Morgunblaðið - 20.06.2000, Side 62
MORGUNBLAÐIÐ
62 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
30%
Sf IsWrfenda
Gjóð gjöf
1SI VI na hejma Qg erlendis
Tilboð til áskrifenda
Svona er ísland í dag er ný bók sem er
kjörin til gjafa fyrir vini heima og erlendis
sem hafa áhuga á íslensku mannlífi og
íslenskri tungu. Bókin er á tveimur tungu-
málum, íslensku og ensku.
Svona er ísland í dag byggist á stuttum
fréttum og greinum úr daglega lífinu
ásamt myndum sem birst hafa í Morgun-
blaðinu.
Áskrifendum Morgunblaðsins býðst bókin
á sérstöku tilboðsverði 2.450 kr. en
almennt verð er 3.500 kr.
Þeir áskrifendur sem viija eignast
bókina eða gleðja vini sína geta
keypt bókina í Moggabúðinni á
mbl.is eða komið við hjá okkur í
Morgunblaðshúsinu Kringlunni 1.
Einnig er tekið við pöntunum í
síma 569 1122.
MOGGABÚÐIN Á
mbl.is
UMRÆÐAN
Laxeldi
SÍÐAN 1998 hefur
laxeldisiðnaðurinn
aukist meira en flestar
sambærilegar atvinnu-
greinar í heiminum.
Aukningin á heims-
mælikvarða var t.d.
27% á milli áranna
1980 og 1998. Stór-
kostlegur árangur lax-
eldis hefur vakið at-
hygli víða um heim og
ekki síst haft áhrif á
stefnu stjómvalda í
ýmsum löndum í átt til
aukinnar þátttöku í
fiskeldi sem vistvænn-
ar aðferðar til fram-
leiðslu á fiski og þar
með aðferð sem beinlínis getur leitt
til minnkandi sóknar í villta stofna.
Sérstaklega hefur laxeldi orðið mik-
ilvægt í sjávarþorpum t.d. í Skot-
landi og Noregi þar sem atvinnu-
leysi var víða mikið vegna
samdráttar í hefðbundnum veiðum.
Nokkur umræða hefur átt sér
stað um laxeldi á íslandi að undan-
förnu í framhaldi af umsóknum
nokkurra aðila um starfsleyfi til að
geta stundað kvíaeldi í sjó á nokkr-
um stöðum við landið. Þessar um-
sóknir snúast um það að fiskeldi
sem atvinnugrein fái eðlilega með-
ferð hjá stjórnvöldum og sambæri-
lega við aðrar greinar landbúnaðar-
ins.
Möguleikar til að auka umfang og
hagkvæmni laxeldis eru miklir og
þegar í dag hefur laxeldi sýnt fram
á að þetta er hægt að gera í sátt við
umhverfið. I dag eru það oftast
gamlar og oft á tíðum úreltar reglur
sem hindra laxeldisstöðvarnar í að
fara inn á ný og ákjósanleg svæði til
eldis, og eru því um leið hvað mest
takmarkandi fyrir uppbyggingu
laxeldis í heiminum. Nú hefur orðið
veruleg breyting á þessari umræðu,
sem byggir m.a. á því að fiskeldis-
menn um allan heim hafa nú bund-
ist samtökum, ISFA (International
Salmon Farmers Association), um
það að sýna svo ekki verði um villst,
með vísindalegum rökum, að fisk-
eldi er umhverfisvæn atvinnugrein
sem hefur jafnframt mjög mikil-
vægu efnahagslegu hlutverki að
gegna, ekki síst úti á landsbyggð-
inni. Mjög mikilvægur áfangi á
þessari braut náðist þegar aðildar-
lönd að Laxaverndunarsamtökum
N-Atlantshafs (NASCO) gerðu nýl-
ega tímamótasamkomulag við lax-
eldisiðnaðinn í heiminum. I þessu
mikilvæga samkomulagi ákváðu
þessir tveir hópar að vinna saman
að vemdun villtra laxastofna og um
leið mun þetta samkomulag greiða
fyrir frekari uppbyggingu laxeldis
sem framtíðaratvinnuvegs innan
aðildarlandanna. Unnið verður að
gerð starfsreglna fyrir
laxeldi í N-Atlantshafi
á næstu mánuðum og
stefnt er að því að
ljúka því starfi í febr-
úar 2001. Óhætt er að
fullyrða að sjaldan hef-
ur náðst jafn víðtæk
samstaða um slíka
vinnu og hér um ræðir
á milli tveggja hópa,
annars vegar verndun-
arsamtaka og hins
vegar atvinnuvegar
eins og laxeldis. Það er
því ljóst að utanríkis-
ráðherra var með yfír-
lýsingum sínum um
fiskeldi á Austfjörðum
að tala í samræmi við þá stefnu sem
NASCO vinnur eftir í dag, þ.e. að
laxeldi og villtur lax eigi samleið og
framtíð villtra laxastofna verði best
tryggð með samstarfi þessara aðila.
Utanríkisráðherra fer með forræði
íslands í NASCO.
Fiskeldi
Nú er veiðiálagi í ánum
haldið óbreyttu, segír
Vigfús Jóhannsson,
alveg óháð því hver
fjöldi göngulaxa er
á hverjum tíma og
algjörlega óháð
aðstæðum til veiða
hverju sinni.
Það er ekki ætlunin að endurtaka
alla þá umræðu sem átt hefur sér
stað um hugsanleg áhrif laxeldis á
villta laxastofna. I stað þess er þó
óhætt að fullyrða að hvergi hefur
verið sýnt fram á með vísindalegum
rökum að laxeldi hafi neikvæð áhrif
á villta laxastofna. I raun er miklu
fleira sem tengir þetta tvennt sam-
an, þótt ekki væri nema það eitt að
viðfangsefnið er lax. Laxeldisiðnað-
urinn um allan heim hefur haft
frumkvæði að því að setja sér mjög
strangar vinnureglur m.t.t. um-
hverfismála og vinnur Alþjóða-
samband laxeldisframleiðenda nú
að því að samræma þessar reglur
fyrir öll aðildarlöndin. Einnig er
rétt að taka fram að það eru fyrir-
tækin sjálf sem greiða þann kostn-
að sem fellur til vegna þessa eftir-
lits. Það er stefna Alþjóðasambands
laxeldisframleiðenda (ISFA), en
Landssamband fiskeldis- og haf-
beitarstöðva á íslandi er aðili að
þessum samtökum, að vinna með
þeim aðilum sem standa að upp-
byggingu og verndun villtra laxa-
stofna. Þetta gera samtökin ekki
vegna þess að þau telji sig þurfa að
greiða fyrir einhvern skaða sem
þau hafa valdið heldur vegna þess
að þau telja sig búa yfir mikilli
HELOSAN
HÚOKREMID I SÓLARFRÍlOi
Vigfús
Jóhannsson
Vðskhugi
A I H l I I > \
VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR ‘
I Fjárhagsbókhald
I Sölukerfi
I Viðskiptamanna
kerfi
) Birgöakerfi
I Tilboðskerfi
) Verkefna- og
pantanakerfi
| Launakerfi
I Tollakerfi
Vaskhugi ehf. Síðumúla 15 - Stmi 568-2680
Mörkinni 3, sími 588 0640