Morgunblaðið - 20.06.2000, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 20.06.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ ________________________________ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 5 3 MINNINGAR VALUR SKARPHÉÐINSSON + Valur Skarphéð- insson fæddist á Siglufirði 23. febrúar 1956. Hann lést á Cayman Island 2. júní síðastliðinn. Foreldr- ar hans eru Esther Anna Jóhannsdéttir, f. 13. ágúst 1930, og Skarphéðinn Guð- mundsson, fv. kaup- félagsstjóri og skrif- stofustjóri, f. 7. aprfl 1930. Systkini Vals eru sex: 1) Ebba, f. 1949, sambýlismaður Hjálmar Baldursson og á hún einn son. 2) Guðmundur, f. 1951, maki Margrét Sigmanns- dóttir og eiga þau tvö börn og einnig á Guðmundur einn son að auki. 3) Guðný, f. 1952, maki Sig- urður Einarsson og eiga þau þrjú börn. 4) Jóhann, f. 1953, og á hann fjögur börn. 5) Gunnar Rafn, f. 1964, maki Bergþóra Jóhannsdótt- ir og eiga þau þijú börn. 6) Bryn- hildur, f. 1965, maki Valur Blomst- erberg og eiga þau tvö böm. Valur ólst upp á Siglufirði til 15 ára aldurs og gekk þar í barna- og ungl- ingaskóla. Árið 1971 fluttist hann með for- eldrum sinum til Vflí- ur í Mýrdal og bjó þar í eitt ár og var þá í heimavistarskóla á Skógum undir Eyja- fjöllum. Hann fluttist síðan til Ilafnarfjarð- ar og lauk þar gagn- fræðaprófi frá Flens- borgarskóla. Að því loknu fór hann í Iðn- skólann í Hafnarfirði til að læra tækni- teiknun og var þar í tvö ár. Hann starfaði siðan hjá SÍS við auglýs- ingagerð og tækniteiknun. Einnig starfaði hann við áfengismeðferð- arstöð SÁÁ á Staðarfelli í þtjú ár. Eftir starf sitt á Staðarfelli vann hann á ýmsum auglýsingastofum við grafíska hönnun tii ársins 1996 er hann varð að láta af störfum vegna veikinda. Útför Vals fer fram frá Selja- kirlgu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku bróðir, mig setti hljóða þegar mér var tilkynnt að þú værir látinn. Stuttu áður hafði ég talað við þig í síma og þá leið þér svo vel og varst svo ánægður með lífið og til- veruna. Það er oft svo erfitt að skilja þegar ungt fólk í blóma lífsins er kallað burt, þá vakna margar spurn- ingar en svörin verða fá. Þú varst búinn að ganga í gegnum stóra að- gerð og erfið veikindi en hafðir náð það góðum bata til að eiga nokkur góð ár á fallegu eyjunni sem þér þótti svo vænt um, og, elsku bróðir, nú ertu kominn á annan fallegan stað sem Guð hefur búið þér hjá sér. Þar líður þér líka vel og hjartað þitt er ekki lengur veikt. Ég minnist þín alltaf sem litla bróður því þú varst svo lengi yngstur okkar systkinanna og ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig að. Ég hef ekki bara misst bróð- ur heldur líka góðan vin sem ég gat talað við um öll mín hjartans mál. Ég kveð þig, elsku bróðir, með bæn- inni sem við kunnum svo vel: Guð gefi mér æðruleysi tilaðsættamigviðþað semégfæekkibreytt kjark til að breyta því sem éggetbreytt og vit til að greina þar á milli. Ebba. Ég vil í nokkrum orðum kveðja bróður minn þar sem leiðir okkar hafa skilið í bili. Valur var næstur mér í aldursröð- inni af okkur systkinum og var hann þremur árum yngri en ég. Ekki veit ég hvort það er út af þvi en samband á milli okkar hefur ávallt verið mjög gott og leitaði hann oft til mín um mál sem ég gat leiðbeint honum með. Valur var strax í barnæsku mikill náttúruunnandi og var einnig mjög listrænn og góður teiknari og málari og lék allt í höndum hans sem hann tók að sér. Hann bæði eld- aði mat, bakaði, saumaði, prjónaði, teiknaði, málaði o.fl. o.fl. Hann hafði strax mjög ungur mikinn áhuga á öllu lífi í náttúrunni allt frá smæstu skordýrum, plöntum, sjávargróðri og þessháttar. Og á meðan hann naut þess að vera heill heilsu varði hann mörgum stundum til að ganga á fjöll og skoða fjörur og skipti þá ekki máli hvort hann var einn síns liðs eða með vinum. Alla tíð hefur Valur átt mjög auðvelt og haft gam- an af að umgangast börn og var hann á sínum yngri sem og á síðustu árum notaður óspart við barna- gæslu fyrir frændsystkini sín. Arið 1996 varð Valur mjög veikur af sjúkdómi þeim sem hann átti við að stríða og varð hann alveg