Morgunblaðið - 20.06.2000, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 33
ERLENT
Reuters
Kínverskur hjólreiðarmaður fer framhjá strætisvagni með auglýsingu um vinsælt kínverskt vefsetur í
miðborg Peking. Kínverska samfélagið er orðið mun frjálsara og líflegra vegnaþeirrar stefnu stjórnvalda
að opna það fyrir umheiminum.
Sögulegt mikilvægi
aðildar Kína að WTO
eftir Jeffrey
D.Sachs
© Project Syndicate
BANDARÍKIN hafa fylgt dæmi
Evrópu og samþykkt skilyrði um
umbætur í efnahagsmálum sem
Kína þarf að uppfylla til að fá inn-
göngu í Alþjóðaviðskiptastofnun-
ina (WTO). Þar með er tónninn
gefinn fyrir aðild Kínverja að
stofnuninni í lok ársins 2000. Með
inngöngu Kína í Alþjóðaviðskipta-
stofnunina bætast 1, 3 milljarðar
manna, meira en fimmtungur jarð-
arbúa, formlega við meginstraum
hins alþjóðlega hagkerfis. Þetta er
söguleg stefnubreyting Kínverja í
samskiptum við umheiminn, sam-
skipti sem má rekja til atburða fyr-
ir fimm öldum.
Fyrir hagfræðinga og sagnfræð-
inga sem sjá hlutina í víðu sam-
hengi er Kína þó nokkur ráðgáta.
Komum okkur beint að efninu; af
hverju er svo mikil fátækt í Kína
nú á dögum? Þjóðarframleiðsla á
mann er að meðaltali 3.200 dollarar
í samanburði við 25.000 dollara að
meðaltali í Bandaríkjunum og
Evrópu sé miðað við jafnvirðis-
gildi. Ráðgátan tengist þeirri stað-
reynd að frá 550 til 1500 e.Kr. var
kínversk siðmenning fremst á sviði
tækni og líklega einnig í efnahags-
legri velmegun. Þessi hlutfallslega
mikla hnignun Kína á síðustu fimm
hundruð árum er eitt mesta rann-
sóknarefni heimssögunnai-.
Förum sex aldir aftur í tímann,
rétt eftir 1400. Kína gat státað af
tækniundrum eins og áttavita,
þekkingu í siglingafræði, prentvél,
flugeldum og sprengiefni sem átti
engan sinn líka annars staðar í
heiminum. Kínverska ríkið hafði
verið sameinað í meira en 1500 ár
og stjórnsýsla þess var nokkuð
þróuð. Kínverskt postulín er gott
dæmi um listræna hæfileika þjóð-
arinnar. Það var eftirsótt næstu
aldirnar og óviðjafnanlegt hand-
bragðið á engan sinn líka fyrr né
síðai-. Eitt mikilfenglegasta dæmið
um afrek þeirra snemma á 15. öld
voru miklir leiðangrar kínverska
flotans. Á árunum 1405-1431 sigldu
risastór skip um höf Suðaustur-As-
íu til Indlands og jafnvel til Austur-
Afríku. Því til vitnis eru postulíns-
brot sem fornleifafræðingar hafa
fundið í Kenýa og Tansaníu.
En upp frá þeim tíma dró smám
saman úr yfirburðum Kínverja.
Hagfræðingar, sagnfræðingar,
stjórnmálaskýrendur og lýðfræð-
ingar hafa allir sína skoðun á
ástæðunni en mín skoðun er sú að
fyrst og fremst hafi Kína snúið
Þetta er söguleg
stefnubreyting Kín-
verja í samskiptum
við umheiminn, sam-
skipti sem má rekja
til atburða fyrir fimm
öldum síðan.
baki við umheiminum. Á þriðja
áratug 15. aldar hættu Kínverjar
öllum úthafssiglingum og flotinn
var leystur upp. Keisarahirðin átti
í fjárhagskröggum og þurfti að
verjast innrás hirðingja frá Mið-
Asíu. Þeir hættu úthafssiglingum,
fluttu höfuðborgina til Peking og
einangrun Kína næstu aldirnar
hófst. Hver opinber tilskipunin rak
aðra, skipasmíðastöðvum og höfn-
um var lokað og Kínverjum var
bannað að yfirgefa meginlandið.
Verslun og önnur viðskipti voru í
kjölfarið ekki nema svipur hjá sjón.
Kína kaus að hverfa af sjónar-
sviðinu og afsalaði sér hlutverki
sínu meðal þjóðanna.
