Morgunblaðið - 21.06.2000, Page 36
36 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 37
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
PÚTIN OG SCHRÖDER
/
Isíðustu viku fór fram í Berlín mik-
ilvægur fundur Pútíns, forseta
Rússlands og Schröders, kanslara
Þýzkalands. Að viðræðum þeirra lokn-
um lýstu þeir sig fylgjandi því, að
Evrópuríkin og Rússland ættu náið
samstarf um endurskipulagningu ör-
yggis- og varnarmála í Evrópu. Pútín
lýsti afstöðu sinni til Þýzkalands með
þessum orðum: „Þýzkaland var og
verður mikilvægasti bandamaður okk-
ar í Evrópu og í heiminum.“ Þýzki
kanslarinn lýsti vilja til þess að Þýzka-
land og Rússland ættu með sér hags-
munabandalag.
Eitt aðalágreiningsefni Rússa og
Bandaríkjamanna um þessar mundir
eru hugmyndir Bandaríkjamanna um
að byggja upp nýtt varnarkerfi gegn
eldflaugum. Bandaríkjamenn telja
nauðsynlegt að þeir byggi upp slíkt
varnarkerfi til þess að geta varizt
árásum ríkja, sem lúta ábyrgðarlausri
stjórn eða stjórn manna, sem svífast
einskis. Rússar líta svo á, að í dag ráði
engin þjóð yfir eldflaugum, sem geti
ógnað Bandaríkjamönnum nema þeir
sjálfir og þess vegna felist í áformum
Bandaríkjamanna óvinveittari afstaða
til Rússa en þeir vilji vera láta.
Schröder hefur tekið afstöðu með
Rússum í þessari deilu og Pútín hefur
komið fram með þá gagntillögu, að
Bandaríkjamenn, Rússar og Evrópu-
ríkin byggi upp nýja eftirlitsstofnun
með eldflaugaskotum í heiminum, sem
hafi aðsetur í Moskvu.
Clinton hefur leitað samninga við
Rússa og bandamenn sína í Evrópu um
þetta mál, en Bush yngri, sem verður
frambjóðandi repúblikana í forseta-
kosningunum í Bandaríkjunum í nóv-
ember hefur spurt hvers vegna Banda-
ríkjamenn þurfi að semja um þetta
varnarkerfi við aðrar þjóðir. Þeir geti
tekið einhliða ákvörðun um þetta mál.
Fundur þeirra Pútíns og Schröders í
síðustu viku og afstaða þýzka kanslar-
ans til hugmynda Bandaríkjamanna
hafa mikla þýðingu fyrir framvindu
mála í Evrópu. Það er augljóst, að það
er að verða til öflugt samstarf á milli
Rússa og Þjóðverja. Rök Þjóðverja
fyrir því blasa við. Þeir hafa bæði póli-
tíska og viðskiptalega hagsmuni af því
að tryggja frið til austurs. Hinn nýi
forseti Rússlands vill augljóslega
treysta tengslin á milli Rússa og ann-
arra Evrópuþjóða og skapa Rússum
með því nýja vígstöðu á alþjóðavett-
vangi. Evrópuríkin þurfa á Rússum að
halda m.a. til þess að tryggja frið á
Balkanskaga.
Þessar vísbendingar um aukið sam-
starf á milli Rússa og Þjóðverja eru
upphafið að umtalsverðum breyting-
um í evrópskum stjórnmálum. Nái
þessar öflugu þjóðir ásamt Frökkum
að stilla saman strengi sína, mun
smátt og smátt draga úr áhrifum
Bandaríkjamanna á evrópsk málefni.
Taki Bretar ákvörðun um að gerast
aðilar að evrusamstarfinu munu þeir
bindast meginlandsþjóðunum traust-
um böndum. Líkurnar á því að Bretar
taki upp evru eru mikíar. Kenneth
Clarke, fyrrum fjármálaráðherra
Breta, sem var hér á ferð fyrir
skömmu fullyrti raunar að af því yrði
og af ummælum hans mátti marka, að
til yrði bandalag Verkamannaflokks-
ins og þeirra íhaldsmanna, sem eru
hlynntir því að taka upp evru, til þess
að fá það samþykkt í þjóðar-
atkvæðagreiðslu í Bretlandi.
Utanríkisstefna okkar íslendinga
frá lýðveldisstofnun hefur byggzt á
þeim meginstoðum að eiga náið varn-
arsamstarf við Bandaríkin, menning-
arlegt samband við Norðurlöndin og
pólitfskt og viðskiptalegt samstarf við
Evrópuríkin.
