Morgunblaðið - 15.07.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 23
NEYTENDUR
Þýskar verslunarkeðjur íhuga bflasölu
M' . •
mm k ! !| í -í’.- I
& | III • ■ '#t f
ii 'áiillltlMS Bs. j ; ... § S ÍiTmr' '■
Morgunblaðið/Kristinn
Þýsku vöruhúsakeðjurnar eru tilbúnar í bflasöluna en enn sem komið er eiga þær í erfiðleikum með að fá
bifreiðar frá bflaframleiðendum.
Utlit fyrir allt að 25 pró-
sent lækkun á bflverði
Berlfn. Morgunblaðið.
í VIKUNNI féll dómur hjá
Evrópska dómstólnum í Lúxem-
borg gegn bílaframleiðandanum
Volkswagen. Fyrirtækinu er gert að
greiða 176 milljón marka sekt vegna
aðgerða sinna í upphafi síðasta ára-
tugar. Þá reyndi fyrirtækið að koma
í veg fyrir að Volkswagen-umboðið
á Ítalíu seldi Þjóðverjum bíla sem á
þeim tíma voru allt að 30% ódýrari á
Italíu en í Þýskalandi.
I kjölfar dómsins íhuga þýskar
verslunarkeðjur á borð við Otto og
Karstadt nú alvarlega að hefja bíla-
sölu. Evrópusambandið leggur
mikla áherslu á að koma á frjálsri
bflasölu og er útlit fyrir að bundinn
verði endi á verðstýringu bflafram-
leiðenda í síðasta lagi árið 2003.
Mario Monti, formaður samkeppn-
isnefndar Evrópusambandsins, hef-
ur gagnrýnt verðeinokunina harð-
lega og telur hana hvorki
viðskiptavinum né söluaðilum í hag.
Frjáls samkeppni á bflamarkaðnum
mun lækka verð á nýjum bflum um
allt að 25% skv. neytendakönnun.
Þýskar vöruhúsakeðjur hafa nú
þegar reynslu af sölu bfla í verslun-
um sínum. Fyrir einu ári buðust til
sölu kóreskar Kia-bifreiðar sem
voru 43% ódýrari en í hefðbundinni
umboðssölu. Aætla má að verð
Volkswagen Golf sem kostar nú
35.000 mörk eða um það bil
1.300.000 krónur myndi lækka um
9.000 mörk eða niður í um 975.000
krónur ef sala vöruhúsakeðjanna
nær fram að ganga. Forsvarsmenn
stórmarkaðanna sjá fyrir sér að
selja megi bfla í gegnum verðlista,
Netið og í vöruhúsum þeirra. Vöru-
húsakeðjumar eru tilbúnar í bílasöl-
una en enn sem komið er eiga þær í
erfiðleikum með að fá bifreiðar frá
bflaframleiðendum. Rök bílaiðnað-
arins gegn sölu til vöruhúsanna eru
þau að einungis umboðsmenn séu
færir um faglega sölu svo og við-
gerðarþjónustu. Að mati sérfræð-
inga er þó ekkert því til iyrirstöðu
að vöruhúsakeðjurnar veiti slíka
þjónustu. Fyrirtækin Daimler-
Chrysler, Opel, Renault og Peugeot
eiga nú yfir höfði sér sambærilega
dóma og þann sem Volkswagen
hlaut íyrr í vikunni. Neytendur geta
því búist við að söluverð bifreiða
lækki töluvert þegar verðeinokun-
inni verður aflétt og víst er að mark-
aður er iyrir sölu bfla á hagstæðu
verði.
^úðkaupsveislur—úttsomkomur -
skemmtanir — tónleikar — sýningar—kynningar og fi. og fl. og fl.
..og ýmsir fylgihlutir
Ekki treysta ó veðrið þegar
“ skipuleggja ó eftirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald
ó staoinn - það marg borgar sig.