óvinnu- fær i júní 1996. Strax í mars 1997 var gerð aðgerð á hjarta Vals þar sem skorin voru 120 g af hjarta- vöðva hans til að bjarga lífi hans og er það enn þá, að ég held, eina að- gerðin af þessu tagi sem gerð hefur verið hér á íslandi. í framhaldi af því var Valur settur á biðlista vegna hjartaígræðslu og fór hann til Kaup- mannahafnar í janúar 1999 til rann- sóknar og undirbúnings fyrir vænt- anlega hjartaígræðslu. Fylgdi ég honum í þeirri ferð og voru þetta mjög erfiðir dagar hjá honum á Ríkisspitalanum í Kaupmannahöfn, bæði erfiðar rannsóknir og heilsa hans var ekki upp á marga fiska. Eftir heimkomu til íslands tók við bið eftir kalli frá Kaupmannahöfn og þurfti hann þá að vera með boð- tæki á sér tilbúinn að fljúga sam- stundis út en það var annað sem togaði í hann vegna þess að á árinu 1996 hafði Valur kynnst yndislegum manni frá USA, Ajidrew, sem bjó á Cayman Island í Karíbahafinu og hafði Valur dvalið hjá honum í hlý- indum og góðu loftslagi þarna suð- urfrá og tekið miklu ástfóstri við fólkið og staðinn. Læknar voru efins um að Valur kæmist í gegnum svo ei'fiða aðgerð sem hjartaígræðsla er og í framhaldi af því ákvað Valur að fara og dvelja hjá vini sínum Andrew á þeirri yndislegu eyju Cayman sem hann tók svo miklu ástfóstri við. Þar virtist hann vera sáttur við að geta átt einhver góð ár með góðum vinum áður en sjúkdóm- urinn væri svo langt genginn að hann yrði að snúa heim aftur. Ekki fór það svo að hann þyrfti að snúa heim til fósturjarðarinnar til sjúkra- húsvistar vegna veikinda heldur til hinstu hvíldar í islenskri mold. Val- ur bar sjúkdóm sinn mikið einn og var ekki mikið að deila líðan sinni með öðrum. I apiTl sl. átti ég þess kost að heimsækja þessa hitabeltiseyju og dvaldi ég hjá þeim vinum i hálfan mánuð og sá ég þá hvað Valur hafði það gott þarna. Þarna er yndislegt loftslag og hitastig og sá ég strax hvað þetta hafði góð áhrif á hann. Hann virtist vera mjög frískur og syntum við í heitum sjónum svo til daglega jafnt innan um hákarla og hornsíli og virtust þessi veikindi hans ekki há honum svo mjög nema að hann var skiljanlega orðinn frek- ar þreyttur eftir allt rápið yfir dag- inn. Valur, að lokum vil ég þakka þér fyrir allar þær stundir sem við höf- um átt saman og vona að þú gangir heill heilsu inn í nýtt líf á nýjum stað. Guð geymi þig og varðveiti. Jóhann. Einn morgun hringdi síminn og systir mín færði mér þær sorgar- fréttir að Valur væri dáinn eftir erf- ið veikindi þar sem hann dvaldi er- lendis, þar sem hann átti góðar stundir. Valur var fimmti í röðinni af sjö systkinum. Þau voru alltaf sam- hent bæði í gleði og erfiðleikum. Ég hef aldri skilið hvað systur minni er gefið af Guðs náð að vera bæði dug- leg og sterk. Skarphéðinn, faðir Vals, dvelur á Hrafnistu í Hafnar- firði í erfiðum veikindum, það gladdi mig þegar ég fékk að kynnast Val, þessum sómadreng, þegar ég dvaldi á Reykjalundi á sama tíma og tvö systkinabama minna voru í þjálfun þar. Þá var Valur að koma úr erfiðri hjartaaðgerð. Valur var mjög list- rænn og hæfileikaríkur ungur mað- ur, bæði var hann góðhjartaður og vel af guði gerður. Ég votta Ester systur minni og mági og systkinum Vals dýpstu samúð mína. Valur minn var trúaður. Ég enda þessi orð mín á nokkrum versum úr 23. sálmi Davíðs. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkertbresta. A grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns sins. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, þvíaðþúerthjámér sproti þinn og stafur hugga mig. Ástríður Jóhannsdóttir. Valur Skarphéðinsson auglýs- ingateiknari, Sóleyjarhlíð 1, Hafn- arfirði, lést á Caymaneyjum í Kar- abíahafi 2. júní síðastliðinn. Hann var 44 ára. Aralangri þraut hans við heilsubrest er lokið. Banamein hans var hjartabilun. Þegar nýrri stofnun er komið á fót þarf að huga að ýmsu, svo sem marka henni stefnu, tryggja fjár- hagsgrundvöll hennar, finna henni húsnæði, ráða starfsfólk en ekki síst skapa starfseminni rétta ímynd í samræmi við markmið með henni. Það var lán Stofnunar Sigurðar Nordals að njóta starfa Vals Skarp- héðinssonar við að draga upp merki stofnunarinnar, teikna bréfsefni, setja upp kynningarbæklinga henn- ar, ganga frá auglýsingum og teikna bókarkápur. Alla þessa vinnu leysti ‘Kjossar á kiði ‘Rgðfrítt stáí- varankgt efni ‘Kjossamir emframkiddir úr hvíthúðuðu, ryðfríu stáCi. Minnisvarði sem endist um óCprnna tíð. SótCross m/geisCum. Síæð 100 smfrájörðu. rívöfaCdur (joss. ðtceð 110 smfrájörðu. Jírinyið í síma 431-1075 og fáið [itahœfjing. BLIKKVERKsf Dalbraut 2, 300 Akranesi. Sími 431 1075, fax 431 1076 hann fljótt og vel af hendi, af þeirri smekkvísi sem honum var lagin í öll- um verkum sínum. Nýtur stofnunin enn afraksturs starfa hans þótt hann hafi ekki getað sinnt vinnu í nokkur ár vegna sjúkleika. Valur var nettvaxinn og fríður. Hann var vel gefinn þótt hann legði ekki fyrir sig langskólanám. Ekki síst átti hann auðvelt með að teikna og fara með vatnsliti. Þá hafði hann mikinn áhuga á matargerð og blómarækt og hann naut þess að horfa á góðar kvikmyndir og fara í leikhús. Valur var þægilegur í við- móti og glaðsinna en dulur um hagi sína og viðkvæmur í lund. Hann fór ekki í manngreinarálit og á lífsleiðinni kynntist hann mörg- um og átti vináttu þeirra. Lá honum gott orð til allra og var þakklátur þeim sem hann taldi hafa greitt götu sína. Foreldrar hans og systkini létu sér annt um hann og hann endurgalt umhyggju þeirra. Síðustu árin dvaldist hann langdvölum hjá vini sínum, Andrew Guthrie, forstjóra grasgarðsins á Caymaneyjum. Sú ákvörðun Vals á síðasta hausti að hætta við að bíða eftir hjartaað- gerð heldur lifa eins og honum væri best unnt svo lengi sem líf entist, var ekki tekin umhugsunarlaust. Hann var kjarkaður að halda til Caymaneyja á haustdögum eins og heilsu hans var þá komið. Honum virtist þó líða miklu betur eftir vet- urinn í Karabíahafinu og átti þá ósk besta að fá að dveljast þar enn um stund. Því miður varð honum ekki að þeirri ósk sinni. Um leið og ég votta Andrew Guthrie, fjölskyldu Vals og öðrum ástvinum samhygð mína, þakka ég einlæga vináttu Vals og ánægjulegt og gott samstarf. _ Ulfar Bragason. Mig langar til að minnast vinar míns Vals í nokkrum orðum þar sem ég hef ekki tök á að fylgja honum síðasta spölinn. Ég hitti hann fyrst um vetur fyrir nærri sextán árum. Ég kom vestur á Staðarfell skjálf- andi á beinunum en sá ótti reyndist ástæðulaus því á móti mér tók ynd- islegt fólk og í þeim hópi var Valur. Hann var þá ritari þar og við urðum fljótt vinir enda yndislegur maður. Hann var alltaf tilbúinn að spjallæ— og hjálpa ef ég var eitthvað leið. Ár- in liðu og við hittumst af og til og alltaf var Valur jafnsætur og yndis- legur.Valur var ekki heilsuhraustur maður og síðast þegar ég talaði við hann stóð til að hann kæmi hingað út til lækninga og ég bað hann endi- lega að hafa nú samband ef hann kæmi svo við gætum rifjað upp gamla daga. En hann fór í aðra ferð, ferð sem við öll förum fyrr eða síðar og eftir sit ég með minninguna um mann sem vildi öllum vel og stóð ekki á sama um aðra. Ég vil senda foreldrum og systkinum mínar inni- ~ legustu samúðarkveðjur. Elsku Esther, guð gefi þér styrk. Valur minn, ég kveð þig, sofðu rótt vinur. Guðrún I. Bjamadóttir. • Fleiri nunningargreinar um Val Skarphéðinsson bíða birtingar og munu birtast iblaðinu næstu daga. ® ÚTFARARÞJÓNUSTAN bhf Persónuleg þjónusta Höfum undirbúið og séð um útfarir á höfuðborgar- svæðinu sem og þjónustu við landsbyggðina í 10 ár og erum samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægsta verð allra á Kkkistum og þjónustu við útfarir. Sími 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is utfarir@itn.is Rúnar Gcirmundsson Sigurður Rúnarsson útfararstjóri útfararstjúri Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst aila þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan ' sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja % / UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. r . ..... ....... ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Einarsson útfararstjóri, sími 896 8242 Útfararstofa fslands, SuðurhHð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.