Morgunblaðið - 20.07.2000, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 20.07.2000, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ungmennafélag Islands og Island án eiturlyfja taka höndum saman í forvörnum Hvetja til samveru- stunda fj ölskyldunnar ISLANDS Morgunblaðið/Jim Smart Ingibjörg Pálmadóttir ráðherra fylgdi verkefninu úr hlaði. Við hlið hennar er Þórir Jónsson formaður UMFÍ. FJÖLSKYLDAN SAMAN - notum tímann vel er heiti á forvarnaverk- efni sem Ungmennafélag Islands, í samstarfi við átakið Island án eitur- lyfja, hrindir af stað nú um helgina og standa mun fram í september. Er í verkefninu lögð áhersla á samveru- stundir fjölskyldunnar og mikilvægi þeirra í forvarnastarfi meðal bama og unglinga. Nýtur verkefnið stuðn- ings Afengis- og vímuvarnaráðs og ráðuneyta, en verndari þess er Ólaf- ur Ragnar Grímsson, forseti Islands. Dagbók fjölskyldunnar Á blaðamannafundi um verkefnið sem haldinn var í gær kynnti María Stefánsdóttir, verkefnisstjóri UM- FÍ, Dagbók fjölskyldunnar sem dreift verður til ungmennafélaga og á sundstaði um land allt á næstu dögum. Gefst þar kostur á að skrá niður þá daga sem fjölskyldan eyðir saman og hvað hún gerir á þeim dög- um. Takist fjölskyldunni að fylla út 20 daga á tímabilinu 23. júlí til 10. september getur hún skilað bókinni inn til UMFI og á þá kost á vegleg- um og fjölskylduvænum ferðavinn- ingum innanlands. Opnunarhátíð verkefnisins verður á sunnudaginn, 23. júh', klukkan 16 og er hún haldin á vegum Stjömunn- ar í Garðabæ. Ætla Stjörnumenn að slá upp heljarmiklu kamivali með leiktækjum, hestaferðum, grillmat og tónlist og verður þar nóg við að vera fyrir alla fjölskylduna. Samverustundirnar dýrmætur sjóður Á fundinum sagði Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra meðal annars að nýjustu kannanir bentu til góðs árangurs af öflugu for- vamastarfi síðustu ára. Einnig sagði Ingibjörg allar kannanir benda til þess að börn og unglingar vilji í raun eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni en margir halda, og því væri þetta átak, Fjölskyldan saman, kærkom- inn stuðningur við það sem í raun væri vilji svo margra. „Góðar stundir með fjölskyldunni em afskaplega dýrmætur sjóður sem hver og einn á, og það er sjóður sem við göngum í þegar á bjátar í lífinu,“ sagði Ingi- björg. Hluti stærra verkefnis Fjölskyldan saman er hluti stærra verkefnis á vegum UMFÍ sem nefn- ist Loftskipið. Er hér um annan hluta þess verkefnis að ræða, en fyrsti hlutinn var fundaherferð sem farin var um landið til að kynna störf UMFÍ og ísland án eiturlyfja að for- vamamálum, auk þess sem fulltrúar sveitarfélaganna kynntu hvernig staðið væri að forvamamálum á hverjum stað. Þriðji og síðasti hluti þessa verk- efnis verður síðan unglingaráðstefn- an „Jeg tarf ekki sjuss,“ sem haldin verður þann 12. október í Ráðhúsi Reykjavíkur. Greipur Gíslason, 18 ára útvarps- og leikhúsmaður frá ísafirði, kynnti ráðstefnuna á blaða- mannafundinum í gær og sagði þá meðal annars að megintilgangur ráðstefnunnar væri að kynnast öllu því jákvæða og uppbyggjandi starfi sem ungt fólk er að fást við um land allt. Sagði hann heiti ráðstefnunnar sótt í þekkt atriði kvikmyndarinnar Stellu í orlofi, þegar Salomon Gustafsson uppgötvar að hann hafi meiri ánægju af laxveiðum en af drykkju áfengis. „Staðreyndin er nefnilega sú,“ sagði Greipur, „að á meðan unglingar em uppteknir við að starfa að uppbyggjandi verkefn- um em þeir ömgglega ekki að gera eitthvað sem þeir ættu ekki að vera að gera.“ Viðvörun- arkerfi í gang í Leifsstöð BILUN í brunaboða olli því að viðvörunarkerfi fór í gang í Leifsstöð rétt fyrir hádegi í gær og var beðið um að bygg- ingin yrði rýmd. Að sögn lög- reglu á Keflavíkurflugvelli vom þetta falsboð. „Þetta hefur komið nokkr- um sinnum upp áður. Það á hins vegar að vera hægt að stoppa brunaboðann áður en viðvörunarkerfið fer í gang til að athuga hvað er í gangi. Það misfórst hins vegar eitt- hvað og því hljómaði rödd Gunnars Eyjólfssonar [leik- ara] í viðvörunarkerfinu í nokkrar mínútur meðan gest- ir flugstöðvarinnar voru beðnir um að yfirgefa bygg- inguna. Síðan náðist að leið- rétta misskilninginn." Að sögn lögreglu tók starfsfólk atvikinu vel en farþegar kannski síður. Maður slasast við laxveiði MAÐUR sem var við lax- veiðar í Laxá í Aðaldal fót- brotnaði á þriðjudaginn þegar hann steig ofan í gjótu. Fótur mannsins mun hafa skorðast í gjótunni en lögreglan á Húsa- vík telur að maðurinn hafi öklabrotnað. