Morgunblaðið - 20.06.2000, Síða 66

Morgunblaðið - 20.06.2000, Síða 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 HESTAR MORGUNBLAÐIÐ Afrekslistamót fyrir landsmót 2. Hreiðar Hauksson á Perlu frá Eyjólfsstöðum 5,93 / 6,04 3. Bjamleifur S. Bjamleifsson á Tinna frá Tungu 5,73 / 5,88 4. Freyja Þorvaldardóttir á Kóp frá Reykjavík 5,57 / 5,85 5. Sandra L. Þórðardóttir á Díönnu ffá Enni, Viðvsv. 5,80 / 5,70 Unglingar Tölt 1. Berglind R. Guðmundsdóttir á Sjöstjömu frá Svignask., 6,37 / 6,73 2. Perla D. Þórðardóttir á Gný frá Langholti 5,80 / 6,31 3. Sigurþór Sigurðsson á Rökkva frá Fíflholtl 5,93 /5,97 4. Margrét Guðrúnardóttir á Blossa frá Argerði 5,83 / 5,63 Fjórgangur 1. Berglind R. Guðmundsdóttir á Sjöstjömu frá Svignask., 6,17 / 6,35 2. Perla D. Þórðardóttir á Gný frá Langholti 5,90 /6,11 3. Sigurþór Sigurðsson á Rökkva fráFíflholti 5,77/6,08 4. Margrét Guðrúnardóttir á Blossa frá Argerði 5,57 / 5,66 Fimmgangur 1. Berglind R. Guðmundsdóttir á Óttu frá Svignaskarði, 5,20 / 5,58 2. Bjamleifur S. Bjamleifsson á Pjakk frá Miðey, 5,13 / 5,42 3. Margrét Guðrúnardóttir á Feng frá Skollagróf 4,40 / 5,18 4. Perla D. Þórðardóttir á Blæ frá Skaftholtsv. 4,97 / 4,21 5. Sigþór Sigurðsson á Feng frá Hafsteinsstöðum 3,83/3,97 Ungmenni Tölt 1. Eyjólfur Þorsteinsson á Dröfn frá Þingnesi 6,60 / 6,76 2. Daníel I. Smárason á Mána frá Fremri-Hvestu 5,53 / 6,23 3. Pála Hallgrímsdóttir á Kára frá Þóreyjamúpi, 5,10 / 5,83 Birgitta Magnúsdóttir hafði sig- ur í bæði tölti og fjórgangi á Óðni frá Köldukinn sem er ör- yggið uppmálað. 4. Rakel Róbertsdóttir á Skutlu frá Álfhólum 5,30 / 5,69 5. Guðrún E. Þórsdóttir á Glæsi frá Reykjavík 5,47 / 5,28 Fjórgangur 1. Eyjólfur Þorsteinsson á Dröfn frá Þingnesi 6,33 / 6,35 2. Daníel I. Smárason á Mána frá Fremri-Hvestu 6,17 / 6,57 3. Pála Hallgrímsdóttir á Kára frá Þóreyjamúpi, 5,60/6,12 4. Rakel Róbertsdóttir á Skutlu frá Álfhólum 5,70/6,06 5. Guðrún E. Þórisdóttir á Glæsi frá Reykjavík, 5,50 / 5,93 Fimmgangur 1. Daníel I. Smárason á Vestfjörð frá Fremri-Hvestu 6,17 / 6,63 2. Eyjólfur Þorsteinsson á Kolbrá fráSkarði 5,37 /5,78 3. Elísabet E. Garðarsdóttir á Hrafnhildi frá Glæsibæ 4,13 / 5,07 4. Pála Hallgrímsdóttir á Æsi frá Ásatúni 3,40/3,73 ÞÁ ER hafið millibilsástand í hesta- mennskunni. Skráningum á lands- mót lokið í öllum greinum nema kyn- bótaþættinum sem mun ljúka nú í vikunni. Og nú pukrast menn hver í sínu homi með landsmótskandídat- ana og reyna að búa þá sem best undir átökin. Ekki er þó útlit fyrir að hestamenn hætti mótahaldi á þessu tímabili og um helgina var boðið upp á opið mót hjá Gusti í Kópavogi hald- ið í nafni ÁG-húsgagna. Þátttaka var fremur dræm og var því um kennt meðal annars að yfir stóð og stendur enn kynbótasýning í Borgarnesi. Vom margir kunnir keppnismenn uppteknir af þessum sökum. Á því era líka góðar hliðar því þá fá minna þekktir spámenn tækifæri til að spreyta sig. Mótið gefur stig inn á afrekslista FEIF (World Rank List) og því kannski til mikils að vinna fyrir þá sem vilja hljóta heimsfrægð eða svona allt að því. Og ekki er öll sagan sögð því boðið verður upp á svipað mót um næstu helgi hjá Herði sem gefa mun sömuleiðis stig á afreks- listann. Mótið er haldið í nafni Tölt- heima og mun skráning standa yfir en lokað verður á hádegi á morgun. En mótið í Glaðheimum gekk prýðilega þrátt fyrir skarpar skúrir á sunnudeginum. Útvarp Gustur var á sínum stað keppendum og öðram til þæginda. En úrslit urðu sem hér segir: Það er því líkast sem Linda Rún láti Val frá Ólafsvík hoppa á öðrum aft- urfæti í parís á myndinni en auðvitað eru þau á fúllri ferð á yfir- ferðartölti en þau sigruðu bæði í fjórgangi og tölti. Börn Tölt 1. Linda R. Pétursdóttir á Val frá Ólafsvík 6,23 /6,40 2. Bjamleifur S. Bjarnleifsson á Tinna frá Tungu 5,70/6,06 3. Sandra L. Þórðardóttir á Díönnu frá Enni, Viðvsv. 