Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Mikið fjölmenni á kosningafundi andstæðinga Mugabes
Spá stjórnarand-
stöðunni sigri
Harare. Reuters, AP, AFP.
ALLT að 30.000 Zimbabwebúar
söfnuðust saman á íþróttaleikvanga í
Harare á sunnudag til að hlýða á
ræður leiðtoga stærsta stjómarand-
stöðuflokksins, MDC, sem spáðu
stjómarandstöðunni sigri í þing-
kosningunum í Zimbabwe um næstu
helgi. Um fimm sinnum færri vom á
kosningafundi Roberts Mugabe for-
seta á sama íþróttaleikvangi daginn
áður.
„Þetta mikla fjölmenni sýnir að
MDC er ekki aðeins stjómarand-
stöðuflokkur heldur einnig verðandi
stjómarflokkur," sagði Morgan
Tsvangiral, leiðtogi flokksins.
Nokkur ungmenni á fundinum
réðust á þrjá unga menn, sem gmn-
aðir vora um að styðja Mugabe for-
seta, og gengu í skrokk á þeim.
Mennirnir neituðu því að þeir styddu
Mugabe en einn þeirra viðurkenndi
að hafa verið í bol með mynd af for-
setanum. Hann kvaðst hafa farið á
fundinn úr vinnunni og vinnuveit-
endur hans hefðu skipað starfs-
mönnum sínum að klæðast bolum
með mynd af Mugabe.
Lögreglan var með mikinn við-
búnað við fundarstaðinn, lokaði veg-
um, leitaði í bílum og yfirheyrði öku-
menn.
David Colart, lagafulltrúi MDC,
fordæmdi ofbeldið á kosningafundin-
um og sagði flokkinn vilja stuðla að
því að kosningarnar fæm friðsam-
lega fram.
Að minnsta kosti 29 manns, flestir
þeirra stjómai-andstæðingar, hafa
beðið bana í pólitíska ofbeldinu fyrir
kosningamar og árásum stuðnings-
manna stjómarflokksins sem hafa
lagt undir sig hundmð búgarða
hvítra bænda frá því í febrúar.
Um 50 stuðningsmenn forsetans
réðust einnig á heimili Margaret
Dongo, leiðtoga þriðja stærsta
flokks landsins, ZUD, á simnudag.
„Þeir komu í rútu og köstuðu grjóti á
húsið og bílinn minn,“ sagði Dongo
og bætti við að einn starfsmanna
hennar hefði særst.
Forystumenn stjórnarflokksins,
ZANU-PF, báðu Mugabe forseta af-
sökunar á því hversu fáir mættu á
fund hans á laugardag. Hann viður-
kenndi þá í fyrsta sinn að stjórnar-
flokkurinn stæði frammi fyrir mjög
öflugri andstöðu í Harare, þar sem
tekist verðui’ á um 19 þingsæti af 120
í kosningunum. Aðeins um 6.000
manns mættu á kosningafundinn,
sem var haldinn á íþróttaleikvangi
þar sem rúmlega 100.000 manns
söfnuðust saman árið 1980 til að
fagna Mugabe þegar hann kom úr
útlegð til að taka við völdunum í
landinu.
Tsvangiral sagði að það væri tákn-
rænt að fundur MDC skyldi hafa
verið haldinn á sama stað og Mugabe
sór embættiseið forseta Zimbabwe,
fyrstur blökkumanna. „Á þessum
íþróttaleikvangi fyrir tuttugu ámm
stóð Mugabe og tilkynnti að Zimb-
abwe væri sjálfstætt ríki. En nýir
kúgarar tóku þá við af gömlu kúgur-
unum í Zimbabwe. Þjóðin byrjar nú
að telja dagana þar til hún fær raun-
vemlegt frelsi.“
Skoðanakönnun, sem birt var á
fóstudag, bendir til þess að MDC fái
70 þingsæti af þeim 120 sem em í
veði. Samkvæmt stjórnarskránni á
forsetinn að skipa 30 þingmenn til
viðbótar.
Tsvangirai sagði að MDC myndi
Framtíðin hefst... núna!
TOSHIBA heimabíó
Nýjasta og fullkomnasta
tækni á einstöku verði!
TOSHIBA eru fremstir í
tækniþróun.
Hönnuðir Pro-Logic
heimabíókerfisins,
Pro-Drum myndbands-
tækjanna og DVD
mynddiskakerfisins.
