Morgunblaðið - 20.06.2000, Side 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ
Fögur er
E sj an
Hugmyndir hafa aldrei numið land hér
nema með ferlegum skipbrotum og ber
Reykjavík merki þess.
Fólki kann stundum að
þykja göngulag mitt
skrýtið en þá er það
vegna þess að ég er
að reyna að forðast
að stíga á heliumót í gangstéttinni.
Oftast er mér alveg sama en
stundum stend ég mig að því að
hafa gengið langa leið án þess að
hafa stigið á ein einustu hellumót.
Þetta tekst með réttri hrynjandi í
skrefunum: Eitt langt tvö stutt,
eitt langt tvö stutt. Þetta eru hníg-
andi þríliðir. Svona getur taktur-
inn orðið þegar vel gengur en
minnsta truflun getur sett mann út
af laginu. Það hleypur kannski
hundur í veg fyrir mann eða bam.
Kannski hætta hellumar og eitt-
hvað annað tekur við; minni hellur,
of litlar fyrir skó númer 45, slétt og
tilbreytingarlaust malbik, gras eða
möl, hún er langverst. Þá annað-
hvort breytist takturinn eða hug-
urinn reikar í aðra átt. Róin sem
uinunDC rúðustrikað
VlvrlUKF landslag helln-
annaogtakt-
fast göngulag-
ið hafði fært á
Eftir Þröst
Helgason
hugann víkur fyrir slitróttum
hugsunum og öngþveiti sem skap-
astaflífiíborg.
Michel de Certeau, sem var
franskur félagsfræðingur, hélt því
fram að labb sem þetta, labb í
borg, hefði merkingu, að labb í
borg væri merkingarbær athöfn
rétt eins og að skrifa og tala eru
merkingarbærar athafnir. Hug-
myndin er í sjálfu sér einfóld og
skýr. Þegar við göngum um borg
þá erum við að taka þátt í menn-
ingarlegri og sögulegri samræðu.
Borgin er full af sögu sem við les-
um með fótunum, ef svo má segja,
götur og hús mynda texta sem seg-
ir frá athafna- og hugmyndalífi
fólksins sem reisti þau, sem gekk
göturnar og bjó í húsunum. Við
þennan texta er sífellt verið að
bæta, gömul hús eru rifin og ný
bætast við, og fólkið breytir um
takt í kjölfarið. Borgarráfið skapar
sinn eigin texta.
Séð ofan af llOdu hæð World
Ti-ade Center er Manhattan eins
og latnesk málfræði, sagði de Cert-
eau. Þetta er frámunalega vel
skipulögð borg. I samanburði við
Manhattan er Reylgavík eins og
sundurlaus setning. Gatnakerfið er
rökfræðilegt klúður og arki-
tektúrinn nykraður. Reykjavík
endurspeglar þjóðareðlið: Hana
skortir aga og úthald. Það er ekk-
ert samspil, engin samræða og
þess vegna er heldur engin niðurs-
taða, engin heildarmynd. Tilviljun-
in ræður. í New York horfir maður
til himins, upp eftir þrítugu mann-
gerðu stálinu og þráir frelsi víðátt-
unnar. í Reykjavík rýnir maður í
hornrétt landslag hellnanna og
þráir staðfestu, reglu á víðáttuvit-
lausar hugsanir. Þegar maður
gengur um götur Reykjavíkur leit-
ar maður reglunnar, hugsunarinn-
ar og skynseminnar sem ekki er að
finna í skipulagi og ásýnd borgar-
innar. Þama er, held ég, aðal-
skýringin á helluhoppi mínu.
Þótt það vanti einhverja heild-
stæða hugmynd á bak við skipulag
Reykjavíkur þarf það ekki að þýða
að hún sé verri borg en New York.
Hún er bara öðruvísi, eins og Is-
lendingar. Hugmyndir hafa aldrei
numið land hér nema með ferleg-
um skipbrotum ogber Reykjavík
merki þess. Nema reykvískir
skipulagsfræðingar hafi aðhyllst
hugmyndir hins kunna arkitekts
Negroponti sem vildi brjóta upp
gamla borgarskipulagið með torgi
1 miðjunni og hringum utanum,
eins og í París. Hann raðaði léttum
pappakössum á gólf og hleypti her
af maurum í gegn. Þeir ýttu köss-
unum hingað og þangað og riðluðu
allri uppröðun, - og þar með var
komið nýtt borgarsldpulag. Að
minnsta kosti höfnuðu Reykvík-
ingar hinni fomu og skynsömu
hringhugmynd sem Guðjón Sam-
úelsson reyndi að innleiða hér á
fyrri hluta aldarinnar, en enda-
slepp Hringbrautin mun vera eini
eða einn af fáum vitnisburðum
þeirrar tilraunar.
