Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 20
20 MIÐVTKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Könnun KPMG ráðgjafar meðal stjórnenda í stærstu fyrirtækjum landsins
Aðgengi að rétt-
um upplýsingum
ábótavant
KPMG ráðgjöf gerði í lok febrúar
síðastliðins könnun meðal stjóm-
enda í stærstu fyrirtækjum landsins
og var tilgangur könnunarinnar að
öðlast vitneskju um aðgang stjóm-
enda að upplýsingum og gagnsemi
þeirra upplýsinga, áætlanagerð fyr-
irtækja og reynslu þeima af innleið-
ingu nýrra upplýsingakerfa. í nýl-
egri skýrslu um niðurstöður
könnunarinnar kemur m.a. fram að
forsenda þess að meta megi arð-
semi á sem bestan hátt sé aðgengi
að réttum upplýsingum, en töluvert
vanti á að það sé til staðar hjá
stjórnendum 100 stærstu fyrirtækja
landsins, og áberandi sé að mun
meiri óánægju gæti hjá 50 stærstu
fyrirtækjunum en hinum sem minni
eru. Astæður þess geti verið ýmsar,
t.d. þær að rekstur stærri fyrir-
tækja sé viðameiri og því erfiðara
að afla viðeigandi upplýsinga, eða
að stjórnendur stærstu fyrirtækj-
anna geri meiri kröfur í þessum
efnum.
I könnuninni sem unnin var af
Hrannari Hólm og Ingva Þór
Elliðasyni var rætt við stjómendur
í 85 af 100 stærstu fyrirtækjum
landsins samkvæmt lista Frjálsrar
verslunar 1998. Þrjú fyrirtækjanna
eru ekki Iengur starfandi og mynd-
uðu því 97 fyrirtæki grunn könnun-
arinnar. Svarhlutfall var 88% og
þátttakendur í könnuninni voru 14
forstjórar, 38 framkvæmdastjórar,
27 fjármálastjórar og sex með önn-
ur starfsheiti.
Þriðjungur fyrirtækjanna gerir
ekki áætlun um efnahag
mánaðarlegar sjóðstreymisáætlanir.
Þessar niðurstöður bendi til þess að
víða megi auka áherslu á hagkvæma
nýtingu fjármagns.
Flestir aðspurðra telja sig hafa
upplýsingar um raunverulega arð-
semi út frá sjónarhóli hluthafa sem
og upplýsingar um arðsemi rekstr;
areininga innan fyrirtækisins. í
skýrslunni segir að það komi þó á
óvart að í mörgum tilvikum þekki
sömu aðilar ekki raunverulegan
fjármagnskostnað eða fjárbindingu
og skiptingu hennar á rekstrarein-
ingar. Þegar svör og athugasemdir
viðmælenda séu sett í samhengi
megi álykta að aðeins um helmingur
hafi í raun framangreindar upplýs-
ingar á takteinum.
Fram kemur að flestir þeirra sem
þátt tóku í könnuninni hafa hvorki
aðgang að upplýsingum um afkomu
eftir viðskiptavinum né upplýsing-
um um áhrif markaðsaðgerða. Þeir
telji hins vegar mikilvægt að bæta
þar úr og í skýrslu KPMG ráðgjafar
segir að hér sé greinilega tækifæri
til töluverðra fi'amfara hjá flestum
aðspurðra.
Aðeins ríflega helmingur viðmæl-
enda taldi að innleiðing núverandi
upplýsingakerfa hefði gengið vel.
Aðrir sögðu innleiðinguna hafa
gengið sæmilega eða illa og gáfu
þær skýringar helstar að umfang og
flækjustig hefði orðið meira en
reiknað var með. Einnig var minnst
á slaka verkefnisstjómun. Segir í
skýrslu KPMG ráðgjafar að af svör-
um viðmælenda megi ráða að tals-
verður fjöldi fyrirtækja hyggist inn-
leiða ný upplýsingakerfi á næstunni.
ur sé meginmarkmið með rekstri
flestra fyrirtækja og því sé eflaust
rökrétt að þær upplýsingar sem
stjómendur helst þekkja og styðj-
ast við séu fjárhagsleg uppgjör fyr-
irtækja. Engu að síður geti verið
varhugavert að horfa eingöngu á
fjárhagslegar upplýsingar til að
meta rekstrarárangur, meðal ann-
ars vegna þess að þær segja ein-
göngu til um fortíðina, auk þess
sem þær geti gert skammtímasjón-
armiðum of hátt undir höfði. Til
dæmis geti verið freistandi að auka
hagnað með sparnaði í vömþróun,
símenntun og fjárfestingum, en
slíkt geti verið skammgóður vermir.
