Morgunblaðið - 20.06.2000, Page 47

Morgunblaðið - 20.06.2000, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 47 MENNTUN stilla lyklaborðið þannig að það henti betur nemendum með sér- þarfír,“ segir Sigurður Pjalar. Gagnagrunnur fyrir sérkennara Hann kynnti einnig forritið „Sérkennsluþjóninn“ en í því geta sérkennarar skráð allar upplýs- ingar sem tengjast nemendum. „Þetta er gagnagrunnur fyrir sérkennara og það eru margir sem nýta sér forritið," segir hann. Sigurður Fjalar segir að tölvu- námskeiðið sé það fyrsta í nokk- urn tíma sem haldið er sérstak- lega fyrir sérkennara. „Með því að halda námskeið ætlað sér- kennurum er hægt að afmarka námsefnið. Námskeiðið verður því mun markvissara," segir hann. Námskeiðið er þrátt fyrir þetta frekar yfirgripsmikið. „Avinning- urinn fyrir hvern og einn þátttak- anda fer auðvitað eftir því hvað hann gerir við alla þessa nýju þekkingu eftir að námskeiðinu lýkur. Ég mundi segja að nám- skeiðið gefi ágætt yfirlit yfir þá möguleika sem eru til staðar fyr- ir sérkennara í tölvuheiminum. Þetta ýtir þeim af stað á mörgum sviðum. Fólk þarf að fá hvatn- ingu og jafnframt tækifæri til að kynnast tækninni sem til er. Hópurinn á námskeiðinu hefur verið mjög námsfús og skemmti- legur í alla staði,“ segir Sigurður Fjalar. „Ef tölvutækni er nýtt á réttan hátt þá getur hún breytt starfi kennarans verulega mikið. Til að mynda er það mjög tímasparandi ef kennarar kunna að notfæra sér alla möguleika tölvunnar. Þá á ég við í námsefnisgerð og aðlögun námsefnis fyrir nemendur með sérþarfir enda er það hlutur sem við höfum einbeitt okkur mikið að á námskeiðinu." Ályktanir SAMFOK Á AÐALFUNDI SAMFOK þriðjudaginn 16. maí sl. voru eftirfarandi ályktanir sam- þykktar: 1. „SAMFOK telur tíma- bært að lengja skólaár nem- enda í íslenskum grunnskól- um til samræmis við það sem gerist hjá nágranna- þjóðum okkar. Jafnframt því að nota stærri hluta ársins til kennslu, öllum til hags- bóta, þarf að endurskipu- leggja og laga skólastarfið að þeim aðstæðum sem börn og foreldrar búa við nú á tímum. Aðalfundur SAM- FOK skorar því á yfirvöld fræðslumála í landinu og í Reykjavík að hefja þegar í stað þá vinnu sem fram þarf að fara til að hægt sé að lengja skólaárið sem allra fyrst.“ 2. „Aðalfundur SAMFOK skorar á yfirvöld mennta- mála, félagsmála og heil- brigðismála að finna strax lausn á því hvernig fjár- magna eigi sérúrræði í grunnskólunum og hvernig standa eigi að þjónustunni. Fjöldi grunnskólabarna fær ekki þá aðstoð og þjónustu sem þörf er á því ekki er ljóst hvar ábyrgðin hvílir." 3. „Aðalfundur SAMFOK hvetur Reykjavíkurborg til að bæta um betur í sérúr- ræðum fyrir börn í grunn- skólum Reykjavíkur. í því samhengi skorar fundurinn á Fræðslumiðstöð og fræðslur- áð Reykjavíkur að birta sem fyrst niðurstöður könnunar á þessum málaflokki sem gerð var síðastliðið ár og leggja fram tillögur um hvernig megi bæta þessa þjónustu.“ EMMA MAGNÚSDÓTTIR + Emma Magnús- dóttir fæddist 5. ágúst 1921 í Kúvík- um í Árneshreppi á Ströndum. Foreldr- ar hennar voru Magnús Hannibals- son, f. 14.4. 1874, d. 1.3. 1963, og Guðf- inna Guðmundsdótt- ir, f. 6.9. 1895, d. 19.5. 1973. Alsystk- ini Emmu eru: 1) Ester Lára, f. 29.4. 1917, maki Guð- mundur Pétur Águstsson, f. 11.12. 1912, d. 30.10. 1997, og eiga þau tvo syni. 2) Trausti Bi eiðfjörð, f. 13.8. 1918, maki Hulda Jónsdótt- ir, f. 10.3.1921, og eiga þau fimm börn. 3) Vilborg Magnúsdóttir, f. 1920, d. 1928. Hálfsystkini Emmu frá fyrra hjónabandi Magnúsar eru Klara, Guðrún, Vilma, Magnús, Helga og Lára. Eiginmaður Emmu var Sveinn Guð- mundsson, f. 17.12. 1913, d. 10.6. 1984. Börn þeirra eru: 1) Kamilla, f. 7.5. 1942, maki Hans Ove Han- sen, f. 7.8. 