Morgunblaðið - 21.06.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913
139. TBL. 88. ÁRG.
MIÐVTKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Annar jafnstór Suð-
urlandsskjálfti í nótt
JARÐSKJÁLFTI, sem mældist 6,5 til 6,6 stig á mælum Veð-
urstofunnar og Jarðvísindastofnunar Bandaríkjanna, reið yfír
vestanvert Suðurland laust fyrir klukkan eitt í nótt og er talið
að upptökin hafi verið í austanverðu Hestfjalli í Grímsnesi.
Liggur 20 til 30 km löng sprunga frá norðri til suðurs rétt
vestan við Þjórsárbrú, þvert í gegnum þjóðveginn. Ragnar
Stefánsson jarðeðlisfræðingur sagði í nótt að skjálftinn hefði
verið 6,5 og jafnvel stærri. Skjálftinn hefði líklega verið þetta
öflugur þar sem upptök hans hefðu aðeins verið nokkrum kíló-
metrum vestar en upptök skjálftans 17. júní, en búast mætti
við veikari skjálftum eftir því sem þeir færðust vestar. Engar
fréttir af slysum höfðu borist þegar blaðið fór í prentun og
hafði hvorki borist beiðni um sjúkraflutninga til Landhelgis-
gæslu né Neyðarlínu. Miklir eftirskjálftar fundust víða.
Að sögn lögreglu á Selfossi var
Þjórsárbrú eitthvað löskuð og
skemmdir höfðu orðið á fleiri brúm
og vegum á Suðurlandi. Umferð um
brýr og vegi víða á Suðurlandi var
strax stöðvuð í varúðarskyni, en
Þjórsárbrú var aftur opnuð í nótt.
Fréttir af eignartjóni voru óljósar,
en þó var vitað að þrjú hús hefðu
fallið, tvö í Villingaholtshreppi og
það þriðja var eitt þeirra, sem mest
skemmdust í skjálftanum á laugar-
dag.
Rafmagn af í Eyjum
Strax eftir skjálftann bárust til-
kynningar um hann frá fólki frá
Eyjafirði vestur um allt land og allt
austur að Skaftafelli. Fólk fann
sterkt fyrir skjálftanum á Suður-
landi og höfuðborgarsvæðinu..
Rafmagn fór af í Vestmannaeyj-
um og undir Eyjafjöllum og í Vík í
Mýrdal. Fréttir bárust um að lausa-
munir hefðu fallið í húsum víða á
Suðurlandi og fólk austan Ölfusár-
brúar taldi sig finna sterkar fyrir
skjálftanum nú en á laugardag.
Engar bilanir urðu á símkerfinu í
þessum skjálftum.
Allt lék á reiðiskjálfi
Friðjón Marínósson var staddur
við Asgarð í Grímsnesi í sumarhúsi
ásamt fleirum á leið í stangveiði
þegar skjálftinn reið yfir. „Húsið lék
bókstaflega á reiðiskjálfi undir okk-
ur,“ sagði Friðjón í samtali við
Morgunblaðið. „Þegar skjálftinn
var búinn heyrði ég greinilega þeg-
ar grjótið þeyttist niður fjallshlíð-
arnar í kringum okkur. Þetta var
mjög óþægilegt."
Ragnar Stefánsson, jarðeðlis-
fræðingur á Veðurstofu íslands,
sagði um hálf tvö leytið í nótt að
jarðskjálftinn hefði verið á þeim
slóðum sem jarðfræðingar töldu lík-
legast að annar jarðskjálfti gæti
komið eftir skjálftann á laugardag.
Aðspurður hvort líkur væru á
fleiri skjálftum af þessari stærð á
næstunni sagði Ragnar að þetta
væri fyrsti stóri eftirskjálftinn og
við yrðum að sjá hver þróunin yrði
eftir þetta.
„Það er allt í rúst hjá okkur, það
er bara eins og eftir sprengjuárás,“
sagði Valgerður Gestsdóttir sem
Meira álag
á Þjórsár-
brú nú
UPPTÖK sjálftans í nótt voru
við Þjórsártún á bökkum Þjórs-
ár, samkvæmt útreikningum
Jónasar Eh'assonar, prófessors
á Rannsóknastofnun Háskóla
Islands á Selfossi. Mælar stofn-
unarinnar gáfu í nótt til kynna
hve mikil áraun hefði orðið af
völdum skjálftans í nótt í sam-
anburði við skjálftann 17. júní.
Lárétt áraun í hlutfalli af
þyngdarhröðun á Þjórsárbrú
var í nótt 82%, að sögn Jónasar,
en 52% á laugardag. Araun á
írafossvirkjun var nú 10,3% en
4,5% 17. júní. Araun á Hellu var
síðast 16,3% en er 10,9% nú.
Áraun á Selfoss var nú 11% en
5,3% sl. laugardag.
