Morgunblaðið - 20.06.2000, Síða 31

Morgunblaðið - 20.06.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 31 ERLENT ySTUTT Bólusótt fyrir trassaskap AD minnsta kosti átta í Vladí- vostok á Kyrrahafsströnd Rússlands hafa sýkst af bólu- sótt en þau komust í tæri við gamalt bóluefni, sem nota átti kæmi til sýklahernaðar. Segja má, að bólusótt hafi verið út- rýmt um allan heim, en síðasti faraldurinn var 1977 í Afríku. Rússneskir læknar segja, að um sé að ræða mjög væga sýk- ingu og bömin ekki í hættu en þó er talið líklegt, að þau muni bera örin eftir bóluna ævilangt. I fyrstu var ekki ljóst um hvaða sjúkdóm var að ræða og ekki fyrr en í ljós kom, að börn- in höfðu verið að leika sér með glös, sem starfsfólk farsótta- stöðvar hafði fleygt. Lágu þau eins og hráviði á stóru svæði. Er trassaskapur af þessu tagi allalgengur í Rússlandi og hef- ur valdið ýmsum sjúkdómum, þar á meðal alnæmi. 745 milljarða fyrir far- símakerfi ÞÝSKA fjármálaráðuneytið býst við að fá um 745 milljarða íslenskra króna þegar boðin verða út leyfi fyrir næstu kyn- slóð farsíma í næsta mánuði. Er um að ræða fjögur til sex leyfi. Torsten Albig, talsmaður ráðuneytisins, sagði, að féð yrði notað til að greiða niður skuldir ríkisins en um 37 millj- örðum króna yrði þó varið til að auka framlög til menntunar- og samgöngumála. Starf- ræksla nýja farsímakerfisins hefst 2002 en þá verður m.a. boðið upp á netaðgang og þá verður unnt að fylgjast með og taka þátt í ráðstefnum um farsímann. Hryðjuverk í Nýju-Delhí TVÆR sprengjur sprungu á sunnudag með fimm mínútna millibili á stærsta markaðinum í Nýju-Delhí, höfuðborg Ind- lands. Urðu þær tveimur að bana, fullorðnum manni og átta ára gamalli stúlku. Engir hafa gengist við ábyrgð á hryðjuverkinu en lögreglan hefur áður kennt aðskilnaðar- sinnum í Kasmír um svipuð til- ræði. Tólf sprengjur hafa sprungið í Nýju-Delhí sl. þrjú ár og aðallega í þeim hluta borgarinnar, sem er byggður múslímum. Erlendir fjölmiðlar bannaðir YFIRVÖLD í Líbanon bönn- uðu í síðustu viku sjö erlenda fjölmiðla og er þeim gefið að sök að hafa móðgað minningu Hafez al-Assads Sýrlandsfor- seta en hann lést fyrir 11 dög- um. Var ekki skýrt frá þessu fyrr en í gær en um er að ræða The Herald Tribune, Le Monde, Liberation, Financial Times, Economist, Time og Newsweek. I yfirlýsingu frá líbsanska öryggismálaráðun- eytinu sagði, að áðurnefndir fjölmiðlar hefðu svert minn- ingu Assads og sært tilfinning- ar þeirra, sem nú ættu um sárt að binda. Fimmtíu og átta létust í flutningabíl London. AP. FIMMTÍU og átta lík fundust í flutningabfl í borginni Dover í Bret- landi í fyrrakvöld, að því er lögregla greindi frá. Tveir menn fundust á lífi í bflnum og voru fluttir á sjúkrahús. Þeir eru ekki í lífshættu. Hafin er al- þjóðleg lögreglurannsókn á málinu. Talið er að hinir látnu hafi verið flóttamenn frá Kína. Einn maður hafði í gær verið handtekinn vegna málsins og hermdu fregnir að um væri að ræða bflstjóra flutningabíls- ins, en lögregla vildi ekki segja frá því hver maðurinn væri. Fimmtíu og fjórir hinna látnu voru karlmenn og fjórir konur og talið er að þau hafi kafnað í flutn- ingavagni bflsins. Bfllinn kom til Do- ver skömmu fyrir miðnætti á sunnu- dag, sem var heitasti dagur ársins í Bretlandi og Norður-Evrópu og hafði hitastig farið í um þrjátíu gráður. Bfllinn hafði farið frá Zeebr- ugge í Belgíu íyrr um daginn með tómatafarm. Tollverðir sögðu að leitað hafi verið í bflnum þegar hann kom til Dover vegna þess að hann hafi átt við lýsingu á grunsamlegum farar- tækjum, þ.e. ekki verið kunnugleg- ur og flutningafyrirtækið sem á hann hefði ekki notað þessa flutn- ingaleið íyrr. Þá hafði bflstjórinn greitt fargjaldið í reiðufé í Belgíu. Bresk stjórnvöld hafa undan- fama mánuði gert átak til þess að stemma stigu við auknum fjölda flóttafólks sem kemur til landsins á vegum alþjóðlegra glæpahringja er rukka um ríflega tvær milljónir króna á mann. í fyrra leituðu um 71 þúsund manns eftir hæli í Bretlandi á þeim forsendum að þau sættu of- sóknum í eigin heimalandi. Árið áð- ur sóttu um 46 þúsund um hæli í Bretlandi. Siirnarbílar 1 Vmotskiim 1 Nýjor álfelgur 2 Ný radíal sumardekU 3 Nýr geislaspilari 4 Vandlega gfirfarnir -ungir í annað sinn Sumarbílar Bílalands hafa endurheimt frískleika 09 eldmóð æskunnar. heir eru með nýjum geislaspilara, alfelgum, sumardekkjum og vandlega gfirfarnir af fagmönnum svo þeir eru nánast eins 09 ngir. Skelltu þér í Bílaland og fáðu þér flottari bíl á frábæru verði. HYUNDAl ACCENT GlSl nýskr. 6/97, árg. 1 998, ek. 65 þíis. Verð 750.000 RENAULT CLIO RT mjskr. 8/97, árg. 1 998, ek 61 hús M Verð 790.000 HYUNDAl ACCENT ISl ngskr 1 /96, árg. 1996, ek 68 bús. P Verð 590.000 BYUNDAl ACCENT GLSl nýskr. 8/96, árg.1 996, ek41 þás. Verð 750.000 HYUNDAl SONATA GLSl ngskr. 3/94, árg. 1994, ek 1 08 þús. Verð 630.000 Grjóthálsi I Simi 575 1230 www.bl.is HYUNDAl SONATA GlSl ngskr.l 0/95,árg.l 996, 'l73Þ“ Verð 950.000 HYUNDAl ACCENT GSl nýskr.6/95, árg. 1 995, ek 92 þús. Verð 510.000 HYUNDAl ACCENT GlSl nýskr. 9/96, árg. 1 997, ek 44 þús. Verð 740.000 HYUNDAl ACCENT GLSl nýskr 8/95, árg. 1 995, 'l35|"iS Verð 680.000 HYUNDAl COUPÉ FX nýskr. 9/97, árg. 1 997, ek 52 þús. Verð 1290.000
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.