Fyrirfram er ekki ástæða til að ætla
að breytingar á valdahlutföllum í
Evrópu þurfi að hafa áhrif á þessa
grundvallarþætti í utanríkisstefnu
okkar. Hins vegar er augljóst, að það
er okkur hagsmunamál að rækta vel
samskiptin við Þjóðverja. Það hefur
tekizt með eindæmum vel á undan-
förnum árum og forystumenn í ís-
lenzkum stjórnmálum hafa myndað
nánari persónuleg tengsl við þýzka
stjórnmálaleiðtoga en dæmi eru um í
samskiptum við aðrar þjóðir, að Norð-
urlandaþjóðunum undanskildum.
UTBOÐI ÞYZKALANDI
IMorgunblaðinu í gær birtist frétt,
þar sem sagði m.a.: „Þýzka fjár-
málaráðuneytið býst við að fá um 745
milljarða íslenzkra króna þegar boðin
verða út leyfi fyrir næstu kynslóð far-
síma í næsta mánuði.“
Við íslendingar eigum að taka upp
þetta fyrirkomulag. Símafyrirtækjum
fjölgar og það verður erfitt að gera upp
á milli þeirra á faglegum forsendum.
Þess vegna er hin eðlilega leið, m.a. til
þess að koma í veg fyrir ásakanir um,
að klíkuskapur og pólitískur geðþótti
hafi ráðið vali fyrirtækja, að bjóða
rekstrarleyfin upp þannig að hæst-
bjóðendur fái leyfin. Það er tímabært
að íslenzk stjórnvöld taki af skarið í
þessum efnum.
SAMEINING STETTARFELAGA
Verkalýðsfélögin hafa jafnt og þétt
misst áhrif á síðustu tveimur ára-
tugum.
I samtali við Morgunblaðið sl. laug-
ardag, sagði Sigurður Bessason, nýr
formaður Eflingar m.a.: „Það tók þessi
félög í Reykjavík ótrúlega stuttan tíma
að sameinast, þegar sameiningarferlið
fór í gang. Eg tel, að menn eigi að
skoða sameiningu þessara þriggja fé-
laga. Það liggur fyrir, að það eru aug-
ljós rök fyrir sameiningu Eflingar og
Hlífar í Hafnarfirði, þar sem félags-
svæðin liggja saman. Við höfum einnig
átt ákaflega gott samstarf við félagið í
Keflavík við gerð kjarasamninga.“
Þetta er rétt. Rökin fyrir samein-
ingu þessara þriggja félaga eru aug-
Ijós. Rökin fyrir því að halda þeim að-
greindum eru engin. Því fyrr sem
verkalýðshreyfingin tekst á við skipu-
lagsmál sín þeim mun betur mun henni
ganga að endurheimta fyrri áhrif að
einhverju leyti, þótt líkurnar á að hún
verði nokkru sinni jafnsterk og áður
séu hverfandi.
Þjóðhátíðarskjálftinn skilur eftir sig mikið jarðrask í Holtum
Vísindamenn mæla
Mikið jarðrask
hefur orðið víða á
upptakamisgengi jarð-
skjálftans í Holtum.
Vísindamenn eru að
kortleggja misgengið.
Bergsprungan er að
minnsta kosti 25 kíló-
metra löng og telur Páll
Einarsson prófessor að
hún sé á gamalli jarð-
skjálftasprungu.
STUNDUM hefur maður
verið lengi að velta því fýr-
ir sér hvort náttúrufyrir-
brigði væru tengd jarð-
skjálftum og mörgum spurningum
verið ósvarað. Nú sér maður greini-
lega hvaða umróti skjálftinn veldur
og fær strax skýringar á ýmsu sem
hefur verið að vefjast fyrir manni,“
sagði Páll Einarsson, prófessor í
jarðeðlisfræði við Háskóla íslands, í
samtali við blaðamann í gær. Var
hann þá í skoðunarferð með tveimur
jarðfræðingum á upptakasvæði
þjóðhátíðarskjálftans í Holtum í
Rangárvallasýslu.
25 kílómetra sprunga
Vísindamenn frá Raunvísinda-
stofnun Háskólans, Norrænu eld-
fjallastöðinni og Orkustofnun hafa
að undanfómu verið við mælingar á
svæðinu. Páll og jarðfræðingarnir
Amy Clifton og Maryam Khondayar
hófu að ganga um upptakasvæðið í
íyrradag og voru ekki búin síðdegis
í gær þegar blaðamenn hittu þau við
bæinn Læk. Meginmarkmið Páls
var að staðsetja upptakamisgengi
skjálftans í landinu og í þeim til-
gangi ganga þau eftir hverri
sprungu sem fundist hefur og skrá
með sérstaklega nákvæmu GPS-
staðsetningartæki sem þau bera.
