Morgunblaðið - 20.06.2000, Side 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Gunnarsstofnun, Skriðuklaustri, tekín í notkun
Morgunblaðið/Jim Smart
Foreldrar Bjarkar: Guðrnundur Gunnarsson og Hildur Rún Hauksdóttir
ásamt Einari Erni Benediktssyni, en hann framdi símagjörning til New
York við athöfnina.
B j örk valin
borgarlista-
Þungamiðja í menn-
ingarlegum umsvif-
um á Austurlandi
maður 2000
Margt var um manninn á Skriðuklaustri á sunnudag.
BJÖRK Guðmundsdóttir var út-
nefnd borgarlistamaður Reykja-
víkur 2000 í Listasafni Reykjavík-
ur, Hafnarhúsi, á laugardag, en
útnefningin fer fram 17. júní ár
hvert.
Ásmundur Jónsson, útgáfustjóri
Smekkleysu SM, tók við verðlaun-
unum fyrir Bjarkar hönd, en hún
er stödd í New York að vinna að
gerð nýrrar plötu sem kemur
væntanlega út á næsta ári. Verð-
launin veitti Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri.
Við athöfnina gerði Guðrún
Jónsdóttir, formaður menningar-
málanefndar, grein fyrir vali
nefndarinnar. Einar Órn Bene-
diktsson annaðist símagjörning
við New York, Bragi Olafsson
flutti Ijóð, Sjón kynnti söng og
texta en þær Ásgerður Júníus-
dóttir messósópran og Steinunn
Birna Ragnarsdóttir píanóleikari
fluttu Unglinginn í skóginum eft-
ir Jórunni Viðar við ljóð Halldórs
Laxness og Yfirlýsingu eftir
Morgunblaðið/Jim Smart
Viðurkenning borgarlistamanns
Reykjavíkur 2000.
Hjálmar H. Ragnarsson við Ijóð
Magneu Matthíasdóttur.
Utnefning borgarlistamanns er
heiðursviðurkenning til handa
reykvískum listamanni sem með
listsköpun sinni hefur skarað
fram úr og markað sérstök spor í
íslensku listalffi.
stuðla að alþjóðlegum menningar-
tengslum og standa fyrir listvið-
burðum ýmiss konar.
Skúli Björn Gunnarsson, for-
stöðumaður Gunnarsstofnunar,
sagði að þótt sér virtist skrefið lítið
sem verið væri að stíga á þessum
degi, þá væri það reyndar stórt
stökk fram á við í menningarlegu
tilliti hér á Austurlandi. Gunnar
Björn Gunnarsson, afkomandi
Gunnars Gunnarssonar, flutti ávarp
og kvað niðja Gunnars vera sátta og
ánægða með niðurstöðu í máli
Gunnarsstofnunar og að nú nyti
hún þeirrar virðingar sem hún ætti
skilið og að geðþóttaákvarðanir um
eigur og verðmæti sem tilheyrðu
Gunnarshúsi heyrðu nú sögunni til.
Gunnarsstofnun að Skriðuklaustri
er nú opin almenningi frá 11-17 alla
daga nema mánudaga. Veitinga-
stofa er í húsinu og verður hún opin
á þessum sama tíma. Þeim, sem
hafa áhuga á að fræðast enn betur
um Gunnarsstofnun er bent á
heimasíðu á slóðinni www.austur-
land.is/skriduklaustur.
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
GUNNARSSTOFNUN að Skriðu-
klaustri í Fljótsdal á Héraði var
tekin formlega í notkun nú um
helgina. Á annað hundrað manns
var viðstatt opnunina. Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
flutti ávarp í tilefni opnunarinnar
og sagði að langþráð markmið
hefðu náðst með þetta fyrirkomu-
lag um Gunnarsstofnun. Ráðherra
sagði stofnunina vera þungamiðju í
menningarlegum umsvifum á Aust-
urlandi, a.m.k. um þessar mundir.
Hann þakkaði stjórn Gunnars-
stofnunar, sérstaklega Helga Gísla-
syni formanni og niðjum Gunnars
Gunnarssonar, fyrir vel unnin störf
og fagnaði því að sættir hafa náðst
í þessu mikilvæga menningarmáli.
Hlutverk Gunnarsstofnunar er
m.a. að leggja rækt við bókmennta-
rækt með áherslu á ritverk og ævi
Gunnars Gunnarssonar. Rekinn
verður dvalarstaður fyrir lista- og
fræðimenn en á Skriðuklaustri er
íbúð til afnota fyrir listafólk. Stofn-
unin kemur til með að hafa áhrif á
atvinnuþróun á Austurlandi og efla
rannsóknir á austfirskum fræðum,
Morgunblaðið/Anna
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra flutti ávarp.