1943. Börn þeirra eru Selma og Sveinn og eiga þau tvö barnabörn. 2) Guðrún, f. 2.1. 1944, d. 10.4. 1944. 3) Guð- mundur Sveinsson, f. 11.12. 1946, d. 17.2. 1995, maki Guðlaug Kristmundsdóttir, f. 29.2. 1956. Börn þeirra eru Sveinn, Kristmundur og Helga. 4) Gunn- laugur Sveinsson, f. 30.6. 1950, maki Elín Ástráðsdóttir, f. 7.12. 1954. Börn þeirra eru Pétur og Þóra. Útfór Emmu fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Hún Emma frænka er dáin. Lát hennar kom okkur, sem þekktum hana, ekki á óvart. Hún hafði í nokkur ár átt við vanheilsu að stríða en samt finnst mér hafa skapast nokkurt tómarúm í tilveru minni við fráfall hennar. Fyrstu minningar mínar um hana og hennar fjölskyldu er frá þeim ár- um er við áttum öll heima í Djúpa- vík. Heimili hennar og Sveins, mannsins hennar, var á vissan hátt mitt annað heimili. Ekki spillti fyr- ir að amma og afi áttu heima í sama húsi og þau. Á blómaskeiði Djúpavíkur vann hún við sfldar- söltun þar og tvö síðustu sumurin sem við fórum til vinnu þangað vann hún ásamt mömmu í matsöl- unni sem þar var starfrækt. Emma fékk snemma að kynnast því að lífið er ekki eilífur dans á rósum. Þegar hún var u.þ.b. sex ára lamaðist móðir hennar skyndi- lega. Má nærri geta hvílíkt álag það hefur verið á heimilið þegar húsmóðirin lá rúmföst mánuðum saman. I fyrstu yar Emma í fóstri á Steinstúni í Árneshreppi og er ég þess fullviss að þar hefur verið vel hugsað um hana. Síðar fór hún sem barnapía inn á Dranganes í Steingrímsfirði. Ái'ið 1941 giftist hún Sveini Guðmundssyni, miklum sómamanni. Hann ólst upp í Kjós frá ellefu ára aldri hjá Petrínu ömmu minni og seinni manni hennar, Jóni Daníelssyni. Þannig voru hann og pabbi að hluta til uppeldisbræður og þannig vildi til að þeir kvæntust systrum og bjuggu nánast allan sinn aldur í nágrenni hvor við annan. Þegar fór að halla undan fæti í atvinnusögu Djúpavíkur var ekki um annað að ræða en flytja sig um set. Emma og Sveinn fóru að hafa vetursetu fyrir sunnan og árið 1957 fluttu þau alfarin frá Djúpa- vík og settust að í Hafnarfirði, þar sem þau bjuggu allar götur síðan. Ég hef oft leitt að því hugann hversu erfitt hlýtur að vera fyrir fólk sem hefur byggt sér heimili á stöðum eins og Djúpavík að þurfa að yfirgefa eignir sínar og byrja upp á nýtt. Því hús á svona stöðum eru verðlaus og auk þess þarf að greiða af þeim skatta og skyldur. En þetta fólk var ekkert að kvarta. Vol og væl nútímans var ekki til í þeirra orðabók. Þau Emma og Sveinn festu sér íbúð við Öldugötu 44 í Hafnarfirði og þar var heimili þeirra allt til æviloka. Eins og áður er getið var lífið ekki alltaf jafnblítt við Emmu. Næstelsta barn hennar, stúlka að nafni Guðrún, lést aðeins þriggja mánaða gömul. Sveinn maður hennar lést skyndilega hinn 10. júní 1984 og Guðmundur eldri son- ur hennar féll frá í ársbyrjun 1995 eftir erfið veikindi. Emma var glaðlynd og félags- lynd kona. Heimili þeirra Sveins stóð ávallt opið vinum og ættingj- um og ekki síður vinum barna hennar. Þar var því oft glatt á Hjalla. Var Emma oftar en ekki hrókur alls fagnaðar. Það er áreiðanlegt að létt lund hefur hjálpað henni á erfiðum stundum í lífinu. Þegar heilsunni fór að hraka kom vel í ljós að hún átti marga góða vini sem litu til hennar og réttu henni hjálparhönd. Hún vildi búa á sínu heimili eins lengi og kostur væri. Með hjálp vina og ættingja tókst henni það. Ég fann það oft hversu þakklát hún var þessu fólki. Þegar ljóst var nú í vor á hversu alvarlegt stig veikindi Emmu voru komin átti hún sér tvær óskir. Önnur var sú að fá að lifa fram yf- ir fermingu Helgu, sonardóttur sinnar, og hin var að lokabaráttan tæki ekki langan tíma. Fyrri óskin