Páll segir að upptök jarðskjálft-
ans hafi verið í stórri sprungu sem
liggur norður-suður Holtin. Vestur-
bakki sprungunnar hefði færst í
norður en austurbakkinn í suður.
Þegar bergið springur skapast um-
rót í jarðveginum sem víða sést á yf-
irborðinu. Ummerkin hafa sést al-
veg frá Árbæjarhjáleigu, norður um
Holtin og yfir Þjórsá og að Hrepp-
hólum í Hrunamannahreppi. Heild-
arlengd misgengisins er því að
minnsta kosti 25 kílómetrar að
lengd. Stærstu sprungurnar eru eitt
til tvö fet á breidd við yfirborð.
Einna mesta raskið sést á Skamm-
beinsstöðum og í Mykjunesi og geta
starfsmenn Orkustofnunar, sem
kanna áhrifin á jarðhitakerfið, sér
þess til að þar sé miðja atburðanna.
Á fyrmefnda bænum sést sprungan
við veginn en á þeim síðarnefnda
hefur hún farið eftir endilöngum
gömlum útihúsum. Sést misgengið
ganga inn í nyrðri gafl hússins sem
féll niður og brjótast út úr syðri
gaflinum. Húsin eru orðin nokkuð
lúin en skjálftinn hefur brotið þau
illa.
Á Skammbeinsstöðum 3, sem er
rétt austan við fjósið, urðu miklar
skemmdir á íbúðarhúsi. „Eg var úti
að reka hross og sá jörðina fara yfir í
bylgjum, eins og sjóbylgjum, og raf-
magnslínan sveiflaðist alla leið út að
Hjallanesi," sagði Sveinn Andrés-
son sem á húsið ásamt Auði Karls-
dóttur. Þau eru með hrossabúskap á
jörðinni en búa annars staðar. Kona
Sveins, sonur þeirra og tengdadóttir
voru inni í húsinu ásamt þremur
Getur leitt til hvers sem er
Jarðvísindamenn hafa frekar
gert ráð fyrir að skjálftarnir haldi
áfram og að von sé á fleiri skjálftum
vestar á Suðurlandi eða Reykjanesi.
„Ég held að allt sem við höfum séð
bendi frekar til runu jarðskjálfta aí
því tagi sem hefur gengið hér yfir
áður en að skjálftinn sé stakur. En^
hann er greinilega minni í sniðum
en fyrri Suðurlandsskjálftar. Stóri
skjálftinn kom án nokkurs aðdrag-
anda og síðan hefur allt svæðið lifn-
að við með smáskjálftum allt vestur
á Reykjanes. Það staðfesth- það
sem við höfum ímyndað okkm- og
getur leitt til hvers sem er,“ segir
Páll. e
Sprungan í jarðveginum á upptokamisgengi jarðskjálftans liggur eftir endilöngum gömlum útihúsum á
Skammbeinsstöðum og braut þau illa. Miðja atburðanna er talin vera þarna skammt frá.
Morgunblaðið/Golli
Daníel Magnússon á Akbraut stendur í skriðunni sem féll úr Hestakletti við Þjórsá í jarðskjálftanum. Fyrir skjálftann rann áin með klettinum.
skjálftasprungu, þó ekki sprung-
unni frá 1784 eins og hann hélt
íyrst. Nýja sprungan er um kíló-.
metra austan við 1784-misgengið.
Segir Páll að ekki hafi verið vitað
um þessa sprungu áður enda geti sá
skjálfti hafa orðið á forsögulegum
tíma. Hann segir að ummerki eftir
jarðskjálftann nú skeri til dæmis
lautir sem áreiðanlega séu á gömlu
sprungusvæði.
Hann segir einnig að ummerkin
eftir skjálftann séu greinilega öllu
minni en eftir fyrri Suðurlands-
skjálfta og segir að það staðfesti að
áætlanir um stærð gömlu skjálft-
anna geti verið nálægt lagi. Hann
segir að hólarnir sem myndast við
misgengið séu til dæmis talsvert
minni en hólarnir sem urðu til við
jarðskjálftann 1912 sem var mæld-
ur um 7 stig. „Reynsluna frá þess-
um jarðskjálfta má síðan yfirfæra á
gömlu skjálftana og nota til að end-
urmeta þá,“ segir Páll.