Skortur á (heildar)hugsun í
sldpulagi borgarinnar þarf heldur
ekki að þýða að borgin sé ljót.
Reykjavfli er ekki ljót borg. En ég
held reyndar að íslendingar meti
fegurð borga og bæja á annan hátt
en aðrar þjóðir. Þetta rann upp
fyrir mér á Ijósmyndasýningu
Kristínar Hauksdóttur í sal Is-
lenskrar grafíkur í apríl síðastliðn-
um. Þai- hengu tvær myndir hlið
við hlið af sinni borginni hvor. Sú
vinstra megin sýndi New York-
borg rísa úr hafinu eins og stuðla-
berg. Myndin var tekin um borð í
ferju sem siglir milli Manhattan-
eyju og Statten Island. í forgranni
var ein af þessum jámgrindum
sem einkenna svo mjög stórborg-
ina og byrgja tfl að mynda fiesta
glugga hennar en er hér notuð tfl
að vama farþegum feijunnar að
fara fyrir borð. Myndin hægra
megin sýndi Esjuna rísa úr sæ í
allri sinni dýrð. I forgranni var
hafið eitt, en myndin var tekin frá
Reykjavík.
Þessar myndir afhjúpa reyk-
vískt ef ekki íslenskt fegurðar-
skyn, að minnsta kosti þegar borg-
in er annars vegar. New
York-búinn, sem Kristín Hauks-
dóttir var vel að merkja sjálf um
nokkurt skeið, horfir til borgar-
innar í leit að fegurð hennar en
Reykvfldngurinn horfir frá borg-
inni í leit að fegurð hennar. Þetta
gæti virst svolítið einstrengingsleg
túlkun í fyrstu en henni til stuðn-
ings má benda á hvað Islendingar
hafa alltaf verið uppteknir af bæj-
arstæðum (og svei mér ef bæjar-
stæði er ekki séríslenskt hugtak).
Islendingar tala mikið um að bæj-
arstæði séu falleg, en minna um að
bæir séu fallegir. Kannski er þetta
til komið vegna þess að íslending-
ar tíðkuðu enga afgerandi bygg-
ingarlist fram eftir öldum heldur
bjuggu í moldarbyngjum sem féllu
inn í landslagið. Kannski er þetta
arfleifð Gunnars sem sagði: Fögur
er hlíðin. En ekki: Fagur er Hlíð-
arendi. Og þótt íslendingar séu
famir að stunda einhvers konar
byggingarlist þá tölum við svona
enn. Þegar sflfurmaðurinn Egfll
Helgason innti Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borgarstjóra eftir áliti
hennar á því hvort Reykjavík væri
fijgur borg á Skjá einum í vetur, þá
nefndi hún fyrst Esjuna og hið fal-
lega bæjarstæði. Það komu svo
hálfgerðar vöflur á Bjöm Ólafs,
einn víðkunnasta skipulags-
aridtekt íslands, þegar hann var
spurður sömu spumingar, en hann
nefndi einnig fallegt bæjarstæðið,
- sagði reyndar að Reykjavík væri
eitt fallegasta bæjarstæði í heimi.
Sjálfur myndi ég líka segja
þetta, fögur er Esjan, en hugarró
og staðfestu í þessarí borg finn ég í
samræmdu göngulagi: eitt langt
tvö stutt, eitt langt tvö stutt, eitt
langt tvö stutt...
Sérkennsla - Sérkennarar hafa áhuga á að hagnýta tölvu-
tæknina á markvissan hátt í kennslu og aðlögun námsgagna.
Inga Rún Sigurðardóttir hitti að máli Sigurð Fjalar Jónsson
sem hjálpaði kennurunum að nálgast þetta takmark á nýlegu
námskeiði Símenntunarstofnunar KHI.
