Morgunblaðið - 21.06.2000, Page 54

Morgunblaðið - 21.06.2000, Page 54
54 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN * a Um gagnrýni forsetaembættið í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins 4. júní er rætt um em- bætti forseta íslands. Tilefnið er grein í Degi eftir Stefán Jón Hafstein 31. maí. Hún var um það með hverjum hætti forset- ipn hefur skýrt opin- berlega frá breyting- um á sínum einka- högum, og það mál ræðir Morgunblaðið raunar ekkert um. Ekki hef ég heldur hug á að fjalla um það, en vil aðeins taka undir með Stefáni Jóni, að best fari á að forseta, sem annarra í einkamál opinberu lífi, séu meðhöndluð sem einkamál í lengstu lög. Hins vegar hljóta all- ir að samfagna forseta með ham- ingju í einkalífi, sem vitanlega ger- ir honum auðveldara að sinna embættisskyldum sínum. En það var umræða Morgun- 'blaðsins um afskipti forseta ís- lands af stjórnmálum fyrr og síðar sem ég vil gera athugasemdir við. Það er auðvitað rétt sem blaðið segir að nú er fjallað með opin- skárri hætti um störf og fram- göngu forseta en áður tíðkaðist. Þetta er þáttur í almennri þjóðfé- lagsþróun, hér sem annars staðar, en undir það ýtir hjá okkur að áð- ur umdeildur stjórnmálamaður hefur nú gegnt embættinu í fjögur ár. En ef farið er að fjalla opinber- „ lega um embættisfærslu forseta er spurning hvort ekki sé rétt að ræða líka opinskátt atriði í störf- um fyrri forseta sem hingað til hefur lítt verið fjallað um. Áður en að því er vikið skal staldrað við orð Morgunblaðsins um gagnrýni þess á núverandi for- seta fyrir að „gera tilraun til að færa út landamæri embættis síns, ef svo má að orði komast, og blanda sér í umræður um þjóðfé- lagsmál á þann veg að ekki hæfi _ forsetaem- bættinu". Ég held ein- mitt að hann hafi ver- ið kjörinn til að færa út þessi landamæri. Forsetaembættið hlýtur að taka breyt- ingum eins og annað í þjóðfélaginu. Það er fáránlegt að þjóðkjör- inn forseti sitji í em- bætti svo hamlaður að honum sé meinað að segja eða gera annað en það sem aðrir Gunnar menn leggja fyrir Stefánsson hann. Slíkur þjóðhöfð- ingi er lítils virði. Forsetinn á að tala til þjóðarinnar um þau mál sem mest brenna á henni, þótt vitanlega eigi hann að gera það áreitnislaust og það hefur Olafur Ragnar Grímsson gert. I framhaldi af áður tilvitnuðum orðum Morgunblaðsins um „til- raunir" forseta til að blanda sér í þjóðmálaumræðu segir í Reykja- víkurbréfi: „Aðrir hafa talið sig sjá merki slíkra tilrauna innan stjórn- kerfisins, þótt gagnrýni þess efnis hafi ekki komið upp á yfirborðið. En svo er líka ljóst að sumir virð- ast ekki hafa neitt við það að at- huga.“ Þarna eru sem sagt á ferð- inni bæði „sumir" og „aðrir“. Er það of mikil tilætlunarsemi að Morgunblaðið skýri þessi orð fyrir landsmönnum? Blaðið segist vilja gæta kurteisi og tillitssemi í garð forsetans og ekki ástæða til að ef- ast um að svo sé. En dylgjur af þessu tagi bera varla vitni um þær dyggðir. Athugasemdir Morgunblaðsins um atriði í störfum fyrri forseta eru nokkuð ófullnægjandi. Það er raunar alkunnugt að Sveinn Bjömsson reyndi að beita þjóð- höfðingjaembættinu pólitískt. Það leiddi til þess að tveir stærstu stjórnmálaflokkarnir vildu ráða vali eftirmanns hans, sem ekki ÞITT FE HVAR SEM ÞÚ ERT tókst. En það er líka vitað að Ás- geir Ásgeirsson hafði veruleg póli- tísk áhrif að tjaldabaki varðandi stjórnarmyndanir. Kemur það fram í ævisögu hans. Sjálfur sagði hann á efri árum að fyrsta kjör- tímabilið hefði reynst sér erfitt vegna hinna hörðu kosninga 1952. Það var því ekki svo að hann sæti ætíð á friðarstóli eins og Morgun- blaðið segir; - raunar gegndi hann ekki embættinu til æviloka eins og skilja mátti af Reykjavíkurbréfinu. Kristján Eldjárn einsetti sér að gæta fyllstu óhlutdrægni í em- bættisverkum. Það var þess vegna sem hann lét Lúðvík Jósepsson sitja