Tjöld af ollum stœrðum fró 20 - 700 m2
Einnig: Borð, stólar, tialdgólf
og tjaldhitarar.
skátum á heimavelli
síml 5621390 • tax 552 6377 • Ws@scout.ls
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
4. flokki 1992 - 27. útdráttur
4. flokki 1994 - 20. útdráttur
2. flokki 1995 - 18. útdráttur
1. flokki 1998 - 9. útdráttur
2. flokki 1998 - 9. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. september 2000.
Ötl númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess liggja upplýsingar frammi hjá íbúðalánasjóði,
í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
Ibúðalánasjóður
A
Magnús Scheving fyrir hönd
Latabæjar og og Kári Kárason
fyrir hönd Flugleiða undirrita
samstarfssamninginn.
Samstarfs-
samningur
Flugleiða-
hótela og
Latabæjar
FLUGLEIÐAHÓTEL hf. sem reka
Edduhótelin og Icelandair hotels
og Latibær ehf. hafa gert með sér
samstarfssamning. Samningurinn
gildir í sumar og felur í sér að öll-
um börnum sem gista á Eddu- eða
Icelandair-hóteli verður gefin
Leikjabók Latabæjar sem inni-
heldur alls konar þrautir, inyndir,
límmiða og margt fleira. Á öllum
hótelunum er sérstök Latabæjar-
dótakista með dóti sem börn mega
Ieika sér að og pappírsfígúra úr
Latabæ. Á mörgum hótelanna
verða haldnir svokallaðir Lata-
bæjarleikar þar sem leikarar úr
Latabæ koma á staðinn og sjá um
íþrótta- og leikjahátíð og bama-
ball að henni lokinni.
Börn vilja ekki nota hlífar á línuskautum
Nauðsynlegt að
nota öryggisbúnað
Morgunblaðið/Halldór
Lmuskautar eru vinsælir hjá öllum aldurs-
hópum en vissara er að nota hjálma og hlíf-
ar til að forðast meiðsli.
„VIÐ höfum orðið vör
við að börn eru treg til
að nota öryggisbúnað á
línuskautum en nú er sá
tími ársins þegar þeir
era hvað mest notaðir."
segir Herdís Storgaard
hjúkrunarfræðingur og
framkvæmdastjóri Ár-
vekni. „Það eru helst
yngstu bömin sem vilja
nota hjálma og hlífar en
þau eldri era illfáanleg
til þess. Það er auðveld-
ara fyrir foreldra að
setja notkun öryggis-
búnaðar sem skilyrði
fyrir því að yngri bömin
fái línuskauta en það er
öðruvísi þegar börnin era
orðin eldri og geta jafnvel
stjómað kaupunum
sjálf.“ Hún segist ekki
vita til þess að nokkurs staðar hafi
verið settar reglur um notkun ör-
yggisbúnaðar á línuskautum en
engu að síður sé nauðsynlegt að
nota hann. „Fólk getur slasast illa á
línuskautum en áverkarnir eru mis-
jafnir eftir því hvað menn em langt
komnir. Til dæmis er algengt að
byrjendur detti beint á höfuðið en
algengara er að þeir sem lengra era
komnir setji hendurnar fyrir sig
þegar þeir detta.“ Að sögn Herdís-
ar era til mjúkar hlífar, einskonar
grifflur sem varaa því að húðin á
höndunum rispist en líka eru til
harðar handhlífar með jámi eða
harðplasti sem dreifa högginu og
eiga að draga úr líkunum á úlnliðs-
broti. Hún mælir sérstaklega með
að böm séu látin nota olnbogahlífar
því slæmt geti verið fyrir börn á
aldrinum sex til tólf ára að olnboga-
brotna því þá eru beinin á ákveðnu
vaxtarskeiði. Þá mælir hún með
notkun hjálma á línuskautum.
„Hægt er að nota hjólreiðahjálma á
línuskautum því samkvæmt nýjum
stöðlum em hjálmarnir hannaðir
með það í huga að þeir séu líka not-
aðir á línuskautum. Það era líka til
svokallaðir brettahjálmar og ef
bömin vilja heldur nota þá á línu-
skautum er sjálfsagt að leyfa þeim
það.“
maestro
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT