Morgunblaðið - 21.06.2000, Síða 63

Morgunblaðið - 21.06.2000, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ i (f •' V\» ga MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 63 FÓLK í FRÉTTUM Hanson-bræður eru mættir á ný Við höfum aldrei farið í skóla Barnastjörnur eiga oft erfítt með að fylgja eftir frægð sinni og frama en Hanson- bræðrunum hefur tekist vel til. Þeir sögðu Preben Petersen frá fylgifískum frægðar- innar og nýju plötunni sinni. Taylor, Ike og Zak vita að frægðin getur verið bæði súr og sæt. HANSON-bræðumir eru tilbúnir fyrir viðtalið. Isaac (Ike), 19 ára, Tayl- or, 17 ára og Zachary (Zak), 14 ára, eru allir mjög ánægðir, því þeir eru búnir að senda frá sér nýja smáskífu sem ber titilinn „If Only“ og á dögunum kom út ný plata frá þeim, „This Time Around", en þetta er önnur plata þeirra á þremur árum. Eru þið ánægðir með lífið þessa stundina? Taylor: Já, mjög! Við erum að senda frá okkur nýja plötu og gætum ekki verið ánægðari með hana. Er þetta sá lífstíll sem ykkur hef- urdreymt um? Ike: Fullkomlega! Þegar við vor- um litlir dreymdi okkur um að spila á tónleikum úti um allt og hafa okkar eiginn aðdáendahóp. Þetta er kannski aðeins öðruvísi en við sáum fyrir okkur í fyrstu. En ég man að ég sagði við sjálfan mig: „Bara að við gætum spilað í þættinum hans Jay Leno.“ Nú höfum við komið fram í þættinum fimm eða sex sinnum! Taylor: Það sem ég man best eftir frá upphafsárunum var að okkur dreymdi um að spila í stærstu hljóm- leikahöllinni í Tulsa, sem heitir The Arena. Tulsa er heimabær okkar og það komast 7000 manns fyrir í hljómleikahöllinni og því héldum við að við myndum aldrei spila þar. Þeg- ar við fórum í tónleikaferðalag um Bandaríkin 1998 spiluðum við þar og þá fannst okkur The Arena ekkert sérstaklega stór. Hlutimir hafa breyst mjög mikið. Núna spilum við í Evrópu og höfum fjöldann allan af aðdáendum. Hvað er það versta við frægðina? Ike: Þetta er auðvelt! Bæði það besta og það versta við frægðina er þegar fólk þekkir mann úti á götu. Taylor: Það getur stundum orðið til ama. Það er fínt þegar við erum úti á lífinu og aðdáendurnir koma til okkar, en þegar við erum úti að borða með fjölskyldu okkar viljum við vera í friði þegar það kemur fyrir að fólk kemur til okkar til þess að tala við okkur og fá eiginhandaárit- anir okkar. En þetta er bæði blessun og bölvun. Við höfum reynt að dul- búa okkur en það virðist ekki virka. Ólæsi og ferðalög Segið mér frá hinum dæmigerða degi hjá Hanson-fjölskyldunni. Taylor: Það er ekkert til sem gæti kallast hinn dæmigerði dagur. Við byrjuðum til dæmis að fara á brimbretti í sumar. Heima spOum við fótbolta og keyrum mótorhjólin okkar. Hvað með skólann? Zac: Við höfum aldrei farið í skóla! Taylor: Zac er ólæs. Foreldrar okkar kenna okkur. Við ferðumst svo mikið að við getum ekki gengið í neinn venjulegan skóla. Þess vegna höfum við „Ferðaskólann". Það er aðeins kennt í honum á mánudögum og miðvikudögum. Þetta virðist ganga upp nema hjá Zac sem er enn ólæs. í fullri alvöru, eruð þið ekki of ungir fyrir þennan lífstíl? Taylor: Það ætti enginn að segja mér að ég sé of ungur til þess að gera nokkuð sem mig hefur dreymt um síðan ég var sex ára. Ike: Spurningin er ekki hvort maður sé of