við sama borð og aðra flokks- formenn við stjórnarmyndun 1978 og hlaut gagnrýni fyrir frá Morg- unblaðinu. Það var ekki furða að hann tæki slíka gagnrýni óstinnt upp, enda sagðist hann jafnan hafa „leitast við það af öllu afli að gera rétt“ í embætti sínu. Hafi sú Forsetaembættið Mergur málsins er sá að enginn maður 1 trúnaðarstörfum, og ekki heldur forseti —7----;--------------- Islands, segir Gunnar Stefánsson, kemst hjá því að segja eða gera hluti sem ágreiningur getur orðið um. ákvörðun Kristjáns Eldjárns að veita Gunnari Thoroddsen umboð til stjórnarmyndunar 1980 verið „mjög umdeild" eins og Morgun- blaðið segir, er vandséð á hverju aðfinnslur í þeim efnum hafa byggst. Gunnar fékk ekki stjórnar- myndunarumboð fyrr en hann sýndi fram á að hann hefði meiri- hluta þings á bak við sig og for- mönnum flokkanna hafði öllum mistekist að mynda meirihluta- stjórn. Þá var forseta í þingræðis- landi vitanlega ekki stætt á öðru en veita Gunnari þetta umboð. Um gagnrýni á Vigdísi Finn- bogadóttur nefnir blaðið tvennt. Annað er þegar hún dró í nokkra klukkutíma að undirrita lög um verkfall flugfreyja á kvennafrídag- inn, með þeim afleiðingum að van- stilltur ráðherra hótaði afsögn. Var það ekki ábyrgðarlaus hegðun gagnvart forseta? Hitt varðar und- irritun laganna um EES, en um það segir í Reykjavíkurbréfi að þá „urðu samskipti æðstu stjórnenda ríkisins ævintýraleg, þótt sú saga sé enn ósögð“. Er ekki kominn tími til að segja þá sögu? Mergur málsins er sá að enginn maður í trúnaðarstörfum, og ekki heldur forseti íslands, kemst hjá því að segja eða gera hluti sem ágrein- ingur getur orðið um. Núverandi forseti hefur verið óhræddur við slíkt, sem betur fer. Ef í forseta- embætti sæti fólk sem legði höf- uðáherslu á að forðast það og þóknast öllum til að verða samein- ingartákn með þeim hætti, væri ástæða til að ræða um að leggja embættið niður. Eða að minnsta kosti létta þeirri fyrirhöfn af þjóð- inni að kjósa forsetann beinni kosningu og fela þinginu það í staðinn. Höfundur er bókmenntafræðingur. Þjóðhátíð? ágætir ÞEGAR forfeður okkar námu hér land tóku þeir niður dreka- höfuð skipa sinna til að styggja ekki landvættir af virðingu fyrir land- inu og náttúruöflunum enda voru þeir flestir vel heiðnir. Landnáma segir frá því að sumir þeir er komu frá Bret- landseyjum hafi verið kristnir, svo sem Helgi magri, en hann treysti þó alla jafna betur Ása- Þór þegar mikið lá við. Samkvæmt sömu heim- ildum gekk þetta þó óvíða í erfðir þannig að niðjar þeirra voru margir blótmenn enda var landið alheiðið nær hundraði vetra. Alþingi á Þingvöllum Þegar Alþingi var stofnað árið 930 var landið nær fullnumið og talið er að hér hafi búið um 30.000 manns. AI- þingi íslendinga er eitt elsta þjóð- þing heims og þar ríkti mjög merki- legt fulltrúalýðræði þar sem þing- menn (bændur) gengu í og úr án takmarkana. Þingið (allsherjarþing) fór með löggjafavald en Lögrétta, sem í sátu goðar, rétti lögin ásamt lögsögumanni og dæmdi eftir þeim. Framkvæmdavaldið var veikt nema ef landinu var ógnað utan frá. Þess í stað var treyst á borgaralega skyldu þegnanna. Hrepparnir og goðorð mynduðu ásamt ættingjum öryggis- net fyrir þurfamenn. í þau 70 ár sem heiðið þing réð hér ríkjum var ákaf- lega friðsælt í landinu miðað við að hér var engin lögregla og ekki síður miðað við það sem síðar varð. Trúfrelsi að fornu í landinu var trúfrelsi og málfrelsi voru þau einu takmörk sett að skorð- ur voru við níðvísum og fjölmæli. Þá er rétt að fram komi að heiðnir menn báru aldrei vopn á aðra menn á þing- um enda hefði það verið brot á þing- helgi og jafnvel blóthelgi og jafngilt mðingsverki. Heiðnir menn leyfðu kristnum leysingjum að byggja kirkjur í landnámi sínu. Þess eru heldur engin dæmi að heiðnir menn hafi misnotað vald sitt og meirihluta til að takmarka málfrelsi kristniboða. Kristnitakan