Morgunblaðið - 20.06.2000, Síða 75
FÓLKí FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENDAR
.OO0OOO
Skúli Helgason
stjórnmálafræðingur og
tónlistarskríbent
fjallar um nýjustu afurð sér-
vitringsins Matts Johnsons.
The The - Naked Self
Nakinn maður
hjólförum
*
1
GUÐI sé lof fyrir sérvitringana.
Rokksagan væri risminni ef ekki
væri fyrir kynlega kvisti eins og Syd
Barrett, Frank Zappa og Nick Cave.
Matt Johnson er kannski ekki alveg
á pari með þessum snillingum en
kynlegur er hann og skartar ýmsu
glerfínu á ferilsskránni. Það er orðið
ansi langt síðan ég afskrifaði hijóm-
sveit hans The The enda ekkert
heyrst frá henni síðan 1993 ef undan
er skilin platan Hanky Panky er
hafði að geyma túlkun Matts John-
son á gömlum Hank Williams-lögum.
Nú sjö árum síðar rís The The
skynthlega úr öskustónni með nýja
plötu, sem er aðeins sú sjötta sem
kemur fyrir almenningssjónir á und-
anförnum 17 árum.
Það eru liðin rúm 20 ár síðan Matt
auglýsti eftir vinnuafli til að skipa
hljómsveit sína í enska tónlistarrit-
inu New Musical Express. Fengur-
inn úr því kasti var einn hljómborðs-
leikari og The The varð til. Ekki var
félagsþroskinn meiri hjá okkar
manni en það að korteri eftir að
hljómsveitin kom fyrst fram opin-
berlega árið 1979 hóf Matt Johnson
gerð sinnar fyrstu sólóplötu: Spirits.
Hún er vel geymt
leyndarmál enn í dag,
kom aldrei út. Bum-
ing blue soul sóló-
plata númer tvö kom
hins vegar út 1981 og
vakti athygli fyrir
djarfleika, tilrauna-
starfsemi og gagn-
rýna sýn á vest-
ræna siðmenningu.
1982 lýkur vinnu
við fyrstu breið-
skífu The The: The
Pornography of
Despair, en allt
upplag hennar var afturkall-
að fáeinum sólarhringum eftir út-
komu. Fáir hafa því heyrt þá plötu.
Ári síðar fóru hjólin hins vegar að
snúast þegar Soul Mining kom út við
einróma lof gagnrýnenda. Þar er frá-
bær poppplata á ferðinni, með perl-
una Uncertain Smiie innanborðs og
vísi að þeirri kaldhæðni sem fylgt
hefur Matt Johnson æ síðan. Frægð
The The náði nýjum hæðum með In-
fected árið 1986 og lögunum Heart-
land og Sweet Bird of Truth. Platan
er rammpólitísk ádeila á heimsvalda-
v,ð Matt Johnson.
stefnu Bandaríkjanna og aðra mikil-
mennskutakta stórvelda í stjórnmál-
um og viðskiptalífi. Infected var
áhrifamikil plata og vendipunktur á
ferli The The. Eftir þetta leið heil ei-
lífð milli platna, sveitin er jafnan tal-
in af en snýr aftur þegar allir em
farnir að horfa í aðra átt. Mind bomb
kom 1989 með Johnny Marr gítar-
leikara Smiths innanborðs og fjómm
ámm síðar Dusk. Síðan hefur ekki
komið plata með framsömdu efni frá
The The og sveitin var m.a.s. tekin út
af launaskrá hjá útgefanda sínum.
Það segir sína sögu um jaðarstöðu
Matts Johnson að eftir hann liggja 3
breiðskífur sem ýmist hafa aldrei
fengist útgefnar eða
aðeins í afar tak-
mörkuðu upplagi.
Naked Self
kemur út hjá út-
gáfufyrirtæld
Trevors Reznor úr
Nine Inch Nails og
það eru vissulega
hvassari brúnir á
þessari plötu en
sumum hinna fyrri.
Gítarinn er hér í að-
alhlutverki, ýmist
blóðugur og tættur
eins og sært villidýr
eða lungamjúkur og
malandi eins og sófa-
köttur á eftirlaunum.
Sjá má ákveðna sam-
svömn milli þessarar
nýju plötu og sólóplöt-
unnar Burning blue soul frá 1981 en
þama em líka fínlega stroknar
kassagítarmelódíur í anda The Beat
(en) Generation sem margir muna
eftir af Mind Bomb. Matt Johnson er
prýðilegur lagasmiður og flest lag-
anna á þessari nýju plötu em mjög
áheyrileg. Heildarmyndin er hér
mest áberandi, það em engin lög lík-
leg til þess að leggja undir sig út-
varpsstöðvar vikum saman en platan
er kærkomin fyrir alla aðdáendur
The The.
