Morgunblaðið - 15.07.2000, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 51
IDAG
i BRIDS
Ilmsjón riiiðmundur I'áll
Arnarson
HALDI suður vel á spilunum
getur hann komið vestri í lag-
lega klípu og sett honum þrjá
afarkosti. Samningurinn er
sex hjörtu og vestur hefur
sýnt öll háspilin í vörninni
með opnunardobli í byrjun:
Suður gefur; enginn á
| hasttu.
Norður
* 1095
* K10975
* AK3
* G10
Vestur Austur
* KD76 * 42
v 2 »84
♦ DG106 ♦ 98542
* K973 ♦ 8642
Suður
* ÁG83
* ÁDG63
* 7
*ÁD5
Vestur Norður Austur Suður
- - - lhjarta
Dobl Redobl 2tíglar Pass
Pass 4 hjörtu Pass 6hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil vesturs er tígul-
drottning. Sér lesandinn
| hvernig hægt er að vinna
j spilið?
Það er augljóslega hægt að
einangra tíguhnn, senda
vestur inn á spaða og láta
hann spila sér í óhag. Bn það
eitt út af fyrir sig er ekki nóg,
því vestur fær alltaf annan
slag, annaðhvort á laufkóng
eða spaða. Vandinn er sá að
tígulkóngurinn nýtist ekki
sem niðurkast heima. Og
i raunar væri betra að skipta á
tígulkóng og óbreyttum
j hundi, þvi lykilspilamenn-
1 skan felst í því að trompa tvo
tígla heima! Bæði fjórði spað-
inn og þriðja laufið eru nefni-
lega mildlvæg hótunarspil.
Nú erum við komin á spor-
ið: Sagnhafi trompar báða
tíglana og tekur tvisvar
ti'ornp, en sendir síðan vestur
inn á spaðadrottningu. Þá er
staðan þessi:
Norður * 95 » 1075 ♦ - + G10
Vestur Austur
* K76 + 4
» - v -
♦ G ♦ 98
* K97 Suður * ÁG8 ¥ 6 ♦ - + ÁD5 + 8642
Vestur á út og getur enga
björg sér veitt: (1) Ef hann
spilar spaða frá kóngnum
tekur sagnhafi laufásinn,
spilar trompunum til enda og
hendir laufum heima. Vestur
neyðist þá til að henda lauf-
kóng eða fara niður á spaða-
kónginn blankan. (2) Spili
vestur laufi upp gaffalinn
tekur sagnhafi spaðásinn og
spilar trompunum og hendir
spaða heima. Svipuð þvingun
í svörtu litunum. (3) Þriðji
kostur vesturs er að spila
tígli í tvöfalda eyðu. Þá hend-
ir sagnhafi spaða úr borði og
stingur heima, en trompsvín-
ar síðan íyrir spaðakónginn.
Árnað heilla
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 26. desember sl. í
Innri-Njarðvíkurkirkju af
sr. Olafi Skúlasyni biskup
Sigrún Sævarsdóttir og
Paul Griffiths. Heimili
þeirra er í London.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 3. júní sl. í Háteig-
skirkju af sr. Sigurði Amar-
syni Anna Þorsteinsdóttir
og Orri Hauksson.
Með morgunkaffinu
Nei vina mín, gett
ÞÚ hver.
SKÁK
IJmsjón lleljfi Áss
Grétarssnn
Staðan kom upp á svæða-
mótinu í Jerevan og var á
miili stórmeistaranna Vasil-
ios Kotronias (2.539), hvítt,
og Armenans Ashot Anasta-
sjan (2.606). 9. Rxf7! AI-
þekkt stef en engu að síður
snoturt. 9. ... Bb4+ Hinu
nærtæka 9.... Kxf7 væri vel
svarað með 10. Rg5+ Ke8
11. Rxe6 Dc812. Bf4 og hvít:
ur hefur vinningssókn. I
framhaldinu teflir hvítur
áfram af íitonskrafti. 10. c3
Bxf3 11. Dxe6+ De7 12.
