Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jim Smart
Vélbátaábyrgðar-
félag ísfirðinga
Sjóvá-Al-
mennar
taka að sér
reksturinn
GERT hefur verið samkomulag
um að Sjóvá-Almennar trygg-
ingar hf. taki að sér rekstur Vél-
bátaábyrgðarfélags Isíirðinga
til ársloka 2000. Vélbáta-
ábyrgðarfélagið hefur átt við
erfiðleika í rekstri að stríða og
er samkomulagið gert til þess
að tryggja hag hinna vátryggðu.
Samkomulagið felur meðal
annars í sér að Sjóvá-Almennar
taka í sínar hendur allan dag-
legan rekstur Vélbátaábyrgðar-
félagsins, þar með talda fjár-
málaumsjón og mat og uppgjör
tjóna ásamt umsjón með bók-
haldi.
Jafnframt munu Sjóvá-Al-
mennar yfirtaka vátrygginga-
stofn félagsins og fer sú ráðstöf-
un fram í fullu samráði við
Fjármálaeftirlitið en að öðru
leyti samkvæmt lögum nr. 60/
1994 um vátryggingastarfsemi,
að þvf er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá Sjóvá-Almennum
ti-yggingum hf.
Sigurður Sigurkarlsson fjár-
málastjóri Sjóvár-Almennra
hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Vélbátaábyrgð-
arfélags ísafjarðar á því tíma-
bili sem Sjóvá-Almennar annast
rekstur þess.
Mats Runström frá höfuðstöðvum Gateway í Svíþjóð og Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtak-
anna, handsala samninginn. Við hlið þeirra situr Olafur W. Hand, sölusljóri hjá Aco, og fyrir aftan Jón Baldur Lor-
enz, forstöðumaður tölvusviðs Bændasamtakanna, og Baldvin Jónsson, verkefnisstjóri átaksins Aform.
Gateway, Aco og Bændasamtökin gera samning um netvæðingu
„Færum heiminn
lieim í hlað“
„FÆRUM heiminn heim í hlað“ er
heiti átaks til að auka notkun ís-
lenskra bænda á tölvum og Netinu.
Bændasamtökin hafa gert samning
við tölvuframleiðandann Gateway á
Norðurlöndunum og Aco, umboðsað-
ila Gateway á íslandi, um að íslensk-
ir bændur fái verulegan afslátt af
fullkomnum margmiðlunartölvum.
Ólafur W. Hand, sölustjóri hjá
Aco, segir í samtali við Morgunblaðið
að markmiðið sé að selja íslenskum
bændum þúsund tölvur næsta árið.
Aco var söluhæsti dreifingaraðili
Gateway í Evrópu á síðasta ári, að
sögn Ólafs. í kjölfarið höfðu for-
svarsmenn Gateway á Norðurlönd-
unum samband við Aco í þeim til-
gangi að koma á samningi við
íslenska bændur, en Gateway var
einmitt stofnað af bændasonum í
Bandaríkjunum. í samningnum felst
að íslenskum bændum verður veittur
u.þ.b. 30% afsláttur af margmiðlun-
artölvum frá Gateway þannig að
tölva sem venjulega kostar um 190
þúsund krónur verður boðin bænd-
um á 130-140 þúsund krónur, að sögn
Ólafs.
í samningnum felst ennfremur að
Gateway mun stofna sjóð sem bænd-
ur geta sótt um styrki úr til ýmiskon-
ar tölvuverkefna, einfaldra og flók-
inna, auk námsstyrkja. Sjóðurinn er
15 þúsund bandaríkjadalir að stærð
eða um 1.100 þúsund íslenskar krón-
ur, og verður rekinn til þriggja ára til
að byrja með, að sögn Olafs. Á
hverju ári verða valdar nokkrar hug-
myndir til að þróa frekar.
í samtali við Morgunblaðið segir
Baldvin Jónsson, verkefnisstjóri hjá
Bændasamtökunum, að kynning
samningsins meðal bænda fari nú í
hönd. Hann segir íslenska bændur
mjög framsýna og muni vafalaust
taka tilboðinu vel. Hann segir samn-
inginn hluta af því að alþjóðavæð
aumhverfi bænda á Islandi.
Að sögn Baldvins verður í fram-
haldinu opnuð vefsíða sem mun ein-
falda boðleiðir á milli bænda. „Það er
spennandi að Gateway skuli velja ís-
lenska bændur til samstarfs í þessu
tilraunaverkefni. Það er víðar dreif-
býli en á íslandi og þetta tilrauna-
verkefni, sem verður lögð mikil rækt
við, mun áreiðanlega nýtast Gateway
á öðrum mörkuðum. Það gefur þessu
ákveðið gildi,“ segir Baldvin.