ungur til að gera hitt eða þetta. Heldur er það (hermir eftir sálfræðingi) „Hafið þið ekki glatað barnæskunni?" Taylor: Þetta er krefjandi starf en við elskum það sem við erum að fást við. Zac: Þetta er að minnsta kosti betra en að vera endurskoðandi. Taylor: Svo sannarlega, við gæt- um aldrei orðið endurskoðendur. Sérstaklega ekki þú, Zac. Þú ert ólæs, manstu það ekki? Er það ekki erfitt að tengjast ein- hverju fólki náið þar sem þið eruð svona uppteknir? Taylor: Við höfum fengist við þetta síðan ég var sex ára svo við höfum alltaf verið ólfldr öðru fólki. Eg held reyndar að sú staðreynd að ég er næstum aldrei heima sýni hverjir raunverulegir vinir mínir eru og hvaða sambönd eigi að virkja. Ef bamæskuvinir mínir vilja enn halda sambandi við okkur þó við sjáum þá sjaldan gerir það þá að raunveruleg- um vinum. Ike: Það er merkilegt að fólk haldi að barnæska okkar hafi verið tekin frá okkur. Stundum þegar vinir mín- ir hringja og biðja mig um að koma að gera eitthvað og ég segi að ég þurfi að fara til Evrópu að vinna og þeir segja mér með öfundartón í rödainni hversu heppinn ég sé þá rennur það upp fyrir mér að ég er bara nokkuð lánsamur. Hvað með stelpur, kærustur? Taylor: Við erum ekki með nein- um á föstu. Ike: Eg var með stelpu fyrir ekki svo löngu. Sambandið stóð yfir í... ekki svo lengi. Það gekk ekki upp. Taylor: Þar sem við ferðumst svona mikið þá er það erfitt fyrir okkur að hitta stelpur, en það skiptir ekki svo miklu máli. En ef ég hitti réttu manneskjuna, þá held ég að ekkert myndi aðskilja okkur. Ike: Ef við myndum segja að við ættum kærustur þá myndu aðdáend- ur okkar komast að því hvar þær ættu heima, hvað þær hétu og það myndi án efa verða þeim til ama. En þessa stundina eru við bara að hitta stelpur og fara á stefnumót, ekkert meira. Lögin samin í sameiningu Lýsið fyrir mér hvemig þið semjið lög. Taylor: Þetta er mikil samvinna. Stundum kemur einn okkar með hugmynd og síðan bytjar bara bolt- inn að rúlla. Ike: Þetta getur byrjað með gítar- sólói, sem kemur hlutunum á hreyf- ingu. Hafið þið grætt mikið? Zac: Við höfum grætt meira en okkur gat órað fyrir. En peningamir okkar eru bara í bankanum. Við höf- um ekki snert eyri. Eini munaðurinn sem við höfum keypt okkur eru fjór- hjólin og það var fyrir tveimur árum. Nú eruð þið í góðum málum og allt virðist leika í lyndi. Hvernigfáist þið við slæmu dagana þegar þeirkoma? Taylor: Við fáumst við slæmu dag- ana eins og við fáumst við þá góðu, við fáumst bara við þá. Við erum í hljómsveit og eins og svo mörg önn- ur störf kostar það blóð, svita og tár. Slæmu dagarnir er þegar maður þarf að spila á stað eins og Pizza Hut eða þegar enginn mætir á tón- leikana. Við höfum auðvitað lent í þessu. Enginn gerði okkur að því sem við erum, við gerðum þetta sjálfir. Er ekki auðvelt að láta frægðina stíga sér til höfuðs? Taylor: Maður verður bai-a að hugsa um hinar hljómsveitirnar. Það eru svo margar hljómsveitir þarna úti sem hafa selt margfalt fleiri plöt- ur en við. Við getum ekla látið frægðina stíga okkur til höfuðs, við erum ekki það frábærir. Ike: Við höfum haft aðdáendur í fjögur ár og við vitum að það er bara einn af þáttunum við frægðina og tengist okkur ekkert sem persón- um. Ef við værum ekki