Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Skáldaleyfi
BÆKUR
I ijóð
LJÓÐS MANNS ÆÐI
eftir Ásgrún Inga Amgrímsson.
Höfundur gefur sjálfur út.
2000 - 52 bls.
UNG skáld læra af þeim eldri. Oft
má lesa lærdóminn út úr kvæðum
þeirra. Aðrir verða þeim andlegir
lærimeistarar á fleiri sviðum. Þó
hygg ég að mikilvægasti skóli sér-
hvers skálds sé útgáfa fyrstu bókar-
innar. Ásgrímur Ingi Amgrímsson
er í þessum sporum. Hann er að
ljúka burtfararprófi úr fyrstubókar-
skólanum og ég fæ ekki betur séð en
pilturinn standi sig með láði. Ljóðs
manns æði heitir bók hans og titill-
inn speglar dálítið meginaðferð hans
við yrkingar. Ásgrímur leikur sér
nefnilega ótæpilega að orðum og
orðatiltækjum. Þar skortir raunar
ekkert á hugmyndaauðgina.
Ljóðmál Ásgríms er ágætlega fág-
að. Það á hann vafalaust nokkuð að
þakka Þórði Helgasyni sem hann
raunar þakkar sérstaklega í bók
sinni. En hann hefur einnig valið sér
sem fyrirmyndir Ijóðskáld sem
þekkt eru að vönduðum vinnubrögð-
um, ekki síst þá Stein Steinarr og
Tómas Guðmundsson. Hann vísar
oft til kvæða þeirra og sum ljóða
hans eru eins konar tilbrigði við
þeirra kvæði. Svo markvisst er til
þeirra vísað. Titl-
ar eins og Háa-
loftið á Hótel
Jörð segja sína
sögu og þver-
stæður eins og
lesa má í eftirfar-
andi hendingu
vísa vitaskuld í
ljóðaheim Steins
Steinarr:
Tálsýn ein var heimur okkar hálfur
o_g hitt var bara draumur einn og sér.
Eg lifði í þessum draumi og dó þar sjálfur
og draumurinn hann lifði og fórst í mér.
Tvennt einkennir form ljóðanna.
Annars vegar er Ásgrímur liðtækur
sonnettusmiður. Mörg kvæða hans
eru ort undir enskum sonnettuhætti
og hann leitast við að aðhæfa það
form íslenskum bragreglum. Þar að
auki er margt prósaijóða í ljóðabók
hans. Hvað inntakið varðar er í
sjálfu sér ekki mikið að segja. Mörg
kvæðin eru æfingar ungs manns og
rista kannski ekki ýkja djúpt. En
Ásgrímur er hnittinn og víða
skemmtilegur í orðaleikjum sínum. I
prósaljóðinu Hlaup kemst hann svo
að orði:
Við komum hlaupandi hvor úr sinni áttinni og
rákumst saman við húshomið. Eg bað hann
afsökunar en þegar hann svaraði sá ég ekki
betur en ég væri að tala við sjálfan mig. Ég
spurði hann hreint út hvort svo væri. Þá kom
í ljós að ég hafði heldur betur hlaupið á mig.
Studdum verður þessi leikur að
orðum ansi tvíræður eins og í kvæð-
inu Sífliss:
Hún hafði verið einkennalaus síðan á gelgju-
skeiðinu og allt benti til þessað komist hefði
verið fyrir sjúkdóminn. En svo gerðist það í
miðjum samræðum að síílissið tók sig upp
aftur og hún smitaði alla viðstadda.
I upphafl bókar setur Ásgrímur
fram umsókn um skáldaleyfi sem
hann segist skila ásamt með mynd til
Listamafíunnar á Islandi. Ætli rit-
dómarar geti ekki talist fulltrúar
þeirrar mafíu þótt undirritaður vilji
síst af öllu feta i fótspor útlendra
guðfeðra. Eigi að síður hygg ég að
bók Ásgríms sé rituð með þeim
hætti að óhætt sé að taka hann í fang
listafjölskyldunnar. Því er honum
hér með veitt skáldaleyfi.
Skafti Þ. Halldórsson
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Elisaveta Kopelman var marg-
klöppuð upp eftir einleikstón-
leika sína í Egilsstaðakirkju.
Píanótón-
leikar í
Egilsstaða-
kirkju
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
RÚSSNESKI píanóleikarinn Elisa-
veta Kopelman hélt einleikstónleika í
Egilsstaðakirkju. Tónleikarnir voru
liður í dagskránni Bjartar nætur í
júní, á vegum Óperustúdíós Austur-
lands, sem er haldin um Austurland.
