Morgunblaðið - 21.06.2000, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 33
LISTIR
Hernaðarumsvif
á Austurlandi
BÆKUR
S a g n f r æ fl i
FREMSTA VÍGLÍNA
- Átök og hernaðarumsvif á
Austurlandi í heimsstyrjöldinni
síðari eftir Friðþór Eydal.
Útgefandi Bláskeggur,
Reykjavík, 1999, 277 bls.
PETTA mun vera önnur bók sama
höfundar um styrjaldarárin síðari.
Nefndist sú fyrri Vígdrekar og
vopnagnýr (1997).
Bók þessi er í tuttugu og fimm
köflum, flestum fremur stuttum.
Eftir að höfundur hefur í fyrstu
tveimur köflunum kynnt efnið með
yfirliti eru tekin fyrir hernaðarum-
svif í einstökum byggðarlögum,
Seyðisfirði, Reyðarfirði og Eskifirði.
Inn á milli eru kaflar um einstaka
viðburði, s.s. er þýsk flugvél fórst við
Reyðarfjörð, loftárás á Seyðisfjörð
og þegar E1 Grillo var sökkt í Seyð-
isfirði, eða einstakar aðgerðir s.s.
herskipalægi í Seyðisfirði,
strandvarnarvirki á Sandsheiði, rat-
sjárstöðvar, ógn af tundurduflum og
þýskir kafbátar á Austfjörðum. I síð-
asta kafla segir frá Öryggisþjónustu
hersins og þýskum njósnurum á
Austfjörðum.
Umfjöllun höfundar einkennist af
því að megnið af upplýsingum hans
er fengið frá hernaðaryfirvöldunum
sjálfum, fjölmörgum skýrslum
þeirra og óprentuðum endurminn-
ingum sumra háttsettra manna í
hernum. Gerir þetta frásögn hans
ólíka því, sem áður hefur sést, líkari
því sem útlendingur skrifi. Að vísu
er einnig vísað til íslendinga, s.s.
Hjálmars Vilhjálms-
Isonar, en minna er
f ^ um það. Ekki er mér
W ... kunnugt um hvernig
HLáp höfundur hefur farið
að því að nálgast öll
SöS'n'
þessu leiðir m.a. að
I frásögnin er oft
Friðþór mjög tæknileg og
Eydal því líklega nokkuð
framandleg venjulegum íslenskum
lesanda. Geysimikið er af myndum í
bókinni og kemur megnið af þeim
frá herjunum sjálfum. Þær hafa því
ekki sést hér áður og eru margar
hverjar einkar upplýsandi. Þá eru
einnig mörg kort frá hernum, t.a.m.
kort sem sýna tundurduflalagnir.
Hafa þær vafalaust verið mikið
hernaðarleyndarmál á sínum tíma,
eins og raunar margar aðrar upp-
lýsingai- sem hér er að finna.
Vissulega er bók þessi afar fróðleg
og mikilsvert framlag til þessara at-
burðamiklu ára í sögu þjóðarinnar.
Er ekki að efa að til hennar mun oft
verða vísað. En því ber ekki að neita
að ekki er hún þægileg aflestrar.
Stíll höfundar og frásagnaimáti er
þurr og ópersónulegur, stuttaraleg-
ur og fjarlægur. Minnir hann fulloft
á skýrslugerð, þó út af bregði raunar
stöku sinnum. Býst ég við að það
stafi mest af eðli þeirra heimilda,
sem notaðar hafa verið. í sjálfu sér
er ekkert við það að athuga nema að
varla er það vel fallið til vinsælda
nema hjá þröngum hópi manna.
Bókin er prentuð á góðan pappír
og verður það til þess að myndir
prentast vel. Margar þeirra eru
ágætlega gerðar, líklega af
kunnáttumönnum.
Texti er tvídálka með skýru og vel
læsilegu letri. Illa kann ég þó því að
texti skuli ekki jafnaður hægra meg-
in. Það gefur blaðsíðunum fremur
leiðinlegan svip.
Sigurjón Björnsson
Nýjar bækur
• LEYNDARDÓMAR trúarinnar -
bók umaltarissakramentið er eftir
Jakob Ágúst Hjálmarsson dóm-
kirkjuprest í Reykjavík.
í bókinni geiir höfundur grein fyr-
ir kvöldmáltíðarsakramentinu. Hann
fjallar um bakgrunn þess í sögulegu
samhengi, tekur fyrir ritningartexta
sem varpa á það ljósi, fjallar um
trúarlega túlkun kirkjunnar á því
hvemig kirkjan umgengst altaris-
sakramentið og gagnsemi þess.