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 75
-... y
Matt Johnson hefur alla tíð verið
heilinn og hjartað í The The og sveit-
in svo sem verið lítið meira en orða-
leppur því liðsskipan hefur iðulega
tekið miklum breytingum og Matt
hefur verið iðinn við að safna að sér
verktökum til að setja mark sitt á
einstakar plötur. Samstarfsmenn
hans gegnum tíðina hafa verið marg-
ú og góðir: Marc Almond, Sinead
ÓConnor, Neneh Cherry, Jim „Foet-
us“ Thirlwell, Zeke Manyika o.fl. í
þetta sinn em í áhöfninni lítt þekktir
menn sem eiga þó skrautlega fortíð:
Eric Schermerhorn gítarleikari
(spilaði með Iggy Pop), Earl Harvin
trymbill (úr hljómsveitinni MC900
Foot Jesus) og Spencer Campbell
sem þekktastur er fyrir að hafa spil-
að með kántrímelnum Kenny Rog-
ers! Svona kokteill er ekki á færi
nema stórskrýtinna hristara og lýsir
Matt Johnson vel. Athygh vekur að
Lloyd Cole er bakraddasöngvari í
einu lagi!
Matt Johnson er enn við sama
heygarðshornið í sinni textagerð.
Textarnir era pólitískar ádeilur af
gamla skólanum. Gömul klisjuhug-
tök úr vinstri pólitíkinni eins og firr-
ing koma upp í hugann en Matt er
einbeittur kýlastungukall sem syng-
ur um fálætið í stórborgarsamfélög-
um, svikráð náungans, einsemdina í
fjölmenninu, vonda markaðshag-
kerfið og svo mætti lengi telja. Það
em ekki margir rokkarar sem nenna
að æsa sig yfir þessum hlutum eftir
20 ára feril en það er sjálfsagt að
hrósa þeim sem það gera fyrir seigl-
una.
Ég veit vel að þessi plata stefnir
hraðbyri í útsölurekkana en ég leyfi
mér hins vegar að mæla með henni
sem prýðilegri plötu frá manni sem
kann sitt fag og hefur sérstæðan
sjarma. Þeir sem töldu sig vera í að-
dáendahópi The The á síðasta áratug
geta ófeimnir rifjað upp gömul kynni
með því að gefa Naked Self tækifæri.
Þetta er ekki snilldarverk en ágætis
gripur. Þijár og hálf stjaroa.
MYNDBOND
Fjölskyldu-
morð
Auga fyrir auga
(Body Count)
Spennumynd
Leikstjóri: Kurt Voss. Aðal-
hlutverk: Alyssa Milano, Ice-T. (88
mín.) Bandaríkin 1997. Góðar
stundir. Bönnuð innan 16 ára.
UNGT par heimsækir fjölskyldu
mannsins, sem hann hefur haft lítil
samskipti við. Stuttu eftir að þau
koma á staðinn er
fjölskyldan strá-
felld af ræningjum
sem hafa verið
sendir af einum
fj ölskyldumeðlimn-
um. Þótt hér sé um
ekki ýkja merkilega
mynd að ræða er
söguþráðinn þó-
nokkuð fersktur
þótt ekki sé það nýtt til fullnustu.
Margir eiga eflaust eftir að átta sig á
þeim snúningum sem verða á flétt-
unni þegar á líður myndina en ólíkt
mörgum viðlíka myndum tekst prýði-
lega að koma á óvart. Leikaramir em
allir slappir og sérstaklega illmennin
sem ofleika illa skrifuð hlutverk sín. „
Milano hefur lengi verið viðloðandi af-
þreyinguna eða allt frá því „Who’s the
Boss“-þættimir vora í sjónvarpinu en
þar lék hún dóttur Tony Danza. Mil-
ano er snoppuíríð en það er ekki hægt
að sjá að hún muni verða að stór-
stjömu eftir frammistöðuna í þessari
mynd. Leikstjórinn er laus við alla
hugvitssemi og getur greinilega ekki
haft stjóm á leikurum sínum. Þetta er
fín mynd þegar algjör gúrkutíð er í
myndbandaútgáfu á landinu, en þessa
dagana er sú ekki raunin.
Ottó Geir Borg '
Flautuketill
ýmsir litir
Skráðu þig $
í vefklúbbirm
www.husa.is
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Hnífablokk
12 stk.
verð