Um það leyti sem Adam Smith
ritaði Auðlegð þjóðanna (1776)
lýsti hann Kína nokkuð vel sem
miklu samfélagi sem haldið væri
aftur af með fomfálegum lögum og
einangrun í verslun. Honum fannst
Kínverjar einnig sýna erlendn
verslun algjöra lítilsvirðingu. Á
meðan Kína hörfaði inn í skel sína
stökk Evrópa fram á sjónarsviðið.
Smith taldi uppgötvun sjóleiðar-
innar til Asíu (fyrir suðurodda
Afríku) og til beggja álfa Amenku
vera tvo merkustu atburði mann-
kynssögunnar. Alheimsvæðingin
kom fram á sjónarsviðið en það var
Evrópa en ekki Kína sem tók að
sér leiðtogahlutverkið.
Kína þurfti enga utanaðkomandi
hjálp við að sólunda efnahagslegri
og tæknilegri getu sinni. Þegar
leiðir Evrópu og Kína lágu aftur
saman í Ópíumstríðinu 1839-1842
var tæknilegt forskot Evrópu mik-
ið. Yfirburðir álfunnar á hernaðar-
sviðinu voru slíldr að Kínverjar ját-
uðu sig sigraða og þurftu að gefa
eftir sem var mjög niðurlægjandi
fyrir þá. Það voru innrásir Evrópu-
manna sem leiddu til þess að veru-
lega hrikti í stoðum kínverska keis-
araveldisins og samfélags þess.
Keisaraveldið hrundi árið 1911
vegna þrýstings utan frá og vegna
krafna innanlands um breytingar.
En breytingar gengu ekki auð-
veldlega fyrir sig. Eftir hrun keis-
araveldisins fylgdu borgarastyrj-
öld, innrás Japana á fjórða áratug
tuttugustu aldar, heimsstyrjöldin
síðari, annað borgarastríð og loks
þrjátíu ár hörmunga og ógnar-
stjómar einræðisherrans Maó Tse
Tung og kínverska kommúnista-
flokksins.
Það var ekki fyrr en með stjórn
Deng Xiaoping árið 1978 að Kína
opnaði dyr sínar fyrir umheimin-
um. Að sjálfsögðu var áhersla
Deng fremur á umbætur í efna-
hagsmálum en aukið frjálsræði á
stjórnmálasviðinu. Hið aukna
frjálsræði sem ríkt hefur allt frá
1980 á samt sem áður engan sinn
líka í sögu Kína. I fyrsta skipti í
margar aldir hefur alræðisríkið
Kína tileinkað sér frelsi í verslun
og viðskiptum við umheiminn af
fúsum og frjálsum vilja. Innganga
Kína í Alþjóðaviðskiptastofnunina
mun styrkja umbæturnar sem hóf-
ust árið 1978. Það gera þeir með
því að samþykkja fijálsa verslun
og gangast undir alþjóðlegar leik-
reglur í viðskiptalífinu sem full-
valda ríki og sem jafningi annarra
ríkja í alþjóðasamfélaginu.
Þeir sem gagnrýna frjálsa versl-
un við Kína segja að pólitískt
stjómskipulag þess byggi enn á
valdboðum að ofan. Þeir hafa rétt
fyrir sér en þessi staðreynd skiptir
ekki höfuðmáh. Satt er það að póh-
tískt stjórnskipulag Kínveija ein-
kennist af valdboðum og lögboðin
hlýðni við yfin’öld hefur verið kraf-
an í tvöþúsund ár. Enda er það
staðreynd að eingöngu alræðis-
stjóm hefði getað lokað landamær-
um sínum með opinberri tilskipun í
margar aldir. Að sama skapi hefði
eingöngu alræðisstjórn getað fært
ríkinu hungursneyð af manna völd-
um, misheppnaða efnahagsstefnu
og menningarlega eyðileggingu
sem einkenndi stjórnartíð Maós.
Breyting Kína í átt til opnara
samfélags hefur haft mikil áhrif og
samfélagið er orðið mun frjálsara
og h'flegra en það hefur hingað til
verið. Unga kynslóðin í Kína og
þær sem á eftir koma munu vilja og
krefjast frelsis til stjórnmálaskoð-
ana samfara auknum efnahagsleg-
um tækifærum og þátttöku í at-
burðum heimsins. Opnun Kína
fyrir umheiminum mun á næstu
áratugum einnig opna fyrir lýð-
ræði í ríkinu, eitthvað sem eru góð-
ar fréttir fyrir Kínverja og einnig
okkur hin.
Jeffrey D. Sachs er Galen L.
