Morgunblaðið - 20.06.2000, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 55
------------------------1
MINNINGAR
SIGFRIÐUR
PÁLMARSDÓTTIR
+ Sigfríður Pálm-
arsdóttir fæddist
4. desember 1922 á
Njarðargötu 61 í
Reykjavík. Hún lést
á Landspítalanum
við Hringbraut 12.
júní síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Anna Guðbjörg
Helgadóttir, fædd
11. september 1898
á bænum Kópavogi,
Seltjarnarnes-
hreppi, dáin 11.
október 1969 og Jón
Pálmar Sigurðsson,
f. 7. apríl 1895 að Berustöðum,
Holtum, Rangárvallasýslu, dáinn
18. maí 1978. Systkini
Sigfríðar eru Þuríður
sem lést í frum-
bemsku, Halldóra,
Óskar, Helgi, eru Iát-
in en eftir lifa Gunnar
og Hulda.
Sigfríður giftist 6.
september 1947 eftir-
lifandi eiginmanni
sinum Magnúsi Wíum
Vilhjálmssyni, f. 25.
janúar 1920 í Reykja-
vfk. Foreldrar hans
voru Vilhjálmur Stef-
ánsson, f. 17. nóvem-
ber 1888 í Norður-
koti, Grímsnesi og Sigríður Júlía
Wíum Hansdóttir, f. 14. júlí 1878 á
Elsku amma. Ég veit að þér líður
miklu betur hjá Guði en mér fannst
alltaf svo gott að hafa ykkur afa í
næsta húsi og fá að heimsækja ykk-
ur á hverjum degi. Þú varst alltaf svo
glöð og kenndir mér svo margt, með-
al annars að sauma og gera pönnu-
kökur. Þú hafðir alltaf tíma til að
hlusta á það sem ég hafði að segja og
steikti fískurinn þinn var sá besti
sem ég hef smakkað.
Ég veit að ég tala fyrir fleiri en
bara mig þegar ég þakka þér fyrir
Maríubakka á Si'ðu í V-Skafta-
fellssýslu, d. 31. júlí 1937.
Sigfríður og Magnús eignuðust
fjögur börn: Sigurlínu Júlíu, f. 23.
júlí 1948, maki Magnús Brimar
Jóhannsson og eiga þau Magnús
Brimar, Sunnu Kristínu og Jó-
hann Pétur; Pálmar Kristin, f. 19.
september 1954, maki Kristín
Þorsteinsdóttir, sem lést 14. apríl
síðastliðinn, þeirra dætur eru
Hólmfríður Hulda, Sigfríður
Arna, Jóhanna Wíum og Ingibjörg
Anna; Dagnýju, f. 12. mars 1957,
maki Agnar Kárason og eiga þau
Diljá, Arnar og Aron; Axel Wíum,
f. 19. febrúar 1963, maki Sigur-
björg Kristín Jónsdóttir.
Sigfríður ólst upp á Grímstaða-
holtinu í Reykjavík og bjó alla ævi
í næsta nágrenni við það, nú síð-
ast í Skeijafirði.
Útför Sigfriðar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
allt sem þú hefur gert fyrir mig og
alla aðra. Ég lofa líka að hætta aldrei
að heimsækja afa.
Þín
Diljá.
Ég var svo heppinn í barnæsku að
eiga að heilan flokk af góðum konum.
Fremstar fóru gömlu konumar,
Fríða og Gunna Helga, með ömmu í
broddi fylkingar, þær klæddust
peysufötum á tyllidögum og í minn-
ingunni voru þær alltaf að rífast um
hver ætti að vaska upp. Þessar kon-
ur höfum við allar kvatt á undanförn-
um áratugum. Svo voru það ungu
konurnar af kynslóð mömmu og nú
liggur þeim allt í einu líka á. Siggu
Boggu, mágkonu mömmu, kvöddum
við fyrir nokkrum vikum í sólar-
breyskju norður á Svalbarðsströnd
og nú hefur hún Bíbí, móðursystir
mín, þakkað fyrir sig.
Bíbí var sú systranna sem minnti
mest á ömmu, alltaf svo létt í skapi,
hlý og notaleg og gott að koma til
hennar. Hún gat líka verið hispurs-
lausari og hreinskiptari en maður
átti að venjast um fólk af kynslóð for-
eldranna. Sautján ára gamall brá ég
á það ráð að spyrja Bíbí frænku
hvort það væri mögulegt að fá afnot
af forstofuherbergi hjá þeim enda
orðinn ástfanginn upp fyrir haus og
þóttist ekki lengur geta deilt her-
bergi með yngri bræðrum. Það var
auðsótt mál. Það var líka að því leyti
hagkvæmara að búa á Tómasarhag-
anum en í Stangarholtinu að þaðan
var svo blessunarlega stutt í Skerja-
fjörðinn, hægt að ganga á milli á síð-
kvöldum. Eitt kvöldið var bankað
létt á dyr á forstofuherberginu. Þar
var komin Bíbí frænka með afar
fróðlega bók sem okkur minnir að
hafi heitið Hjónalíf: „Hérna, krakkar
mínir, lesiði þetta,“ sagði hún
kankvís og það gerðum við af tals-
verðri samviskusemi og þóttumst
fróðari eftir.
Bíbí var mikil ættmóðir og hugs-
aði vel um sitt fólk. Eftir miðjan ald-
ur byggðu þau hjón sér glæsilegt hús
á Baugatanga 7 í Skeijafirði og þar
varð umsvifalaust eins notalegt og
áður var á Tómasarhaganum. Dætur
þeirra hjóna hafa reist sér bú á
næstu þúfum svo og Hulda móður-
systir mín en samband þeirra systra
var afar náið. I þessu nýtískulega
húsi hafa þær Bíbí og Hulda setið
eins og í baðstofu með sína handa-
vinnu og framleitt teppi og sokka til
að gefa út og suður á meðan börn,
tengdabörn, barnabörn og hundar
hafa gengið út og inn eftir þörfum
eins og á stóru sveitaheimili.
Þrátt fyrir langvarandi heilsuleysi
myndi ég telja að Bíbí frænka mín
hafi verið mikil gæfukona. ÞaCPv.
Magnús áttu saman farsælt líf og
áfallalítið þangað til núna síðustu
vikumar að ógæfan dundi yfir þegar
Palli sonur þeirra missti konuna sína
frá fjórum ungum dætrum. Þá var
þeim heiðurshjónum brugðið og
dimmt yfir þeirra ranni.
Við Þórunn sendum okkar bestu
kveðjur og vonum að fljótlega fari að
sjást til sólar aftur.
Pálmar Ogmundsson.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
böm, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
ATVINNUAUGLYSINGA
^ MERCK SHARP& DOHME
MSD er meðal fremstu lyfjaframleiðenda í heimi með rúmlega 60.000 starfsmenn. MSD ver árlega sem svarartæplega 200 milljörðum
íslenskra króna í rannsóknir og þróun á nýjum lyfjum. Danska fyrirtækið í Glostrup hefur 120 starfsmenn og það er í mjög jákvæðum vexti
í tengslum við að þessi árin eru kynntar nýjar markverðar vörur jafnframt því, sem aðrar nýþróaðar afurðir eru enn á leiðinni
Aðstoðarskráningarmaður
Skráning lyfja/aðstoðarskráningarmaður með menntun á sviði lyfjafræði
Fyrir rétta einstaklinginn getur verið
um að ræða mjög sjálfstætt starf en
það tengist teymi með 5 einstaklingum
sem sinna skráningu og skýrslugjöf
um aukaáhrif lyfja í Danmörku og á
íslandi. Þar eð MSD er í stöðugum
vexti verða góðir möguleikar á fram-
haldsmenntun og framtíðarstarf innan
fyrirtækisins. '<*
ATH: Starfstöðin er í Glostrup í Dan-
mörku.
Starfið
í samstarfi við skráningarstjórann og
íslenska umboðsmanninn okkarátt þú að
taka þátt í að semja umsóknir og uppfæra
lýsingarnar á vörum okkar á íslandi. Þú tek-
ur þar með líka þátt í að hanna umbúðir
með áletrunum á íslensku. Um verður að
ræða nána samvinnu við móðurfyrirtæki
okkar í Bandaríkjunum. Þú átt, sem aðstoð-
armaðurog ráðgjafi skráningarstjórans,
að vera vel kunnug(ur) gildandi lögum á
hverjum tíma, bæði á íslandi og innan ESB
og taka þátt í að móta innanhússreglur
(Standard Operating Procedure) um starf-
semi skráningardeildar. Hluti starfsins felst
í þýðingum úr og á íslensku og ensku.
Hæfni
Þú hefur starfað á sviði lyfjafræði eða
álíka. Þú gjörþekkir hugtök og íðorð á
sviði læknisfræði - einnig á ensku þar eð
hún er starfsmálið. Gert er ráð fyrir að
ráða til starfsins einstakling, sem er kunn-
ugur íslenskum veruleika og kann málið,
þar eð þýðingar á íslenskum textum og
samskipti við íslensk skráningaryfirvöld
eru líka hluti af starfinu. Þú þú verður að
búa yfir mikilli samstarfshæfni, þjónustu-
lund og sveigjanleika og hafa létta lund.
Nákvæmni og natni er algjört skilyrði.
Loks útheimtir starfið mikla vinnu og hæf-
ileika og vilja til að standa við oft þrönga
tímafresti. Þér er boðið starf í einu þeirra
lyfjafyrirtækja í Danmörku sem vex örast,
góð laun, ásamt lífeyri og öðrum hlunn-
indum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kirsten Jun-
ker, skráningarstjóri, í síma +45 43 28 77 80.
Ef þetta freistar
ertu beðin(n) að senda umsókn til Merck
Sharp & Dohme, Smedeland 8, 2600
Glostrup, merkta: „Registreringsassistent."
Merck Sharp & Dohme.
Hrafnista
Reykjavíkur
Oskum eftir
aðstoðardeildarstjóra í 100% stöðu á
hjúkrunardeild í sumarafl.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga á kvöld- og
helgarvaktir.
Óskum eftir starfsfólki í aðhlynningu.
Mismunandi starfshlutfall í boði.
Nánari uppl. gefnar hjá starfsmannahaldi
haldi, á staðnum eða í síma 585 9500
Komið og skoðið vinnustað með góðri
vinnuaðstöðu í fallegu umhverfi, þar sem
ríkir heimilislegt andrúmsloft.
Pípulagnir
Alhliða pípulagnir sf. óska eftir að ráða pípu-
lagningamann (svein, meistara) með víðtæka
reynslu í nýlögnum, breytingum og viðgerðar-
vinnu.
Kröfur:
• Stundvísi.
• Geta starfað sjálfstætt.
• Geti haft mannaforráð.
Við bjóðum:
• Góð laun.
• Gott starfsumhverfi.
• Góðan starfsanda.
• Virkt og sterkt starfsmannafélag.
Upplýsingar í símum 567 1478 og 567 8885
milli kl. 9.00 og 18.00.
REYKJALUNDUR
Aðstoð á sjúkra-
þjálfunardeild
Tvær aðstoðarmanneskjur sjúkraþjálfara vant-
ar á sjúkraþjálfunardeild Reykjalundar í heilt
og hálft stöðugildi. Mikilvægt er að viðkomandi
sé lipur í samskiptum, áreiðanlegur og geti
sýnt sjálfstæð vinnubrögð.
Upplýsingar gefur starfandi yfirsjúkraþjálfari,
Hulda S. Jeppesen, í síma 566 6200.
Ath. að Reykjalundur er reyklaus vinnustaður.