rættist en það er spurning um þá síðari. Elsku Milla og Hans Ove, Gulli og Ella, Gulla og fjölskyldur. Við Hanna og fjölskylda okkar sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Minningin lifir þótt maðurinn falli. Emma mín. Þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og mitt fólk. Hvíl í friði. Magnús Guðmundsson. í dag kveð ég kæra vinkonu mína Emmu Magnúsdóttur sem lést á Vífilstaðaspítala að kveldi 9. júní sl. Vinátta okkar Emmu er búin að vara um 30 ár og finnst mér að Emma hafi alltaf verið til staðar fyrir mig í mínu lífi. Það eru svo ótal margar minn- ingar sem koma fram í huga minn nú á þessum dögum. Við vorum nágrannar í mörg ár á Öldugötu 44, Hafnarfirði. Þangað fluttu fjöl- skyldur okkar í nýtt sambýlishús haustið 1959. Þar myndaðist gott samfélag með góðu fólki. Við Óli maðurinn minn vorum yngst hjóna í húsinu en það kom ekki að sök því að við féllum vel inn í þennan hóp. Það var margt brallað saman og góð vinátta myndaðist á milli okkar allra. Má til nefna að einu sinni fórum við í ógleymanlega ferð í Þórsmörk og man ég að fólk sem við hittum þar fannst mjög skrítið að fjölskyldur úr sama stigagangi í fjölbýlishúsi færu saman í skemmtiferð en þetta var sérstakt samfélag, við stóðum saman í gleði og sorg, það fékk ég að reyna þegar ég missti Óla hvað ég átti þarna góða vini. Þetta breyttist ekki þó að ég flytti í burtu. Þessir góðu vinir voru allt- af til staðar. Margt breytist á löngum tíma. Fólk hverfur úr hópnum eins og gengur en Emma var á sinni Öldu- SIGRIÐUR GUÐNY GUÐJÓNSDÓTTIR + Sigríður Guðný Guðjónsdóttir fæddist á Eskifirði 4. nóvember 1917. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur í Foss- vogi 29. maí síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Sólveig Þorleifsdóttir og Guðjón Jónsson. Sig- rfður var yngst af sjö systkinum. Hún var alin upp af fósturfor- eldrum frá sex vikna aldri. Þau hétu Karl- ína G. Stefánsdóttir og Gunnlaugur Guðmundsson. Fóstursystkin Sigríðar voru þrjú. Sigríður giftist Friðgeiri Eir- íkssyni árið 1951 og eignuðust þau þrjú börn, Karlínu Guðrúnu, Jón Kristin og Gunnlaug Jó- hann. Barnabörnin eru fimm og barnabarnabörnin þrjú. Utför Sigríðar var gerð frá Fossvogskapellu hinn 8. júní síð- astliðinn í kyrrþey, að ósk hinn- ar látnu. Hve undurhægt vaggast bátur þinn yið landsteina eigin bemsku. Á mjúkum silkispegli, bak við langa ævi horfist þú í augu við litla telpu. Slegið hár hverfist í leik smárra fiska, í sólskini fljúga þeir á gullnum vængjum inn í laufgrænan skóg. (Jón úr Vör.) Elsku mamma, nú er lokið lífi þínu á jörðinni að þessu sinni. Það var bjart og fagurt veður þegar þú sveifst á braut til fundar við skap- ara þinn. Það var líka bjart og frið- ur yfir ásjónu þinni á þeirri stundu. Þreyttum og sjúkum er hvíldin kær, þó það sé alltaf sárt að sjá eftir sínum nánustu þá er gott að hugsa til þín, elsku mamma mín, heilbrigðrar með fulla heyrn í faðmi frelsarans, og allra hinna sem þér þótti vænt um og á undan eru gengnir. Ég hugsa með þakk- læti til bernskunnar, þú varst alltaf til staðar og þið pabbi bjugguð okkur ör- uggt heimili. Ég minnist daga með ilmi af nýsteikt- um kleinum og daga sem amma Kalla kom og þú settir bylgjur í hárið hennar. Þá hafðir þú heyi-n- ina og þið spjölluðuð margt saman, mér fannst gaman að fylgjast með og hlusta á ykkur. Þú varst alltaf tilbúin að liðsinna öðrum ef þú gast. Elsku mamma hafðu þökk fyrir allt og allt. I náð legg ég mig lausnarans líf mitt er á valdi hans. Gæskan þín hefur grát minn stillt. Guð, far þú með mig sem þú vilt. (H.P.) Karlína Guðrún. Elsku amma mín. Nú er víst komið að kveðjustund að sinni. Á svona stundu koma margar góðar