Á efnisskrá tónleika Elisavetu voru
Myndir á sýningu eftir Modest
Mussorgsky, lög úr Árstíðunum eftir
Pjotr Tchaikovsky og Ungversk
rapsódía eftir Franz Liszt. Elisaveta
var 5 ára gömul þegar hún hóf nám í
píanóleik í Moskvu. Framhaldsnámi
lauk hún frá Konunglega tónlistar-
háskólanum í Manchester í Eng-
landi. Hún vann tónlistarverðlaun
árið 1995 og hefur komið fram í öll-
um helstu tónleikasölum og á tónlist-
arhátíðum Englands og Evrópu.
Hún hefur haldið einleikstónleika
víðar, m.a. í New York og Moskvu.
------+++-------
Orgelleikur
í Dómkirkjunni
MARTEINN
H. Friðriks-
son leikur á
orgel Dóm-
kirkjunnar
fjögur kvöld
í júní og
verða fyrstu
tónleikarnir í
kvöld, þriðju-
dagskvöld,
kl. 22. Aðrir
tónleikar
verða föstudaginn 23. júní, þá
laugardaginn 24. júní og fjórðu
tónleikarnir verða 27. júní. Á efn-
isskrá eru verk eftir Bach, Mend-
elssohn, Pál Isólfsson, Jón Þórar-
insson, Jón Nordal og Hjálmar H.
Ragnarsson.
Orgelleikurinn stendur í 40 mín-
útur og aðgangur er ókeypis.
i
LACDE
Dagana 27. til 30. ágúst nœstkomandi verður haldin
í Háskólabíó alþjóðleg ráðstefna um viðbúnað gagnvart
náttúruvá og öðrum ógnum. Ráðstefnan er skipulögð
af Sambandi fslenskra sveitarfélaga, Umhverfisráðuneytinu
og Slysavarnafélaginu Landsbjörg, í samstarfi við
LACDE , sem eru alþjóðleg samtök sveitarfélaga.
Meginþema ráðstefnunnar lýtur að samstarfi
vísindamanna og sveitarfélaga um viðbúnað gegn
hamförum og meðal þess sem fjallað verður um eru
snjóflóð, jarðskjálftar, eldgos, flóð, mengunarslys,
áhœttustjórnun, tryggingarmál, og margt fleira.
SAMBAND ÍSLENSKRA
SVEITARFÉLAGA
Umhverfisráðurteytið
2*
Slysavamafélagið Landsbjðrg
Athygli er vakin á því að ráðstefnugjaldi hefur verið
stillt mjög í hóf fyrir íslenska þátttakendur. Cjaldið
er aðeins krónur 12.500,- fyrir þá sem staðfesta
þátttöku fyrir l.júlí næstkomandi en 15.000,- krónur
fyrir þá sem skrá sig til leiks frá og með 1. júlí 2000.
Local Authorities Confronting
Disasters & Emergencies - LACDE
<L>
O
o3
inmendir oq erlendir
GO
Ö
crí
rjO
c
GO
meðal annarra:
Alcira Kreimer, framkvœmdastjóri hjá Aíþjóðabankanum í Washington
Ernst Goldschmitt, Iðnaðar- og umhverfisskrifstofa Sameinuðu þjóðanna
Freysteinn Sigmundsson, forstöðumaður Norrœnu eldfjallastöðvarinnar
María J. Vorel, forstoðumaður "Project Impact" áætlunar FEMA í Bandaríkjunum
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á ísafirði
Ólafur Proppé, fyrrverandi formaöur Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Phillipe Boulle, framkvcemdastjóri hamfaramiöstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Genf
Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafrœðíngur á Veðurstofu fslands
Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra
Sigrún Árnadóttír, framkvcemdastjóri Rauða kross islands
Sólveig Þorvaldsdóttir, framkvcemdastjóri Almannavarna ríkisins
Tómas Jóhannesson, Veöurstofa íslands
Walter Ammann, snjóflóðarannsóknarstöðinni í Davos í Sviss
Upplýsingar hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, ráðstefnudeild
Samvinnuferða Landsýnar og hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg
en einnig er hægt að skrá þátttöku beint á heimasíðu ráðstefnunnar
www. samband. is/lacde.
■ ■■■■■■ V:..- yM-XWtWXX?. xAi
ARVJÐBÚNAÐ