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Ohappið varð skammt neðan við Æðarfossa en maðurinn hafði verið við veiðar í Laxá í Aðaldal í nokkra daga en ekki verið sériega fengsæll. Hálendiseftirlit á Suðurlandi Lögreglan mun sinna eftirliti vikulega LÖGREGLAN á Suðurlandi mun í sumar fara í vikulegar ferðir inn á há- lendið sunnanvert. Lögreglan mun í samvinnu við landverði og skálaverði veita ferðalöngum aðstoð og tryggja öryggi þeirra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglustjór- um á Suðurlandi „Sumarið 1999 veitti embætti Rík- islögreglustjóra fjárstyrk til að hægt væri að halda úti lögreglubifreið á há- lendinu og var hún mönnuð 2 lög- regluþjónum og lækni. Bifreiðin var Forstöðumaður Jafnréttisstofu Fjórir sóttu um FJÓRAR umsóknir bárust um starf forstöðumanns Jafnréttisstofu, en sem kunnugt er hefur verið ákveðið að staðsetja hana á Akureyri. Um- sækjendur eru: Elín Antonsdóttir, verkefnisstjóri á Akureyri, Gísli Þór Gunnarsson, sálfræðingur í Reykja- vík, Margrét María Sigurðardóttir, héraðsdómslögmaður á Húsavík, og Valgerður Bjarnadóttir, forstöðu- freyja á Akureyri. staðsett á hálendi Suðurlands frá föstudegi til sunnudags. Þessi ný- breytni þótti gefa góða raun, en var ærið kostnaðarsöm. Sótt var um fjár- veitingu þetta ár til svipaðrar starf- semi nú í sumar. Fjárbeiðninni var ekki hægt að sinna frá hendi ráðu- neytisins, enda kom hún ekki þangað fyrr en í apríl, eftir frágang fjárlaga, en þá var Ijóst að embætti Ríkislög- reglustjóra gat ekki lagt fram fé í há- lendiseftirlitið. Þessi mál hafa nýlega verið rædd við ráðherra dómsmála og hefur hún fullan skilning á málinu, sem er til athugunar þessa dagana. Lögreglustjórar á Suðurlandi vilja taka fram að löggæslu verður sinnt á hálendinu í sumar og hafa þegar ver- ið famar nokkrar ferðir þangað, þótt vissulega hamli þröngur fjárhagur, reglubundnu hálendiseftirliti líkt og á síðasta ári. Dagsferðir lögreglubfla verða farnar vikulega og munu embættin þrjú skipta verkefninu með sér. Þá verður kannað ástand ökumanna og bifreiða. Sérstaklega verður fylgst með akstri utan vegar, sem er strang- lega bannaður. Lögreglan mun veita ferðalöngum aðstoð og með sam- stilltu átaki landvarða, skálavarða og lögreglu mun vonandi takast að hafa góða reglu á hálendinu sunnanlands og tryggja öryggi ferðafólks." Mannúð í friði, saga Rauða kross íslands í 75 ár Starfíð erlendis vaxið mjög á síðustu árum Morgunblaðið/Kristinn Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, Margrét Guðmundsdóttir, höf- undur bókarinnar, Guðjón Magnússon, formaður ritnefndar, og Anna Þrúður Þorkelsdóttir, formaður RKÍ, við afhendingu bókarinnar á Bessastöðum í gær. FORSETA íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, var í gær afhent fyrsta eintak nýrrar bókar Margrétar Guðmundsdóttir, sagnfræðings, um sögu Rauða kross Islands. Var bókin afhent forsetanum við hátíð- lega athöfn á Bessastöðum í gær- dag, en forseti íslands er verndari RKÍ. I bókinni segir að stofnun Rauða krossins hér á landi, þann 10. des- ember 1924, hafi markað tímamót á ýmsan hátt í sögu mannúðarfé- laga á landinu. Forystumenn fé- lagsins, þeirra á meðal Sveinn Björnsson, fyrsti formaður RKÍ og síðar forseti Islands, hafi meðal annars séð hag í nánari tengslum við mannúðarsamtök á al- þjóðlegum grundvelli. Brautryðjandi á nyög breiðu sviði I formála Guðjóns Magnússonar, formanns ritnefndar, og Önnu Þrúðar Þorkelsdóttur, formanns Rauða kross Islands, stendur með- al annars: „Saga Rauða kross Islands sýnir svo ekki verður um villst að félagið hefur ávallt verið brautryðjandi á mjög breiðu sviði heilbrigðis-, félags- og fræðslu- mála. Með batnandi hag félagsins og öflugu félagsstarfi hefur verið hægt að sinna sífellt fleiri og stærri verkefnum, fyrst innanlands en síðar einnig erlendis." í eftirmála höfundar, Margrétar Guðmundsdótfur, segir meðal ann- ars: „I aldarlok nýtur Rauði kross Islands virðingar fyrir framlag sitt til hjálparstarfa erlendis. Viðhorf félagsmanna til alþjóðastarfsins hafa gjörbreyst á allra síðustu ár- um. Forysta félagsins hafði bug- rekki til að ganga gegn ríkjandi skoðunum landsmanna á þróunar- aðstoð og starfið crlendis hefur vaxið mikið siðastliðinn áratug." Bókin um sögu Rauða krossins hér á landi var fjögur ár í vinnslu, en hún er 443 síður og hefur að geyma ítarlegar skrár yfir stjórn- armenn, formenn deilda og hand- hafa heiðursmerkja félagsins. Útgefandi er Mál og mynd.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.