Dxe7+ Bxe7 13. Rxh8 Bd5
14. 0-0 Bg8 15. Hel Kf8 16.
h3 Bd6 17. Bg5 Rb6 18. b3
Rbd5 19. c4 Rb4 20. Bf5
Hd8 21. d5! a5 22. He3 b6
23. g4! Ra6 24. Hf3 Rc5 25.
Bd2 og svartur gafst upp
enda getur hann ekki varist
g4-g5 hótuninni með góðu
móti. Upphafsleikirnir í
þessari stuttu skák voru
þessir: 1. e4 e6 2. d4 d5 3.
Rd2 dxe4 4. Rxe4 Bd7 5. Rf3
Bc6 6. Reg5 Be7 7. Bd3 Rd7
8. De2 Rgf6 og núna er stað-
an á stöðumyndinni komin
upp.
ÆTTJARÐARKVÆÐI
Vetrarlangt yfir landið
leituðu móðir vindar
flettu bylgjublöðum
blásinn mel lásu
þyrluðu ryki rauðu
riðu sörlum skýja
skimuðu krók og kima
á kaldri moldu.
Störðu stjörnubleikar
stóreygar nætur, fleyguðu
kurlaðan gróður, kaljörð
kastljósi tungls,
féUu skuggar af fjöllum
fylltu byggð og dali
hrundu í hljóðu brimi
um hraunflúð dökka.
Sálduðu hvítum salla
seiðker ellidauða
vöfðu hjúpi af hreinleik
hrjóstur sorablökk
svo að auðvelt yrði
úlfahjörðum vinda
reikul spor að rekja
renna í dreyraslóð.
Hannes Sigfússon.
liMiN.RÉTTIiftlGAR
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Það er ýmislegf á seyði í
kring um þig og skiptir ákaf-
lega miklu máli, að þú getir
greint kjarnann frá hisminu.
Flýttu þér umfram allt hægt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú getur ekki reiknað með að
fá glögga vitneskju um hlut-
ina, ef þú nennir ekki að
sækja svör við þeim spurn-
ingum, sem skipta máli.
Harkaðu afþér.
Tvíburar .
(21. maí-20.júní) nn
Þú ættir að gefa þér meiri
tíma til þess að taka til hend-
inni heima við og láta aðra um
sína hluti á meðan. Þú þarft
ekki að stjórna öUu og öilum.
Krabbi
(21.júní-22. júlí)
Einhverjir undirstraumar
fljóta um vinnustað þinn.
Reyndu að halda ró þinni,
hvað sem á dynur, því þegar
öidurnar iægir stendur þú
með pálmann í höndunum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Þú ættir að staldra aðeins við
og hugleiða þær viðtökur sem
störf þín fá. Ef þér finnst eitt-
hvað að þeim ættirðu að hug-
leiða, hvað kann að valda.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) ðDSL
Það er allt í áttina hjá þér og
ástæðulaust með öllu að vera
með einhverja feimni gagn-
vart öðrum. Þú átt eftir að
uppskera laun erfiðis þíns.
(23. sept. - 22. okt.)
Einhver gamall kunningi læt-
ur í sér heyra og skilaboðin
koma róti á hug þinn. Láttu
fortíðina lifa í minningunni en
ekki vera þér fjötur um fót.
Sporðdreki
(23. okt. -21. nóv.)
Til þín verður leitað um for-
ystu fyrir verkefni, sem þig
hefur lengi dreymt um að
starfa við. Gríptu tækifærið,
annað væri hreint glapræði.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) fllk/
Guð hjálpar þeim sem hjálpa
sér sjálfir. Drífðu í hlutunum
í stað þess að sitja bara á
rassinum og bíða þess að aðr-
ir taki af þér ómakið.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar) émt
Þú stendur frammi fyrir
ákaflega erfiðri ákvörðun, en
staðfesta þín mun afla þér
virðingar samstarfsmanna
þinna. Hlýddu þinni innri
rödd.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.)
Það er skilyrði fyrir árangri
að menn kunni að setja sér
takmörk. Að ætla sér að
gleypa heiminn er vísasta
leiðin tH þess að ekkert tak-
ist.
