem skiptast á um að standa fjögurra tíma vaktir. Skipstjóri er Baldvin Björgvinsson. Tveir nýgræðingar era þó í hópnum, þau Böðvar Frið- riksson og Linda Björk Ólafsdóttir. Böðvar kemur inn sem styrktaraðili en Linda hefur frá áramótum verið með skipverja í ströngum þrekæf- ingum, enda útheimtir sigling yfir Atlantshafið mikið úthald. Það var ekki vandræðalaust að fá hentuga skútu leigða eða keypta til keppninnar og vannst áhöfninni ekki tími til reynslusiglingar á þessari skútu sem þau leigja frá Paimpol. Þau era þó hvergi bangin og era staðráðin í að ná markinu á vikutíma og verður þá hægt að taka á móti þeim í Reykjavíkurhöfn 25. júní nk. A hádegi 19. júní var Besta enn með forystuna og vora þau þá á sigl- ingu suður af Irlandi í góðum byr. Aðrar áhafnir era að mestu leyti skipaðar Frökkum fyrir utan eina skútu frá Belgíu. Tveir franskir sjó- menn frá Paimpol, sem komnir era á eftirlaun, era í einni áhöfninni. Þeir voru á togara við íslandsstrendur á sjöunda áratugnum og telja sig hafa góða möguleika á sigri þar sem þeir þekki siglingaleiðina mjög vel. Mikil viðhöfn var í Paimpol vegna keppninnar, fjölbreytt dagskrá var skipulögð síðustu dagana og má því segja að bærinn hafi verið undir- lagður. íslenska áhöfnin segir, að bæjarbúar hafi verið þeim einstak- lega hjálpsamir og greinilegt sé að þeir finni fyrir sterkum vináttu- tengslum við Islendinga enda er saga bæjarins samofin veiðum við Island. Allur undirbúningur keppninnar og viðtökur hafa gengið vonum fram- ar og verður því unnið að því að gera siglingakeppni frá Paimpol til Reykjavíkur að árlegum viðburði. Islenska áhöfnin er með heimasíðu www.besta.is þar sem hægt verður að fylgjast með ferð hennar yfir haf- ið. Meiri líkur en minni á allstórum skjálfta RAGNAR Stefánsson jarðeðlisfræð- ingur telur meiri líkur en minni á að allstór jarðskjálfti gæti orðið vestur af upptökunum 17. júní og allt vestur um Bláfjöll eða Brennisteinsfjöll, þótt ekki sé hægt að segja um þetta með neinni vissu. Líklegast er að slíkir skjálftar verði minni en skjálft- inn 17. júní. Hann segir að vísinda- menn hafi lengi granað að upphafs- staður næsta stóra skjálfta á Suðurlandi yrði í Holtunum og byggðist það mat m.a. á því að frá sögulegum tíma hafi vantað skjálfta þama og auk þess hafi í mörg ár ver- ið örsmáir skjálftar á þessu svæði. Hann segir að nokkur önnur slík svæði séu á sama hátt gransamlegri en önnur og að þeim beini jarðvís- indamenn augum núna, og þá er átt við svæðið allt frá Skeiðum og vestur um Bláfjöll og Brennisteinsfjöll. Spenna vestur af skjálftasprungunni Ragnar segir að nú verði vart margra smáskjálfta víða á þessu svæði sem gefi til kynna að spenna hefur vaxið. Aðallega eigi þetta við um svæðið vestur af skjálftasprang- unni en einnig séu eftirskjálftar á skjálftasprangunni sjálfri. Þeir skjálftar sem era meira til vesturs, eða frá Skeiðum og vestur fyrir Kleif- arvatn og norður í Biskupstungur og Haukadal, gefa hins vegar til kynna mikla spennu á þessum slóðum og meiri en venjulega. „Við reynum að skilgreina þá staði þar sem