6,00 / 6,04 4. Þorvaldur Hauksson á Kulda frá Grímsstöðum 5,47 / 5,78 5. Freyja Þorvaldardóttir á Kóp frá Reykjavík 5,57 / 5,57 Fjórgangur 1. Linda R. Pétursdóttir á Val frá Ólafsvík 6,30/6,63 Lagt til atlögu við sumarexemið Sumarexem í íslenskum hrossum hefur ásamt ýmsu öðru valdið samdrætti 1 útflutningi hrossa héðan og gert mönnum erfítt fyrir í markaðssetningu þeirra. Lengi vel hafa menn ekki sýnt áhuga á því að fínna lausn á þessum mikla vanda en nú er að verða breyting þar á. Valdimar Kristinsson kynnti sér málið. ÞAÐ nýjasta í sumarexemmálum er að í síðustu viku kynnti starfshópur, sem landbúnaðarráðherra Guðni Ágústsson skipaði, þriggja ára rann- sóknarátak þar sem stefnt er að því að hægt verði að heija tilraunabólu- setningar með þeim bóluefnum sem væntanlega hafa þá verið þróuð. Verkefnið verður fyrst og fremst unnið af sérfræðingum á tilraunstöð Háskólans að Keldum undir forystu Sigurbjargar Þorsteinsdóttur ónæmisfræðings. Þá verður í sam- starfi rannsóknarhópur frá Sviss undir forystu Eliane Marti. Rann- sóknimar verða unnar í nánu sam- ráði við yfirdýralæknisembættið og Félag hrossabænda. Sérstök verk- efnisstjóm mun fylgjast með fram- vindu verkefnisins en hana skipa, auk Sigurbjargar og Eliane Marti, Ágúst Sigurðsson hrossaræktar- ráðunautur. I fréttatilkynningu frá ofannefnd- um starfshópi segir að tilraunir með bólusetningu gegn ofnæmi séu SANYL ÞAKRENNUR Fást í flestum byggingavöru- verslunum landsins. skammt á veg komnar en sýnt hafi þó verið fram á að nota megi bólusetn- ingu með erfðaefni, svokallað DNA bólusetningu, til að stýra ónæmissvari í þá átt að dragi úr framleiðslu svokallaðra IgE ofnæm- ismótefna en sumarexem er talið vera ofnæmi af gerð I en því fylgir framleiðsla á þessum mótefnum, los- un á histamíni og fleiri bólguþáttum. Þá segir að tilraunir til að stýra ónæmissvari gegn próteinum með hjálp svokallaðra ónæmisglæða væra lengra komnar og rannsóknir á mönnum þegar hafnar. Vinna við verkefnið mun hefjast í sumar eða haust á þessu ári og standa yfir í þijú ár og er stefnt að eftirfarandi atrið- um: 1. Að mikilvægustu ofnæmisvakar flugunnar (culicoides) sem ofnæminu veldur hafi verið skilgreindir og gen þeirra einangrað ograðgreind. 2. Að Ijóst sé hvort sumarexemið sé alfarið af gerð I eða flóknara blandað ónæmissvar. 3. Að aðferðir hafi verið þróaðar til að meta ónæmissvör í hrossum þ.m.t. framubundin ónæmissvör og stjóm- un þeirra og mótefnamyndun gegn ónæmisvökunum. 4. Að DNA-bóluefni með genum helstu ofnæmisvakanna hafi verið búin til og frumubundin ónæmissvör og mótefnasvör gegn þeim metin. 5. Að próteinbóluefni úr helstu ónæmisvökunum hafi verið búin til og prófuð með völdum ónæmisglæð- um og ónæmissvör gegn þeim metin. Áætlaður kostnaður við verkefnið er 82 milljónir króna og hefur Fram- leiðnisjóður landbúnaðarins sam- þykkt að veita 30 milljónum króna til verkefnisins og tilraunastöð Háskól- ans að Keldum mun leggja fram 20 milljónir króna sem verður væntan- lega í formi launa starfsmanna, tækjabúnaðar og vinnuaðstöðu. Sam- starfaðilinn í Bem í Sviss mun leggja fram 14,5 milljónir króna og Rannís 2,4 milljónir króna. Þá verður leitað eftir stuðningi ýmissa aðila með það sem á vantar. Samstarf út um þúfúr Rannsóknarátak þetta á sér nokk- uð langan aðdraganda. Bent hefur verið á vandann