til staðar þá myndu þeir án efa horfa til einhverj- ar annarar hljómsveitar. Þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta ekki um frægðina. Það er gaman að fólk kaupi plöturnar okkar, en það mikil- vægasta er að við höfum gaman af því að semja tónlist og við skemmt- um okkur jafn vel heima að spila fyrir enga áhorfendur. Ef manni líð- ur vel með það sem maður er að skapa þá skiptir ekki máli hvað aðr- ir hugsa. Höfundur er blaðamaður þjá um- boðsskrifstofunni Bang í Bretlandi. ERLENDAR O0OQQ Valdís G. Gregory fjallar um nýjasta geisladisk hljómsveitarinnar Hanson, This TimeAround. Þroskaðri Han- son-bræður Hanson-bræður kunna að semja grípandi lög. LOKSINS er komin önnur breið- skífa Hanson-bræðranna. Það eru rúm tvö ár síðan fyrsta breiðskífan þeirra kom út en hún hét Middle of Nowhere. Mörg vinsæl lög voru á henni, m.a. MmmBop, I Will Come to You og Where’s the Love. Hanson eru þrír bræður frá Tulsa, Okla- homa, sem heita Ike, Tay og Zac. Nýja plata þeirra Hanson-bræðra, This Time Around, inniheldur 13 lög, m.a. lögin If Only sem margir ættu að kannast við og nýju smáskífuna þeirra sem heitir einfaldlega This Time Around. Hanson-bræður semja öll lögin sjálfir. Öll lögin hafa mjög skemmti- lega laglínu. Hanson-bræðurnir hafa þroskast mikið eins og maður heyrir á lögunum og röddunum. Lögin þeirra eru mjög grípandi og maður getur ekki bara setið og hlustað á lögin þehra heldur verður maður að syngja með. Það er mjög auðvelt að læra lögin, sérstaklega viðlögin. Öll lögin eru mjög rokkuð nema tvö þeirra: Love Song og A Song to Sing. Þegar diskurinn var nýkominn út hafði ég heyrt að þessi diskur væri mjög góður og þeir sem væru ekki miklir aðdáendur Hanson myndu breyta um skoðun á þeim. Ég hélt að þetta væri bara lygi en ég sá að mér skjátlaðist þegar ég byrjaði að hlusta á diskinn. Þetta er mjög vandaður diskur í alla staði og það var alveg þess virði að bíða svona lengi eftir þessarri plötu. Skemmtilegustu lögin að mínu mati eru You Never Know sem er mjög grípandi og fjörugt, If Only sem flestir hafa heyrt, en það lag er mjög lflrt laginu Where’s The Love sem var á diskinum Middle of Nowhere; svo er það lagið This Time Around sem verður næsta smáskífa þeirra og það lag er uppáhaldslagið mitt á plötunni. Lagið byijar rólega en verður svo ekta Hanson-lag. Lag- ið A Song to Sing er einnig skemmti- legt, það er mjög rólegt, það er eins og Hanson vilji alltaf hafa rólegu lög- in síðustu lögin á diskunum vegna þess að á fyrsta diski þeirra var lflca rólegt lag síðasta lagið á diskinum. Ef Hanson hefðu verið uppi á 6. og 7. áratugnum hefðu þeir algjörlega slegið í gegn. Eg mæli með þessum diski fyrir alla, þótt ykkur finnist Hanson ekk- ert æðislegir, eins og mér, mynduð þið samt örugglega hafa gaman af þessum diski. Heimasíða Hanson er www.hansonIine.com. NÝJA BÍLAHÖLLIN þ. km, Biillsans.. 5 b, 1B" álfelgur, saml. Verfl 1.590.000. Áhv. lán. VWGolfU GIi Turbo, árg. 00, ek. 1 þ. km, 5 g, silfur, 16” álfelgur, sóll., álfelgur og II. Verð 2.190.000. 36 þ. km. vínrauöur, 5 g, áltelgur, geislasp. og II. VerS 1.45016. Atfi. skipti. Funahöfða 1, www.notadirbilar.is Opið til kl. 21 á fimmtudögum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.