Það er mjög gaman fyrir prófes-
sor í jarðeðlisfræði sem lengi hefur
rannsakað jarðskjálfta, kennt um
þá og skrifað að ganga um upptök
öflugs jarðskjálfta. „Þetta er ný
reynsla. Ég hef farið með jarðfræð-
istúdenta um holt og mýrar í tutt-
ugu ár til að skoða ummerki. Stund-
um hefur maður verið lengi að velta
fyrir sér hvort náttúrufyrirbrigði
væru tengd jarðskjálftum og mörg-
um spurningum verið ósvarað. Nú
sér maður greinilega hvaða umróti
skjálftinn veldur og fær strax skýr-
ingar á ýmsu sem hefur verið að*
vefjast fyrir manni,“ segir Páll.
Haldið verður áfram kortlagn-
ingu upptakasprungunnar eftir því
sem ummerkin leyfa.
börnum. Sveinn sagði að þegar hús-
ið byrjaði að springa hafi verið faiið
með bömin út. „Kjallari hússins er
rammbyggður, tengdafaðir minn
hefur áreiðanlega kynnst jarð-
skjálfta af eigin raun og viljað hafa
hann í lagi. Eg tel að fólkið sem inni
var hefði verið í lífshættu ef svo
hefði ekki verið en allir sluppu lif-
andi og það er fyrir öllu.“
Húsið hefur lyftst upp öðrum
megin og skekkst og byggingarfull-
trúinn hefur úrskurðað það ónýtt.
Andstyggileg reynsla
Páll og samstarfsmenn hans
fylgdu misgenginu norður undir
bæinn Læk. Þar voru þau að leita að
framhaldinu þegar blaðamaður hitti
þau þar.
Lækur er rétt austan við brotalín-
una en Akbraut á henni eins og
Skammbeinsstaðir og Mykjunes.
Þar gekk einnig mikið á 17. júní.
Andrés Eyjólfsson bóndi á Læk var
úti við að laga girðingu þegar
skjálftin reið yfir. „Ég stóð ekki í
lappirnar og datt beint á fósturjörð-
ina,“ segir hann. Hann segist lítið
hafa séð, átt nóg með sjálfan sig. Þó
hafi hann séð nýlega skemmu takast
á loft í bókstaflegri merkingu. „Ég
hef ekki séð neitt þessu líkt,“ segir
Andrés Eyjólfsson á Læk situr f missigi sem varð í jarðvegi skammt frá bænum.
Andrés. Þegar hann rankaði við sér
lá hann langsum eftir mjórri
sprungu sem hafði myndast undh-
honum.
Á bænum er nýr 25 metra hár
heytum úr stáli og segist Andrés
geta ímyndað sér að hann hafi
sveiflast mikið. Nokkrar skemmdir
urðu á íbúðarhúsinu og þar fór allt
um koll innandyra en litlar
skemmdir urðu á útihúsum. Greini-
legustu ummerki skjálftans eru sig
og sprungur í hlaðinu. Við það fóru
allar leiðslur í sundur. Andrés og
kona hans, Rakel Benjamínsdóttir,
eru með stórt kúabú og var því
gengið strax í það verk að grafa
hlaðið upp og leggja nýjar leiðslur
til þess að hægt yrði að brynna kún-
um. Kýrnar voru úti og segir And-
rés að þær væru enn hálf stirðar og
styggar. Kálfar og geldneyti sem
voru í skemmu trylltust þegar ljós
og lauslegir hlutir þutu um húsið.
„Það er andstyggilegt að lenda í
þessu en maður er að vona að það
fari að draga úr. Ég vildi ekki fá
annan svona, hann kemur vonandi
ekki fyrr en eftir hundrað ár,“ segir
Andrés.
Skammt frá bænum er mikið sig
og sprungur í jarðveginum, á að
giska 80-90 sentímetrar. Páll Ein-
arsson sagði að þetta væru ekki um-
merki eftir upptakamisgengið held-
ur missig í jarðveginum sem orðið
hefði vegna titringsins frá jarð-
skjálftanum. Það væri sama fyrir-
bærið og sæist sums staðar við hús,
til dæmis á Læk, þar sem jarðveg-
urinn í kringum húsin sigi en
mannvirkin stæðu á föstu. Sagði
Páll að víða væri hægt að finna
missig af þessu tagi.