öðra hvora í rúmlega 20 ár en það er ekki fyrr en á síðustu árum sem sýnd hefur verið viðleitni af hálfu stjómvalda að leita lausnar enda tók það menn almennt langan tíma að viðurkenna stærð vandans sem exemið olli. Upphaf þessa fjár- framlags Framleiðnisjóðs landbún- aðarins má rekja til þess að þýskur vísindamaður, prófessor Wolfgang Leibold hugðist sækja um styrk á Islandi til rannsókna á sumarexemi með lausn vandans í huga. Kom hann hingað til lands í boði Félags hrossa- bænda og átti fund með sérfræðing- um á Keldum. Niðurstaðan af þess- um fundi varð sú að sótt var um styrk tíl sjóðsins með þátttöku Keldna og Yfirdýralæknisembættisins í verk- efninu. Styrkurinn var veittur og var um að ræða 25 milljónir króna sem skildu skiptast á þrjú ár. En babb kom í bátinn þegar hefja skyldi sam- starfið því prófessor Leibold neitaði að skrifa undir samstarfssamning sem gerður var af íslensku aðilunum og þar með vora peningamir afþakk- aðir þar sem ekki gat orðið af sam- starfi þessara aðila. Framhaldið varð síðan að tvær umsóknir bárast Framleiðnisjóði, önnur frá íslenskum aðilum að hluta þeim sömu og hugðu á samstarf við prófessor Leibold. Hin umsóknin var frá Dr. Birni Steinbjömssyni dýra- lækni i samvinnu við prófessor Lei- bold. Báðar þessar umsóknir vora taldar hæfar, fengu einkunn B sem þýðir að þær vora ekki gallalausar. Eitthvað var reynt að sameina þess- ar umsóknir af hálfu sjóðstjómar en það tókst ekki. I grein sem Guð- mundur Georgsson forstöðumaður Keldna ritaði í Morgunblaðið 12. apr fl sagði hann það fráleita hugmynd að ætla að bræða saman þessar tvær umsóknir þó ekki væri nema vegna þess grandvallarmunar sem er á nálgun þeirra. I samtali við blaða- mann sagðist Guðmundur hafa orðið mjög hissa á því að Rannís skuli hafa lagt þessar umsóknir að jöfnu því það væri álit hans og ýmissa sérfróðra manna sem hann leitaði álits hjá að himinn og haf væri á milli þeirra frá faglegum sjónarhóli séð. Síðan gerist það að landbúnaðar- ráðherra skipar starfshóp í samráði við stjóm Framleiðnisjóðs landbún- aðarins sem skyldi skipuleggja og gera kostnaðaráætlun fyrir rann- sóknaferli sem á sem allra stystum tíma geti leyst þau vandamál sem sumarexem í útfluttum hrossum skapar. Og nú hillir undir að farið verði af stað með eitthvað sem marg- ir virðast binda vonir við að skili ein- hverjum árangri í baráttunni við sumarexemið. Flestir þeir sérfræð- ingar sem leitað var álits hjá töldu þetta raunhæfa áætlun en eins og með allt rannsóknastarf væri þetta ferð með ákveðnum fyrirheitum en ekki fullkomlega Ijóst á upphafsreit hvert hún mundi leiða menn að lok- um. Fjármunum hent út um gluggann Dr. Björn Steinbjömsson er ekki á sama máli og telur að ómaklega hafi verið vegið að prófessor Leibold í öllu þessu máli. Honum hafi aldrei verið gefinn kostur á að svara þeim ásök- unum um að hann vildi ekki samstarf við íslendinga. Samstarfssamningur- inn sem Leibold neitaði að skrifa undir var saminn á íslandi af íslend- ingum og honum aðeins boðið að skrifa undir en ekki að gera athuga- semdir eða breytingar á samningum. í samningum hafi verið gert ráð fyrir að megnið af vinnunni við rannsókn- ina færi fram ytra en síðan hefðu Is- lendingar góðan meirihluta í stjórn verkefnisins. Leibold taldi, að sögn Bjöms, þetta skapa mikið óöryggi um framgang rannsóknarvinnunnar og betra heima setið en af stað farið undir þessum kringumstæðum. Lei- bold hafi lagt fram breytingartillögur en þær aldrei verið ræddar og pen- ingunum hafi verið skilað án frekari
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.