minningar upp í hugann. Mér verður hugsað til allra góðu stund- anna sem við óttum saman þegar ég kom til ykkar afa á sumrin. í Skólagerðinu varstu með sérstaka hillu sem þú safnaðir í alls konar krukkum og dósum fyrir mig í búið og voru þetta hinir mestu dýrgrip- ir í mínum augum sem ég tók svo alsæl með mér heim í sveitina. Og þegar ég fór að heiman til götu. Þangað var alltaf hægt að koma, hún var alltaf til staðar og margar stundir sátum við saman í eldhúskróknum hennar og rædd- um málin. Ekki vorum við nú alltaf sammála vinkonurnar, báðar pínu- lítið frekar og stjórnsamar en það var nú allt í góðu, við hlógum mik- ið saman eða jafnvel grétum á stundum. Ekki fór Emma mín varhluta af sorginni. Hún missti unga dóttur á fyrsta ári, son sinn Guðmund í blóma lífsins frá konu og þremur börnum, mikinn mannkostamann, og var það henni þung raun. Eig- inmann sinn, Svein Guðmundsson, missti hún 10. júní 1984. Sveinn var mikið ljúfmenni og var hans sárt saknað af þeim sem til han.fr þekktu. Eftirlifandi börn þeirra hjóna eru Kamilla, búsett í Danmörku, og Gunnlaugur búsettur í Hafnar- firði. Emma átti góða fjölskyldu sem annaðist hana vel og var hún þeim þakklát fyrir það. Emma átti við erfið veikindi að stríða síðustu ár og settu þau mark sitt á hana, en Emma var létt í skapi og átti sínar góðu stundir. Fram undir það síð- asta var hún hress og sagði brand- ara. Þegar ég heimsótti hana síð- ast var mjög af henni dregið en samt gátum við hlegið pínulítið saman. Hún vissi að endalokin voru skammt undan og kveið þeim ekki. Emma var vinmörg, sýndi það sig best í veikindum hennar. Hún laðaði að sér fólk á öllum aldri, var hrókur alls fagnaðar á góðum stundum og sannur vinur í raun. Emma mín, ég á eftir að sakna þín mikið en jafnframt gleðst ég yfir að þú ert búin að fá hvíldina. Ég er þakklát að hafa átt þig sem vinkonu öll þessi ár, það er mér mikils virði. Fjölskyldu þinni allri sendi ég góðar kveðjur. Guð geymi þig. * Þóra V. Antonsdóttir. borgarinnar í skóla átti ég alltaf öruggt skjól hjá ykkur afa á Dun- haganum, þau voru ófá kvöldin sem ég var með heimþrá en ákvað þá að taka strætó til ömmu og afa og fékk að sofa á stofugólfinu yfir helgina og varð þá alltaf allt betra. Mér leið alltaf svo vel hjá ykkur, fannst lengi vel heimili ykkar vera mitt annað heimili, sjálfsagt hefur það stafað af því að þú tókst að þér að gæta mín þegar ég var lítið kríli og mamma þurfti að fara að vinna. Núna þegar þú ert farin sé ég hvað þú hefur verið mikill hluti af, lífi mínu og þótt ég hafi ekki komið' eins oft og ég hefði viljað nú í seinni tíð þá hef ég alltaf haft hug- ann hjá ykkur. Þegar þú varst á spítalanum núna síðast hugsaði ég með mér að þú kæmir heim eftir smá tíma eins og svo oft áður og þá ætlaði ég að bjóða ykkur afa á nýja heimilið mitt. Eg vildi ekki horfast í augu við það að nú væri tíma þínum að Ijúka hér hjá okkur en innst inni vissi ég það og þegar mamma og pabbi komu til að segja mér að þú værir látin vissi ég áður en nokkuð var sagt að nú værir þú farin til betri heima. En þó að það sé erfitt að hugsa sér veröldina án þín er huggun mín sú að nú ert þú laus undan líkamlegum þrautum og að englar Guðs taka á móti þér og vísa þér leiðina heim. Blessuð sé minning þín. Við sjáum að dýrð á djúpið slær, þó degi sé tekið að halla. það er eins og festingin færist nær og faðmi jörðina alla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, að þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóstið þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumarnótt og svanur á bláan voginn. (Davíð Stefánsson.) Sólveig Harpa.. -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.