Ef gengið sé út frá því að markaðs-
verð fyrirtækja endurspegli getu
þeirra til að ná árangri í nútíð og
framtíð verði að viðurkenna að
hefðbundið bókhald gefi takmarkað-
ar upplýsingar. Það taki ekki tilliti
til ýmissa óefnislegra verðmæta,
svo sem tengsla við viðskiptavini og
þekkingar starfsmanna, atriða sem
geti á endanum haft úrslitaáhrif á
fjárhagslegan árangur.
„Ein mikilvægasta mælingin á
frammistöðu fyrirtækja er raun-
hagnaður, en hann má í meginatrið-
um skilgreina sem rekstrarhagnað
að frádregnum sköttum og vegnum
fjármagnskostnaði af markaðsvirði
þess fjár sem bundið er í rekstrin-
um. Ef mæla á árangur fyrirtækja
og deilda innan þeirra er nauðsyn-
legt að þekkja hversu mikið fjár-
magn er í raun bundið í rekstrinum
og hver veginn fjármagnskostnaður
er (þar með talin ávöxtunarkrafa
Eru gerðar áætlanir um eftirfarandi?
Markaðsstarf
Að hluta
0%
20%
40%
60%
80%
100%
Spurt var um ánægju (óánægju) með stjórnendaupplýsingar
50 stærstu
0% 20% 40% 60% 80% 100%
Hvenær liggja fyrir uppiýsingar um veltu og framlegð?
Daglega
Vikulega
Mánaðarlega
Síðar eða misjafnt
hluthafa),“ segir í skýrslunni.
I könnuninni kom fram sterkur
vilji stjórnenda til að bæta upp-
lýsingar um arðsemi rekstrarein-
inga sem og um afkomu eftir við-
skiptavinum. Auk þess komu fram
mótsagnir í svörum og bent er á að
þær gefi tilefni til að kanna málin
frekar og þá með ítarlegri hætti en
gert var í þessari könnun. Því hefur
KPMG ráðgjöf áformað að fylgja
könnuninni eftir með ítarlegri at-
hugun þar sem farið verður nánar
ofan í atriði sem snúa að árang-
ursmati fyrirtækja, rekstrareininga
og starfsmanna.
Fram kemur í skýrslu KPMG
ráðgjafar að áætlanagerð sé almenn
meðal hinna 100 stærstu, en þó geri
þriðjungur fyrirtækjanna ekki áætl-
un um efnahag og enn færri geri
Raunhagnaður mikilsverðasta
mælingin á frammistöðu
I inngangi að skýrslu KPMG ráð-
gjafar segir að fjárhagslegur árang-
Kögun gerir samstarfssamning við bandaríska
hugbúnaðarfyrirtækið webMethods
19.900.
I Ekki innifalið: Föst aukagjöld - tullorðnir 2.115 kr., börn 1.430 kr. J
l og Mallorca j
54.900,-
Mallorca
Viðbótarsæti / CALA-MILL0R
Verð frá 54.900 á mann m/v 2 fullorðna
og 2 börn í tvær vikur.
Ekki Innifalið: Föst aukagjöld.
Fullorðnir 2.485kr. börn 1.800kr.
19.500,-
Flug og bíll
Verð á rnarni fnA 1&500 ke
Innifalið: Rug og bíll í A-flokki í eina
viku m.v. hjón með 2 böm 2-11 ára.
Ekki innifalið: Föst aukagjöld
fullorðnir 2.115 kr., böm 1.430 kr.
Flugáætlun
LTU
Ousseldorf 3 f viku 04.06-10.09
Hamborg 1 iviku 22.06-31.08
Munchen 2iviku 11.06-10.09
LTU er annað stærsta flugfélag
Þýskalands, þekkt fyrir gæði og
góða þjónustu.
