Morgunblaðið - 21.06.2000, Síða 58

Morgunblaðið - 21.06.2000, Síða 58
58 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens HANN KEMUR ORUGGLE&A FRAM Á FISKILEITARTÆKJUM ÞESSI! Grettir Smáfólk ALL RléHÚLUCV, LET'5 LOOK ALIVE OUT TI4EREÍBE REAPV.1 PAY ATTENTIONICONCENTRATE! Jæja, vera svoMtið lífleg þama úti! Vertu tilbúin! Taktu eftir! Einbeittu þér! Af hverju? Góð spuming.. BRÉF TTL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík 0 Sími 569 1100 # Símbréf 569 1329 Sjónvarp allra landsmanna brást Frá Ásthildi Cecil Þórðardóttur: ÉG UNDIRRITUÐ fer hér með fram á að fá að segja upp Ríkis- sjónvarpinu. Mér er ofboðslega misboðið. Það er með ólíkindum að meðan allt Suðurlandið, og jafnvel allt landið, skelfur vegna jarðhrær- inga, ungir og aldnir á svæðinu í losti og ráðvilltir og hræddir, skuli ekkert að hafa í sjónvarpinu „okk- ar“ nema boltaleiki. Þétta er mikil vanvirðing við blessað fólkið sem hefur orðið fyrir barðinu á nátt- úruhamförum. Ég er viss um að hvaða önnur dagskrá sem verið hefði í sjónvarpinu hefði verið rof- in og henni hætt til að flytja upp- lýsingar og fréttir af atburðinum, róa fólk og upplýsa. Ég legg einnig til að héðan í frá verði sjónvarpið nefnt sjónvarp sumra landsmanna, en ekki eins og yfirmenn þar á bæ vilja vera láta: sjónvarp allra landsmanna, sem er algjört rang- nefni. Að maður skuli vera skyldaður til að borga fyrir þessa dagskrá er með þvílíkum ólíkindum að það er ekkert sem hægt er að líkja því við. Ég vil benda á að það eru ekki allir sem hafa Stöð 2 eða aðrar stöpvar. Ég heiti á þá íslendinga sem vilja losa okkur undan þessari skyldukvöð að rísa nú þegar upp og heimta að þessu verði snarlega breytt og við fáum að velja hvort við viljum greiða fyrir þessi ósköp eða ekki. Það skyldi þó ekki vera að þarna væri um háværan minni- hluta karlkyns að ræða? ÁSTHILDUR CECIL ÞÓRÐARDÓTTIR, Seljalandsvegi 100, ísafirði. Leitar að fjölskyldu Guðmundar á Stdrahofí Frá Dieter Bergmann: ÁRIÐ 1957, þegar ég var enn í menntaskóla, fór ég með íslenska fiskibátnum Sléttbak frá Cuxhaven í Þýskalandi til Akureyrar (sjá mynd af skipi). Á þeim fimm vikum sem ég var í fríi sá ég mikið af landinu og hitti margt elskulegt fólk. Ég man sér- staklega eftir fjölskyldu Guðmund- ar á Stórahofi sem tók á móti mér af mikilli gestrisni. Myndirnar þrjár eru úr þessari heimsókn (mynd af húsi, hópmynd og mynd af yngstu dótturinni, sem er vænt- anlega 47-48 í dag). Það er ósk min að einhver geti gefið mér upplýsingar um hvar ég get fundið heimilisfang fjölskyld- unnar eða að einhver úr fjölskyld- unni kannist við myndirnar og hafi samband. Ef ég man rétt var eiginkona Guðmundar frá Ham- borg. Ég fór til baka með ms. Gullfossi til Edinborgar í Skotlandi. Um borð var einnig nóbelsverðlauna- hafinn Halldór Kiljan Laxness. Hann bauð mér og nokkrum skoskum jarðfræðistúdentum upp á drykk um borð. Með kveðju og þakklæti. DIETER BERGMANN, Bahnhofstr. 17 D - 34369 Hofgeismar sími +5671-5103, Þýskalandi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.