era mestar líkur á að eitt- hvað stærra muni gerast, svo hægt verði að veita viðvaranir, sem þó er í sjálfú sér ekki hægt að lofa að hægt verði að efna. En það er líklegra en ekki að það verði annar skjálfti nokk- uð stór vestur af upptökum skjálft- ans 17. júní. Líklegast er þó að hann verði minni en fyrsti skjálftinn en samt það stór að nauðsynlegt er að hafa varann á. Slíks skjálfta með upptök í Bláfjöllum eða Brenni- steinsfjöllum myndi gæta mikið á höfuðborgarsvæðinu. Skjálfta upp á 6 til 6,5 myndi gæta nokkuð sterklega á höfuðborgarsvæðinu öllu og mun meira en skjálftinn 17. júní gerði.“ Ragnar segir að 1929 hafi orðið jarðskjálfti skammt vestan við Blá- fjöll sem talinn er hafa verið 6,3 stig og ekki hafi orðið teljanlegt tjón af honum í Reykjavík. Ahrifin gætu orðið önnur núna þar sem byggð hafi breiðst mikið út á þessum tíma. „Öll hús á þessu svæði eiga hins vegar að vera byggð í samræmi við byggingar- staðla þar sem gert er ráð fyrir því að jarðskjálftar af stærðinni 6,5 geti orðið á þéssum slóðum," segir Ragn- ar. Hann telur litlar líkúr á því að hús hrynji við slíka skjálfta en meiri líkur séu á því að þungir hlutir og innan- stokksmunir færist úr stað og geti slasað fólk. Ragnar segir að ekki hafi tekist að greina neina forboða á undan skjálft- unum en núna sé unnið að því að finna í gögnum hugsanlega forboða og greina þá til þess að nýta þá við síðari skjálfta. Það sé ekki síst á þessu sviði sem menn dragi lærdóm af skjálftanum 17. júní. Þjónusta númer eitt! Til sölu Audi A3 ambition nýskráður 0701.2000 ekinn 5.000 3 dyra 5 gíra sóllúga 16 tommu álfelgur spoiler og fl. ásett verð 1.950.000- Nánari upplýsingar hjá Bfla- þingi Heklu, sími 569 5500. Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-18 laugardagar kl. 12-16 BÍLAÞING HEKLU Nume-r e-iH~ > nofv<?v/Y> bílvml Laugavegi 174,105 Reykjavlk, slmi 569-5500 Morgunblaðið/Jim Smart Davíð Oddsson, forsætisráðherra Islands, og Brian Tobin, forsætisráð- herra Nýfundnalands, kveðja íslending. S Islendingur kvaddur VÍKIN GASKIPIÐ íslending- ur sigldi úr Reykjavíkur- höfn síðdegisþann 17. júní. Þar með hófst ferð skipsins til Kanada og Banda- ríkjanna í kjölfar Leifs heppna. Mikill mannfjöldi var við höfnina til að kveðja áhöfnina, sem verður um fimm mánuði í siglingunni. Brian Tobin, for- sætisráðherra Nýfundna- lands og Labrador, sagðist, ekki hafa áhyggjur af því að von væri á víkingum til Kan- ada. „Miðað við þann góða árangur sem afkomendur víkinganna, sem settust að á íslandi, hafa náð í fiskveiði- stjórnun mætti hugsa sér að ástand fiskistofna væri betra við Nýfundnaland hefðu víkingamar haldið þar áfram búsetu,“ sagði Tobin sem afhenti Gunnari Marel Eggertssyni skipstjóra Islendings leiðarbók. Davíð Oddsson for- Morgunblaðið/Bryiyar Gauti Islcndingur fékk góðan byr í upphafi ferðar. sætisráðherra Iét Gunnar Marel fá jaspísstein en nýlega var sýnt fram á að jaspíssteinar sem vom notaðir til að tendra eld í L’Anse aux Mead- ows á Nýfundnalandi komu frá vesturhluta íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.