Upplýsingar orj bóknnir Stangarhyl 3A ■ 110 Reykjavik
hjá narstu (erðaskriislolu Sími: 587 1919 ■ F;ix: 587 0036
oða LTU á Íslandí (587 1910) lerraiwvai.is ■ into&terranova.is
Býður upp á lausnir fyrir
viðskipti milli fyrirtækja
KÖGUN hf. hefur gert samstarfs-
samning við bandaríska hugbúnað-
arfyrirtækið webMethods um sölu
og þjónustu á hugbúnaði þess hér á
landi. webMethods þróar hugbún-
aðarlausnir fyrir rafræn viðskipti
milli fyrirtækja (B2B) á Internet-
inu og eru lausnir þeirra taldar
vera í fremstu röð í heiminum í dag.
Gísli R. Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Kögunar, segist telja
að samningurinn styrki félagið
mjög. Hann sé liður í þeirri viðleitni
Kögunar að hasla sér völl á sviði
hugbúnaðarlausna fyrir viðskipti
milli fyrirtækja á netinu. „Við
hyggjumst líka koma að rekstri við-
skiptamiðstöðva fyrir fyrirtæki á
netinu í haust og þá aðallega í sam-
starfi við önnur fyrirtæki og með
stofnun fyrirtækja sem sérhæfa sig
á þessu sviði,“ segir hann. Kögun,
ásamt fleirum, stóð nýlega að stofn-
un fyrirtækisins Spans hf., sem
mun starfa á þessu sviði.
Phillip Merrick stofnaði web-
Methods árið 1996. „Hann sá
snemma hvaða möguleika netið
hafði til að leysa ýmis viðskiptaleg
vandamál, en áður hafði athyglinni
aðallega verið beint að öðrum notk-
unarmöguleikum netsins," segir
Gísli.
Spáð mlkílli velgengni
Hann segir webMethods vera
spáð mikilli velgengni á þessum ört
vaxandi markaði. „Sem dæmi má
nefna að tekjur fyrirtækisins rúm-
lega fimmfölduðust milli áranna
1998 og 1999. Sérfræðingar spá því
að vegna framúrskarandi hugbún-
aðarlausna webMethods og þeirrar
miklu velgengni sem fyrirtækið
hefur notið til þessa sé það líklegt
til að verða leiðandi á þessum
SAMTÖK atvinnulífsins efna til
umræðufundar á Hótel Sögu,
Súlnasal, fimmtudaginn 22. júní frá
klukkan 13 til 15. Fjallað verður
um starfsskilyrði samkeppnis-
greina og rekstrarhorfur í íslensku
atvinnulífi.
Finnur Geirsson formaður Sam-
taka atvinnulífsins mun setja fund-
inn og flytja erindi sitt, Stöðugt
starfsumhverfi. Þar á eftir mun Al-
mar Guðmundsson forstöðumaður
greiningadeildar íslandsbanka-
FBA hf. fjalla um Rekstrarum-
hverfi fyrirtækja og þróun þjóð-
hagsstærða. Loks munu Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiða hf.,
Hörður Arnarson forstjóri Marels
hf., Gunnar Örn Kristjánsson for-
markaði næstu árin,“ segir Gísli.
Að sögn Gísla leggur webMeth-
ods áherslu á að styðja alla þá
staðla sem fram hafa komið í vef-
viðskiptum milli fyrirtækja. Hug-
búnaður fyrirtækisins sé opinn og
miðað sé við að hann geti auðveld-
lega unnið með hugbúnaði frá sem
flestum sem starfa á þessu sviði.
stjóri SÍF hf. og Jón Scheving
Thorsteinsson framkvæmdastjóri
þróunarsviðs Baugs hf. hver um sig
fjalla um hvernig fyrirtæki og at-
vinnugreinar meta stöðu sína í dag.
Hringborðsumræður verða í lok-
in þar sem framsögumenn svara
spurningum blaðamannanna
Bjarna Más Gylfasonar, Viðskipta-
blaðinu og Ómars Friðrikssonar,
Morgunblaðinu.
Laust fyrir klukkan þrjú mun
Finnur Geirsson formaður Sam-
taka atvinnulífsins taka saman
helstu niðurstöður og slíta fundi.
Fundurinn er öllum opinn og er að-
gangur ókeypis. Vinsamlega til-
kynnið þátttöku með tölvupósti:
sa@sa.is.
Samkeppnisstaða
atvinnuiífsins