Að sögn Ólafs W. Hand er tilgang-
ur verkefnisins „Færum heiminn
heim í hlað“ að gera íbúum sveita-
bæja kleift að njóta sömu möguleika
og íbúar þéttbýlis, að auka notkun ís-
lenskra bænda á Netinu, minnka ein-
angrun á afskekktum stöðum og auð-
velda bændum aðgang að nýjustu
fréttum og ýmsum upplýsingum.
Íslandssími í
samstarf við
Global One
ÍSLANDSSÍMI hefur gengið frá
samningi við fjarskiptafyrirtækið
Global One, dótturfyrirtæki France
Telecom. Með samningum getur ís-
landssími boðið viðskiptavinum sín-
um upp á gagnaflutning á kerfi
Global One víða um heim.
í fréttatilkynningu kemur fram að
viðskiptavinum Islandssíma á ferða-
lögum verði gert auðveldara að kom-
ast í netsamband og inn á staðarnet
fyrirtækja sinna. Global One var áð-
ur samstarfsvettvangur Deutsche
Telecom, France Telecom og Sprint.
Þar voru félögin með sínar langlínur
og línukerfi fyrir fyrirtæki. France
Telecom hefur nú keypt DT og
Sprint út úr fyrirtækinu fyrir 400
milljarða íslenskra króna.
Með þessum samningi verður Is-
landssími umboðsaðili Global One á
íslandi.
Jafnframt veitir Íslandssími
Global One fjarskiptatengingu við
ísland.
Afkoma Virg-
in-flugfélags-
ins versnar
STJÓRNARFORMAÐUR Virgin
Atlantic-flugfélagsins, Sir Richard
Branson, greindi frá því nýlega að
hagnaður flugfélagsins á þessu ári
mundi minnka um að minnsta kosti
helming frá síðasta ári. Branson
sagði eftirspurn eftir sætum vera
góða og þess vegna vonaðist hann
eftir betri afkomu á næsta ári. Sem
skýringu á versnandi afkomu nú
nefndi hann hækkandi olíuverð og
sagðist óttast að það héldist hátt enn
um hríð.
Fréttir um minni hagnað, eða
jafnvel taprekstur, hafa borist frá
fleiri félögum enda olía nokkuð stór
þáttur í kostnaði flugfélaga. Þannig
skýrði British Airways til dæmis fyr-
ir skömmu frá töluverðu tapi og fé-
lögin SAS og Finnair hafa kennt háu
olíuverði um slaka afkomu.
Flugfélög nota framvirka samn-
inga til að verjast sveiflum í olíu-
verði, en misjafnt er hversu miklar
varnir þau hafa.
Gera má rá& fyrir a& öll ný hlutabréf ver&i í framtí&inni
rafrænt skráb hjá Ver&bréfaskráningu Islands. Rafræn
skráning á eldri útgáfum hlutabréfa fer þannig fram a&
hlutafélag sem hefur tekið ákvörðun um að skrá hlutabréf
félagsins rafrænt ógildir pappírsbréfin.
Eigendur hlutabréfanna þurfa ekki að skila bréfunum inn,
heldur munu þau ver&a ógild frá og með auglýstum degi.
Á þeim degi ver&a bréfin rafrænt skráð, VS-reikningar
í nafni eigenda hlutabréfanna stofnaðir hjá Verðbréfa-
skráningu og hlutur hvers og eins færður beint inn á
reikning viðkomandi.
Verðbréfafyrirtæki, bankar, sparisjóðir og aðrir aðilar á
fjármagnsmarkaði veita nánari upplýsingar um rafræna
skráningu verðbréfa.
Rafræn skráning verbbréfa
- augljós ávinningur, engin fyrirhöfn.
VERÐBREFASKRANING ISLANDS HF
The Icelandic S ecurities Depository Itd.
HafnarhYOÍl • íryggvagötu 11 • Sími 540 5500 • www.vtírdbrefaskraning.is
AÐALFUNDUR
FRJÁLSA
LÍFEYRISSJODSINS
MIÐVIKUDAGINN 21.JÚNÍ
Aðalfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn
(Ársal Hótel Sögu miðvikudaginn 21. júní nk. kl. 8:15.
Sjóðsfélagar Frjálsa lífeyrissjóðsins eru hvattir til að mæta.
Dagskrá
• Aðalfundarstörf skv. grein 5.3 í samþykktum sjóðsins.
• Önnurmál.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Sóltúni 26, sími 540 5000, www.frjalsi.is
FRJALSI
LlFEYRISSJÓÐURINN
- elstí PtztnH
séttipmrUfmfrinjfifíur
landsim