Fiskar mt
(19. feb. - 20. mars) MW*
Reyndu að leita samstarfs við
aðra um þau verk, sem þú
getur ekki hrint einn í fram-
kvæmd. Vandaðu val á sam-
starfsmönnum svo allt gangi
upp sem bezt.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FRÉTTIR
STJÖRIVUSPÁ
eftir Franees Hrake
KRABBI
Afmælisbam dagsins:
Rólyndi þitt undirflestum
kringumstæðum gerir þig
vel til forystu fallinn. Mundu
að vera hreinskiptinn.
Nýr framkvæmdastjóri
Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík
Stefnt að því að efla
safnaðarstarfið
Kristnihátíð í Borgar-
fj ar ðarpr ófastsdæmi
HÉRAÐSMESSA verður við Kross-
laug í Lundarreykjadal, sunnudaginn
16. júlí kl 14. Við Krosslaug í Lundar-
reykjadal voru vestanmenn skfrðir á
leið frá Alþingi árið 1000. Þessa verð-
ur minnst með messu á merkum
sögustað.
Prestar prófastsdæmisins þjóna í
messunni. Séra Flóki Kristinsson,
sóknarprestur á Hvanneyri, predik-
ar. Félagar úr kirkjukórum prófasts
dæmisins leiða söng. Ungmenni fara
fyrir skrúðfylkingu. Barn verður
borið til skírnar.
Borgffrðingar og ferðafólk eru
hvattir að mæta til guðsþjónustunn-
ar, eiga saman lofgjörðarstund og
þakka samfylgd kristni og þjóðar í
þúsund ár, segir í frétt frá messuboð-
endum.
aðarstarfs hjá Bústaðakirlgu.
Hreiðar hefur þýtt töluvert af
kristilegu barna- og æskulýðsefni frá
Danmörku og Bretlandi, m.a. bókina
„Fræðslustund í snatri“ sem kom út
árið 1998 og bókina „Leikir og létt
gaman“ sem er leikjasafn til nota í
bama- og æskulýðsstarfi, skólum og
á heirralum og kom út árið 1999.
Hreiðar Örn er kvæntur Sólveigu
Ragnarsdóttur.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
er fjölmennasti söfnuður landsins ut-
an þjóðkirkjunnar með um 5.400
safnaðarfélaga, sem búa flestir á höf-
uðborgarsvæðinu. Undanfarin tvö ár
hefur söfnuðurinn stækkað um 9%.
Þá hefur safnaðarstarf verið í tals-
verðri þróun.
Með hinu nýja starfi framkvæmda-
stjóra og ráðningu Hreiðars til Frí-
kirkjusafnaðarins er ætlunin að end-
urmóta og efla safnaðarstarfið
verulega og enn fremur að fylgja eftir
hinni jákvæðu þróun sem er í starf-
semi safnaðarins.
Síðumúla 13
Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir
Krosslaug í Lundarreykjadal.
HREIÐAR Örn
Zoega Stefánsson
hefur verið ráðinn
í nýtt starf fram-
kvæmdastjóra
Fríkirkjusafnað-
arins í Reykjavík.
Hreiðar mun
ásamt safnaðar-
presti sjá um al-
menna uppbygg-
ingu á safn-
aðarstarfi, eink-
um meðal barna og unglinga, og hafa
umsjón með útbreiðslumálum og
daglegum rekstri safnaðarins.
Hreiðar stundaði nám í félags- og
æskulýðsmálafi’æði í Danmörku.
Hann hefur reynslu af starfi að æsku-
lýðs- og safnaðarmálum og hefur
sinnt trúnaðarstörfum innan
kirkjunnar ásamt því að vera leiðtogi
í bama- og æskulýðsstarfi frá árinu
1979. Hann var m.a. æskulýðsfulltrúi
hjá Landakirlqu og hefur undanfarin
fjögur ár verið umsjónarmaður safn-
Hreiðar
Örn Zoega
Stefánsson
«.■ .
jkl