Hann sagði að upptökin væru
nánast beint undir Þjórsárbrú
og það að brúin hafi þolað
skjálftann bendi til þess að það
hafi verið rétt ákvörðun að
skipta um jarðskjálftalegur í
henni eftir síðustu athugun sérf-
ræðinga á ásigkomulagi hennar.
býr á bænum Mjósyndi í Villinga-
holtshreppi í samtali við Morgun-
blaðið skömmu eftir að jarðskjálft-
inn reið yfir í nótt.
Valgerður býr að Mjósyndi ásamt
eiginmanni og þremur börnum sem
stödd voru heima þegar hamfarirn-
ar gengu yfir. Engin slys urðu á
fólki í skjálftanum. Valgerður sagði
það mikla mildi, en tvö börn þeirra
hefðu verið sofandi úti í tjaldi en
hljómflutningstæki, skápar og mun-
ir hrundu yfir rúm barnanna í
skjálftanum. „Þetta var miklu
stærri skjálfti en á laugardaginn. Þá
hreyfðist ekkert í hillum, en núna er
bara allt í rúst. Það er hver einasti
diskur úr eldhúsinnréttingunni
brotinn, það hefur hrunið úr öllum
skápum, sjónvarpið hrundi niður á
gólf,“ sagði hún.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Jarðvísindamennimir Gunnar B. Guðmundsson, Þórunn Skaftaddttir og Ragnar Stefánsson skoða gögn úr
jarðskjálftamælum Veðurstofu íslands, skömmu eftir klukkan eitt í nótt.
Valgerður sagði að skjálftinn
hefði verið stuttur en mjög harður.
Bjarki, eiginmaður hennar, hefði
verið staddur út í fjósi og var að
ganga frá en legið kylliflatur í
skjálftanum.
Hún sagði að þeim hefði ekki gef-
ist tóm til að kanna hvort skemmdir
hefðu orðið á sjálfu húsinu en gríð-
arlegar skemmdir hefðu orðið á öllu
innbúi.
Stétt féll níu sentimetra
og færðist frá húsi
Rafmagn og sími fóru ekki af í
skjálftanum og sagðist Valgerður
haft þær fregnir frá nágrönnum að
þar hefðu einnig orðið miklar
skemmdir í skjálftanum en hún
sagðist þó ekki hafa heyrt að neinn
hefði slasast í skjálftanum.
„Það er allt á hvolfi," sagði Valdís
Bjarnþórsdóttir í Hjálmholti, sem
er suður af Hestvatni á þeim slóðum
sem talið er að skjálftinn eigi upp-
tök sín, en heimilisfólk á bænum var
í fastasvefni þegar skjálftinn reið yf-
ir. Það forðaði sér allt út fyrir bæinn
og slapp ómeitt nema stúlka skarst
á fæti.
Valdís sagði að stétt fyrir framan
bæinn hefði fallið níu sentimetra
niður og færst frá húsinu um tvo
sentimetra. Húsið sjálft virtist
ósprungið, en innanstokks væri allt
á rúi og stúi. Leirtau og hlutir hefðu
hrunið út úr skápum, hillur af veggj-
um og tölvur flogið út á gólf. „Það er
bara allt hér á öðrum endanum. Það
er ekkert hægt að lýsa þessu öðru
vísi,“ sagði Valdís.
Hún sagði að gamalt hús við
bæinn sem hefði staðist Suðurlands-
skjálftann árið 1912 stæði enn og
hefði ekki haggast í skjálftanum.
Hún bætti þvi við að í skjálftanum
á laugardag hefði ekkert brotnað
hjá henni og hann hefði verið bama-
leikur hjá þessum skjáfta.
Svanur Bjarnason, rekstrarstjóri
Vegagerðar ríkisins á Selfossi, sagði
þegar í hann náðist undir klukkan
tvö í nótt að menn hans væru að
kanna hvort skemmdir væru á veg-
um. Hann vissi aðeins að skemmdir
væru á brúnni yfir ána Bitru. Að
sögn Svans var fyrsta varúðarráð-
stöfun lögreglu að loka brúm og var
brúnum yfir Ölfusá og Þjórsá lokað
án þess að þar með væri sagt að tal-
ið væri að þær hefðu orðið fyrir
tjóni.
Mældist í Bandaríkjunum
Don Blakeman, vísindamaður við
jarðvísindastofnun Bandaríkjanna,
US Geological Survey, sagði í nótt
að á jarðskjálftavakt stofnunarinnar
í Colorado hefði skjálftinn mælst 6,6
á Richter-kvarða og verið jafn
sterkur og skjálftinn á laugardag.
Hann sagði að skjálftinn hefði riðið
yfir klukkan 12.51.47 og staðurinn
væri 63,9° norðurbreiddar og 20,7°
vesturlengdar og væri hann því að-
eins vestar en skjálftinn á laugar-
dag.
MORCUNBLAÐHD 21. JÚNÍ 2000