>S;V
Morgunblaðið/Arnaldur
Námskeiðið var að stærstum hluta verklegt og byggðist á því að þátttakendur lærðu á tæknina um leið og
þeir notuðu hana. Aðsóknin á námskeiðið var mikil og komust færri að en vildu.
Tölvur í starfí
sérkennara
• Stór hluti af verki sérkennara
er að aðlaga námsefni
• Tölvur eru tímasparandi og geta
breytt starfi kennarans mikið
SÍMENNTUNARSTOFNUN
Kennaraháskóla íslands
stóð fyrir tölvunámskeiði
ætluðu sérkennurum
þann 13.-16. júní sl. „Sérkennarar
hafa viljað nýta sér tölvutæknina
betur á þeirra eigin forsendum,"
segir Sigurður Fjalar Jónsson,
annar umsjónarmanna nám-
skeiðsins.
Hann segir að námskeiðið hafi
verið ætlað kennurum með mis-
munandi reynslu og undirstöðu á
sviði upplýsinga- og samskipta-
tækni.
Aðsóknin á námskeiðið var
mikil og komust færri að en
vildu. „Við höfðum einungis sext-
án tölvur til umráða hér í ferða-
tölvuveri Símenntunarstofnunar
en alls voru umsóknirnar í kring-
um 80 talsins. Þörfin er fyrir
hendi og áhugi sérkennara er
greinilega til staðar,“ segir Sig-
urður Fjalar.
Auk Sigurðar hafði Guðrún
Hallgrímsdóttir umsjón með
námskeiðinu en líkt og Sigurður
Fjalar kennir hún við starfsbraut
Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Starfsbrautin er aðallega ætluð
fötluðum nemendum en þar er
mikil áhersla lögð á hagnýtingu
tölvu- og upplýsingatækni í allri
kennslu.
Hagnýt tölvutækni
Námskeiðið var að stærstum
hluta verklegt og byggðist á því
að þátttakendur lærðu á tæknina
um leið og þeir notuðu hana.
Mikil áhersla var lögð á að sýna
hvernig hægt er að hagnýta
tölvutæknina á markvissan hátt í
kennslu og nýsköpun.
„Stór hluti af verki sérkennara
er að aðlaga námsefni þannig að
það henti nemendum þeirra. Til
dæmis fórum við í umbrotsforrit-
ið Publisher og hvernig hægt er
að nota það til að útbúa nám-
sefni,“ segir Sigurður Fjalar.
Að sögn Sigurðar var nám-
skeiðið tvíþætt. „í fyrsta lagi var
lögð áhersla, á tölvutækni í starfi
kennarans. I öðru lagi var litið á
það hvernig hægt er að nota tölv-
ur í námi nemendanna og þá á ég
við bæði sérhæfð kennsluforrit
og Word,“ segir hann.
Upphaf námskeiðsins fór í það
að kenna á stafrænar myndavélar
og fjalla um hvernig hægt er að
nota stafrænar myndir í sér-
kennslu. „Þær geta boðið upp á
óhefðbundin tjáskipti ef til vill
við nemendur sem tala ekki.
Við fórum líka í forrit Náms-
gagnastofnunar, „Bókin sem tal-
ar“. Forritið er margmiðlunar-
forrit og er því hægt að blanda
saman texta hljóði og myndum,
bæði stafrænum og teiknuðum,“
segir hann.
Forrit sótt á Netinu
Sigurður Fjalar talar einnig
um mikla möguleika Netsins í
þessu sambandi. „Það er mjkil út-
gáfa á forritum á Netinu. A nám-
skeiðinu sóttum við á Netið til
dæmis forrit til að vinna með
stafrænar myndir, eins konar
stafrænt myndaalbúm," segir
hann.
Góður staður til að sækja forrit
á Netinu er t.d. á www.soft-
seek.com. Sigurður fór sérstak-
lega í það á námskeiðinu hvernig
á að bera sig að við það en allar
kennslutölvurnar voru nettengd-
ar.
„Eg lagði líka áherslu á það að
kenna á forrit sem bjóða upp á
skapandi möguleika svo sérkenn-
arar geti lagað þau að eigin þörf-
um. Einnig fórum við í Windows
notendaviðmótið. Þar er mörgu
hægt að breyta til að einfalda
notkun þess. Sem dæmi má nefna
er hægt að hægja á músinni og