Aðdraganda kristnitökunnar er lýst af kristnum sagnariturum á 12. og 13. öld. í grein um kristnitökuna í Skími árið 1941 bendir Einar Am- órsson á þann rauða þráð að sagna- ritarar sneiddu hjá að gagnrýna annars vegar Noregskonung og hins- vegar kirkjuna. Fræði- menn era þó almennt sammála um að sá sagnaritari er fyrstur ritaði um þessa atburði sé þeirra trúverðugast- ur, þ.e. Ari fróði Þor- gilsson. I skrifum Ara kemur greinilega fram að hvatinn að kristni- tökunni var ekki inn- lendar tráarerjur held- ur utanaðkomandi áhrif Valgeir frá Ólafi Tryggvasyni Sigurðsson Noregskonungi sem eygði von um völd hér- lendis líkt og í Noregi þar sem hann komst til valda undir yfirskini Þingvallahátíðir ✓ Asatrúarmenn telja sig ekki síður hafa ástæðu til að fagna, segir Valgeir Sigurðs- son, því að þrátt fyrir 1000 ára nafnkristni hefur heiðnin lifað með þjóðinni. kristniboðs eins og var reyndar al- gengt á þessum tíma. Hann sendi nokkra erindreka eða kristniboða til íslands. Eigi buðu þeir af sér góðan þokka frekar en foringi þeirra Olafur konungur. Þekktastur þeirra var Þangbrandur biskup sem gerðist hér sekur um manndráp og var dæmdur fyrir á Alþingi. Kristniboðum þess- um var lítt ágengt í fyrstu. Af Þorvaldi víðförla Fræg saga er af því þegar Þor- valdur víðfórli (kristniboði) fór til Al- þingis til að tala um fyrir þingheimi. Á eftir honum talaði Héðinn mildi, ungur höfðingjasonur úr Skagafirði. Héðinn var vinsæll og vitur maður. Hann hagaði orðum sínum svo að enginn rómur var gerður að máli Þorvaldar. Þorvaldur gekk við svo búið sneyptur af þingi en næst þegar Héðinn fór til Noregs að sækja sér við til húsagerðar sagði Þorvaldur Noregskonungi til hans, konungur lét sitja fyrir honum í skóganjóðri í Þrándheimi þar sem hann liggur óbættur. Þvinganir Noregskonungs Ólafi þótti kristniboðið sækjast seint og greip til nærtækra ráða. Hann setti hafnbann á landið, setti Islendinga í Noregi í farbann og tók nokkra unga menn sem áttu áhrifa- ríka feður og frændur á Aiþingi í gísl- ingu og hótaði að meiða þá ef kristni yrði ekki lögtekin á Islandi. Þorgeir Ljósvetningagoði Þegar í óefni var komið og við lá að þingheimur berðist var það Þorgeir Ljósvetningagoði lögsögumaður heiðinna manna sem tók af skarið og sagði upp lög fyrir bæði heiðna menn og kristna. Allir menn skyldu vera kristnir en máttu blóta á laun. Hélst sú skipan fram á miðja þrettándu öld. Stjómviska hans bjargaði Is- landi frá borgarstyrjöld og jafnvel erlendri innrás. Kristnihátíð Sú fregn hefur borist að ríkissjóð- ur hafi verið galopnaður til að fagna þeim atburðum er að framan er lýst. Ríkiskirkjan, sem einnig var komið á fyrir erlendan atbeina á 16. öld, vill eigna sér heiðurinn af verkum Ólafs Tryggvasonar og hefur boðið þjóð- inni til kristnihátíðar á Þingvöllum 1. og 2. júlí næstkomandi. Þeir sem telja þessa atburði vera fagnaðarefni fara að sjálfsögðu til Þingvalla og er þeim óskað góðrar skemmtunar. Ásatráarmenn telja sig ekki síður hafa ástæðu til að fagna því að þrátt fyrir 1000 ára nafnkristni hefur heiðnin lifað með þjóðinni. Má þar nefna álfa-, vætta- og forlagatrá. Þá era hin heiðnu gildi enn við lýði en þau era drenglyndi, virðing fyrir landinu og náttúranni að ógleymdu umburðarlyndi. Fyrir það ber að þakka. Ásatrúarmenn á Þingvöllum Ásatráarmenn halda einnig upp á þúsaldarmótin á sinn hátt. Fimmtu- daginn í tíundu viku sumars þ.e. 22 júní 2000 verða Ásatráarmenn á Þingvöllum frá kl. 20. Þar verður þingsetning að þeim hætti sem var á hafður allt frá 930, matur og skemmtan að gömlum hætti. Laugardaginn 24. júní verður svo almenn skemmtun á Þingvöllum frá því um eftirmiðdaginn og fram á kvöld. Við bjóðum alla landsmenn, hverrar tráar sem þeir era, vel- komna. Höfundur er veitingamaður í Luxemborg og er ásatrúar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.