• 3 Scarttengi að aftan
• 2 RCA Super VHS/DVD tengi að aftan
• Super VHS, myndavéla- og heyrnartækja-
tengi að framan
• Barnalæsing á stöðvar
• Glæsilegur skápur á hjólum með 3 hillum
TOSHIBA heimabíótækin
kosta m/öllu þessu
aðeins frá
134.900,
Önnur TOSHIBA tæki fást í
stærðunum frá 14"-61"
stgr.
TOSHIBA DVD • SD 3109
5. kynslóð DVD mynddiskaspilara, 540 línur, fullkomnari en aðrir bjóða!
• Super-5 Digital Blackline myndlampi
• 180-300W magnari
• 6 framhátalarar
• 2 bassahátalarar
• 2x2 bakhátalarar
*Staðgreiðsluafsláttur er 5%
AP
Morgan Tsvangirai, leiðtogi stærsta sljórnarandstöðuflokks Zimbabwe,
MDC, heldur á tákni flokksins á kosningafundi á íþróttaleikvangi í Har-
are á sunnudag.
reyna að skerða rétt forsetans til að
skipa þingmenn ef flokkurinn sigrar
í kosningunum.
Kjörtímabili Mugabes lýkur eftir
tvö ár og flokkur hans og banda-
menn hans em nú með 147 af þing-
sætunum 150.
Skýrt var frá því í gær að stjóm
Zimbabwe hefði vikið sautján mönn-
um frá Kenýa og Nígeríu úr eftir-
litsnefnd á vegum Evrópusambands-
ins sem á að fylgjast með
framkvæmd kosninganna. Stjómin
sakaði mennina um að ganga erinda
Breta, nýlenduherranna fyrrver-
andi, sem hún hefur meinað að taka
þátt í kosningaeftirlitinu. Varafor-
maður nefndarinnar sagði að eftir-
litsmennirnir tengdust á engan hátt
Bretlandi.
Landamærastnð Eþiopiu og Entreu
Friðarsáttmáli
vekur von
Genf, Addis Ababa. AP.
VONIR standa til að friðarsáttmáli
sem Eþíópía og Erítrea undirrituðu
sl. sunnudag geri hundmðum þús-
unda flóttamanna kleift að snúa aft-
ur til síns heima, að sögn talsmanns
Flóttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna.
Stjómvöld í Erítreu áætla að hálf
milljón landsmanna hafi flúið síðan
um miðjan síðasta mánuð vegna
stríðsins við Eþíópíu. Rúmlega 85
þúsund hafa farið til nágrannaríkis-
ins Súdans þar sem þeir hafa verið
skráðir opinberlega sem alþjóðlegir
flóttamenn.
Eþíópíumennirnir slógust þar í
hóp 150 þúsund Erítreumanna er
höfðu hrakist jfir landamærin vegna
fyrri átaka. Aætlanir Flóttamanna-
hjálparinnar um að koma þeim til
síns heima urðu að engu þegar átök
bratust út á ný í maí.
Tahir Ali, æðsti embættismaður
Flóttamannahjálparinnar í Asmara,
höfuðborg Erítreu, sagði í yfirlýs-
ingu, sem gefin var út í kjölfar undir-
ritunarinnar, að nauðsynlegt væri að
staðið yrði við sáttmálann í raun og
veru. Flóttamannahjálpin hóf flutn-
ing hjálpargagna til Asmara á
sunnudag, og var flogið þangað með
sjúkratjöld, byggingarefni, teppi og
aðrar birgðir.
BETRA KYNLÍF MEÐ
ASTROGLIDE
FÆST í APÓTEKUM
FÁIÐ PRUFU f APÓTEKINU
ymus.vefurinn.is astrogIide.com
Reuters
Konur og börn á flótta í Erítreu.
Sumir hafa leitað yfir til ná-
grannaríkjanna, aðrir hafast við
í hellum uppi í fjöllum og auk
þess hafa alþjóðlegar hjálpar-
stofnanir hjálpað mörgum.
Eþíópíustjórn sagði í gær að haf-
inn væri brottflutningur herliðs frá
bænum Teseney í Erítreu, sem
Eþíópíuher tók herskildi í síðustu
viku. Þá hófst í gær önnur lota í frið-
arsamningum ríkjanna, og snýst hún
m.a. um lausn þúsunda eþíópískra
borgara sem forsætisráðherra
Eþíópíu hefur sagt að séu í fanga-
búðum í Erítreu.
Eþíópía og Erítrea, sem era meðal
tíu fátækustu ríkja heims, hafa átt 1
stríði síðan 1998 vegna landamæra.
Erítrea var hérað í Eþíópíu þar til
1991 og varð sjálfstætt ríki tveim ár-
um síðar, eftir að skæruhernaður
hafði staðið í 30 ár.