Jakob Ágúst hefur fengist við
prédikun og þjónustu í íslensku
kirkjunni í drjúgan aldarfjórðung,
lengst af á ísafirði, en síðustu ár við
Dómkh'kjuna í Reykjavík.
Útgefandi er Skálholtsútgáfan, út-
gáfufélagþjóðkirkjunnar. Bókin er
112 bls. prýdd fjölda litmynda.
Skerpla annaðist hönnun og umbrot
en Steindórsprent - Gutenberg
prentaði. Verð: 1.800 kr.
Við söngjfv-
anna hljoma
TONLIST
ísafjarðarkirkja
UNGLINGAKÓR
TÓNLISTARSKÓLA
ÍSAFJARÐAR
Stjórnandi: Margrét Geirsdóttir.
Undirleikari: Sigríður Ragnars-
dóttir. Miðvikudaginn 14. júní.
UNGLINGAKÓR Tónlistar-
skóla ísafjarðar hélt tónleika und-
ir yfirskriftinni „Við söngvanna
hljóma“. Tónleikarnir voru liður í
undirbúningi kórsins fyrir þátt-
töku í alþjóðlegri kórakeppni í
bænum Cantonigrós á Spáni 13,-
16. júlí í sumar. Kórinn skipa 28
stúlkur á aldrinum 13-17 ára.
Yfirskrift tónleikanna átti vel
við, því að söngvarnir hljómuðu
svo sannarlega fallega í kirkjunni
þetta kvöld. Tónleikarnir hófust á
trúarlegum nótum með íslenska
sálminum „Gefðu að móðurmálið
mitt“, sem stúlkurnar sungu mjög
fallega. Þá tók við „Ave verum
corpus“ eftir Mozart, sem einnig
var vel flutt. Alls söng kórinn 23
lög af ýmsu tagi, bæði ný og göm-
ul, íslensk og erlend, sígild og nú-
tímaleg. Söngur kórsins var mjög
góður, ekki síst í þjóðlaginu „Enn
dvelur þú hjarta“ þar sem altradd-
irnar nutu sín sérlega vel.
„Þjóðlífsmynd" Jóns Ásgeirs-
sonar var glæsilega flutt sem og
óður Oscars Petersons „Hymn to
Freedom“. Smávægileg mistök í
katalónska þjóðlaginu „0, cel
blau“ voru einu hnökrarnir á þess-
um vel heppnuðu tónleikum, sem
allir aðstandendur þeirra mega
vera stoltir af.
Kristinn Jóhann Níelsson
i$CCO
Miðvikudagur 21. júní.
Leiklistarhátíð Bandalags ís-
lenskra leikfélaga á Akureyri.
Opnunarsýning - Götuleikhús
kl. 13. Formleg opnun kl. 14.30.
Auseklis Limbazi Amateur
Theatre frá Lettlandi sýnir Á
rúmsjó kl. 16 og kl. 19. Leikfélag
Hafnarfjarðar sýnir Hvenær
kemurðu aftur rauðhærði ridd-
ari? kl. 16 og kl. 20.30.
Hátíðarklúbbur opinn um
kvöldið í veitingahúsinu Við Poll-
inn.
Upplýsingar í Kompaníinu, s.
462-2710. Miðaverð á einstakar
sýningar kr. 900, passi á allar
sýningar kr. 5.000.
KRINGLUKAST
FIM., FÖS. OG LAU.
ALLAR PEYSUR
40%
AFSLÁTTUR
...O.FL. TILBOÐ
TILBOÐ:
MELLOW BOLUR 990
THORN SKYRTA 1 .990
CONNELL SKYRTA 1 .990
PETE BUXUR 2.990
DERRICK SKÓR 3.990
....O.FL. TILBOÐ
UNLIMITED
Tilboðin gilda einnig ó Laugavegi
OIMLY VERO mODA
EXIT
TILBOÐ:
SKATER BOLUR 490
TECHNICA BUXUR 1 .290
STAR SKYRTA 1 .990
GOLD BUXUR 2.990
BUUS JAKKI 3.990
....O.FL. TILBOÐ
TILBOÐ:
BODY SAMFELLA 290
BALZINNA BOLUR 490
LISETTE BOLUR 690
WELDON BOX 990
VICKS BUXUR 1.690
...O.FL. TILBOÐ