Myndlistardeild Listaháskóla Islands
Ráðið í fjórar stöður prófessora
Anna Líndal Tumi Magnússon Einar Garibaldi Ingólfur Öm
Eiríksson Amarsson
REKTOR Listaháskóla íslands
hefur ráðið í fjórar stöður prófess-
ora við myndlistardeild skólans.
Ráðin voru Anna Líndal, Einar
Garibaldi Eiríksson, Ingólfur Örn
Arnarsson og Tumi Magnússon.
Ráðning hvers þeirra er til allt að
þriggja ára. Þá hefur Gunnar
Harðarson, heimspekingur og dós-
ent við Háskóla íslands, verið ráð-
inn gestaprófessor við deildina.
Umsóknir um prófessorsstöður
voru alls átján. Dómnefnd um mat
á hæfi umsækjenda komst að þeirri
niðurstöðu, að átta umsækjendur
teldust „vel hæfir“, þrír „hæfir“, en
sjö töldust ekki uppfylla sett skil-
yrði.
Anna Líndal stundaði mynd-
listarnám við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands 1981-86, og síðan
framhaldsnám við Slade School of
Fine Art, University College, í
London. Hún hefur verið virkur
þátttakandi í íslensku listalífi síð-
astliðinn áratug og haldið fjölmarg-
sar sýningar sem hafa vakið at-
hygli, einnig á erlendum vettvangi.
Myndlist hennar hefur m.a. vakið
spurningar um kynbundin gildi í
myndlistinni og í samfélaginu og
um samfélagslegt hlutverk listar-
innar almennt.
Einar Garibaldi Eiríksson lauk
námi frá Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1985 og hélt síðan til
framhaldsnáms við Accademia di
belle Arti di Brera í Mflanó og út-
skrifaðist þaðan 1991. Síðan þá hef-
ur hann verið mjög virkur í ís-
lensku listalífi, bæði sem
myndlistarmaður og kennari. I list
sinni hefur Einar einkum gllmt við
spurningar um merkingu og tákn-
mál.
Ingólfur Örn Arnarsson hefur
víðtæka reynslu sem starfandi
listamaður og hefur sýnt verk sin á
virtum sýningarstöðum, bæði inn-
anlands og utan. í list sinni hefur
hann einkum unnið á því sviði sem
er á mörkum þess sýnilega og
þannig kannað grunnþætti mynd-
málsins. Ingólfur stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskólann
1976-79 og við Jan van Eyck Aka-
demie í Maastricht 1979-1981. Þá
hefur hann að baki margra ára
reynslu sem kennari í myndlist og
verið virkur við skipulagningu sýn-
inga, jafnt erlendra sem innlendra
listamanna.
Tumi Magnússon stundaði nám
við Myndlista- og handíðaskólann
1976-78 og við AKI Akademie voor
Beeldende Kunst í Enchede 1978-
80. Síðan hann lauk námi hefur
hann haldið fjölda sýninga með
verkum sínum, innanlands sem ut-
an, og auk þess tekið þátt í sam-
sýningum víða um heim. Tumi
hlaut gullverðlaun fyrir verk sín á
tvíæringnum í Sao Paolo 1994.
Hann hefur einkum vakið athygli
fyrir áleitnar spurningar í list sinni
um virkni myndmáls og sjónskyns,
og um tengsl myndmáls, tungumáls
og veruleika. Tumi á að baki lang-
an feril sem kennari í myndlist.
Peningagjöf
fyrir flutn-
ing laga
Hallbjargar
LÉTTSVEIT Kvennakórs
Reykjavíkur hefur borist kr.
70.000 að gjöf frá Jens Jörgen
Fisher Nilsen vegna flutnings
sveitarinnar á verkum látinnar
eiginkonu hans, frú Hallbjargar
Bjarnadóttur. Hann vill með
þessu votta sveitinni þakklæti
sitt fyi-ir að halda nafni hennar
á lofti.
Léttsveitin var á söngferða-
lagi í maí sl. og flutti þar m.a.
lög Hallbjargar í útsetningu
Aðalheiðar Þorsteinsdóttur,
píanóleikara kórsins.
Sýning
framlengd
Hótel Skaftafell,
Freysnesi
SÝNING Kristínar Þorkels-
dóttur verður framlengd til 25.
júní.
Sýndar eru vatnslitamyndir
frá Vatnajökulssvæðinu og
nefnist sýningin Ljósdægur á
Islandi.
Sýningin er opin alla daga og
er aðgangur ókeypis.