Stone-kennari í hagfræði og
forstöðumaður Miðstöðvar
alþjóðaþróunar við
Harvard-háskóla.
Barak reynir
að bjarga
ríkisstj órninni
Ehud Barak, forsætisráðherra Israels.
Jerúsalem. AFP, Reuters.
AVRAHAM Shcihat,
íjánnálaráðherra í Isra-
el og náinn samverka-
maður Ehud Baraks,
forsætisráðherra ísra-
els, sagði um helgina, að
líklega næðust samn-
ingar við Shas-flokkinn,
flokk heittrúaðra gyð-
inga, um að hann tæki
aftur upp stuðning við
stjórnina. Leiðtogi
Shas, Eli Yishai, ítrek-
aði hins vegar í gær, að
flokkurinn myndi segja
sig úr stjórninni form-
lega í dag eða síðar í vik-
unni.
Shas-flokkurinn, sem er þriðji
stærsti flokkurinn á ísraelska þing-
inu, Knesset, hefur ítrekað hótað að
draga sig út úr stjórninni á síðustu
mánuðum vegna deilna um opinber-
ar fjárveitingar til skóla sem hann
rekur. Flokkurinn krefst þess að fá
aukin framlög til skólanna og einnig
aukið forræði yfir þeim. Skólamir
lúta nú yfirstjóm menntamálaráð-
herra ísraels, Yossi Sarid.
Meirihluti kjósenda vill
að Shas fari út úr stjórninni
Sáttafundir hafa verið haldnir
milli fulltrúa stjórnarflokkanna und-
anfarna daga og fyrir helgi var áætl-
að að þeir héldu áfram næstu daga.
Annar flokkur innan ríkisstjórnar
ísraels, Meretz-flokkurinn, sem er
veraldlegur gyðinglegur flokkur,
hefur hótað að hætta þátttöku í
stjómarsamstarfinu fái hinir heittrú-
uðu aukið faglegt forræði yfir skól-
um sem starfræktir em á þeirra veg-
um. Forystumaður flokksins og við-
skiptaráðherra Israels, Ran Cohen,
hefur kallað Shas „flokk fjárkúgara".
Barak hefur undanfarið átt í mikl-
um vandræðum með að halda ríkis-
stjóminni saman. Nýleg skoðana-
könnun leiddi í ljós að meirihluti íbúa
ísraels telur að Barak eigi að slíta
samstarfinu við Shas. Hins vegar er
ljóst að óvissan sem það hefði í för
með sér gæti haft slæm áhrif á frið-
arferlið, sem raunar virðist þegar
vera í uppnámi.
Krabbameins-
félagsins
l/fÁ/fHÍttia*
- 2000
Renault Laguna 2.0 station sjálfskiptur kr. 2.100.000
24635
Bifreið eða greiðsla upp í íbúð kr. 1.000.000
99839
Úttekt hjá verslun eða ferðaskrifstofu kr. 100.000
853 23321 48188 66454
2722 25109 49026 67445
2892 27431 50128 70327
4374 27604 50332 72526
5244 28540 50682 72589
5506 29512 51525 73010
5968 30831 53342 73675
6762 32939 54237 74861
9673 33214 54472 75500
11478 35627 54557 77111
12211 36268 54779 77507
12688 36396 55168 77977
16695 38307 56512 78411
16890 38928 57122 79679
18606 39051 57287 82015
18962 39342 58263 83822
20238 41622 61573 84439
20675 42145 61771 85092
20902 42538 61913 86224
23050 42679 62545 86504
23118 43801 63188 87625
23312 46955 63734 88133
89408 111732 130335 148294
89460 111816 131467 148300
92139 113761 132400 148836
92667 113800 132441 149369
93553 115949 133104 151055
94465 116111 134314 151686
95790 117718 134785 152220
97781 118115 135843 152525
98175 118480 137052 152642
99767 118583 137057 153741
99847 119129 138899 153831
100471 119172 138936 153876
103182 119178 139032 155292
103276 121441 140057 155748
104672 122005 140188 155915
105496 123714 140821 158054
105784 125770 141391
106886 126998 141905
108163 127061 143554
109003 127736 143683
109130 128849 146929
111365 129962 147452
. c/ors:i//Hi/}u>/sui/e/qyitf/)a/{Aaf'
landsmönnunvoeittan/stuðnúup
YL Krabbameinsfélagið
Handhafar vinningsmiða framvisi þeim á
skrífstofu Krabbameinsfélagsins að
Skógarhlíð 8, sími 540 7 900.