Á Akbraut var Daníel Magnús-
son bóndi að reka hest á túninu þeg-
ar jarðskjálftinn varð. „Öldumar
voru svo sterkar að hesturinn hnaut
framyfir sig og ég lagðist á fjóra
fætur. Mér fannst skjálftinn reynd-
ar koma úr tveimur áttum,“ sagði
Daníel.
Á Akbraut og í nágrenninu má
víða sjá hversu krafturinn var mikill
sem jarðskjálftinn leysti úr læðingi.
Áburðarpokar ultu af bretti, mölin í
kringum húsin seig um 5 sentí-
metra, 800 kílóa steinn sem notaður
er til að þyngja dráttarvélarbeisli
valt á hliðina og sprungur komu í
hús. Þá hrundi víða úr klettum.
Daníel sýndi blaðamönnum
Morgunblaðsins Hestaklett við
Hestaklettsfoss sem mjög hefur
breyst í hamförunum vegna þess
hversu mikið hefur hrunið úr hon-
um.
Daníel sagði að hann og nágrann-
ar hans væru sammála um að jarð-
skjálftinn hlyti að vera miklu öfl-
ugri en upp var gefið, að minnsta
kosti 7 á Richter.
Upptök í gamalli sprungu
Páll Einarsson segir að lærdóms-
ríkt sé að skoða ummerki eftir jarð-
skjálftann. Hann telur fullvíst að
skjálftinn eigi upptök í gamalli jarð-
Framkvæmdastjóri Viðlaffatrygginffar segir gríðarlega vinnu bíða matsmanna stofnunarinnar
Starfsfólki fjölgað og bæki-
stöð komið upp á Hellu
GEIR Zoéga, framkvæmda-
stjóri Viðlagatryggingar
ríkisins, segir ljóst að
gríðarleg vinna bíði starfsmanna
stofnunarinnar við mat á tjóni
fólks vegna jarðskjálftanna á Suð-
urlandi sl. laugardag. Hann telur
ljóst að Viðlagatrygging muni vel
ráða við að greiða bætur til tjón-
þola en býst jafnframt við að
nokkrar vikur, jafnvel mánuði,
taki að meta allt tjón af völdum
skjálftanna og ganga frá uppgjöri
vegna þessa.
Matsmenn Viðlagatryggingar
hófu þegar að kanna og meta tjón
af völdum skjálftanna sl. sunnu-
dag og hafa síðan verið á ferðinni
um Hellu og nærsveitir. í forgangi
eru þau hús sem talin eru óíbúðar-
hæf en þau munu vera á annan tug
talsins.
Geir segir ljóst að Viðlagatrygg-
ing þurfi að fjölga eitthvað starfs-
fólki vegna þeirrar miklu vinnu
sem framundan er. „Það verður
gengið í þau mál næstu daga,“
sagði hann en þegar hefur verið
ákveðið að sett verði upp stjórn-
stöð Viðlagatryggingar í skólahús-
inu á Hellu. Þar munu starfsmenn
stofnunarinnar svara fyiárspurn-
um fólks og greiða úr erindum
þeim sem kunna að berast.
Fólk skrái skemmda
og ónýta muni
Freyr Jóhannesson matsmaður
Viðlagatryggingar segir að ákveð-
ins misskilnings hafi gætt hjá fólki
vegna meðferðar innbús og ann-
arra lausamuna sem illa urðu úti
vegna skjálftanna. Hann segir til
mikilla bóta að fólk taki til í híbýl-
um sínum og skrái vel hjá sér þá
muni sem skemmst hafi eða séu
ónýtir. Slík vinna létti matsmönn-
um mjög verkið og geti flýtt ferli
tjónsmats um jafnvel marga daga.
Freyr segir að tjón fólks sé
mjögmismikið en mat á slíku sé
enginn hægðarleikur þar sem í
slíkt blandist margir þættir. Und-
ir það tekur Geh" „Segja má að
skipta megi tjóni af völdum
skjálftanna í tvennt,“ segir hann.
„Annars vegar tjón fólks og hins
vegar það tjón sem Viðlagatrygg-
ing bætir. Það nemur alls ekki öllu
tjóni fólks en aðalatriðið er að
hvert eitt mál er metið sérstak;
lega fyrir sig og á faglegan hátt. í
það fara næstu vikur og jafnvel
mánuðir," sagði Geir.
Morgunblaðið/Sverrir
Freyr Jóhannesson og Geir Zoéga, fulltrúar Viðlagatryggingar,
könnuðu skemmdir á bænum Þrándarholti í Gnúpveijahreppi. Þar
mynduðust miklar sprungur í veggjum, einkum þó kjallara.
upptök misgengis